Dagblaðið - 14.01.1976, Blaðsíða 13
Dagblaöið. Miðvikudagur 14. janiiar 1976.
Dagblaðið. Miðvikudagur 14. jandar 1976.
Jimmy Rogers Armenn-
ingur þjáifar unga Armenn-
inga auk þess sem hann að-
stoðar Ingvar, þjáifara
Armanns, við þjálfun 1.
deildarliðs Armanns. Þessi
mynd hans Bjarnleifs er tekin
á æfingu Armanns í gærkvöld.
Spila körfuna fyrir
óhorfendur og sigur
— Rœtt við Jimmy Rogers, blökkumanninn í liði Ármanns
,,Ég sneri mér fyrst verulega að
körfunni i skóla vegna þess að
þeir sem voru I körfunni voru vin-
sælastir meðal stelpnanna. En i
lokin hafði ég svo gaman af þessu
að ég gat ómögulega hætt enda
ckki viljinn fyrir hendi,” sagði
Jimmy Rogers blökkumaðurinn,
sem leikur með liöi Armanns i
körfuboltanum, þegar við rædd-
um við hann i gær.
— Nú hins vegar er það orðið
þannig að ég spila til þess að
vinna og til að skemmta
áhorfendum. Siðan kemur kven-
fólkið.
Ég kem frá Houston i Texas og
þar er karfan sifellt að verða vin-
sælli. Auðvitað byrjaði maður að
spila körfuna i húsasundum — en
Fram - Val-
ur í kvöld!
Tveir leikir verða i islandsmót-
inu i handknattlcik i kvöld. Þá
leika Armann og Grótta i botn-
baráttunni og 'siðan leika erki-
fjendurnir Fram og Valur. Jón
Karlsson verður ekki með Val en
hins vegar leikur Gisli Blöndal
sinn fyrsta leik i vetur. Fyrri
leikurinn hefst kl. 20.30 I HöIIinni.
þegar ég var 17 ára byrjaði ég að
spila keppnisbolta i menntaskóla.
Hvort ég vilji hafa körfuna að
atvinnu? — Ég held að ég sé nógu
góður til þess — en þvi fylgja
ýmsar kvaðir. Ég vil heldur vera
frjáls og ferðast. Þannig hef ég
spilað körfubolta i Mexikó og
Argentinu.
Ég held að körfuboltinn hér sé i
mikilli framför. Hér eru margir
góðir leikmenn — og aukin hreyf-
ing að færast i körfuna. Þegar svo
er þá koma áhorfendur.
Þeir nenna ekki að horfa á ein-
hverja menn standa á vellinum
horfandi hver framan i annan.
Ármannsliðið hefur leikið mann á
mann og gefizt vel. í þremur
fyrstu leikjum okkar i Islands-
mótinu skoruðum við yfir 100 stig
— alls ekki slæmt. I liðinu eru
margir góðir leikmenn og það
sem mér ef til vill likar bezt er að
i liöinu er það mikil breidd að
enginn er ómissandi. Hér eru
ýmsir mjög góðir leikmenn —
sumir eru betri en ég — en það
vantar snerpuna.
Annars likar mér hér mjög vel
og ef Armann bæði mig um að
koma aftur yrði ég fyrstur hingað
upp. En eftir fyrstu vikur minar
hér var það ekki svo — helzt var
ég á þvi að fara aftur heim. Ég
finn alls ekkert fyrir þvi að vera
svartur — fyrir mérskiptir litur á
fólki ekki máli. Heldur persónan
sjálf. Til að mynda kom maður að
mér á veitingastað — gekk að
mér og byrjaði að svivirða mig —
eingöngu af þvi ég var svartur.
íþróttir
Ég hafði aldrei séð manninn áður
og ég var svolitið miður min fyrst
— en maður lærir að taka þessu.
Nú, hvað um það.Armannsliðið
er bezta liðið á Islandi, um það er
engum blöðum að fletta. 1 liðinu
eru margir góðir einstaklingar.
IR-ingar fylgja fast á eftir — en i
heildina eru 5 góð lið hér á landi.
Þvi finnst mér að alls ekki ætti að
fækka liðum i deildinni. Það sem
þrjú neðstu lið deildarinnar
vantar er sjálfstraust — til að
mynda Valur. Þegar við lékum
við þá stóðu þeir sig mjög vel i
byrjun. En svo komu nokkur mis-
tök i röð og allt hrundi — ekki stóð
steinn yfir steini. Þvi segi ég —
það sem vantar i liðið er
sjálfstraust. Nú svo annaö —
þessi lið ættu að biðja um hjálp.
Ekki endilega frá Ameriku — en
mann til þess að drifa þetta
áfram og styrkja liðið.
Leikir okkar i tslandsmótinu
hafa verið mjög skemmtilegir —
viðureign okkar við KR var hörð
og ég held að ég hafi aldrei
skammazt min eins og þegar ég
var rekinn af velli fyrir slagsmál-
in við Carter. En hvað myndir þú
gera ef þú fengir heljar högg á
’ann? Maður hugsar ékki i hita
augnabliksins — heldur svarar
fyrirsig. Ekki endilega viljandi —
heldur verða þetta fyrstu við-
brögð. Carter sló mig — ég svar-
aði og við vorum báðir reknir út
af. Mér finnst þvi að ég hafi ekki
átt að fá eins þungan dóm en
hvað um það. Þetta er búið og
gert og slikt kemur ekki fyrir aft-
ur, þvi lofa ég.
Ég er farinn að venjast
kuldanum og fólkinu og fólk mér.
Þvi er að einbeita sér að þvi að
vinna deildina.
Iþróttamaður ársins
— Ali „the greatest"
Kornelia Ender, sunddrottning frá A-Þýzkalandi íþróttakona ársins
Eins og við greindum frá fyrir
helgi, þá var Muhammed Ali
kjörinn iþróttamaður ársins af v-
þýzku fréttastofunni Inter-
nationale-Sports Korrespondez.
Þetta var i 29. skipti sem frétta-
stofan kaus iþróttamann ársins.
Ali — ,,the greatest” — hefur
ávallt verið i sviðsljósinu hvar
sem hann hefur farið. A siðast-
liðnu ári endurheimti hann
heimsm eistaratitilinn. Hann
sigraði George Foreman i Kins-
hasa i Zaire næsta auðveldlega.
Siðar barði hann Joe Bugner og
þá sjálfan erkifjandann, Joe
Frazier. Það fór þvi ekkert á
milli mála hver var bcztur — Ali.
Ali hefur unnið sér inn meiri
peninga en nokkur iþróttamaður
— samkvæmt hans eigin sögn, þá
hefur hann unnið sér inn
31.251.115 dollara — þrjátiuog-
einamilljóntvöhundruðfimmtiu-
og-eitt-þúsundeitthundraðog-
fimmtán dollara — hvorki meira
né minna.
Drengurinn úr skuggahverfum
Kentucky hefur þvi gert það gott.
Olympiumeistari — siðan heims-
meistari þegar hann vann titilinn
af Sonny heitnum Lisíon. Siðar
varð hann að gefa upp titilinn
vegna þess að hann neitaði að
taka þátt i hinu illræmda Viet-
namstriði. En Ali kom aftur —
vann titilinn og hefur nú verið
kjörinn iþróttamaður ársins.
Fimm efstu menn urðu:
Muhammed Ali, USA — Joao de
Oliveira, Brasiliu — setti glæsi-
legt heimsmet i þristökki á Pan-
Am leikunum i Mexikó. Þá kom
Nicki Lauda. Austurríki — siðan
heimsmethafinn i miluhlaupi
John Walker, Nýja-Sjálandi og
siðan Tim Shaw sundmaðurinn
frá Bandarikjunum.
Kornelia Ender frá A-Þýzka-
landi var valin iþróttakona árs-
ins. Kornelia hefur sett 14 heims-
met i sundi og á heimsmeistara-
mótinu i Cali varð hún fjórfaldur
heimsmeistari. Þar setti hún sitt
14. heimsmet — i 200 metra flug-
sundi. Synti vegalengdina á
1:01.24 min. Á Olympiuleikunum i
Munchen vann hún þrenn silfur-
verðlaun — og draumurinn er
Montreal — og gull þar.
Þrjátiu iþróttamenn hafa verið
valdir iþróttamenn ársins. Þeir
eru:
1947: Alax Jany,
Frakklandi..............sund
1948: Fanny Blankers-Koen,
Hollandi......frjálsar iþróttir
1949: Emil Zatopek,
Tékkóslóvakiu . frjálsar iþróttir
1950: Bob Mathias,
Bandarikjunum frjálsar iþróttir
1951: Emil Zatopek,
Tékkóslóvakiu . frjálsar iþróttir
1952: Emil Zatopek,
Tékkóslóvakiu . frjálsar iþróttir
1953: Fausto Coppi,
Italiu .............hjólreiðar
1954: Roger Bannister,
Englandi ......frjálsar iþróttir
1955: Sandor Iharos
Ungverjalandi . frjálsar iþróttir
Ali „the greatest”.
1956: Wladimir Kuz,
Sovétrikjunum. frjálsar iþróttir
1957: Wladimir Kuz,
Sovétrikjunum. frjálsar iþróttir
1958: Herbert Elliot
Astraliu .....frjálsar iþróttir
1959: W. Kusnezow,
Sovétrikjunum. frjálsar iþróttir
1960: Wilma Rudolph,
Bandarikjunum frjálsar iþróttir
1961: Valery Brumel,
Sovétrikjunum. frjálsar iþróttir
1962: Valery Brumel,
Sovétrikjunum. frjálsar iþróttir
1963: Valery Brumel,
Sovétrikjunum. frjálsar iþróttir
1964: Don Schollander,
Bandarikjunum ..........sund
1965: Ron Clarke,
Ástraliu .....frjálsar iþróttir
1966: Jim Ryun,
Bandarikjunum frjálsar iþróttir
1967: Jim Ryun,
Bandarikjunum frjálsar iþróttir
1968: Bob Beamon,
Bandarikjunum frjálsar iþróttir
1969: Eddy Merckx,
Belgiu ............hjólreiðar
1970: Pele,
Brasiliu..........knattspyrna
1971: Eddy Merckx,
Belgiu.............hjólreiðar
1972: Mark Spitz,
Bandarikjunum ...........sund
1973: Jackie Stewart,
Bretlandi..........kappakstur
1974: Eddy Merckx,
Belgiu ............hjólreiðar
1975: Muhammed Ali,
Bandarikjunum.... hnefaleikar
Kosning iþróttakonu ársins
hefur farið átta sinnum fram.
Þær hafa hlotið hinn eftirsótta
titil.
1968: Vera Caslavs,
Tékkóslóvakiu.......fimleikar
1969: Lisle Westermann,
Vestur-Þýzkalandi....frjálsar
iþróttir
1970: Chi-Cheng,
Formósu ......frjálsar iþróttir
1971: Shane Gould,
Ástraliu.................sund
1972: Shane Gould,
Ástraliu.................sund
1973: Kornelia Ender,
A-Þýzkalandi.............sund
1974? Irena Szewinska,
Póllandi......frjálsar iþróttir
1975: Kornelia Ender,
A-Þýzkalandi .. frjálsar iþróttir
Frá 1. deildinni i Englandi I vetur. Keith Robson skorar fyrir West Ham — Bryan King gerir árangurs-
lausa tiiraun tii að verja —fyrrum Celtic leikmaöurinn Jim Brogan horfir á.
Norwich sigraði
litla Rochdale!
— en það var ekki fyrr en liðin höfðu tvisvar skilið jöfn
Loksins tókst 1. deildarliði
Norwich að sigra 4. deildarlið
Rochdale frá Lancashire — en
þaö tók þrjá leiki. Fyrst var leikið
á Carrow Road i Norwich og jafn-
tefli varð 1-1. Siðan var ieikið i
Lancashire og enn varð jafntefli
— raunar mátti Norwich þakka
fyrir jafnteflið.
t gærkvöld var aftur leikið á
Carrow Road i Norwich og 1.
deildarliðið sigraði 2-1 — naumt
var það.
Ted MacDougall skoraði fyrsta
mark leiksins úr viti eftir að varið
hafði verið með hendi á linu. En
litla Rochdale var ekki á þvi að
gefast upp — Bob Nountford jafn-
aði þegar hann skallaði framhjá
Kevin Keelan i marki Norwich.
Colin Suggett skoraði siðan
markið sem kom Norwich áfram.
En litum á úrslitin.
Bikarinn 3. umferð:
Norwich-Rochdale 2-1
Deildabikarinn undanúrslit:
Middlesbrough-M.City 1-0
3. deiid.
Preston-Rotherham 3-2
Middlesbrough og Manchester
City mættust i annað sinn á fjór-
um dögum i gærkvöld á Ayrsome
Park i Middlesbrough. Mikið er i
húfi — rétturinn um að leika á
Wembley. Aftur sigraði Middles-
brough með eina markinu i leikn-
um. John Hickton skoraði markið
á 65. minútu eftir skemmtilegan
samleik hans og Stuart Boam og
fyrrum Leeds leikmannsins
Terry Cooper. Joe Corrigan átti
enn einn stórleikinn i marki City
ogTony Book, framkvæmdastjóri
liðsins, hefur sagt að hann sé
bezti markvörður Englands i dag.
Mikil forföll voru i liði City —
Denis Tueart, Dave Watson, Colin
Bell — allir leikmenn Englands
ásamt Barnes léku ekki með i
gærkvöld.
Hvort þessi sigur er nógu stór
skal ósagt látið — en City vann
Middlesbrough 4-0 i haust á
Maine Road. Siðari leikurinn fer
fram á Maine Road i næstu viku.
Úrslitin
í kvöld
Sundknattleiksmenn hafa verið
á ferðinni undanfarið, Þrir leikir
hafa þegar verið leiknir i Haust-
mótinu og hafa meistararnir frá i
fyrra, Ægir, tapað báðum sinum
leikjum við KR og Armann. Hins
vegar hafa KR og Ármann gert
jafntefli i innbyrðis leik sinum.
Úrslit:
Armann —Kr 6-6
Ægir — KR 3-5
Ármann — Ægir 7-4
i kvöld fer þvi fram úrslita-
leikur mótsins i Sundhöll Reykja-
vikur og hefst hann kl. 9.45.
Bretarnir koma
— Brezka Olympíuliðið í körfuknattleik kemur
til íslands og leikur hér þrjá leiki
Körfuknattleiksmenn fá óvænta
heimsókn þegar Olympiulið Bret-
lands kemur I heimsókn og leikur
þrjá leiki, 8., 9. og 10. febrúar.
Mitt i öllum deilum um þorska
hafa Bretar sent KKÍ skeyti þar
sem þeir boða komu sina.
Brezka liðið er mjög sterkt —
þeir hafa fengið ameriska körfu-
knattleiksmenn til liðs við sig og
látið þá hafa brezk vegabréf.
Þannig mega þessir menn leika
með landsliði Bretlandseyja. A
örskömmum tima hefur landslið
þeirra náð ótrúlegum árangri —
þannig töpuðu þeir fyrir Tyrkj-
um, sem er mjög sterk
körfuknattleiksþjóð með aðeins
tveimur stigum. Þetta sýnir
styrkleika liðsins og eru Bretar
mjög ánægðir með þennan árang-
ur, sem von er.
En það er lika fleira á döfinni
hjá KKI. Sambandið sendi þátt-
tökutilkynningu i undankeppni
Olympiuleikanna. 1 Evrópu er að-
eins einn riðill — og hafði KKl
sent þátttökutilkynningu i þann
riðil, sem fram fer i Edinborg.
Einhverra hluta' vegna brá svo
við að tsland var ekki með i hatt-
inum þegar dregið var — og þvi
fer tsland alls ekki til Edinborg-
ar!
Þess i stað bauð FIBA —
aiþjóða körfuknattleikssamband-
ið — íslendingum að taka þátt i
riðli i Hamilton i Ontario-riki i
Kanada. Þar verða þjóðir frá öll-
um álfum heims og ljóst er að þær
þjóðir, sem þátt taka i riðlinum
eru geipisterkar.
Svo virðist sem Island fái að
fara til Ontario vegna mistaka
FIBA — leikirnir i riðlinum verða
frá 26. júni og fram i júli. Kjör
sem sambandinu hafa borizt eru
mjög góð og þvi eru þessi býti vel
þegin.
Þarna Ieika um 20 lið — og
komast þrjú lið áfram. Ekki er að
búast við að lsland komist upp úr
riðlinum, en islenzkum körfu-
knattleiksmönnum gefst þarna
kjörið tækifæri til að fara á Olym-
piuleikana. sem "byrja aðeins 10
dögum eftir að undankeppninni
lýkur.
Landsliðshópur 20 manna hefur
verið valinn fyrir leikinn við
Breta og hann skipa:
Frá UMFN: Stefán Bjarkason.
Gunnar Þorvarðarson, Kári
Marisson. Jónas Jóhannesson.
Frá Ármanni: Jón Sigurðsson.
Guðsteinn Ingimundarson, Birgir
örn Birgis. Björn Magnússon.
F’rá KR: Kolbeinn Pálsson.
Bjarni Jóhannesson. Eirikur Jó-
hannesson. Árni Guðmundsson.
Frá 1R: Kristinn Jörundsson.
Kolbeinn Kristinsson, Þorsteinn
Hallgrimsson. Jón Jörundsson.
FráSnæfelli: Kristján Agústsson.
Frá Val: Torfi Magnússon.
Frá ÍS: Bjarni Gunnar Sveinsson.
Frá Fram: Arngrimur
Thorlacius.