Dagblaðið - 02.02.1976, Síða 11

Dagblaðið - 02.02.1976, Síða 11
Dagblaðið. Mánudagur 2. febrúar 1976. við heiminn í út að Bandaríkjamenn geta skotið um 6000 kjamorkusprengjum frá eldflaugum og um 2000 frá flugvél- um — alls um átta þúsund sprengj- ur. Sovétmenn geta á sama hátt rutt frá sér 2600 sprengjum. Fari sem áætlað hefur verið munu stórveldin tvö áður en langt um líður ráða samtals sautján þúsund kjarn- orkuoddum sem skiptast um það bil jafnt á milli þeirra og þá geta þau eytt hvert öðru ekki bara fimmtíu sinnum eins og núna, heldur hundrað sinnum. Dreifing kjarnorkuvopna Ekki fer á milli mála að mesta hætta mannkynsins er sú að allsherj- ar kjarnorkustríð brjótist út á milli Bandaríkjanna og Sovétríkjanna. Mesta hættan er líklegast á því að þau flæki sér inn í deilur minni ríkja sem hafa orðið sér úti um eigin kjarnorkuvopn (t.d. framtíðarstríð í Miðausturlöndum). Vegna þeirrar ósjálfráðu keðjuvirkni sem verður er takmarkað stríð byrjar og stórveldi flækjast í málið virðist augljóst að dreifing kjarnorkuvopna til landa, sem ekki ráða yfir. þeim nú þegar, er meiriháttar ógnun Við líf okkar og tilveru. Ekki eru nema nokkur ár síðan fiestum þjóðum heims varómögulegt að verða sér úti um kjarnorkuvopn. Ástæðurnar voru fyrst og fremst tvær — skortur á tæknikunnáttu og peningum. Þessi tvö atriði eru svo mikilvæg í þessu máli, að jafnvel þótt allur pólitískur vilji væri fyrir hendi, , þá má þau ekki vanta Þar. iað auki eru það ekki nema ríkjandi kjarnorkustórveldi sem geta ausið slíkum fjármunum í kjarnorku- vopnabúnað án þess að stöðva nær allar aðrar framkvæmdir. Samt er i*«i það svo að þessar tvær hindranir eru að hverfa, eða allavega hættar að vera svo ógurlegar. Þessi róttæka breyting er til komin vegna út- breiðslu kjarnorkuvísinda í friðsam- legum tilgangi. Tiltölulega fáir gera sér grein fyrir því hversu mjög kjarnorkuvísindin hafa breiðzt um heiminn og hversu 11 ör þróunin mun verða á næstu árum. næstu árum. Kjarnorkuvopnalöndin urðu fyrst til að smíða kjarnorkuknúða kjarna- kljúfa í friðsamlegum tilgangi — Bandaríkin og Sovétríkin 1954 og Frakkar og Bretar 1956. Friðsamlegar tilraunir með kjarnorkuvopn komu í beinu framhaldi af tilraunum í hernaðarskyni. Vekja má athygli á því að þróunin hjá nýjasta kjarn- orkuveldinu, Indlandi, var öfug, þ.e. að kjarnorkusprengja Indverja var afieiðing af friðsamlegum tilraunum með kjarnorku og meira að segja tiltölulega ódýr. Indverska tilraunin pr sögð hafa kostað sem svarar 6.4 milljörðum íslenzkra króna, þar er meðtalið nauðsynlegt plútóníum og undirbúningurinn á sjálfu tilrauna- svæðinu. Sambandslýðveldið (V) Þýzkaland varð fyrsta landið til að fara af stað með kjarnorkuáætlun sem var ein- göngu í friðsamlegum tilgangi. Fyrstu kjarnakljúfarnir voru teknir í notkun 1960. Kandamenn'og ítalir voru næstir, þeirra kjarnakljúfar voru teknir í notkun 1962. Svíar og Japanir byrjuðu 1963, Austur- Þjóðverjar og Svisslendingar 1966, Hollendingar og Spánverjar 1968, Belgar og Indverjar 1969, Pakistanir 1971, Tékkar 1972,'Argentínumenn og Búlgarar 1974 og Suður- Kóreumenn á liðnu ári, 1975. Kín- verjar byggðu einn eða tvo kjarna- kljúfa í loks sjötta eða upphafi sjöunda áratugs. Þeir voru notaðir til að sjá úraníumvinnslustöð fyrir orku, en það var aftur hluti af kjarnorku- vopnaáætlun Kínverja. f lok 1975 réðu tuttugu og eitt ríki yfir kjarnorku og áttu kjarnakljúfa. Fimm lönd til viðbótar — Austur- ríki, Brazilía, Finnland, Taiwan og Júgóslavía — eru að smíða sína fyrstu kjarnakljúfa. Mörg önnur ríki, þeirra á meðal Ástralía, Danmörk, Egyptaland, Ungverjaland, íran, ísrael, Mexíkó, Filipseyjar, Pólland, Rúmenía, Suður-Afríka og Thailand hafa sýnt áhuga á að eignast kjarna- kljúfa og hefja þannig sína eigin kjarnorkugöngu. Sá möguleiki er vissulega fyrir hendi að til kjarnorkustríðs komi. Þá er ekki að spyrja að leikslokum, eða eins og Morton Halperin, fyrrum einn aðstoðarvarnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði nýlega um NATO og kjarnorkustyrjöld: ,,Nato-kenningin er sú, að fyrst berjumst við með venjulegum vopn- um þangað til við erum að tapa, síðan verjumst við með kjarnorku- vopnum þangað til við erum að tapa, og síðan sprengjum við heiminn í loft upp.” —ByKRt á Ambio. ■\ 7 LEIKHÚS 0G PÓLITÍK Skammdegisdeilurnar í vetur hafa mest snúist um menningarmál, bók- menntir og gagnrýni, leiklist og leik- listargagnrýni og raunar leikhúsmál almennt, eiqkum vegna borgarleik- hússins. Og á sviði menningarmála hafa nýverið gerst óvænt tíðindi með veitingu fyrst bókmennta- og síðan tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs til íslenskra höfunda En deilur hafa ekki sprottið af tilefni þeirra atburða — þótt að vísu mætti taka eftir því hversu taiega þessum tiðindum var tekið í „stærsta blaði landsmanna,” Að öðru leyti munu þau hafa vakið almenningsathygli og ánægju. V f eðli sínu pólitískt? Burtséð frá innanblaðs-deilum á Tímanum um bækur og ritdóma kann sá partur þessara skammdegis- umræðna sem snúist hefur um Góðu sálina í Sesúan og sýningu hennar í Þjóðleikhúsinu að þykja hégómleg- astur. Fljótt á litið snýst sú ^eila einvörðungu um smekkságreining sem hverjum áhugamanni uni efnið er i lófa lagið að skera úr honum fyrir sjálfan sig — með þvi einfalda bragði að fara og sjá sýninguna. Hafi dræm- legar undirtektir sumra gagnrýnenda blaðanna að einhverju leyti spillt fyrir aðsókn að sýningunni, eins og haldið hefur verið fram, þá hafa væntanlega þessar umræður eftir á gert meir en bæta upp þá auglýsingu sem á vantaði í fyrstunni. En það má svo sem vera að þetta deilumál sé ekki alveg eins marklaust og það sýnist. Óneitanlega er Bert Brecht mikils háttar höfundur sem nokkru varðar hversu tekst að tjá og túlka á íslensku leiksviði. Hvað hafa íslenskir leik- húsmenn að læra af kenningum Brechts um leiklist og leikhús, hafa þeir rækt eða vanrækt þessa lærdóma i sýningu Góðu sálarinnar? Hefur Brecht í Góðu sálinni pólitískan boðskap að bera íslenskum áhorf- endum sem brýnt er að nái fram að ganga, hvernig tekst á sýningu Þjóð- leikhússins að koma þessu efni leiks- ins til skila? Og ef það ekki hefur tekist — hvernig stendur þá á því? Þessi spursinál held ég að varla verði kölluð með öllu marklaus. Og væru þau rædd til hlítar kynni um- ræðan brátt að snúast frá sýningunni sjálfri að listrænu starfi og stefnu- mótun leikhússins, félagslegu hlut- verki þess og hlutdeild í menningarlífi og pólitík. Að þessu efni efni vék Ævar Kvaran í yfirlýsingu sem hann birti fyrir hönd Leikarafélags Þjóðleikhússins út af leikdómi Sverris Hólmarssonar í Þjóðviljanum (10/1): „Við lýsum yfir því, að það sé ekki aðeins réttur leikhúss í lýðrasðisríki, heldur beinlínis skylda að taka til meðferðar verk, sem lýsa ólíkúm sjónarmiðum og bera vitni þeim and- stæðum, sem búa í því þjóðfélagi sem rekur þetta leikhús. Allt leikhús er 1 eðli sínu pólitískt. Þjóðleikhús má hins vegar aldrei vera flokkspóli- tískt.” Þetta er nokkuð gott hjá Ævari. Ef hann hefur rétt fyrir sér í því efni að leikhúsið sé „í eðli sínu pólitískt” — skyldi það þá ekki líka vera rétt hjá Sverri Hólmarssyni að Þjóðleikhúsið þjóni í fyrsta lagi pólitískum hags- munum hins borgaralega þjóðfélags sem rekur það og sinna borgaralegu áhorfenda? Þar með kemur upp óvænt, en rökrétt skýring á því hvers vegna einmitt meir og minna póli- tískum ádeiluefnum er svo gjarnt að misfarast í Þjóðleikhúsinu, að ein- hverju eða öllu leyti. Það hygg ég að eigi við jafn-ólík viðfangsefni og Góðu sálina í vetur, eða .sænska um- ræðuleikinn um hagi geðsjúkra, Hvernig er heilsan og meir að segja klassískt viðfangsefni eins og Þjóð- níðing í fyrra. Líka má taka eftir því að alls einskis áhuga varð í haust vart á því að setja Sporvagninn Girnd 1 samband við kvennapólitík nútímans sem þó var í hámælum sömu dagana sem sýningin kom upp í Þjóðleikhús- inu. Samt væri það vísasti vegurinn til að vekja á ný áhuga á dálítið rykföllnu leikriti Tennesse Williams. Hús í borg Um þetta mætti sjálfsagt ræða nánar, ef menn nenntu þvi. Ég vil samt hafa það fyrir satt að þeir Sverrir og Ævar hafi enn ekki gert nema klingja saman pólitískum frös- um, ósköp marklitlum meðan þeir standa einir á blaðinu. I allan vetur hefur mallað í blöð- um og útvarpi umræða um málefni borgarleikhúss í Reykjavik. Á dögun- um bar svo við að birtist í Morgun- blaðinu (17/1) itarleg grein eftir fjóra leikara um leikhúsmálið sem ég hygg að bæði sé eitthvert markveið- asta tillag til þessarar umtæðu i vetur og hið fyrsta sem leikarar hafa haft til hennar að leggja. Leikararnir fjórir (Brynja Benediktsdóttir, Helga Jónsdóttir, Kristbjörg Kjeld, Þórhallur Sigurðsson) leggja í grein sinni mest upp úr þvi að I rauninni hafi ekki verið stuðst við „íslenska reynslu” í Menningar mál áformunum um byggingu borgarleik- húss, eins og Leikfélagsmenn hafa • látið í veðri vaka, að virt hafi verið að vettugi reynsla þeirra leikhúsmanna og fjárveitingavalds af rekstri Þjóðleikhússins undanfarinn aldarfjórðung, að með byggyigu þess verði enn haldið áfram háskalegri aðgreiningar- og óstjórnarstefnu í menningarmálum. Þau hafna þeirri skoðun að fyrir framþróun leiklistar á íslandi sé það nú brýnast að koma upp stóru, nýju tæknivæddu og að því skapi kostnaðarfreku atvinnuleik- húsi við hlið Þjóðleikhússins. Það þykir kannski ankannalegt að umræða um borgarleikhúsið skuli fyrst og síðast snúast um fjárhags- mál. En auðvitað er hér í fyrsta lagi um fjárhagsmál að tefia: með bygg- ingu leikhússins er mjög veru- legum fjármunum ráðstafað um alla fyrirsjáanlega framtíð, fyrst til bygg- ingar hússins og síðan til reksturs þess. Engan hef ég heyrt telja það eftir að þessu fé verði varið til leik- listarstarfsemi. En mönnum ofbýður tilkostnaður við leikhúsið í upphafi þess og síðan fyrirsjáanlegur rekstrar- kostnaður, og draga í efa að þörf verði fyrir tvö svo lík leikhús sem Borgarleikhús og Þjóðleikhús sýnilega verða hlið við hlið í Reykja- vík og bæði fyrirsjáanleg í sömu fjárhagskreppunni. Það er líka vandalaust að benda á önnur brýn viðfangsefni í leiklistar- málum en byggingu borgarleikhúss: þörf sem þykja kann á stofnun reglu- legra íslenskra óperu- og ballett- fiokka, starfrækslu sjálfstæðs útvarps-| leikhúss í hljóð- og sjónvarpi, van- rækslu Þjóðleikhússins alla þess tíð að sinna leiklist úti um land. Væri kannski nær en byggja nýtt leikhús í Reykjavík að stuðla að því að upp komist atvinnu- leikhús úti á landsbyggðinni, eins og vísir er raunar hafinn að á Akureyri? Og það má líka halda því fram, að þótt borgarleikhús í Reykjavík kunni að vera þörf og nauðsynleg stofnun, þá verði félagslegu og listrænu hlut- verki þess betur sinnt með öðrum hætti og í öðrum% starfssniðum en hinu fyrirhugaða Borgarleikhúsi eins og það nú liggur fyrir á teikningum og líkani. Pólitísk ávörðun Reykjavíkurborg- ar og Leikfélagsins um stofnun, byggingu og starfrækslu borgarleik- hússins er í fyrsta lagi fjárhagslegs eðlis: alls ólíklegt er að meiri fjármunir falli af borgarinnar hálfu til leiklistar en leikhúsið mun þurfa til sinna nota. Um leið felur hún í sér mcnningarpólitíska stefnu- mörkum: því er slegið föstu að félags- legt og listrænt hlutverk leiklistar í Reykjavík skuli eftirleiðis vera í meg- inatriðum óbreytt frá því sem verið hefur undanfarin ár og áratugi. Er það nú endilega rétt að svo þurfi að vera? Annarstaðar eru að minnsta kosti margskonar hugmyndir á lofti um breytta stöðu og ^ildi leiklistar og leikhúsa í mcnningarlífinu. í haust var eitt sinn bent á það hér í blaðinu ( grein sem nefndist „Stofnun úr stcinstcypu”, 25/10 75) að tómt máí væri að tala um „breytt hlutverk” leikhúss og leiklistar hér hjá okkur meðan ekkert benti til að áhugi væri á eða umræða um þvílík- ar hugmyndir í hóp leikara og leik- húsmanna sjálfra. Það er vonandi að grein „inúka” í Morgunblaðinu bendi til að svo sé, þrátt fyrir allt. Enn um leiðindi Deilur um Góðu sálina í Sesúan hófust í vetur með grein sem þýðandi leiksins Þorsteinn Þorsteinsson, skrif- aði í Þjóðviljann (9/1) út af fyrrgetn- um leikdómi Sverris Hólmarssonar. Þær náðu sér aldrei á strik vegna þess að Sverrir hefur ekki haft það við Þorstein að svara honum, fyrr en þá, fjarska lauslegum orðum, í útvarps- þætti á föstudagskvöld. En Þorsteinn vék líka nokkrum orðum að umsögnum mínum um leiklist í vetur og á undanförnum árum. Það voru eiginlega ansi alvarlegar ásakanir sem Þorsteinn bar fram,' að vegna einhvers ónæmis, ef ekki hreinnar og beinnar andúðar á efninu væri ég ófær um að gera mér gott af því sem fram fer í leikhúsi. Ef hann hefði rétt fyrir sér væri mér skammar nær að pakka saman skriffærunum. í nýrri grein sem Þorst. Þorst.son hefur síðan skrifað um þetta hugtæka efni, þetta í Dagblaðið (19/1), virðist hann samt ekki meina meir en að sér leiðist að lesa það sem ég skrifa um þessi mál. Þetta eru nú Ijótu fréttirnar, ég vil gjarnan hafa sem fiesta greinda og gegna lesendur og þykir illt að vera án Þorsteins í þeim hópi. Betra ráð kann ég samt ekki að gefa honum, eins og þessi „deila” hefur artað sig, en hann láti vera að auka sér skap- raun með þessum hætti. Þorsteinn Þorsteinsson vill sem sé ckki talá um það sem á milli ber. Hann nefndir dæmi leiksýninga, Góðu sálina í vetur, Hafið bláa hafið fyrir tveimur árum, sem við erum ekki samdóma um. En sé hann beðinn að gera sjálfur grein fyrir verðleikum þessara eða annarra sýninga sem honum finnst að% hafi verið vanmetnar, svarar hann bara: farðu sjálfur að leika.Ólafur minn,þá verður svo gaman. Það er óneitan- lega erfitt að tala saman upp á þessi býti. En Þorsteinn Þorsteinsson viðhefur stór orð, almenn og nokkurn veginn marklaus lýsingarorð um leik- sýningar („Heillandi”, „ánægjuleg”, „vönduð”) og um lciklistargagnrýn- 'cndur („Hrokafullir”, „íakunn- andi”). Það getur hann!

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.