Dagblaðið - 02.01.1976, Side 12

Dagblaðið - 02.01.1976, Side 12
12 DagblaOib. Föstudagur 2. janúar 1976. litt stig skilur að 4 efstu liðin — eftir sigur Rangers gegn Celtic 1-0 í skozku knattspyrnunni Rangere viröist hafa eitthvert taká Celtie á þessu leiktimabili. t þriöja sinn mættust liðin á nvársdag og i þriðja sinn bar Rangers sigur úr b vtum — sigraöi nú með 1-0 að viðstöddum um 60 þúsund áhorfendum á Ibrox, leik- velli Rangers i Glasgow. Derek Johnstone, sem fyrir nokkrum árum lék hér á Melavellinum með skozku unglingalandsliði, skoraöi eina mark leiksins á 31. min. Skallaði knöttinn i mark. Það var mikið klaufamark Peters Latch- ford. markvarðar Celtic. Ifann hikaði í úthlaupi — hefði auðveld- Það eru ekki margir, sem hafa betur I návigi við hinn stóra „Shuggic” Eðvaldsson, skrifar Daily Record I texta meö þessari mynd — en islenzki varnarmaöurinn i Celtic-liöinu haföiekkert á móti þvi þó þessi börn kæmu honum niöur. Myndin var tckin I jólaveizlu I Lewis- verzlun i Glasgow, þar sem 20 leikmenn Celtic og Rangers voru viðstaddir. lega átt að geta náð knettinum — sneri við og hljóp svo úr markinu aftur. Johnstone skallaði þá yfir hann i autt markið. Þetta var harður leikur og erfiður fyrir bæði lið. Leikmenn Celtic fengu nokkur góð tækifæri, en voru ekki á skotskónum að þessu sinni. Sérstakur gæzlu- maður var á Jóhannesi Eðvalds- syni allan leikinn, og var það Derek Johnstone. Elti Jóhannes hvert sem hann fór á vallar- helmingi Rangers. Það fór þvi eins og talað var um eftir leik Celtic við Ayr, að Rangers yrði að hafa sérstakan gæzlumann á Jó- hannesi. Úrslit urðu annars þessi i skozku aðaldeildinni i gær Dundee — Aberdeen 1-3 Hibernian — Hearts 3-0 Motherwell — Ayr 1-0 Rangers—Celtic 1-0 St. Johnstone — DundeeU. 1-1 Hibemian vann góðan sigur á hinu Edinborgarliðinu Hearts 3-0. Smith og Duncan (2) skoruðu. Staðan er nú ákaflega spennandi Celtic efst með 25 stig, en stigi á eftir eru Rangers, Motherwell og Hibernian. Staðan er annars þannig: Celtic 19 11 3 5 37-22 25 Rangers 19 10 4 5 30-18 24 Motherwell 19 9 6 4 35-26 24 Hibernian 19 9 6 4 31-23 24 Hearts 19 7 7 5 22-23 21 Aberdeen 19 7 5 7 27-26 19 Dundee 19 6 5 8 29-36 17 Ayr 19 6 4 9 24-33 16 Dundee Utd. 19 4 6 9 21-27 14 St. Johnst. 19 2 2 15 20-42 6 KNATTSPYRNAN í SKOTLANDI EÐVALDSSOIVI Eftirfarandi grein Jóhannesar Eðvaldssonar var sett i póst i Glasgow 16. desember — en barst okkur ekki fvrr en um áramótin. Hefur þvi lent undir öllum jóla- póstinum — og gott betur. Jóhannes skrifar um 16. umferö- ina i Skotlandi og þá gefum við honum orðið. Celtic-Aberdeen : 0-2. Jarvie skoraði á 6. minútu og Graham á 34. minútu. Ahorfendur fjölmenntu á leik- inn — 35 þúsund samtals og mikil og góð stemmning var meðal þeirra. Meðal áhorfenda voru Islendingar. Þetta var leikur þar sem ekkert gekk upp h já okkur en Aberdeen notaði sin tækifæri mjög vel og þvi sluppu þeir með 2 dýrmæt stig. Völlurinn var frosinn og erfitt að fóta sig. Jarvie skoraði þegar á 6. minútu og við pressuðum stift en allt kom fyrir ekki — siðan skyndisókn og Graham skoraði á 34 minútu. Eftir þetta pressuðum viö stift en ekkert gekk. Það er ekki nóg ^ Handsprengjan ) að sækja stift — það þarf að skora mörk. Dundee United — Hearts 0-1. Fimm þúsund áhorfendur mættu á Tannadice Park til þess eins að sjá liö sitt tapa rétt einu sinni. Ekkert hefur gengið hjá United eftir að þeir seldu Andy Gray til Aston Villa fyrir 110 þúsund pund. 1 þessum leik voru markverðir beggja liða*beztu menn. Rangers-Ayr United 3-0. Áhorfendur 15 þúsund. Mörk Rangers skoruðu Jardine, viti, 51.minútu, Henderson 78. min. og McKean 88. minútu. Þar með náði Jock Wallace i sinn fyrsta sigur i þriggja leikja prógrammi þar sem hann hefur skipað sinum mönnum að sigra. Leikmenn Rangers urðu að leika i 51 minútu áður en markið kom en eftir það var aðeins eitt lið á vell- inum. Þetta var sætur sigur fyrir Rangers þvi i október vann Ayr á Somerset Park 3-0. Hibernian-Motherwell 1-0. Ahorfendur 16 þúsund. Mark Hibs skoraði Stanton á 22. minútu, skallaði sérlega fallega framhjá markverði Motherwell. Eftir markið lagði Hibs alla áherzlu á að halda sinu — eti oft munaði litlu að Motherwell skoraði. Peter Marinello lék sinn fyrsta leik með liðinu eftir söiuna frá Portsmouth en átti ekki góðan leik — enda vel gætt. Þót átti hann eina eða tvær góðar sendingar. Allar likur eru á þvi að framkvæmdastjóri Celtic, Jock Stein kom ekki i bráð til Park Head. Hann er ekki enn búinn að ná sér eftir meiðslin sem hann laut i bilslysinu. Orðrómur er um að Stein komi ekki fyrr.en i febrúar. Ef til vill er Stein að leiða hjá sér að taka við Celtic — hefur augastað á „Skotlands boss” þvi Ormond hættir i febrúar' — en þetta er álit manna i Skotlandi. Hvað um það — meira i næstu viku. kveðja Jóhannes Eðvaldsson. Ljósmyndari órsins Það fer ekki milli mála — Bjarnleifur Kjarnleifsson var ljós- myndari ársins livað iþróttamyndir snerti. Margar voru glæsi- legar hjá honum á árinu — en þessar tvær sem birtar eru hcr til hliðar báru þó af. Þær vöktu gifurlega athvgli — slógu í gegn! Daghlaðsmaðurinn Bjarnleifur tók efri myndina, þegar blökku- mennirnir i körfuknattleiknum, Curtiss og Rogers, létu hncfanu skipta I leik Armanns og KR i vetur. Neöri myndin er af marki ársins, þegar Jóhannes Eövaldsson skoraöi fyrra markið i sigur leiknum gegn Austur-Þjóðverjum á Laugardalsvelli 2-1. Það \ ai glæsilegt mark og filma af þvi var sýnd víða um heim. Undir- ritaður ræddi við marga erlenda menn á árinu, sem fóru mikluin viöurkenningarorðum um glæsimark Jóhannesar. Hann liggur i vellinum —horfir á eftir knettinum i markiö. Sigurinn gcgn A- Þjóöverjum var glæsilegaslur á árinu — af mörgum góöum, iþróttaviöburður ársins hér á landi. hsim. Bezta lið heims í Laugardalshöll islendingar lcika tvo landsleiki við Sovétmenn um helgina. Landsliðiö hefur þegar veriö valið — og töluverðar breytingar eru frá leikjunum viö Júgóslava. Þannig verða Björgvin Björg- vinsson, Viking, Gunnar Einars- son, Göppingen og Axel Axelsson, Dankersen, ekki meö. Að sjálfsögðu veikir þetta liðið — en i þeirra stað koma þeir Ingi- mar Haraldsson, Haukum, Bjarni Jónsson, Þrótti, og Hörður Sigmarsson, Haukum. Ástæða þess að Björgvin leikur ekki með er sú, að hann verður austur á Egilsstöðum — ógerlegt mun hafa reynzt að fá hann lausan úr vinnu. Landsliðið á laugardag verður þannig skipað: Ólafur Benediktsson, Val Guðjón Erlendsson, Fram eru markverðir. Aðrir leikmenn eru: Itisaþotan lækkar flugið... Clafur H. Jónsson, Dankersen, Stefán Gunnarsson, Val Jón Karlsson, Val Sigurbergur Sigsteinsson, Fram Páll Björgvinsson, Viking Arni Indriðason, Gróttu Ingimar Haraldsson, Haukum Ólafur Einarsson, Donzdorf Bjarni Jónsson, Þrótti Hcrður Sigmarsson, Haukum. Leikurinn á laugardag verður 8. landsleikur þjóðanna — tvisvar höfum við borið sigur úr býtum. Árið 1973 komu Rússarnir hingað og Islendingar sigruðu i báðum leikjunum 23 -19 og 19-17. Siðast léku þjóðirnar saman i Júgóslaviu i sumar. Þá sigruðu Sovétmenn 24-19. Sovétmenn léku nýlega við Júgóslava og tóku þá i kennslu- stund — sigruðu 20-13 eftir að hafa komizt i"7-0. Af þessu má marka að Sovétmenn eru geipisterkir — senniiega með sterkasta landslið heimsins i dag. Möguleikar íslands á sigri eru ekki miklir og ekki bætir að marga af máttarstólpum lands- liðsins vantar. En Island hefur sýnt það oftar en einu sinni að það má sin mest þegar við minnstu er búizt og áreiðanlega munu hinir dyggu áhorfendur hvetja landann vel. Leikurinn á laugardag hefst kl. 3. Siðari leikurinn verður á sunnudag og hefst kl. 20.30. h halls. Dagblaöiö. Föstudagur 2. janúar 1976. 13 i Þetlu voru íþróttamyndir ársins

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.