Dagblaðið - 28.11.1975, Blaðsíða 14
14
Pagblaöið. Föstudagur 28. nóvember 1975.
Þetta hefur allt verið gert
áður,en...
,,Spilverk þjóðanna”
Spilverk þjóðanna
LP-stereo
Egg 0014
Egg Productions/ Steinar h.f.
1975
Liklega hefur aldrei komið út
plata á Islandi, sem jafn mikið
húllumhæ hefur verið gert út af
áður en hún kom út. Að verulegu
leyti er ástæðan þátttaka Spil-
verksins i Stuðmönnum og i
framhaldi af þvi hafa Spilverks-
menn sjálfir gert allt, sem i
þeirra valdi og auðsveipra
blaðamanna hefur staðið, til að
mikla ágæti fyrstu plötu Spil-
verks þjóðanna.
Til að standa undir þessu
snemmbæra umtali og hrósi er
ljóst að menn máttu vera nokk
vissir um þetta ágæti plötunnar.
Og mikið helviti er hún góð.
Spilverkið er að visu ekki að
gera neitt sem ekki hefur verið
gert áður. En það gerir sitt vel.
Músik þremenninganna i Spil-
verkinu er smellin blanda af'
hinum margvislegustu tónlist-
artegundum : blues, rokki, þjóð-
lögum, ragtime, ballöðum, jazz
og klassik.
Það sem einkennir plötuna
framar öðru er þægileg mýkt og
lipurð i allri meðferð efnisins.
Hún er nær hnökralaus. Raddir
eru pottþéttar, útsetningar ,út-
sjónarsamar.
Lögin eru yfirleitt góð og
ensku textarnir sömuleiðis. Það
sem meira er, textarnir eru ekki
viðlika barnalegir og svo áber-
andi hefur verið með enska
texta islenzkra poppara. Lögin
skiptastað mestu leyti i þrenirt.
Það eru létt og skemmtileg lög
Sigurðar Bjólu — minna jafnvel
á MeCartney á köflum, sbr.
,,Daisy” og „Sixpence Only”.
Það eru lög Egils Ólafssonar,
ýmist blueskennd eða undir
áhrifum af klassiskri tónlist,
sbr. „Goin’Home”, „Snowman”
og ,,1’Escalier”, og það eru lög
Valgeirs Guðjónssonar, sem
hvað erfiðast er að átta sig á —
en eru einna Stuðmannalegust,
sbr. „Icelandic Cowboy”. (Á
milli „Icelandic Cowboy” og
„Snowman” má heyra Valgeir
segja — ef maður leggur það á
plötuspilarann sinn að snúa
plötunni öfugt hálfan hring —
„Ætli Stuðmenn séu i Spilverk-
Fjöldi fólks auk þeirra
þriggja kemur fram á þessari
plötu, m.a. Sigrún „Diddú”
Hjálmtýsdóttir, sem siðan hefur
orðið fjórði liðsmaður
Spilverksins. Hún syngur i
tveimur eða þremur lögum — og
mætti svo sannarlega vera i
fleirum.
Saxófón- og klarinettuleikur,
sem framinn er af þeim Vil-
hjálmi Guðjónssyni og Rúnari
Georgssyni, vekur sérstaka at-
hygli manns. Sérstaklega er
saxinn frábær i „Of My Life”.
Vibrafónleikur Reynis Sigurðs-
sonar, hljóðfæraleikara par
excellence, er viða aðdáunar-
verður. Það kemur raunar ekki
á óvart. Hvitárbakkatrió
Jakobs Magnússonar kemur
þarna við sögu — og raunar
Riverbandið lika — fjögurra
manna strengjasveit og fleira
fólk.
Platan er hljóðrituð i Hafnar-
firði og London. Hvað er gert
hvar er ekki augljóst, en leiða
má getur að þvi að þau laganna
sem meira er lagt i með ýmsum
fidusum, hafi verið unnin i
London um leið og Stuðmanna-
platan var gerð. Sýnist Tony
Cook, upptökumaður Hljóðrita,
hafa unnið hér sitt bezta verk
siðan hann kom til landsins.
Platan á að sjálfsögðu sinar
veiku hliðar. Það kann að vera
ástæðulaust að nöldra út af
smáatriðum, en maður kemst
ekki hjá að nefna langan instrú-
mental kafla i lok A-hliðarinnar,
sem verður leiðigjarn tvisvar
eða þrisvar, en er siðan rifinn
upp með skemmtilegum tilþrif-
um á bassa, saxófón og flautu.
„Icelandic Cowboy” þykir mér
ekki alltaf jafnskemmtilegt og
það var á eftirminnilegum
hljómleikum Spilverksins i Nor-
ræna húsinu i sumar leið. Stund-
um dofnar óþarflega mikið yfir
plötunni.
En þrátt fyrir öll þessi gifur-
yrði er rétt að endurtaka það
sem sagði i upphafi: þetta hefur
allt verið gert áður. — ó.vald.
inu? )
Spilverk þjóðanna: Sigurður Bjóla, Sigrún Hjálmtýsdóttir, Egill ólafsson og Valgeir Guðjónsson.
Ljósm: Pjetur Maack.
Elvis er galvaskur
og hress!
Elvis Presley, kon-
ungur rokksins, hefur
endurheimt heilsu
sina og byrjar að troða
upp á þriðjudaginn i
Las Vegas. Eins og
fram hefur komið var
talið að Elvis væri al-
varlega veikur, jafn-
vel dauðvona, og að
auki að springa úr of-
fitu.
Eins og stórstjörn-
um sæmir var hann
lagður inn á sjúkrahús
með miklum glæsi-
Þeir sem ekki þekkja manninn
j geta spurt foreldra sina.
brag og var heil hæð
rýmd fyrir hann.
Rokkkóngurinn lét
setja málmþynnur
fyrir alla glugga svo
sólarljósið truflaði
hann ekki.
Nú er hann að byrja
aftur og kveður þar
með niður allar sögu-
sagnir um alvarleg
veikindi sem jafnvel
áttu að vera krabba-
mein af sömu tegund
og gerði út af við
Pompidou Frakk-
landsforseta.
Topp-10 í New Tork og London:
BAY CITY ROLLERS BRJÓTAST
INN Á BANDARÍSKA LISTANN
Töluverðar breytingar hafa
orðið á brezka vinsældalistan-
um þessa vikuna. Steeleye
Span-lagið „All Around My
Hat”,sem minnztvará i siðustu
viku, hefur stokkið úr 29. sæti i
níunda og Rod Stewart er nú i ti-
í Bandarikjunum hefur það
merkast gerzt, að Bay City
Rollers eru i fyrsta skipti komn-
ir inn á „topp-tiu” listanum með
„Saturday Night”. Forvitnilegt
verður að fylgjast með fram-
gangi Skotanna — „hinum nýju
unda sæti með lagið „This Old Bitlum — á Bandarikjamarkaði
Heart Of Mine” sem i fyrri viku sem til þessa hefur reynzt þeim
var nr. 20. erfiður.
LONDON — Melody Maker
1. (7 YouSexyThing.......................Hot Chocolate
2. (4 ) D.I.V.O.R.C.E....................Billy Connolly
3. (3 ) Love Hurts ........................Jim Capaldi
4. (12) Bohemian Rhapsody.......................Queen
5. (1 )SpaceOddity........................David Bowie
(i. (5 ) Imagine..........................John Lennon
7. (lO)SkyHigh.................................Jigsaw
8. (2 ) Love Is the Drug ..................Roxy Music
9. (29) All Around My Hat................SteeleyeSpan
10. (20) This Old Heart Of Mine Rod Stewart
NEW YORK — Cash Box
1. (2 ) That’s the Way I Like It......KC & Sunshine Band
2. (1 ) Fly, Kobin, Fly.................Silver Convention
3. (3 ) Island Girl...........................Elton John
4. (10) Let’s Do It Again..................Staple Singers
5. (5 ) Nights On Broadway ....................BeeGees
6. (4 ) The Way I Want To Touch You ...Captain & Tennille
7. (8 ) My Little Town.................Simon & Garfunkel
8. (13) Saturday Night...................Bay City Rollers
9. (9 IThisWillBe............................Natalie Cole
10. (15)SkyHigh...................................Jigsaw
Laufið stokkar upp
1 þeim hræringum, sem ný-
iega urðu i poppinu hér stokk-
aðist upp i Laufinu. Trommar-
inn og bassaleikarinn hættu og
fóru i aðrar hljómsveitir.
„Þetta kom svo sem ekki sér-
lega illa við okkur,” sagði Geir
Gunnarsson, söngvari Laufsins,
er DB ræddi við hann um
mannamissinn. ,,Við vorum
búnir að spila saman i með-
göngutimann, niu mánuði, og
dálitil spenna var farin að gera
vart við sig.”
Laufið fékk þrjá nýja i stað-
inn. „Einn er alveg nýr i brans-
anum,” sagði Geir söngvari,
„Guðmundur Óskarsson,
hljómborðsleikari. Hinir eru
Guðjón Gislason, trommuleik-
ari, og Sigurður Kristjánsson,
bassaleikari”.
Auk Geirs voru fyrir i Laufinu
tveir gitaristar, þeir Björn Ste-
lansson og Jens Atlason. Nýja
og endurbætta Laufið hyggst
byrja að spila opinberlega i
febrúar, en þangað til verður
timanum varið til æfinga.
Ríkey
Ranghermt var föðurnafn lista-
konunnar, sem málaði málverkið
er prýðir forsiðu umslags nýju
Júdasarplötunnar. Hún heitir
Rikey Ingimundardóltir. Við
biðjumst afsökunar á þessum
mistökum. —óV.
V.