Dagblaðið - 28.11.1975, Síða 23
Pagblaðið. Föstudagur 28. nóvember 1975.
23
Utvarp
Sjónvarp
I
Útvarp kl. 22,15:
RÆTT UM
„HAUSTSKIP"
í BÓKMENNTA-
ÞÆTTI í KVÖLD
Kl. 22.15 í kvöld er þótturinn
,,Dvöl” á dagskrá útvarpsins.
Umsjónarmaður er Gylfi
Gröndal.
Fjallað verður um bók Björns
Th. Björnssonar „Haustskip”
og rætt við Björn um
uppbyggingu, málfar og efni
bókarinnar.
Að þvi loknu segja Bergsteinn
Jónsson sagnfræðingur og
Hannes Pétursson skáld álit
sitt á bókinni.
Gefa þeir henni hina beztu
dóma, að sögn Gylfa Gröndals.
báttur þessi er hálfs-
mánaðarlega á dagskrá út-
varpsins og er þetta sá þriðji.
Hann fjallar að jafnaði um
bókmenntir. Þetta er i fyrsta
skipti sem Gylfi Gröndal sér
um útvarpsþátt en hann er rit-
stjóri Samvinnunnar. A. Bj.
Gylfi Gröndal ritstjóri og Björn Th. Björnsson listfræðingur spjalla saman um bókina „Haust
skip”. Ljósm. PB-Bjarnleifur.
Sjónvarp kl. 20,40 í kvöld:
„Kastljós" á landhelgismólið
Kastljós er á dagskrá sjón-
varpsins i kvöld kl. 20:40,
umsjónarmaður er Svala
l’horlacius.
Aðalmál þáttarins i kvöld er
að sjálfsögðu landhelgismálið.
Umræður verða annars vegar
milli Einars Ágústssonar utan-
rikisráðherra og Gunnars
Thoroddsens félagsmálaráð-
herra og hins vegar Lúðviks
Jósefssonar alþingismanns og
Péturs Guðjónssonar fram-
kvæmdastjóra.
Fjallað verður um árangurs-
litla baráttu bindindishreyf-
ingarinnar gegn áfengisbölinu.
Farið var á stýkufund sl.
miðvikudagskvöld hjá stúkunni
Einingu. Eru i fyrsta sinn i
kvöld sýndar myndir frá stúku-
fundi i sjónvarpi. Rætt verður
i kvöld verður sýnd i fyrsta sinn mynd frá stúkufundi i sjónvarpinu.
— Myndin er tekin á fundi hjá stúkunni Einingu.
Ljósm. Stúdió Guðmundar.
Landhelgin er aðaimálið i Kastljósi i kvöld. Myndin er tekin úr
stjórnstöð Landlielgisgæzlunnar.
Ljósm. DB.-Björgvin.
við Bjarka Eliasson yfirlög-
regluþjón og Ólaf Hauk Arnason
áfengisráðunaut.
Loks verða umræður i sjón-
varpssal á milli Halldórs
Kristjánssonar frá Kirkjubóli,
sem er aðaltalsmaður Góð-
templarareglunnar á íslandi, og
Arnar Clausen hæstaréttarlög-
manns. Leitazt verður við að
svara spurningunni um hvernig
raunverulega stendur á þvi að
barátta bindindishreyfingarinn-
ar i landinu hefur borið eins lit-
inn árangur og raun ber vitni.
Helgi H. Jónsson fréttastjóri
Timáns og Árni Johnsen blaða-
maður á Morgunblaðinu verða
Svölu til aðstoðar i Kastljösi i
kvöld. —A.Bj.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Pagskrá og auglýsingar.
20.40 Kastljós. Þáttur um inn-
lend málefni. Umsjónar-
maður Svala Thorlacius.
21.40 Kammersveit Reykja-
vikurleikurtvoþættiúr Okt-
ett eftir Schubert. Stjórn
upptöku Andrés Indriðason.
■ 22.00 Thcrese Pesqueyroux.
Frönsk biómynd frá árinu
1962 byggð á sögu eftir
Francois Mauriác. Leik-
stjóri er Georges Franju, en
aðalhlutverk leika
Emmanuele Riva og
Philippe Noiret. Thérese er
bóndakona. Henni liður illa i
sveitinni, og i örvæntingu
sinni gefur hún manni sin-
um eitur. Þýðandi Ragna
Ragnars.
23.40 fiagskrárlok.
14.30 Miðdegissagan
„Fingramál” cftir Joanne
Greenberg. Bryndis Vig-
lundsdóttir les þýðingu sina
15.00 Miðdegistónleikar.Erling
Blöndal-Bengtsson og Kjell
Bækkelund leika Sónötu
fyrir selló og pianó i a-moll
eftir Edvard Grieg.
Per-Olof Gillblad og
Filharmoniusveitin i Stokk-
hólmi leika óbókonsert eftir
Johan Helmich Roman; Ulf
Björlin stjórnar.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku.
16.20 Popphorn.
17.10 Útvarpssaga barnanna:
„Drengurinn i gullbuxun-
um” eftir Max Lundgren.
Olga Guðrún Arnadóttir les
þýðingu sina (6).
17.30 Tónleikar. Tilkynningar.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Daglegt mál.Guðni Kol-
beinsson kennari flytur
þáttinn.
19.40 Þingsjá. Kári Jónasson
sér um þáttinn.
20.00 Frá tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar tslands i Há-
skólabiói kvöldið áður.
Stjórnandi Bohdan Wo-
diczko. Einleikari: Rut
Ingólfsdóttir. a. Forleikur
eftir Moniusco b. „Skosk
fantasia” eftir Bruch. c.
Sinfónia nr. 10 eftir Sjosta-
kovitsj. — Kynnir: Jón Múli
Arnason.
21.30 Útvarpssagan: „Fóst-
bræður” eftir Gunnar
Gunnarsson. Jakob Jóh.
Smári þýddi. Þorsteinn 0.
Stephensen leikari les (21).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Dvöl,
Þáttur um bókmenntir.
Umsjón: Gylfi Gröndal.
22.50 Afangar.Tónlistarþáttur
i umsjá Asmundar Jónsson-
ar og Guðna Rúnars
Agnarssonar.
23.40 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
LAUGARDAGUR
29. nóvember
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05. Frétt’ir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.) 9,00 og
10.00 Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Magnea Matthiasdótt-
ir les sögu sina „Sykur-
skrimslið flytur” (3).
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög milli atriða. óskalög
sjúklinga kl. 10.25: Kristin
Sveinbjörnsdóttir kynnir.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
Sjónvarp
kl. 22,00:
Ádeila
ó
franskt
siðgœði
í kvöld
„Therese Desqueyroux"
heitir frönsk biómynd sem er á
dagskrá sjónvarpsins i kvöld kl.
22. Þýðandi er Ragna Ragnars.
Mvndin er frá árinu 1962.
byggð á sögu eftir Francois
Mauriac. Leikstjóri er George
Franju.
Þýðandinn sagði að þetta væri
allra skemmtilegasta mvnd
sem fjallaði um franskt hefðar-
fólk og landeigendur. Það lifir
einangruðu aðgerðarlausu lifi.
þar sem samheldni fjöl-
skyldunnar er fyrir öllu. Ekkert
misjafnt sem hendir má komast
upp. allt skal vera eftir ákveðnu
mynztri.
Þetta er tvimælalaust ádeila á
franskan „móral" sagði
Ragna. — Aðalhlutverk eru
leikin af Emmanuele Riva og
Philippe Noiret sem eru þekktir
leikarar i heimalandi sinu.
Sýningartimi er ein klst. og 40
min.
A. Bj