Dagblaðið - 14.01.1976, Side 6

Dagblaðið - 14.01.1976, Side 6
6 DagblaOið. MiOvikudagur 14. janiiar 1976. Miklar deilur um heimastjórn Skotlands og Wales: yNesfu stjórnlagabreytingar Bretlands síðan 1707 Wilson, forsætisráöherra Bret- iands: harkaleg gagnrýni á tiilög- ur stjórnar hans um heimastjórn Skotlands og Wales. Aætlun stjórnar brezka Verka- mannaflokksins um að veita Skotlandi og Wales takmarkaða heimastjórn virðist ætla að veröa mesta deiluefni brezkra stjórn- mála siðan þjóðaratkvæða- greiðslan um aðild að Efnahags- bandalagi Evrópu fór fram. Gagnrýni úr öllum áttum hefur skollið yfir Harold Wilson, for- sætisráðherra, siðan hann hóf umræður um málið i neðri deild brezka þingsins i gær. Aætlun stjórnarinnar gerir ráð fyrir að kjörin þing verði sett upp i Edinburgh og Cardiff, en brezka þingið i London hafi samt sem áður Urslitavald í málum land- anna. Þingmenn skiptust nokkuð í tvo hópa. Ýmsir voru þeirrar París: Frekari nafnbirtingar starfsmanna CIA Franska sósialistablaðið Liberation birti i morgun annan lista með nöfnum tólf meintra starfsmanna CIA i Frakklandi, sem allir starfa við bandariska sendiráðið i Paris.Sagði blaðið, að það væri að þjóna lesendum sin- um með þvi að „aíklæða” CIA. Liberation visaði á bug gagn- rýni bandariska utanrikisráðu- neytisins, sem sakað hefur blaðið um hrikalegt ábyrgðarieysi. Blaðið birti i gær lista með nöfn- um þrjátiu og tveggja manna, sem það sagði vera CIA-menn. I forsiðugrein i morgun sagði Liberation: „þegar leynd er skipulega notuð til að ráöast gegn frelsi fólks, eins og CIA gerir, þá er það i þágu almennings að flett sé ofan af glæpasamlegum leyndarverkum. Markmið okkar er að „.afklæða” leyniþjónustuna CIA.” Blaðið birti lista með nöfnum tólf starfsmanna bandariska sendiráðsins, sem það segir vera útsendara CIA. Birt eru sima- númer mannanna á skrifstofum þeirra og innanhússnúmer. Mikilvægastur tólfmenning- anna er Lewis Sevier, starfs- maður ræðismannsembættisins, að sögn Liberation. Meðal nafn- anna, sem birt voru i gær, var Eugen Burgstaller, sem blaðið segir vera yfirmann CIA i Frakk- landi. Talsmaður bandariska utan- rikisráðuneytisins hefur harðlega fordæmt nafnabirtingarnar og visað til sams konar tilfellis i Aþenu nýlega. Sú nafnabirting hafði i för með sér morð á einum manni, Richard Welch, yfirmanni CIA i Grikklandi. Liveration hefur bent á, að bandarisk yfirvöld hafi ekki neitað CIA-þátttöku mannanna, sem blaðið hefur bent á. skoðunar, að tillögurnar gengju of langt og gætu leitt til upplausn- ar konungdæmisins. Aðrir töldu tillögurnar ná allt of skammt, enda ættu Skotar og Walesbúar að hafa meiri áhrif á gang eigin mála. Wilson sagði I þingræðu sinni, að þessar tillögur væru veiga- mestu grundvallarbreytingar, sem gerðar hefðu verið í Bret- landi á þessari öld. Aðrir hafa látiö svo um mælt, að fyrir- hugaöar breytingar séu hinar umsvifamestu siðan sambands- lögin á milli Englands og Skot- lands voru staðfest 1707. Skozka þingiö, sem tillögurnar gera ráð fyrir, mun hafa stjórnar- skrárlegar heimildir til laga- setningar á sviði menntamála, húsnæðismála og heilbrigðis- mála. Stjórn iðnaðar- og efna- hagsmála verður áfram I London. Þingið I Wales verður aðeins stjórnunarþing og fær ekki rétt til lagasetningar. Skákmótið í Hastings: Bronstein þakkaði fyrir jafntefli við Guðmund Sovézki skákmaðurinn David Bronstein gerði jafntefli við Guðmund Sigurjónsson i fjór- tándu og næst siðustu umferð alþjóðlega skákmótsins i Hastings i Englandi i gær, Bronstein var hinn eini meðal efstu manna mótsins, sem lét sér nægja jafntefli i umferðinni, enda var hann sá eini, sem átti við stórmeistara að etja. Bronstein og Austur- Þjóðverjinn Wolfgang Uhlmann eru efstir á mótinu. Fimmtánda og siðasta umferð verður tefld i dag. Staðan er þannig: Bronstein og Uhlmann eru með niu og hálfan vinning hvor, Tékkinn Hort er með niu vinninga og biðskák, Korsnoj er með átta og hálfan vinning, Guömundur Sosonko og Taimanov eru með sjö og hálf- an, Tékkinn Jansa og Bretinn Tony Miles með sjö vinninga, Kaplan og Stean með sex og hálfan vinning hvor, Keene og Nunn með fimm og hálfan, Bisguier og Hartston með fimm vinninga og Bellin með fjóra vinninga og biðskák. Árangurslausir fundir Gromykos og Miyazawas Andrei Gromyko, utanrikisráð- herra Sovétrikjanna, fór frá Tokyo i gær án þess að hafa tekizt að hreyfa við þeim ásetningi japönsku stjórnarinnar að auka samskiptin við Kina. Heimsókn Gromykos til Japan stóð i fimm daga. Hann ræddi fyrst og fremst við starfsbróður sinn, Kiichi Miyazawa, en einnig Takeo Miki, forsætisráðherra, og aðra embættismenn stjórnarinn- ar. Sovézki ráðherrann dró enga dul á óánægju sina og stjórnar sinnar með klausu i væntanlegum friðar- og vináttusáttmála stjórna Japans og Kina, þar sem óbeinum orðum er vikið að viðkvæmu deilumáli Sovétmanna og Jap- ana. Gromyko varaði Japani við auknu samstarfi við Kina á Takeo Miki, forsætisráðherra Japan: hótanir Rússa höfOu engin áhrif á hann. kostnað sovézks öryggis, eins og hann orðaði það. Japanski utanrikisráðherrann sagði fréttamönnum i framhaldi af umræðum þar um, að áhugi Sovétmanna á fyrirhuguðum sáttmála Kina og Japan væri nánast kjánalegur, svo mikill væri væri hann. Japanska stjórn- in mun undirrita sáttmálann eins fljótt og hægt er, sagði ráðherrann. Eftir öllum sólarmerkjum að dæma náðu utanrikisráð- herrarnir engu samkomulagi um helztu deilumál þjóðanna, yfirráð yfir fjórum eyjum norður af Hokkaido og fiskveiðideilu — þótt þar hefðu Sovétmenn að visu lofað að skila aftur rúmlega þrjá- tiu japönskum sjómönnum, sem verið hafa i haldi i Sovétrikjunum um nokkurt skeið. Odvar Nordli, hinn nýi forsætisráðherra Noregs, ræöir viö fréttamenn utan viö konungshöliina I Osló eftir aO hann haföi gengiö á fund konungs og tilkynnt aö stjórnarmyndun heföi tekizt. NÝIR USTAMENN FÁ GRAMM Y- VERÐLA UNIN Ballöðusöngkonan Janis Ian á ekkert sameiginlegt við róm- hlaut fimm tilnefningar til antiskar ballööur fööur hennar. Grammy-verðlauna i gær, en Natalie fékk verðlaun fyrir aö það eru einskonar Oskarsverð- vera bezti nýi listamaðurinn á laun dægurlagaheimsins i liðnu ári og einnig fyrir lagið Bandarikjunum. A listanum var „This Will Be’VMeðal annarra einnig tvitekið nafn dóttur Nat verölaunahafa eru Glen Camp- Kings Coles, Natalie. bell, Elton John, Captain and Janis Ian er 24 ára. Hún Tenille, Eagles og Barry Mani- semur og syngur eigin lög. Hún low. fékk verðlaunin fyrir beztu plöt- Beztu breiðplötur ársins voru una, bezta sönginn og bezta lag- valdar „Between the Lines”, ið, „At Seventeen”. Hún vann „Captain Fantastic & the Brown einnig Grammy-verðlaunin Dirt Cowboy” með Elton John, fyrir'beztu breiöplötu og beztu „Heart like a Wheel” með Lindu upptöku á plötunni „Between Ronstadt, „One of These the Lines”. ' Nights” með Eagles og „Still Natalie Cole er árinu eldri. Crazy After All These Years” Hún syngur rythm & blues, sem með Paul Simon.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.