Dagblaðið - 02.02.1976, Síða 13
Dagblaðið. Mánudagur 2. febrúar 1976.
12
g
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Glœsimet
Guðmundar
- og farseðill á Olympíuleikana í Montreal
Guðmundur Sigurðsson, lyftinga-
maðurinn góðkunni í Ármanni setti
glæsileg íslandsmet á lyftingamóti í
sjónvarpssal á laugardag og tryggði sér
rétt til þátttöku á Olympíuleikunum í
Montreal. Náði lágmarksafrekunum í
milliþungavigt.
Gúðmundur jafnhattaði 190 kg —
íslandsmet — og snaraði 145 kg. Sam-
tals 335 kg, sem er frábær árangur og
met. Guðmundur er þar með þriðji
lyftingamaðurinn, sem vinnur sér rétt á
Ólympíuleikana. Áður höfðu Óskar
Sigurpálsson og Gústaf Agnarsson
ur.nið það afrek. Gústaf vann einnig
mjög góð afrek á mótinu á laugardag —
jafnhattaði léttilega 190 kg og sýndi, að
202.5 kg verður næsti árangur hans.
Var nærri að ná þeirri vigt.
Kári Elísson setti fslandsmet í fjaður-
vigt á mótinu — og Skúli óskarsson
einnig. Jafnhattaði 145 kg og náði sam-'
tals 252.5 kg. Greinilegt að lyftinga-
menn okkar eru í mjög góðri æfingu —
og þar eigum við þegar menn, sem
verða góðir fulltrúar á Olympíuleikun-
um.
Fyrstí útisigur-
im hjú Dankersen
Loksins tókst okkur hjá Dankersen að
sigra á útivelli. Unnum Wellinghofen
Danir í úrslitin
12—8 á sunnudag í Dortmund og var
það kærkominn sigur. En þetta var
slakur leikur — sóknarleikurinn bág-
borinn hjá báðum liðum, sagði Ólafur
H. Jónsson við Dagblaðið í gærkvöld,
en varnarleikur sterkur.
Ray Stevens, Englandi, sigraði
heimsmeistarann Svend Pri í
Thomas-bikarnum í badminton í
Kaupmannahöfn á laugardag 15-11,
12-15 og 15-11. Danmörk sigraði
England þó 6-3 — Delfs vann Stev-
ens auðveldlega í gær — en leikurinn
var í undanúrslitum keppninnar. Eftir
fyrri daginn stóð 2-2 en Danir unnu
fjóra af fimm leikjum í gær.
Landsleikur við
Vestur-Þýzkaland?
Þýzka handknattleikssambandið hef-
ur tekið íþróttahöllina í Minden á leigu
4. apríl og er altalað hér í Minden að
þann dag verði landsleikur milli Vest-
ur-Þýzkalands og íslands í handknatt-
leik í höllinni, sagði Ólafur H. Jónsson
við Dagblaðið í gær. Þeir Axel og
Ólafur búa í Minden.
HSÍ reyndi að fá landsleiki við V-
Þjóðverja og Frakka um mánaðamótin
febrúar marz — en tókst ekki.
Það voru sveiflur í leiknum. Staðan
var 5—4 fyrir okkur í hálfleik, og síð-
an komumst við í 9—7, 11—8 og
unnum 12—8. Ég skoraði þrjú mörk,
sagði Ólafur, og Axel Axelsson skoraði
eitt. Gummersbach er í efsta sæti með
22 stig, Dankersen hefur 15, Phönix 14
og Derschlag 13.
Hamborg og Phönix gerðu jafntefli í
gær 13—13. Einar Magnússon lék ekki
með — og verður ekki með fyrr en um
miðjan marz. Er enn með járnin í
fingrinum. Derschlag vann Bad
Schwartau, svo Hamborg er komið upp
fyrir það lið að stigum. Gummersbach
vann Kiel 13—9 í Kiel.
í suðurdeildinni missti Göppingen
endanlega af mögulcikanum á efsta
sætinu, þegar liðið tapaði fyrir
Rintheim á útivelli 17—19 í gær.
Gunnar Einarsson skoraði þrjú mörk í
leiknum, Donzdorf, liðið, sem Ólafur
Einarsson leikur með, sigraði, en er þó
enn í 3ja sæti —stigi á eftir tveimur
efstu liðunum.
Mahnberget vann
en Lugi topoði
Þetta var ákaflega lélegur leikur hjá
okkur í Lugi og við töpuðum á heima-
velli fyrir næst neðsta liðinu í All-
svenskan, Drott, með 13-16, á
sunnudag, sagði Jón Hjaltalín
Magnússon, þegar Dagblaðið ræddi við
hann. Hins vegar sigraði Malmberget,
liðið, sem Ágúst Svavarsson leikur með.
Það var á heimavelli gegn næst efsta
liðinu, Ystad, 26-22, og þar með fyrsti
sigur Malmberget staðreynd í 14
umferðum.
Ég veit ekki hvað Ágúst skoraði mikið
af mörkum, sagði Jón ennfremur, en
hann hefur verið drjúgur við það síðan
hann kom hingað til Svíþjóðar. Við hjá
Lugi fórum illa með tækifærin. Hittnin
ákaflega léleg. Sjálfum gekk mér allvel
— var markhæstur með 5 mörk í 10
tilraunum. Rinne var næstur með 4
mörk. Heim vann Hellas með 19-16 og
er efst með 20 stig. Ystad hefur 18, Lugi
17 og Hellas 16, en fjögur efstu liðin
keppa um sænska meistaratitilinn. Fjór-
ar umferðir eru eftir. Malmö, sem vann
Guif 16-15 í gær, hefur 15 stig — en
þrátt fyrir sigur Malmberget er li&ið
fallið. Lugi leikur næst við Ystad á
heimavelli.
Jafntefli Standard
Við sjáum mikið eftir því eftir á, að
leikurinn við Malines skyldi háður.
Náðum aðeins jafntefli við neðsta Iiðið
0-0, sagði Ásgeir Sigurvinsson við Dag-
blaðið í gærkvöld. Völlurinn í Liege var
ísilagður og það var bókstaflega ekki
hægt að leika knattspyrnu — leikmenn
runnu og féllu. Þetta var ekki knatt-
spyrna.
Aðeins fjórir leikir voru háðir. Guð-
geir Leifsson átti að Ieika með
Charleroi, en leik liðsins var frestað.
Það hefði dómarinn einnig átt að gera
hér — fresta leiknum til miðvikudags
eins og gert var víðast hvar, sagði Ásgeir
ennfremur. í Hollandi var t.d. öllum
leikjum frestað. Úrslit í leikjunum fjór-
um í Belgíu urðu þessi.
Molenbeek-Liegeois
Malinois-La Louviere
Standard-Malines
Antwerpen-Waregem
•2—1
2—4
0—Ó
0—0
■ Mm-
■
Hörftur Sigmarsson hefur átt fremur rólega leiki undanfarið
— og í markið.
en þama hefur hann ná að senda boltann yfir Vikingtvömina'
töpuðu fyrir Víking 21-23 og bœði liðin eygja nú aðeins
frœðilega möguleika ú titlinum
Víkingur sigraði Hauka nokkuð ör-
ugglega í 1. deild í gærkvöld. Þar með
má segja að Haukar hafi endanlega
orðið af fslandsmeistaratitlinum, sem
og auðvitað Víkingur. Möguleikar þess-
ara liða eru að vísu fyrir hendi en
aðeins frasðilegir — og þá má mikið
ganga á. Það verða því Valur eða FH
sem koma tíl með að kljást um titilinn.
Leikurinn í gærkvöldi bar með sér
viðureign tveggja miðlungsliða — fátt*
sem gladdi augað, nema ef til vill
einstaklingsframtak þeirra Stefán Hall-
dórssonar úr Víking og Sigurgeirs Mar-
teinssonar úr Haukum.
Vörnum beggja liða gekk illa að
hemja Stefán og Sigurgeir —>- Stefán
skoraði 10 mörk — Sigurgeir 9. Hafi
leikurinn einkennzt öðru fremur af
viðureign Stefáns og Sigurgeirs — þá
var það markvarzla Sigurgeirs Sigurðs-
sonar í marki Víkings sán réð því að
Leikinn dæmdu þeir Valur Benedikts-
son og Magnús V. Pétursson og verður
ekki annað sagt en þeir hafi verið milli
steins og sleggju eftir það sem hefuri
gengið á fyrr í vetur. Það verður að;
segjast eins og er að heldur högnuðust
Víkingar á dómgæzlu þeirra félaga.
Hvað hefði skeð ef rétt einu sinni hefði
soðið upp úr? Nóg um það:
Víkingar gengu af hólmi sem sigurveg-
arar. Hvað eftir annað varði hann
ágætlega á meðan allt lak inn hinum
megin.
Nú, en Víkingur skoraði fyrsta mark
leiksins — Haukar svöruðu með þremur
mörkum. En Víkingur seig framúr —
eftir 20 mínútur var staðan orðin 9-5 og
í hálfleik 11-8 Reykjavíkurliðinu í vil.
Lengst af í síðari hálfleik var munur-
inn 2-3 mörk og þegar 10 mínútur voru
til leiksloka voru Haukarnir búnir að
minnka muninn í 1 mark — 17-16. Þá
hins vegar svaraði Stefán með tveimur
mörkum og eftir það var aldrei spum-
ing um hver sigraði — þrátt fyrir að
Sigfús Guðmundsson væri rekinn af
velli. Lokatölur urðu 23-21 og sannar-
lega geta Víkingar nagað sig í handar-
bökin fyrií að vera ekki með í toppbar-
áttunni, klaufaleg stig hafa tapast.
Mörk Víkings skoruðu: Stefán Hall-
dórsson, 10 — 2 víti. Páll Björgvinsson
4, ólafur Jónsson 4. Viggó Sigurðsson 3
og bróðir hans Jón’. 2.
Sigurgeir Marteinsson var eins og
áður sagði markhæstur Hauka mcð 9
mörk. Ólafur Olafsson 4 — öll úr;
vítum. Svavar Geirsson og Hörður Sig-
marsson 2 og þeir Ingimar Haraldsson,
Elías Jónasson, Þorgeir Haraldsson og
Arnór Haraldsson skoruðu sitt markið
hver. h.halls.
góður undanfarin ár. Það varð fyrst
íslandsmeistari 1964 — síðan 1969,
1971 og 1973 og Bikarmeistari KSÍ
1975. Hafstéinn var í upphafi fyrirliði
liðsins á leikvelli, þegarþað hóf keppni í
2. deild og jafnframt þjálfari — og
síðan 1974 hefur liðið verið í fremstu
röð á íslandi. Framhaldsaðalfundur
ÍBK verður eftir hálfan mánuð og þá
kosin stjórn bandalagsins.
en er nú ákveðinn í að draga sig í
Hafsteinn Guðmundsson, formaður
íþróttabandalags Keflavíkur var sæmd-
ur æðsta heiðursmerki ÍSÍ af Gísla Hall-
dórssyni, forseta ÍSÍ — heiðurskrossi
sambandsins — á ársþingi ÍBK í gær.
Venjuleg aðalfundarstörf voru á
þinginu í gær. Niðurstöðutölur
reikninga voru 11 milljónir og hagnaður
á síðasta ári hálf milljór. króna. Knatt-
spyrnulið ÍBK leikur í sumar sjöunda
árið í röð í Evrópukeppni og sýnir það
bezt hver árangur liðsins hefur verið
Þingið hófst þá í Keflavík og er 20.
ársþing ÍBK. Hafsteinn Guðmundsson
hefur verið formaður þess frá upphafi
K0/?n|
1 lr'r’ wÉIÍSÍfi MWMsm £;■ 1H9 WB ÆBssL;
Dagblaðið. Mánudagur 2. febrúar 1976.
13
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
I
ARMENNINGAR HaDU
SIGURINN SINN
— ó töflunni stóð 97-96 Ármanni í vil en síðar kom í Ijós að staðan var jöfn 96-96
__ og framlengja þurfti en þó sigraði Ármann 108-104
Líklega hefur Ármenningum verið
eins innanbrjósts og skákmanni sem
tapað hefur manni í unninni stöðu og
verður að byggja sóknina upp að nýju,
— þegar þeir voru kallaðir aftur til leiks
í íþróttahúsinu í Njarðvíkunum eftir að
hafa sigrað heimamenn, — að því er
markataflan sýndi, 97—96, eftir ein
hvern mest æsispennandi leik sem spil
aður hefur verið í Njarðvíkunum til
þessa.
Ármenningarnir voru búnir að fagna
sigrinum á viðeigandi hátt og kátir
yfirgáfu þeir salinn, — feti nær lang-
þráðum íslandsmeistaratitli, — en
glöggskyggn og samvizkusamur dómari
leiksins, Jón Otti, kom fljótlega auga á
að Ármenningum hafði verið ofreiknað
eitt stig á leikskýrslunni, svo að staðan
var jöfn, 96—96. En körfuknattleikjum
lýkur aldrei með jafntefli, — framlengt
er um fimm mínútur í senn, þar til
úrslit fást og því varð að kalla liðin til
leiks að nýju og áhorfendur einnig, sem
flestir höfðu yfirgefið sæti sín, en fögn-
uðu að sjálfsögðu lengri leik og voninni
um að heimamönnum tækist að merja
sigur.
En það fór á annan veg. Þrátt fyrir
góð tækifæri, misstu Njarðvíkingar af
lestinni. Ármenningarnir reyndust
sterkari í framlengingunni og sigruðu
með 108 stigum gegn 104, þrátt fyrir
það að þeir misstu sína beztu skyttu,
Jimmy Rogers, af velli fyrir fimm villur
þegar um mínúta var til loka, en hann
var fyllilega búinn að vinna sitt verk
fyrir liðið, skora 36 stig.
Njarðvíkingar komu Ármenningum
nokkuð á óvart með svæðisvörninni,
sem þeir hafa ekki beitt fyrr í vetur, en
jafn leikreynt Iið og Ármann lét það
ekkert á sig fá, — sögðust reyndar hafa
Skekkja í
leikskýrslu
„Ég fer ávallt nákvæmlega yfir leik-
skýrsluna áður en ég undirrita hana,”
sagði Jón Otti dómari, þegar við rædd-
um við hann eftir leikinn. „í hraða
leiksins geta ávallt komið skekkjur hjá
ritara og finnist þær ekki áður en dóm-
ari hefur lagt blessun sína yFir gerðir
hans, er hún óumbreytanleg. Eftir að
Jón hafði fullvissað sig um að staðan
var jöfn, tilkynnti hann liðunum fram-
lenginguna, — en um stundarfjórðungs
bið varð á að leikur hæFist að nýju.
Ritarinn var farinn heim til Keflavíkur
og þangað varð að senda eftir honum
hraðbyri, en algert skilyrði er að sami
ritarinn starfi leikinn út — og ekki gott
að segja um málalok, hefði ritarinn ekki
fundizt.
„Ég mótmælti ritaranum, þegar
hann skipaði mér að bæta aðeins einu
stigi á markatöfluna”, sagði Sturla
örlygsson, ungur piltur, sem stakk
talnaspjöldunum í rammana á veggn-
um, en hann fyrirskipaði mér að gegna
og gera eins og hann segði, en svo
kvartaði ég við dómarann, sem fljótlega
fann villuna, svo ekki er við mig að
sákast. — emm
búizt við breyttri leikaðferð og settu á
fulla ferð og Njarðvíkingar svöruðu í
sömu mynt.og mikill hraði hélzt leikinn
út, — en meginmunurinn á liðunum
var hittnin, — þar voru Ármenningar
heimamönnum fremri, — sérstaklega
Jimmy Rogers, mcð sína frábæru skot-
tækni. Einnig var gott auga hans fyrir
samleik eftirtektarvert og margar snjall-
ar sendingar fékk hann frá Guðsteini
Ingimarssyni, sem einnig var drjúgur
við að hitta körfuna, — 21 stig lágu
eftir piltinn þann, þegar yfir lauk.
Ármenningar virtust ætla að vinna
stórsigur um miðjan hálfleik, þegar
munurinn var orðinn 15 stig. Allt gekk
þá á afturfótunum hjá UMFN og í
leikhléi var staðan^49—39, og þannig
hélzt munurinn, þar til líða tók á seinni
hluta hálfleiksins, að Njarðvíkingar
tóku heldur betur við sér. Hvert skotið
af öðru hafnaði í körfunni og munurinn
minnkaði stöðugt og náðu þeir að jafna
— eða ef til vill einu stigi betur? — við
tryllingslegan fognuð aðdáenda sinna
sem fylltu áhorfendapallana að vénju,
— en herzlumuninn vantaði. — Ár-
menningarnir voru ekki á því að gefa
sig ogjón Sigurðsson átti frábæran leik,
— byggði upp sóknina og stjórnaði
vörninni af mikilli elju og yfirvegun, —
ásamt því að skora 20 stig leikinn út.
„öldungurinn” Birgir örn Birgis sýndi
engin ellimörk þann stutta tíma sem
hann var inn á, — en hann fékk fjórar
villur á fyrstu 10 mín. — og var því
aðeins með í lokin.
Stefán Bjarkarson var stigahæstur
Njarðvíkinga, skoraði 24 stig og var að
vanda einnig mjög skseður í vörninni.
Krækti oft í knöttinn og gómaði mörg
fráköst, — en var með fádæmum
óheppinn í sendingum. Kári Marísson
var driffjöður liðsins, hélt uppi hraðan-
um, — en einlék kannski um of. Hann
skoraði 13 stig. Jónas Jóhannesson átti
sinn bezta leik í langan tíma, skoraði 20
stig, oft úr erfiðum færum og var auk
þess grimmur í fráköstunum. Brynjar
Sigmundsson var í essinu sínu, þegar á
leið og skoraði þá drjúgum — en sam-
tals náði hann 21 stigi.
Nú virðist sem Snæfell sé endanlega
fallið — eftir tap gegn Fram uppi á
Skaga í gær — 54—73. Liðið hefur enn
ekki hlotið stig í 1. deild og er nú 4
stigum á eftir Fram — og eftir fyrri
frammistöðu Snæfells í vetur eru þeir
ekki líklegir til að hljóta stig í 1. deild
þetta árið.
En staðan í körfunni er nú:
Dómararnir eiga sérstakt lof skilið. Ármann 8 8 0 785-658 16 Valur 8 7 0 1 126-78
Leikurinn var erFiður, hraðinn mikill og ÍR 9 7 2 817-788 14 Fram 6 5 0 1 101-56
oft teflt á tæpasta vaðið, en Jón Otti og KR 7 5 2 621-543 10 FH 7 5 0 2 98-64
Hilmar Viktorsson voru réttlátir og UMFN 9 5 4 733-708 10 Ármann 7 5 0 2 98-78
ákveðnir, enda voru leikmenn ánægðir ÍS 9 4 5 718-758 8 KR 7 3 0 4 77-86
með dómgæzlu þeirra — og er það Valur 9 2 7 749-795 4 UBK 7 2 0 5 67-100
meira en oft er hægt að segja um Fram 8 2 6 534-612 4 Vikingur 6 0 1 5 43-90
körfuknattleiksdómara. emm. Snæfell 7 0 7 432-617 0 IBK 8 0 1 7 76-135
Sigríður og Eðvald Hinriksson með risastóra litmynd af syni sinum,
JóhannesiEðvaldssyni, sem birtist í nýlcga í mánaðarblaði Celtic. Bjamleifur
tók myndina á heimili þeirra í gærkvöld.
Celtfc með f orustu
á ný í Skotlandil
ar
Glasgow á lauear-
dag, en á sama tima tókst Glas-
gow Ran^ers ekki að ná nema
'jafntefli i Dundee. Celtic hefur
nú 32 stig, Rangers 31 og
Motherwell 29 stig eftir 23
leiki.
Fjórar breytingar voru gerðar á
Celtic-liðinu frá tapleiknum við
Motherwell í bikarkeppninni. Alister
Hunter, gamli, skozki landsliðsmaður-
inn kom í markið í stað Peter Latch-
ford, sem átti afleitan leik í Motherwell.
Fékk þar á sig tvö klaufamörk. Þá kom
Poul Wilson í stað Ronnie Glavin — og
Callaghan í stað Bobby Lennox.
Jóhannes Eðvaldsson var færður aftur
sem miðvörður í stað Roddy
McDonald.
„Það var erfitt að leika í Skotlandi á
laugardag — vellir frosnir,” sagði
Jóhannes, þegar Dagblaðið ræddi við
hann í gær. „Dundee Utd. skoraði á
undan — Hall — og að var klaufalegt
mark. Langur bolti fram — Hunter
kallaði en við lentum saman og eftir-
leikurinn var auðveldur fyrir Dundee-
leikmanninn. Kenny Dalglish jafnaði
og Poul Wilson skoraði sigurmarkið
fyrir hlé. í síðari hálfleik beinlínis óðum
við í færum, en tókst ekki að skora.
Wilson komst tvívegis m.a. frír að
markinu — einnig Dixie Deans. Dun-
dee Utd. slapp því vel frá leiknum,”
sagði Jóhannes ennfremur.
Úrslit urðu annars þessi:
Aberdeen — Ayr 2-1
Celtic — Dundee Utd. 2-1
Dundee — Rangers 1-1
Hibernian — St. Johnstone 5-0
Motherwell — Hearts 2-0
Pettigrew skoraði bæði mörk Mother-
well. Derek Johnstone fyrir Rangers í
byrjun s.h., en nafni hans hjá Dundee
jafnaði. Hibernian vann stærstan sigur
og keypti í sl. viku Mike MacDonald
markvörð frá Stoke City.
Staðan er nú þannig4
Celtic 23 14 4 5 49-30 32
Rangers 23 13 5 5 39-20 31
Motherwell 23 11 7 5 42-30 29
Hibernian 22 11 6 5 39-25 28
Aberdeen 23 9 7 7 37-33 25
Hearts 23 7 8 8 27-34 22
Dundee 23 7 7 9 38-44 21
Ayr 23 8 4 11 30-39 20
Dundee Utd. 22 4 6 12 26-38 14
St. Johnst. 23 2 2 19 23-57 6
Á Skotlandi ræður markamunur —
ekki markahlutfall og Celtic og Rangers
standa alveg jafnt að vígi með mörkin,
19 mörk í plús hvort félag.
Flugstjórinn reynir aö telja Bomma af
þvf að reyna að leita eftir hjálp
•'Hrein vitleysa — skógurinn er
dauöagildra
Ég verö að reyna. Félagi minn deyr ~)
j.ef ég næ ekki f hjálp^ y
'rHverníg ætlar þú aö fara)
þegar viö vitum ekki hvar
viö erumV J
€
W'
V.
A ég baraaöbföaogsjávinminndeyja?
JE2
Nei, Bommi, en reyndu aö vera
^rólegur um stund og sjá hvort y—
w Jyálpberstekki.JR^
■luvs
NAS
Óvœnt tap
Óvæntustu úrslit helgarinnar eru vafalaust
sigur FH yfir íslandsmeisturum Vals — 16-
10.
Þá kom berlega í Íjós hve Sigrún Guð-
mundsdóttir er Val dýrmæt — hana vantaði í
leikinn gegn FH. Og án hennar átti Valursér
aldrei viðreisnar von — staðan í hálfleik var
5-4 FH ! vil og fljótlega í byrjun síðari
hálfleiks jókst munurinn í 5 mörk — og þá var
ekki spurt að leikslokum. Þær Katrín Dani-
valsdottir og Svanhvít Magnúsdóttir voru
drýgstar í liði FH — skoruðu sfn 5 mörkin
hvor.
Við þessi úrslit opnaðist deildin upp á gátt.
Ármann átti aldrei í neinum erfiðleikum með
ÍBK — öruggur sigur 21-11. Þjáningarsystur
ÍBK í botnbaráttunni — Víkingur — léku
einnig og töpuðu einnig — nú fyrir KR 8-13
eftir að jafnt hafði verið i hálfleik, 4-4.
14
10
10
10'
6
4.
1
1
Staðaní
1. deild
Orslit leikja helgarinnar:
1. deild
Vikingur — Haukar
2. deild
ÍR — KA
KR — ÞÓR
Fylkir — KA
UBK - ÞÓR
1. deild kvenna
Víkingur — KR
Ármann — ÍBK
Valur — FH
23-21
16-16
28-23
23-24
13-14
8-13
21-11
10-15
Staðan í 1. deild:
Valur 11 7 1 3 217-186 15
FH 11 7 0 4 145-220 12
Haukar 11 5 2 4 210-200 12
Fram 11 5 2 4 185-180 12
Víkingur 11 6 Q 5 228-226 12
Þróttur 11 4 2 5 209-209 10.
Ármann tl 3 1 7 170-229 17
Grótta 11 3 0 8 193-220 6
Markhæstu leikmenn íslandsmótsins eru:
Friðrik Friðriksson, Þrótti 70/15
Páll Björgvinsson, Vík. 67/23
Pálmi Pálmason, Fram 60/18
Viðar Símonarson, FH 59/20
Björn Pétursson, Gróttu 55/24
Næstu leikir verða sunnudaginn 8. febrúar í
Höllinni. Þá leika Þróttur og Fram og síðan
Ármann og Vikingur.
Naumir sigrar
norðanliðanna
Bæði Akureyrarliðin — KA og Þór tefldu á
tæpasta vaðið í leikjum sinum i gær í 2. deild
fslandsmótsins. En bæði liðin komu út sem
sigurvegarar — KA sigraði Fylki 24-23 og Þór
vann nauman sigur á botnliðinu — UBK
14-13.
Staðan i 2. deild er nú:
ÍR
KA
KR
8 3 14
9 3 15
ÍBK
Leiknir
Þór
Fylkir
UBK
10 8 2 0 246-155 18
9811 188-166 15
10 7 0 3 250-207 14'
140-162
183-211
7
7'
6
4
10 1 1 8 147-113 3
h. halls.
9305 184-190
9 2 0 7 138-172
Heimsmet
Hans van Helden, Hollandi, 28 ára, setti
nýtt heimsmet í 5000 m skautahlaupi á móti
í Davos í Sviss á föstudag. Hljóp vegalengdina
á 7:07.82 mín. og bætti heimsmet Yuri.
Kondakov, Sovét, um 1.1 sekúndu. Þá hljóp
hann 1500 m á 1:59.38 mín. Sheila Young,
USA, setti nýtt heimsmet í 500 m skauta-
nlaupi kvenna — hljóp á 40.91 sek. Alls voru
sett tvö heimsmet, 20 landsmet, og þrjú
vallarmet í Davos þá þrjá daga, sem keppnin'
stóð yfir.