Dagblaðið - 14.01.1976, Blaðsíða 14

Dagblaðið - 14.01.1976, Blaðsíða 14
JMfflffrnlMYilnröi Vilhiálmur V. qerir nvia plötu: ÖMAR VALDIMARSSON ekki annað en einfaldleikinn sjálfur, þannig að tveir dagar eru feikinógur timi.” Eins og menn muna birti timaritið Samúel viðtal við Hörð sl. sumar, þar sem hann lýsti þvi yfir að hann væri kynvill- ingur. Við spurðum hann hvernig væri að vera eini yfir- lýsti kynvillingur landsins. ,,bú meinar homminn?” sagði Hörður og hló við. „Blessaður vertu, þetta gerir manni lifið miklu léttara. Alla- vega hef ég verið laus við hótanir og ágang af ýmsu tagi siðan viðtalið birtist og er að sjálfsögðu feginn þvi.” „Hljóðfæraleikur hefur alltaf verið númer tvö hjá mér,” segir Vil- hjálmur Vilhjálmsson, söngvari. ,,Ég hef mig þvi ekki f frammi á þvi sviði á plötunni.” DB-myndir: BP. HSrður Torfason œfir fyrir þriðju LP-plötuno: Ælfar að taka upp breiðpfötu á 2 dögum DB á æfingu i fyrradag. „betta fjallar allt um drauma.” sagði Hörður ennfremur, ,, hvort það eru dagdraumar, næturdraum- ar eða hvað það nú er.” Tvær fyrri plötur Harðar voru gefnar út af SG-hljómplötum en i þetta skiptið ætlar Hörðúr að standa að útgáfunni sjálfur. útgáfufyrirtæki sitt kallar Hörður „Perluplötur”. Upptakan á að fara fram á tveimur dögum — og geri aðrir betur. „Ég hef enga trú á ein- hverjum stúdiófiffum,” sagði Hörður. „betta verður allt spilað einu sinni og siðan ekki söguna meir. Svona músik hæfir Breytingarnar á Paradís: Ólafur Kolbeins í Eik — en Ragnar vill helzt hœtta „Loksins fœr moður að gera eittíivað sjálfur" Loksins getur maður farið að vinna við þá tegund tónlistar, sem ég hef alltaf viljað syngja,” sagði Vilhjálmur Vilhjálmsson söngvari i viðtali við okkur suður i Hafnarfirði. bað eru nokkrir valinkunnir menn ásamt Vilhjálmi að vinna að siðustu upptökum á efni á nýja hljómplötu með Vilhjálmi. „Allir textarnir, eða ljóðin eru eftir Kristján frá Djúpalæk,” sagði Vilhjálmur. „Við Jónas (R. Jónsson) flugum norður og hittum skáldið heima. Hann tók okkur með kostum og kynjum, enda fylgjandi þeirri stefnu, að eldri skáldin, sem þau yngri eigi að reyna að hafa meiri sam- vinnu við tónlistarmenn af þeirri tegund er við flokkumst undir. Völdum við saman nokk- ur ljóð, eða texta, — Kristján segist engan greinarmun gera á Ijóði og texta, — og höfum nú hljóðritað þau við lög eftir m.a. Gunnar bórðarson og Magnús Kjartansson. Auk þess höfum við aðhæft sum að erlendum lögum.” Gunnar bórðarson er stjórn- andi upptöku og hefur séð um útsetningar, en auk þess hafa margir af okkar fremstu hljóð- færaleikurum „litið við á plöt- unni. Sérstaklega var Vilhjálm- ur hrifinn af trommuleik Ragnars „Gösla” Sigurðssonar og þá var lúðraþyturinn hjá Halldóri Pálssyni, saxófónleik- ara, nú ekkert slor. ,,Ég vil sem minnst segja um útkomuna á þessári plötu,” sagði Vilhjálmur. „Til þess er hún of ólik þvi, sem ég hef gert áður og ég vil heldur að fólk fái að mynda sér skoðun á henni sjálft, heldur en að vera að blása þetta upp i blöðum, áður en platan kemur út. bá er svo oft hætt við þvi að menn verði fyrir vonbrigðum. Sjálfur er ég samt ánægður, enda eins og ég sagði áðan er þetta i fyrsta skipti, sem ég fæ verulega að ráða þvi, hvað ég syng. Ég spila heldur ekki á neitt hljóðfæri á plötunni, — hljóðfæraleikurinn hefur alltaf verið númer tvö hjá mér, — auk þess eru til svo margir færir menn hér”. xxx Við fengum að heyra nokkur lög og virðist mér sem þarna sé á ferðinni plata með efni eins og titt er upp á siðkastið á Norður- löndum og hefur notið mikilla vinsælda. Ungir listamenn ganga til samstarfs við þá eldri og færa efni þeirra i nýjan að- gengilegri búning. Er það mjög gleðileg þróun og hefur sýnt sig t.d. i Danmörku og i Sviþjóð, að vinsældir eldri ljóðskálda og tónskálda aukast til muna. þegar verk þeirra eru flutt yngri kynslóðinni á þann hátt, sem hún skilur, í stað þumbaralegs jpplesturs i skólastoíum og i út- varpi, eða uppskrúfuðum út- setningum karlakóra. Tómas Guðmundsson ljóðskáld fékk á sig nýjan biæ i meðförum Jónasar og Heimis, hér um árið, Laxness sömuleiðis hjá vini sin- um Árna Johnsen. Savanna- trióið gerði vissa góða hluti, en þeirra útsetningar byggðust þó á ameriskri fyrirmynd. „bjóð- lagatrió” flest, sem i kjölfar þeirra fylgdu, byggðu svo efnis- skrár sinar á irskum og enskum þjóðlögum. Á siðustu árum hef- ur þó þokazt i rétta átt, — menn eins og Jóhann G. Jóhannsson og Gunnar bórðarson eru greinilega undir áhrifum frá islenzkri tónlist og Spilverk þjóðanna, sem ennþá er sambland af Wings og tónlist úr Delerium Búbónis, bind ég einn- ig miklar vonir við. —IIP Margir kunnir spilarar hafa lagt Vilhjálmi lið við þessa fyrstu ein- menningsplötu. Hér sjáum við félagana Magnús Éirlksson gitar- leikara og Pálma Gunnarsson bassaleikara, sem i vetur er viö tón- listarnám. Nýút- komnar hljómplötur Allmargar islenzkar hljómplötur liggja nú hjá okk- ur og biða þess að verða tekn- ar i umsögn. Ástæöan fyrir þessum bagalega drætti er sú, að fyrir jól var plássleysi i blaðinu og siöan hefur einfald- lega ekki gefizt timi til að ganga frá umsögnunum. A þessu verður unnin bót á næslu dögum, eða um leið og (imi vinnst til. —ÚV. Hörður Torfason æfir nú fyrir þriðju LP-plötu sina, sem hljóð- rituð verður i lok mánaðarins. Herði til aðstoðar er bróðir hans Benedikt, sem lengi hefur leikið með islenzkum danshljómsveit- um, og Sveinn Jónsson, til skamms tima bassaleikari Cabaret. beir Benedikt og Sveinn voru m.a. saman i örn- um. Allt efnið er eftir Hörð, bæði !ög og textar, sem eru liklega meiri söngtextar en flest annað af þvi, sem komið hefur fram hér undanfarið. Textarnir eru mjög persónulegir, enda „allt byggt á minni eigin reynsíu,” eins og Hörður sagði i spjalli við Ólafur J. Kolbeins, fyrrum trommuleikari Paradisar, hefur nú gengið i Eik i stað Ólafs Sigurðssonar. Hefur nýja Eikin þegar hafið æfingar og ganga þær vel að sögn„ „Mér finnst mjög gaman að spila með strákunum i Eik,” sagði Ólafur Kolbeins i samtali við DB i gærkvöldi. „betta er náttúrlega allt annað en Para- dis en ekki siður skemmtilegt. Ég reikna með að við byrjum i kringum tuttugasta janúar. enda hafa æfingar gengið vel.” Ragnar Sigurðsson, gitaristi, sem vék úr Paradis ásamt Ólafi, er enn allsendis óákveðinn um framtiðar- áætlanir sinar. Hann er meira að segja ekki viss um hvort hann heldur áfram að spila yfir- leitt. „betta er svo mikil vit- leysa allt saman,” sagði hann i samtali við DB. „bað er alltaf sami rúnturinn i þessum bransa. Maður einangrast alveg frá öllu öðru, sérstaklega þegar maður er atvinnumaður. Ég held svei mér þá, að það væri nær fyrir mann að finna sér eitt- hvað annað áhugamál, þar sem maður getur haldið sambandi við annað fólk, gamla vini og félaga.” bað væri bæði synd og skömm ef ekki heyrðist .meira til Ragnars, sem tvímælalaust er sinhver efnilegasti gitarleikari er fram hefur komið i islenzku rokki um margra ára skeið. Enn er ekki öli von úti. —ÓV

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.