Dagblaðið - 28.11.1975, Side 13
íþróttir
Iþróttir
Pagblaöið. F’östudagur 28. nóvember 1975.
Fer keisarinn fró
Bayern Munchen?
Ef ég fæ gott tilboð erlendis frá mun
ég áreiðanlega taka þaö til gaumgæfi-
lcgrar athugunar. Þaö hefur alltaf
freistað min að leika erlendis — cn til-
boðið yrði að vera bæöi gott fjárhags-
lega og iþróttalega, sagöi fyrirliði
vestur-þýzku heimsmeistaranna I
knattspyrnu, Franz Beckenbauer, i
viötali við fréttastofuna SID í Pussel-
dorf i gær.
Franz „kcisari” er nú þritugur —
einn dáðasti og virtasti leikmaður
lieims. Ilann hefur vcrið i 17 ár hjá
Baycrn Munchen — og leikið þar lykil-
hlutverk i liðinu, sem tvö síöustu árin
hefur orðiö Evrópumeistari. Liöiö er
nú komið i átta-liöa úrslit keppninnar.
En Bayern Munchcn á i erfiðleikum
1 þýzku Bundesligunni — varð i tíunda
sæti i fyrra. Það hafa oröið mikil von-
brigði fyrir Beckenbauer — og ckki
bætti úr, þegar milljónir sjónvarps-
áhorfenda sáu bið niðurlægjandi tap
liðsins á laugardag i Frankfurt gegn
Eintracht 6-0. Eftir þann leik sagði
keisarinn og hann myndi ekki endilega
vcra hjá Bayern þar til samningur
hans við félagiö rennur út 1979.
Aðspurður hvort yfirlýsing hans
liefði aðeins verið gefin i vonzku vegna
tapsins Ijóta svaraði Beckenbauer.
Nei, þctta er ckkert grín — Bayern
gctur ekki gengið út frá þvi að ég veröi
hjá liðinu til eilifðar.
Vcrð Beckenbaucrs á sölumarkaöi
cr talið svipað og Barcelona gaf fyrir
Hollcndinginn Johan Cruyff — cða hátt
i eina milljón sterlingspunda. Hcnnes
Weisweiler, hinn vestur-þýzki þjálfari
Barcelona, sagðisl mundu fagna
Beckenbauer með opnum örkum ef
hann losnaði frá Bayern.
Hótt í 300 þátt-
takendur á fim-
leikasýningunni!
Þaö veröa hátt i 300 þátttakendur á fimleikasýningunni miklu i Laugardals-
höllinni á sunnudag — viðs vegar aö af landinu. Þessar fimleikasýningar eru
orðnar árlegur atburöur um mánaðamótin nóvember-desember og njóta mikilla
vinsælda, sagði Þórir Kjartansson viö Daghlaðiö i morgun.
Fimleikasamband tslands og tþróttakennarafélag tslands hafa flest árin haft
samstarf um þessar sýningar og svo er einnig að þessu sinni.
Til þessara sýninga var stofnað til að auka áhuga fyrir ýmsum greinum fim-
leika og til að gefa þciin kennurum og nemendum, sem hafa áhuga og ytri
aðbúnað, tækifæri til að vinna að skemmmtilegu verkefni.
A sýningunni 30. nóvember næstkomandi munu koma fram 260-300 þátttak-
endur frá mörgum skólum og félögum viðs vegar aö. Utan af landsbyggðinni
koma flokkar frá ísafiröi, Reykjaskóla I Hrútafiröi, Lauvatvagni og auk þess frá
skólum og félögum i Rvik, Kópavogi ogHafnarfirði. Þá sýnir einnig flokkur
frá Þjóðdansfélagi Reykjavikur, en Lúðrasveit skólanna I Kópavogi undir stjórn
Björns Guðjónssonar leikur við opnun sýningarinnar. Aö þessu sinni verður að-
cins ein sýning.
Þrír sigrar —
tapleikir hjó Lugi
Góöir i liði Lugi voru markvöröurinn
! Hans Jansson, tslendingurinn Jón
I ltjaltalin Magnússon og nýliöinn Claes
Ribendahl, skrifar Dagens Nyhcder
i eftir leik Malmö og Lugi i 1. deildinni
I sænsku um siðustu helgi.
t Skánar-derbie þessara liöa bar
Malmö sigur úr býtum 15—12 og náöi
þar með Lugi að stigum i deildinni.
Heim cr efst með tiu stig eftir sex um-
i ferðir. Rúmlega 2000 áhorfendur sáu
leikinn, sem háöur var i Malmö og þaö
var fyrirliði Malmö, Tommy Jansson,
scm iagði grunninn að sigri heimaliös-
ins. llann var markhæstur I leiknum
ineð sex mörk.
Jón Iljaltalin hefur staöiö sig vcl i
I.ugi-liðinu i huust, þó hann hafi ekki
skorað alveg jafn mikið af mörkum og
áður fyrr. i leiknum viö Malmö skor-
aöi hann fjögur mörk — og Claes
Ribendahl skoraöi einnig fjögur mörk
fyrir Lugi i leiknum, Ingvar Pcrsson 2
og þeir Göran Gustavsson og Sten Sjö-
gren citt mark hvor. Lugi hefur leikið
sex leiki. Ekki cr okkur kunnugt um
livað mörg mörk Jón Hjaltalin skoraði
I tveimur fyrstu lcikjum liðsins — en i
þeim 3ja skoraði liann 3 mörk — 5 i
þcim fjóröa og var þá markhæstur
leikmanna Lugi. 1 fimmta leiknum
þrjú mörk og nú fjögur. 15 mörk i fjór-
um lcikjum, sem cr ágætt.
Staöan í 1. dcildinni i Sviþjóð er nú
þannig:
Heim 6 5 0 1 130-103 10
Gulf 6 10 2 115-113 8
Frötunda 6 4 0 2 86-89 8
Lugi 6 3 0 3 118-100 6
Malmö 6 3 0 3 110-102 6
I»rott 6 3 0 3 97-100 6
Ystad 6 3 0 3 117-122 6
Kristianst. 6 2 0 4 105-110 4
Malmberget 6 0 0 6 104-141 0
orskir tippa mikið
i norsku getraununum nam þátttakan á siðasta ári alis 10.8 milljörðum isl.
jkróna, en leikvikur voru alls 52. Að meöaltali var þátttakan kr. 209 millj. isl. eöa
jsem svarar 70 kr. isl. á hvern Norðmann. Þessi velta skiptist þannig:
Vinningar 50% ..................kr. 5.347 millj.
. kr. 1.087 millj.
,kr. 944 millj.
. kr. 1.370 millj.
.kr. 2.055 millj.
1. krónuin 7 1/4 millj. og kom þaö 11 sinnum fyr-
| ir á sl. ári. Lægsti vinningur fyrir 12 rétta var 21.700 kr.
Þess skal getiö, aö Norömenn hafa tjáö sig reiöubúna til að ræöa islenzka aöild
jað sinum getraunum i hlutfalli víð þátttöku héðan.
Sölulaun, 10%
Reksturskostnaður .
Til iþróttamála...
Til annarra inála ...
Hámarksvinningur á röð er i is
Pagblaðið. Fimmtudagur 27. nóvember 1975.
Iþróttir
L
óttir
Iþróttir
íþróttii
en ekki
Iþróttir
Tœtt niður
bent á neinqr úrbœtur
Leikirnir við Júgóslavíu í Olympíukeppninni aðalatriðið og því stefnt að há-
marksœfingu landsliðsins á þeim tíma, segir Sigurður Jónsson, formaður HSÍ
Sá maðurinn, sem vakið hefur mesta athygli i liöi Manch.Utd. i haust
er hægri útherjinn Steve Coppell — eldfljótur, ungur leikmaður, sem
United fékk frá Birkenhead-liöinu Tranmere fyrir aðeins 40 þúsund
sterlingspund I fyrravor. Hann er nr. 7 á myndinni að ofan — sækir aö
markverði QPR — Phil Parkes. Liverpool-liðið hefur nagað sig I hand-
arbökin að ná ekki I Coppell — borgin Birkenhead er beint á móti Liver-
pool á syðri bökkum Mersey-árinnar.
Viö í stjórn Handknatt-
leikssambands islands
höfum reyntað finna beztu
leiðina í landsliðsmálunum
handknattleik eins og
málum er háttað hjá okkur
á íslandi. Ég man ekki ekki
eftir öðrum eins undirbún-
ingi í sambandi við einn
leik — Olympíuleikinn við
Jugóslava, sem verður 18.
desember — og hef ur v'erið
og verður nú fram að
leiknum. Þó hef ég verið i
þessum málum og fylgzt
með þeim um langt árabil,
sagði Sigurður Jónsson,
formaður Handknattleiks-
sambands islands, í viðtali
við Dagblaðið í morgun.
Gagnrýni sú, sem hefur verið
beint gegn okkur að undanförnu
er furðuleg. — Það getur ekki
verið jákvætt að reyna að tæta
allt niður, en benda ekki á neitt i
staöinn eins og gert hefur verið.
Það er sama sagan aftur og aft-
ur. Þessi gagnrýni er fyrir löngu
hætt að hafa áhrif á mig, þar sem
hún hefur verið byggð á svo veik-
um grunni og meira af persónu-
Friðrik og Sigur-
bergur í landsGðið
— Koma í stað Harðar Sigmarssonar og Gunnars Einars-
sonar, Haukum, sem ekki geta helgað sig landsliðinu
af persónulegum ástœðum
Við höfum valið tvo nýja leik-
menn I landsliöshópinn i hand-
knattleik i leikina við Luxemborg
og Noreg, sagði Viðar Simonar-
son, landsliðsþjálfari, við Dag-
blaðið I morgun. Það eru þeir
Friðrik Friöriksson, Þrótti, —
ungur vinstri-handar leikmaður,
sem skorað hefur mikiö fyrir lið
sitt, og Sigurbergur Sigsteinsson,
Fram, einn leikreyndasti leik-
maður i islenzum handknattleik,
sem leikið hefur yfir 70 landsleiki.
Þeir koma i stað Hauka-leik-
mannanna Harðar Sigmarssonar
og Gunnars Einarssonar, mark-
varðar, sem hafa dregið sig til
baka úr landsliðshópnum af per-
sónulegum ástæðum.
Hörður er i tannlæknanámi i
Háskólanúm og i desember er
framundan hjá honum i náminu
sérstakt námskeið. Það gæti jafn-
vel kostað árs seinkun i námi
ef hann fer út i þær miKiu æfing-
ar, sem framundan eru hjá lands-
liðsmönnunum.
Hörður hefur þvi ákveðið að
draga sig i hlé frá landsliðinu um
stund, þó hugur hans sé allur i
boltanum — en heimilisástæður
hjá Gunnari Einarssyni ráðaþvi,
að hann dregur sig einnig i hlé.
Tveir nýir leikmenn koma þvi i
landsliðshópinn — og þriðji mark-
vörðurinn verður valinn fyrir
Danmerkurförina i desember.
Landsliðið gegn Luxemborg i
Olympiukeppninni á sunnudag
verður þvi skipaö þessum mönn-
um:
Markverðir:
Ólafur Benediktsson, Val.
Guðjón Erlendsson, Fram.
Aðrir leikmenn:
Páll Björgvinsson, Viking.
Björgvin Björgvinsson, Viking.
Viggó Sigurðsson, Viking.
Axel Axelsson, Dankersen.
Ólafur H. Jónsson, Dankersen.
Jón Karlsson, Val.
Stefán Gunnarsson, Val.
Ingimar Haraldsson, Haukum.
Árni Indriðason, Gróttu.
Sigurbergur Sigsteinsson, Fram.
Friðrik Friðriksson, Þrótti.
Þeir Ólafur H. og Axel leika
ekki landsleikina við Norðmenn 2.
og 3. desember vegna leiks
Dankersen við Gummersbach,
sem skyndilega var settur á.
Ólafur Einarsson, Donzdorf,
kemur þá inn i liðið.
Þessir 14 leikmenn verða i
keppnis- og æfingaförinni til
Danmerkur og þá bætist einnig
Gunnar Einarsson, Göppingen, i
hópinn — og þriðji markvörður-
legum ástæðum. En hún hefur
verið afar slæm gagnvart þeim
mönnum, sem tekið hafa að sér
þjálfun landsliðsins — sama hver
á þar i hlut — og valið landsliðið.
íþróttir
RITSTJÓRN:
HALLUR
SIMONARSON "
Það hefur beinlinis verið mann-
skemmandi fyrir þá að standa i
þessu. Þeir hafa verið teknir
hroðalega i gegn, þó þeir hafi
unnið af miklum dugnaði og fórn-
fýsi.
Hvernig hefur verið staðið að
málum i sambandi við Olympiu-
leikina við Júgóslava?
Islandsmótinu hefur verið flýtt
— og reyntað forðast árekstra við
félögin út af landsliðsmönnunum.
Leikmenn eru nú i góðri æfingu. t
september voru tveir landsleikir
við Pólverja. A sunnudag verður
Olympiuleikurinn fyrri við
Luxemborg — og siðan tveir
landsleikir viö Norðmenn. Það er
stefnt að þvi að æfingin verði i há-
marki gegn Júgóslövum 18. des-
ember. Það er leikurinn, sem
skiptir fyrst og fremst máli.
Landsliðsmennirnir fara til
Danmerkur 6. desember og
dvelja þar i æfingabúðum til 15.
desember. Þeir munu leika
landsleik við Dani og taka auk
þess þátt i móti ásamt þremur
öðrum liðum. Danska landsliðinu
og tveimur félagsliðum frá
A-Evrópu, sem enn er ekki vitað
hver verða. En það verða
sterk lið. Þarna verður æft tvisv-
ar til þrisvar á dag. Landsliðs-
þjálfarinn hefur yfir mönnum
sinum að ráða nótt sem dag — og
það hefur margsinnis komið i
ljós, að slikar æfinga- og
keppnisferðir hafa reynzt miklu
happadrýgri en æfingar hér
heima. Þá má einnig minnast á
keppnisför islenzka landsliðsins
sl. sumar sem lið i þessum mál-
um.
Það hefði verið mjög rangt aö
byggja upp æfingar landsliðsins
með hámarksþjálfun fyrir augum
i sambandi við leikinn viö
Luxemborg á sunnudag. Það er
nóg að vinna þann leik — Júgó-
slavar eru aðalatriðið, enda ræð-
ur markatala i innbyrðisleikjum
tslands og Júgóslaviu ef þessi
lönd verða jöfn að stigum.
Luxemborg blandar sér ekkert i
þá baráttu — lið þeirra er of veikt
til þess.
En siðari leikurinn við Júgó-
slava?
Við höfum sagt þeim i lands-
liðsnefnd aö spara ekkert i sam-
bandi við landsliðiö. Leikurinn
verður i Júgóslaviu 7. marz — sið-
ari leikurinn viö Luxemborg
y.-tra siðast i febrúar. Islands-
mótinu lýkur i febr. og eftir það
heldur landsliðið i æfingabúðir
ytra. Það mun leika landsleiki og
æfingaleiki við félagslið erlendis
fram að leiknum við Júgóslava.
En það er rétt að það komi
fram, að við getum aldrei hagað
okkur eins og Júgóslavar i sam-
bandi við landsliðið. Þeir hafa
Olympiutitil að verja og hjá þeim
er landsliðið númer eitt. Keppnin
i 1. deild i Júgóslaviu spilar þar
ekki inn i — landsliðsþjálfari
Júgóslava tekur þá leikmenn frá
félögunum, sem hann hefur hug
á. Hvað yrði sagt hér heima ef
leikmenn fengju ekki að leika
með liðum sinum, þegar lands-
leikir eru framundan?
Þá er auðvitað út i hött að halda
að við getum ráðið þvi hvort is-
lenzku leikmennirnir i Þýzka-
landi leika með félögum sinum
eða ekki — haft einhverja for-
göngu i þvi sambandi. En allir
leikmenn okkar i Þýzkalandi
verða tiltækir i leikina við Júgó-
slava og æfingarnar fyrir þá. Það
er aðalatriðið.
Það hefur verið deilt á að velja
ekki fleiri leikmenn?
Það atriði er i höndum lands-
liðsþjálfarans — og er reyndar
gert i samráði við landsliðsmenn-
ina — þann kjarna, sem myndar
landslið hverju sinni. Þeir hafa
farið fram á að ekki séu valdir
mun fleiri leikmenn en skipa lið-
ið hverju sinni. Það hefur skapað
leiðindi, þegar 4—5 úr landsliðs-
hópnum eru ekki valdir i lands-
leiki — verða að sitja yfir. Viðar
hefur þvi valið þennan kost — i
samráði við landsliðsmennina.
Það var erfið aðstaða, sem þú
tókst við i HSt?
Það má kannski segja. Skuldir
sambandsins voru mjög miklar —
og það var okkar fyrsta verk að
kippa þeim málum i liðinn. Það
hefur tekizt — og vel það — en til-
kostnaður eykst gifurlega. Það
kostar 10—12 milljónir nú að reka
samband eins og HSI á ári — en
við höfum ekki og munum ekki
sjá i neinn kostnað i sambandi við
landsliðið, sagði hinn dugmikli
formaður HSI, Sigurður Jónsson,
að lokum. hsim.
Sigurður Jónsson — liinn ötuli formaður HSl.
KNATTSPYRNAN
I BELGIU
Ásgeir
Sigurvinsson
Liege 24. nóvember.
Hvorki meira né minna en 34
mörk voru skoruð i hinum niu
leikjum helgarinnar. Það gerir
að meðaltali um fjögur mörk i
leik og er markamet þetta
keppnistimabil. Flest mörk
voru skoruð i leikjum Liege-lið-
anna Standard og FC Liege —
eða sjö i hvorum leik.
Leikur Standard og Charleroi
bauð upp á skemmtilegan og
hraðan sóknarleik. Standard tók
fljótlega forustuna i fyrri hálf-
leik með marki Mathy Billen.
Michel Renquin bætti öðru
marki við með gullfallegum
skalla fimm min. fyrir leikhléið.
Á 50. min. jók André Gorez
muninn i 3—0 fyrir Standard og
leit þá út fyrir auðveldan sigur.
Sú varð þó ekki raunin. Han-
rotay, fyrrum leikmaður Stand-
ard, kom Charleroi i 3—1 og
stuttu siðar minnkaði Delin
muninn i 3—2. Van Moer kom
Standard i 4—2, en Gebauer
svaraði fyrir Standard á sömu
.minútunni. Siðustu fimm minút-
urnar voru mjög spennandi og
litlu munaði að báðum liðum
tækist að skora. 4—3 urðu þvi
lokatölur leiksins. Kærkominn
sigur hjá Standard — en gerir
það óhjákvæmilega að verkum,
að Charleroi situr eitt og yfir-
gefið á botninum með sjö stig.
Breyting á
toppnum
Með tapinu fyrir Anderlecht á
Parc Astird á laugard. missti
Lokeren fyrsta sætið i 1. deild til
FC Brugge, sigurvegara úr
leiknum við RC Malines. Þrem-
ur dögum fyrir leik þeirra við
AS Roma i Evrópukeppninni,
þurftu leikmenn Brugge ekki að
hafa mikið fyrir sigrinum, þvi
einn varnarmanna Malines kom
þeim á bragðið — sendi knöttinn
i eigið mark. I siðari hálfleik
bætti Lambert öðru marki við.
■ FC Brugge hefur sem sag tek-
ið forustu, en stigi á eftir eru
fjögur lið, sem áreiðanlega eiga
eftir að gera Brugge erfitt fyrir i
næstu leikjum. Tvö þeirra eru
Anderlecht og Lokeren. Þau lið
leiddu sama hesta sina og var
það mjög skemmtilegur og jafn
leikur á Parc Astrid. Hollenzki
landsliðsmaðurinn Robby
Rensenbrink i liði Anderlecht
skoraði tvö mörk sjálfur og
„lagði” það þriðja. Mörk Loker-
en skoruðu De Koning og Dal-
vine.-
Erfiöir heim
aö sækja
Beveren er lið, sem erfitt er
heim að sækja og ekki brugðu
leikmenn liðsins út af venjunni,
þegar þeir fengu Beerschoth i
heimsókn. 4—0 var sizt of stór
sigur. Beveren er enn taplaust á
heimavelli og þau eru orðin ófá
liðin, sem þar hafa þurft að þola
stór töp. Þar má nefna til dæmis
Antwerpen 5—0, FC Brugge 4—0
og Lierse 3—0.
Lierse átti i töluverðum erfið-
leikum með FC Liege og i hálf-
leik var staðan jöfn 1—1. t siðari
hálfleik skoraði markhæsti leik-
maður deildakeppninnar,
Posthmus, fjögur mörk og
lokatölur urðu 5—2.
Hjá Antwerpen var það Kod-
at, sem kom aftur inn i liðið eftir
þriggja vikna keppnisbann, sem
skorað bæði mörk Antwerpen i
Ostende. Kannski verður endur-
koma hans til þess að koma lið-
inu á rétta braut aftur. Eitt er
vist, að ef leikmenn liðsins ætla
að halda sér i toppbaráttunni
mega þeir ekki sóa mörgum
stigum i viðbót. Sömu sögu er að
segja um meistarana RWDM
(Molenbeek), sem aðeins náðu
jafntefli gegn CS Brugge.
Beringen vann sinn fyrsta úti-
sigur gegn Berchem og skildu
liðin þar með Charleroi-liðið eitt
eftir á botninum.
Markahæstu leikmenn i
deild eru nú:
15 — Posthmus, Lierse
10 — Kodat, Antwerpen
8 — Teugels, RWDM,
Rensenbrink, Anderlecht, DZ
Koning, Lokeren, og Lambert,
Brugge.
Úrslit um helgina urðu þessi
og staðan.
Þessi fyrirsögn og mynd af
þeim Guðgeiri Leifssyni og Ás-
geiri Sigurvinssyni birtist i
belgisku blaði eftir leikinn i
Liegc — og var þar langt viðtal
við Asgeir um leikinn við
Charleroi. Einnig um riðlaskip-
an heimsmeistarakeppninnar
1978, þar sem ísland leikur með
Bclgíu, Hollandi og Norður-tr-
landi. Segir Asgeir þar að gam-
an verði að leika við Cruyff og
Nccskens á ný. Viðtalið er allt
hið lofsamlegasta um tsland og
islenzka knattspyrnumenn.
—hsim.
RC Malines —FC Brugeois
AS Ostende —Antwerp
Standard —SC Charleroi
Lierse — FC Liégeois
Beveren —Beerschot
CS Bruges-RWDM
Waregem —FC Malinois
Berchem —Beringen
Anderlecht—Lokeren
1. FCBrugeois 13 8 2
2. Lokeren
Leifsson et Sigurvinsson : les deux Islandais de Belgique.
SIGURVINSSON : « A 3-0,
NOUS AVONS VERSE
3. Beveren
4. Anderlecht
5. Waregem
6. Lierse
7. RWDM
8. Antwerp
9. Standard
10. Beerschot
11. CS Bruges
12. FC Liégeois
13. AS Ostende
14. RC Malines
15. La Louviére
16. Beringen
17. FC Malinois
18. Berchem
19. SCCharleroi
14 8
14 7
13 7
13 3
13
13
13
13 1 5
1.
0-2
0-2
4- 3
5- 2
4-0
1-1
1-1
1-2
3-2
2 3 27 11 19
4 2 28 16 18
3 4 19 6 18
2 4 24 14 18
13 6 1 6 20 10 18
14 7 4 3 29 18 17
13 6 3 4 22 14 16
14 6 4 4 17 19 16
13 5 3 5 16 13 15
13 5 4 4 19 21 14
6 17 15 12
3 21 32 11
7 12 15 11
1 8 23 9
7 13 20 9
13 3 8 2 10 28 8
13 1 6 6 14 21 8
13 1 6 6 8 20 8
14 2 9 3 15 23 7
Kær kveðja
Asgeir Sigurvinsson