Dagblaðið - 28.11.1975, Qupperneq 9
Pagblaðið. Föstudagur 28. nóvember 1975.
9
feiinota? BING & GRÖNDAL FRUIN
OG SKÍTUGI HIPPASTRÁKURINN
— örstutt spjall við Jökul Jakobsson
um Feilnótu í fimmtu sinfóníunni,
nýja skóldsögu úr Reykjavíkurlífinu
„Nei, ég er á móti öllum
sálfræðingum, ekki persónulega
þó,” sagði Jökull Jakobsson
þegar Dagblaðið rabbaði
stuttlega við hann i gærdag i
tilefni þess að þann dag kom tit
hjá Erni og örlygi fyrsta skáld-
saga Jökuls í 15 ár, „Feilnóta i
fimmtu sinfóniunni.”
Jökull var að svara spurningu
blaðamanns þess efnis hvort
hann tryði á skýringu
sálfræðings i bók hans á ferðum
finnar frúar i hreysi skólapilts i
bingholtunum, elskhuga henn-
ar.
„Nei, ég trúi ekkert á
þvflika menn. Ég spurði einn
þeirra ráða þegar ég ætlaði að
fara að gifta mig öðru sinni.
Hann setti upp gáfulegan svip
og sagði: ,,Er hún sósialt
representativ? Ég hafði nú ekki
hugsað út i það. Nú, það er ekki
að orðlengja að ég giftist henni
bara. Og mér sýnist hún eigin-
lega enn betur „sósialt
representativ” heldur en ég
nokkurn tima.”
— Þú hefur þá kannski ekki
trú á útskýringum sálfræðings-
ins i „feilnótunni” á þessu
háttalagi frúarinnar þarna
uppi i Þingholtunum?
„Nei og aftur nei. Ég held að
ekkert sé eðlilegra en að þarna
sé um að ræða ást, jafnvel þótt
um andstæðar persónur sé að
ræða, strákhippann I greni sinu
ogfinu frúna þingmannsefnisins
úr Bing og Gröndahl
umhverfinu.”
— Hefurðu einhver lifandi
dæmi fyrir þér i þessari sögu?
„Nei, þetta er hrein skáldsaga
sem ég læt gerast i Reykjavik
og nágrenni. Ég hef engar
lifandi persónur fyrir mér.
Hinsvegar frétti ég af sauma-
klubbi nokkrum i finu hverfi i
Reykjavik. Ein kvennanna
hafði fengið njósnir af bókinni
og innihaldi hennar. Rakti hún
það fyrir saumaklúbbskonum.
Skilst mér að ein þeirra hafi
orðið alveg miður sin og lýst þvi
yfir að þarna væri bein lýsing á
hennar eigin lifi. Hvort þetta er
mjög algengt, það veit ég nú
ekki.
Ég ætlaði annars að kalla
þetta fyrstu bók. Mér finnst ég
eiga eftir að gera nánari skil
hippastelpunni henni Söndru.
Þetta er ný kynslóð, ekkert betri
kynslóð én hver önnur og
kannski ekkert verri. Kynslóö
sem telur sig hafa rikari rétt-
lætiskennd en menn hafa haft
áður en jafnframt kærulausari
og ábyrgðarlausari en við hin
sem stöndum i öllu
„strögglinu”. Þetta fólk er
kannski oftast gott inn við beinið
eins og allir en villir oft á sér
heimildir. Nú ef lif og heilsa
leyfir er ekki að vita nema ég
skrifi aðra bók um Söndru, það
er ekki að vita.”
Jökull segir skáidsöguna
annars vera hliðarhopp i rit-
störfum sinum. Hann skrifar
vikulega þætti i útvarpið og
leikritið er sem fyrr hans
sérgrein. Hann skilaði nýlega
leikriti til Þjóðleikhússins. Það
hafði verið i vinnslu siðan 1966.
Nú er það bara spurningin hvort
leikhúsið telur það hentugt til
flutnings eða ekki. —JBP
JÖKULL JAKOBSSON ásamt tikinni sinni, Kolu, hún varð
fyrir bfl þegar hún fór inn i Hafnarfjörð I haust til að komast á
lóðari. Það sækja fleiri en söguhetjan I Feilnótunni i önnur hverfi
eftir ástum.
HREINN LINDAL TENÓRSÖNGVARI
SYNGUR í AUSTURBÆJARBÍÖI
Hreinn Lindal.
Enn um bótsbrunann á
MISTÖKIN
„Dagblaðið kemur of sjaldan til
okkar hér a Seyðisfirði. Þvi valda
erfiðar samgöngur á þessum árs-
tima”, sagði Óttar Jóhannsson á
Seyðisfirði. „Það er af þeim sök-
um, að ég er svo siðbúinn með
mitt svar við athugasemd
slökkviliðsstjórans hér varðandi
frétt er ég tjáði Dagblaðinu um
bátsbruna. En vegna greinar
Theódórs Blöndals, slökkviliðs-
stjóra, 24.11 vil ég að eftirfarandi
komi fram.
Það er staðhæfulaust hjá
Theódór Blöndal, að slökkvistarf
hafi gengið vel. í fyrstu gekk
Hreinn Lindal tenórsöngvari
heldur söngskemmtun i Austur-
bæjarbiói á morgun kl. 15, undir-
leikari er Ólafur Vignir
Albertsson.
A efnisskránni eru átta lög eftir
innlenda höfunda, þá Sigvalda
Kaldalóns, Pál Isólfsson, Emil
Thoroddsen og Karl Ó. Runólfs-
son. Sjö lög eru eftir erlenda
höfunda Grieg, Schubert
Donaudi, Respighi og Tosti.
Hreinn Lindal er fæddur i
Reykjavik árið 1940 og hóf söng-
nám hjá Mariu Markan 1958. Arið
1960 hélt hann utan til söngnáms
Seyðisf irði:
ÁTTU SÉR
mjög illa að koma reglu á
slökkvistarfið.
Eins og Theódór Blöndal segir
orðrétt: „Það skal að visu yiður-
kennt, að það hefði getað farið
illa, vegna þess að froðuefnið var
geymt á plastbrúsum og nærri lá
að bensinbrúsi, sem ekki var
nægjanlega auðkenndur frá
kvoðubrúsanum, yrði tekinn i
misgripum.”
Þetta eru ósannindi vegna þess
að mistökin áttu sér stað. Bensin-
brúsinn var tekinn i misgripum.
Er það uppgötvaðist var rétti
og var á Italiu næstu sjö árin.
Lauk hann. námi með framúr-
skarandi vitnisburði.
Hreinn starfaði viðs vegar um
ítaliu og Sviss næstu þrjú árin.
1970 hóf hann að syngja við
Volksopera i Vinarborg. Frá 1972
dvaldist Hreinn i Bretlandi um
tveggja ára skeið og söng viða.
Um s.l. áramót kom Hreinn
heim til Islands. Hann hefur
unnið undanfarið undir hand-
leiðslu sins gamla kennara,
Mariu Markan, og haldið nokkrar
söngskemmtanir á Suðurlandi i
sumar. ^ Bj.
STAÐ
brúsinn sóttur ir.n á slökkvistöð.
Hvers vegna var slöngunni hent i
sjóinn og dælt úr henni? Til
einskis annars en hreinsa
bensinið sem i hana var komið.
Og eins og Theodór Blöndal held-
ur áfram og segir: ,,að fólk leiki
hreinlega trúða við tækifæri sem
þessi og fréttaskálóið ÓJ er
einmitt ágætt dæmi um slikt”. Þá
vil ég undirritaður taka það fram
að það var slökkvilið staðarins
sem lék stærsta trúðinn i þessu
tilfelli. Það er undirritaður tilbú-
inn að votta.
Óttar Magni Jóhannsson
MINNISVARÐI MERKRAR
KONU VIÐ GULLFOSS
Á Jónsmessuhátið Árnesinga-
félagsins sl. sumar var
ákveðið að félagið skyldi reisa
Sigriði Tómasdóttur i Brattholti
minnisvarða við Gullfoss.
Sigriður sem lézt árið 1957, 86
ára gömul barðist fyrir verndun
fossins. Þegar átti að virkja
fossinn hótaði hún að henda sér i
hann, ef af yrði. Varð hún lands-
kunn fyrir þetta brautryðjanda-
starf i náttúruvernd.
Árnesingafélagið hefur hafið
fjársöfnun i þessu skyni. Agóði af
spila- og skemmtikvöldi félagsins
næstkomandi laugardagskvöld
rennur i minnisvarðasöfnunina.
Formaður Arnesingafélagsins
er Arinbjörn Kolbeinsson læknir.
A. Bj.
TRÚIOFUNARHRINGAR
BREIDDIR: 3,4,5,6,7,8,9 og 10 mm
kúptir, sléttir og munstraöir
AFGREIDDIR SAMDÆGURS
Myndalisti ******** Póstsendum
Up og skapfcgpipip
JÓr og Öskar
Laugavegi 70, sími 24910