Dagblaðið - 28.11.1975, Síða 8
8
Magblaðið. Föstudagur 28. nóvember 1975.
Times um 200 mílurnar
VORUM VK> SVONA
HRÆDD VID RÚSSA?
,,Það er fremur ótti við
Rússa, Pólverja og Austur-
Þjóðverja en ótti við Breta, sem
veldur þvi að tslendingar hafa
fært landhelgina úr 50 milum i
200,” segir brezka stórblaðið
Times og telur sig hafa rök fyrir
þeirri staðhæfingu.
Blaðið vitnar i ummæli sendi-
herra tsl. i London, Nielsar P.
Sigurðssonar, og segir hann
hafa sagt eftirfarandi i blaða-
viðtali: ,,Hefðum við ekki
fært landhelgina út i 50 milur
árið 1972, hefði allur sovézki
flotinn komið til skjalann. Ef við
hefðum ekki fært út i 200 milur,
hefðum við fengið alla hina yfir
okkur, þeirra á meðal lika
Austur-Þjóðverja og Pólverja.”
Blaðið hefur eftir sendi-
herranum, að nýtizkulegir
fiskiskipaflotar þessara rikja
hefðu getað eyðilagt fiskistofna
við tsland á tveimur árum.
-HH.
Sýning FÍM:
KVÍÐA ÞVÍ ÞEGAR
MYNDIRNAR VERÐA
TEKNAR NIÐUR
Aðsókn hefur verið mjög góð
að sýningu Félags islenzkra
myndlistarmanna,” sagði
Bagnheiður Ream formaður
sýningarnefndar F.t.M.
Sýningunni sem stendur i
Norræna húsinu og á 12 vinnu-
stöðum lýkur á sunnudaginn.
Frá sýningu Félags islenzkra
myndlistarmanna i Norræna
húsinu. Aðsókn hefur verið góð
og lýkur sýningunni á sunnu-
daginn. PB. Ljósm. Bjarnleifur
Sagði Ragnheiður að þetta
uppátæki að vera með
sýninguna úti i bæ hefði mælzt
alveg sérstaklega vel fyrir og
það heyrðist hjá mörgum að
þeir kviðu fyrir þegar myndirn-
ar yrðu teknar niður.
„Með þessu höfum við komizt
i nánari snertingu við fólk og
komizt i kynni við nýjan hóp
listunnenda,” sagði
Ragnheiður. EVI
Lagmetið gerbreytir starfshóttum
NÚ ÆTLA ÞEIR
SELJA SJÁLFIR
Sölustofnun lagmetis hefur
sagt upp einkasölusamningi
sinum við fyrirtækið Tayo
Americas inc. i Bandarikj-
unum. Að dómi lagmetis-
stjórnarinnar hefur fyrirtækið
reynzt óhæft til að annast sölu á
islenzku lagmeti, enda vanefnt
að gera áformaðar tilraunir til
útbreiðslu, kynningar og sölu.
Er nú ákveðið að kanna mögu-
leika á eigin sölufyrirtæki
lagmetisins i Bandarikjunum.
Tayo Americas liggur nú með
mikið magn af óseldu islenzku
lagmeti sem þó hefur allt verið
greitt. Þannig hafa islenzkir
framleiðendur fengið andvirði
sinnar vöru en hið ameriska
sölufyrirtæki haldið að sér
höndum og ekki reynzt hæft til
að kynna þessar vörur á svo
þýðingarmiklum markaði sem
Bandarikin eru. Nokkuð af vöru
þeirri, sem Tayo Americas
liggur með, er reyndar ekki
söluhæft vegna skemmda sem
orðið hafa meðal annars vegna
rangra geymsluaðferða.
Refsitollar Efnahagsbanda-
lags Evrópu loka þvi sem næst
stórum og þýðingarmiklum
markaði fyrir Islenzkt lagmeti.
Slæmar horfur eru á sölu til
Japans eins og er vegna erfiðs
efnahagsástands þar i landi.
Útflutningur á lagmeti til
Sovétrikjanna hefur verið
nokkur og nam á þessu ári um
1.2 milljónum dollara.
Nýgerður rammasamningur við
þau riki gerir ráð fyrir að
minnsta kosti svipuðu magni.
Til að leita úrbóta á rekstri
Sölustofnunarinnar og frekari
markaðsöflun hefur stjórnin i
samráði við framleiðendur
lagmetis nú til athugunar að
koma á fót eigin sölu- og
dreifingarfyrirtæki i Banda-
rikjunum, eins og áður segir.
—BS
w w w
KIRKJUGESTIR FA SER
HEIMILI EFTIR MESSU
Að góðum og gömlum sið
ganga kirkjugestir Bústaða-
kirkju til kaffidrykkju eftir
messu á sunnudaginn kemur.
Safnaðarkonur bera fram veit-
ingar i hinu nýja félags- og safn-
aðarheimili Bústaðasóknar sem
nú er verið að innrétta. Ekki
ætti það að spilla lyst manna á
gómsætum brauðmat og kök-
um, að ágóðinn af veitingasöl-
unni rennur til þess að kaupa
eldhúsinnréttingu i heimilið og
ganga frá henni.
NU KAFFI
Frá þvi að kirkjan sjálf var
vigð, hefur smám saman verið
unnið að þvi að koma safnaðar-
heimilinu i sina endanlegu
mynd. Nú hillir sem sé undir
þann áfanga og er kirkjugestum
boðið að skoða húsakynnin og
njóta veitinga um leið og þeir
styrkja byggingarstarfið.
Klippimynd eftir Sigurð Örlygsson. Ljósm. PB Björgvin.
Tilraun með sölu-
„gallerí" á loftinu
fram til jóla
— Við ætlum að reyna að gera
tilraun með sölu-,,galleri” en
það hefur ekki verið til hér á
landi áður, sagði Björg Sveins-
dóttir verzlunarstjóri i verzlun
Helga Einarssonar Skólavörðu-
stig 4. Sýningarsalurinn Loftið
er til húsa fyrir ofan verzlunina.
— Við erum með 33 myndir á
Loftinu eftir 14 listamenn.
Fimm þeirra hafa haldið einka-
sýningar hér á Loftinu. Það eru
Hafsteinn Austmann, Jóhannes
Jóhannesson, Valtýr Pétursson,
Kjartan Guðjónsson og Bragi
Ásgeirsson. Aðrir listamenn,
sem eru með verk sin hér, eru
Benedikt Gunnarsson, Eirikur
Smith, Gunnar örn Gunnars-
son, Hallsteinn Sigurðsson,
Magnús Kjartansson, Sigurður
Sigurðsson, Sigurður örlygsson,
Sverrir Haraldsson og Þorvald-
ur Skúlason.
— Eru þetta bæði oliumyndir,
vatnslitamyndir, akvarelíur og
klippimyndir frá ýmsum tim-
um. M.a. má nefna myndir eftir
Sverri Haraldsson, sem hann
málaði fyrir 1960, og tvær
myndir eftir Sigurð Sigurðsson,
einnig sjaldgæfar.
Sýningarsalurinn verður op-
inn á venjulegum verzlunar-
tima næstu þrjár vikurnar
nema á morgun, opnunardag-
inn, þá verður opið til kl. 18 sið-
degis. A.Bj.
;k:-
I NYJU SAFNAÐAR
A .sunnudaginn er barna-
messa að venju kl. 11 fyrir há-
degi, og messað er kl. 2 eftir há-
degi, en þetta er sem kunnugt er
fyrsti sunnudagur i aðventu.
Að kveldi þessa nýársdags
kirkjunnar er almenn samkoma
i kirkjunni. Þar flytur Halldór
E. Sigurðsson ráðherra ræðu
kvöldsins, en hinn landskunni
kór öldutúnsskólans I Hafnar-
firði syngur. Þá syngur Bú-
staðakórinn og Birgis As Guð-
mundsson flytur orgelverk.
Eftir helgistund i umsjón sókn-
arprestsins, séra Ólafs Skúla-
sonar, verða svo aðventukertin
tendruð.