Dagblaðið - 14.01.1976, Page 9

Dagblaðið - 14.01.1976, Page 9
Dagblaðið. Miðvikudagur 14. janúar 1976. 9 \ Velta Flugleiða 13,3 milliarðar - og einhver hagnaður verður eftir Leiguflugið jókst um 23,8% og skapar verulegan hluta hagnaðarins „Flugleiðir munu skila hagn- aði á árinu 1975 en ljóst er að hann verður ekki mikill,” sagði örn Johnson forstjóri á blaða- mannafundi sem Flugleiðir efndu til i gær. Velta félagsins á árinu nam 83 milljónum dala eða um 13,3 milljörðum króna. Lögð var áherzla á að hagnað- urinn væri sameiningu flugfé- laganna að þakka. Tekizt hefði að ná endum saman i erfiðum rekstri ársins með þvi að draga úr sætaframboði og ná á þann hátt betri sætanýtingu. Einnig hefði áunnizt sparnaður við samruna félaganna og minnk- andi skrifstofuhald og kostnað af þeim sökum. Það eina sem gekk verulega vel hjá félaginu miðað við fyrri ár var leiguflugið þar eru far- gjöld lægst, en sætanýting góð. örn Johnson sagði að með leigu- flugi væri átt við ferðirnar til sólarlanda svo og leiguflug i sumar fyrir SAS til Grænlands. Farþegum i leiguflugi fjölgaði um 23.8% frá árinu áður. Ekki liggur fyrir hverjar tekj- ur Flugleiðir höfðu af leiguflug- inu. Forráðamenn félagsins kváðu það hafa borið sig vel. Þeir töldu þó að hagnaður fé- lagsins á árinu væri ekki ein- göngu borinn uppi af hagnaði af leiguflugi. 1 N-Atlantshafsferðum félags- ins varð 7% fækkun farþega miðað við 1974. 1 Evrópuferðum varð 0,3% fjölgun farþega mið- að við 1974. Heildarfarþegatala félagsins i þessum ferðum lækk- aði þó ekki nema um 4,9% og er mismunarins að leita i betri sætanýtingu. Leiguflugið hressir upp á út- komuna. Það jókst sem fyrr segir um 23,8% frá árinu áður. Og heildarfarþegatala félagsins varð þess vegna 3,1% lægri en 1974. Farþegum Air Bahama, sem Flugleiðir eiga, fækkaði um 13.5% á árinu 1975 miðað við 1974. Alls ferðuðust milli landa með Flugleiðum (þ.e. LL, F1 og Ba- hamas) 487.732 farþegar móti 510.604 árið áður. Fækkunin nemur 4.6%. 1 innanlandsflugi ferðuðust 206.732 farþegar 1975 móti 201.375 árið 1974. Aukningin er 2,7%. Heildarfarþegatala allra deilda Flugleiða er þvi 694.096 móti 711.979 árið 1974. Fækkun nemur 2,5%. —A.St. Samruni flugfélaganna: Starfsfólki fœkkaði um 114 manns Fœkkunin aðallega meðal erlendra starfskrafta Aður en sameining flugfélag- anna fór fram var heildar- starfsmannafjöldi þeirra 1779 manns. Skiptust þeir þannig að hjá Loftleiðum unnu 1232, hjá Flugfélagi Islands 448 og 99 flugvirkjar unnu i Luxemborg. Þegar samruninn varð 1974 var ákveðið að flugvirkjarnir i Luxemborg tilheyrðu ekki leng- ur islenzku flugfélögunum held- ur flyttust yfir á starfsmanna- hald Cargolux. Séu þeir dregnir frá var starfsmannaf jöldi LL og F1 samtals 1680 manns fyrir samrunann. Eftir að samruninn gekk i gildi fækkaði starfsmönn- um i 1635 á árinu 1974 eða um 45 manns. Á árinu 1974 keyptu Flugleiðir Hótel Esju. Þar starfa 60 manns. Nú á árinu '75 er heild- arstarfsmannafjöldi (að Esju meðtalinni). 1624. Sé starfsfólk Esju undanskilið hefur fækkað i starfsliði Flugleiða um 114 manns frá þvi sem var fyrir samrunann. Þess ber og að gæta ‘að allmikil fækkun hefur orðið á farþegafjölda hjá félögunum á sama tima. Sami fjöldi manna mun vera i yfirstjórn eftir samruna og fyr- ir. 1 flugliði hefur fækkað úr 278 i 271. Aðalfækkunin að öðru leyti varð eftir þvi sem fram kom á blaðamannafundi Flugleiða i gær við það að skrifstofur F1 og LL erlendis voru sameinaðar. Má þvi ætla að verulegur hluti fækkunar starfsfólks hafi verið meðal erlendra starfskrafta. ASt. Starfsmannafjöldi Flugloida - þróun LL1232 IsS FL1575 Mm FL FI448 1779_____________1635 1624 STJÓRNUNARDEILD S/l IBTS Blaðamönnum sagðar fréttir af vexti og viðgangi Flugleiða, frá vinstri eru þeir forstjórarnir Sigurður Helgason, örn O. Johnson og Alfreð Eliasson. (DB-mynd Bj.Bj.) 40 milljón kr. tap á innanlandsfluginu Umbeðnar hœkkanir fargjalda fengust ekki „Innanlandsflug Flugfélags Islands var á sl. ári rekið með um 40 milljón króna tapi,” sagði örn Johnson forstjóri Flugleiða á blaðamannafundi i gær. Taldi örn að ástæðan væri eingöngu sú að stjórnvöld hefðu ekki veitt heimildir til nægjanlegra hækk- ana á flugfargjöldum. Áður fyrr hefði Flugfélagið fengið beiðnir sinar um hækkanir samþykktar án tregðu, enda alltaf sýnt fram á réttmæti hækkunarkrafnanna. Nú hefði sams konar beiðnum verið hafnað og árangurinn væri stórfellt tap. örn sagði að tvær af vélum F1 i innanlandsflugi væru að fullu afskrifaðar. Hinar væru á mis- jöfnu afskriftastigi. Reiknað væri með afskriftum í 40 millj. kr. tapupphæðinni. Örn kvað það ekki ætlun F1 að kaupa minni vélar- til innan- landsflugsins. Hins vegar kvað hann F1 eiga 37% hlutafjár i Flugfélagi Norðurlands. Þár hefði verið lagt til að keypt yrði Twin Otter vél, 19 sæta. Flugfé- lag Norðurlands annast „fram- haldsflug” i sambandi við ferðir Ft til Akureyrar til ýmissa staða á NA- og NV-landi. Hefur það samstarf, sem leitað var eftir að.Fl gerðist aðili að, að sögn Arnar, gefizt vel. Sætanýt- ing i innanlandsvélum F1 var á sl. ári svipuð og áður eða 62.6%. En eftir sem áður telja Flugfé- lagsmenn Fokkervélarnar heppilegustu vélarnar á öllum lengri flugleiðunum innanlands. ASt. „ÞETTA ER BEINT OG EÐLI- LEGT FRAMHALD í VERKINU — sagði Hjalti um nektarsenuna í Equus „Við Allan erum trúnaðarvin- ir," sagði Hjalti Rögnvaldsson þegar DB-menn ræddu við hann um leikritið Equus sem sýnt er hjá Leikfélagi Reykjavikur um þessar mundir, en þar leikur hann aðalhlutverkið, Allan. Hjalti er 26 ára og útskrifaðist úr Þjóðleikhússkólanum vorið 1972. „Þetta er mjög gott tæki- færi sem ég fæ. Strákurinn er afskaplega heilbrigður og alveg bráðgreindur. Það kemur mér reyndar ekki við af hverju hann gerði þetta en i fyrstu varð ég að viðurkenna fyrir sjálfum mér að svipaðir hlutir eru til hér,” sagði Hjalti. Allan, aðalpersóna leiksins, blindar sex hesta og er sendur á geðsjúkrahús. Er hann þar til meðferðar hjá lækni sem smám saman, við að kynnast drengn- um, fer að efast um réttmæti starfs sins og tilveru yfirleitt. „Það hefur komið fyrir að fóik hefur gengið út af sýningunni og veldur þvi eflaust nektaratriði i leikritinu,” sagði Jón Hjartar- son blaðafulltrúi Leikfélagsins. „Eflaust stuðar það áhorfendur að sjá nakið fólk a sviði en þetta atriði er i beinu og eðlilegu framhaldi i sýningunni,” sagði Jón. Það má geta þess að verið er að sýna þetta leikrit nú i New York við góða aðsókn og það er Antony Perkins sem fer þar með hlutverk Alans. K.P. Hjalti Rögnvaldsson og Halla Guðmundsdóttir i hlutverkum sin- um sem Allan og Jiil i leikritinu Equus.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.