Dagblaðið - 02.02.1976, Síða 17

Dagblaðið - 02.02.1976, Síða 17
Dagblaðið. Mánudagur 2. febrúar 1976. 17 Veðrið 1 Suð-austan gola, bjart með köflum. Frostið verður 3-4 stig. RUTH HILDEGAARD STEINSSON var jarðsungin frá Akraneskirkju laug- ardaginn 31. janúar. Rut Steinsson var fædd 23. október í Pillau í Þýzkalandi. í Þýzkalandi kynntist hún eftirlifandi manni sínum, Ingimundi Steinssyni. Til ársins 1945 störfuðu þau saman við lagmetisiönað í Phillau, en fluttust síðan alfarin til íslands. Fljótlega eftir heimkomuna komu þau til Akraness þar sem þau hafa búið síðan. Ingi- mundur veitti Niðursuðuverksmiðju Haralds Böðvarssonar forstöðu. Ruth var honum hollur ráðgjafi, því hún hafði mikla sérþekkingu í þeirri grein. SIGÞRÚÐUR JÓNASDÓTTIR, Drápuhlíð 12, andaðist að Elliheim- ilinu Grund 29. janúar. EGILL ÓLAFSSON, Hrafnistu, verður jarðsunginn þriðju- daginn 3. febrúar frá Fríkirkjunni kl. 13.30. ÁGÚST JÓH ANNSSON Hrafnistu, áður til heimilis að Grettis- götu 46, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 2. febrúar kl. 13.30. AXEL SCHIÖTH GÍSLASON verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 2. febrúarkl. 10.30, EIRlKUR ÞORBERGUP SIGURÐSS fyrrverandi bifreiða6tjóri andaðist að Sólvangi 26. janúar. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 3. febrúar kl. 1.30. e.h. AKUREYRI: SEXTÍU INNBROT Á TVEIM MÁNUÐUM Innbrotafaraldur sá, er geisað hefur á Akureyri undanfarna tvo mánuði, virðist því miður ekki vera í rénun að sögn lögreglunnar þar. Nú um helgina var brotizt inn á fimm stöðum í bænum en hvergi höfðu þjófarnir mikið upp úr krafsinu. Þannig var farið inn í Billiardstofuna, Hafnarstræti 18, í Ferðaskrifstofu Akureyrar, verzlunina Hrund og í Sundlaugina. Auk þess var brotizt inn í Hljómver við Glerárgötu og þar höfu þjófarnir á brott með sér plötuspilara, heyrnartól og segulbandstæki. „Ástandið er auðvitað illþol- andi,” sagði Matthías Einarsson vaktstjóri í viðtali við Dagblaðið í morgun. „Innbrotin og þjófnaðir síðastliðna tvo mánuði eru nú orðin um 50 og alls staðar eru unglingar að verki. Mestur hluti þessara fjögurra til fimm stráka á aldrinum fjórtán til fimmtán ára hefur safnað utan um sig öðrum reynsluminni og skipulagt þessi innbrot.”. Sagði Matthías að erfitt myndi að komast fyrir þessa óknytti fyrr en hægt væri að koma unglingum þess- um fyrir á heimilum í sveit, en slíkt virtist ekki vera fyrir hendi. -HP : Fundir i........... j Kvenfélag Laugarnessóknar heldur aðalfund mánudaginn 2. febrúar kí. 8.30 í fundarsal kirkjunnar. Venju- leg aðalfundarstörf. Stjórnin Kvenfélagið Heimaey Munið fundinn þriðjudaginn 3. febrúar kl. 20.3 í Domus Medica. Átthagafélag Sandara heldur aðalfund sunnudaginn 8. febrúar kl. 2 að Hótel Esju, 4. hæð. Venjuleg aðalfundarstörf og fleira. Mætum öll. Stjórnin Kvenfélag Háteigssóknar Aðalfundur vcrður í sjómannaskólanum þriðjudaginn 3. febrúar kl. 8.30. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. Skemmtiþáttur: Anna Guðmundsdóttir leikkona. Stjórnin. Skrifstofa félags einstæðra foreldra Traðarkotsundi 6 er opin mánudaga og fimmtudaga kl. 3-7 e.h., þriðjudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 1-5. Sími 11822. Á fimmtudögum kl. 3-5 er lögfræðingur FEF til viðtals á skrif- stofunni fyrir félagsmenn. DAGBLAÐIÐ er smóauglýsingablaðið Einn þeirra sem sitja inni: Hafði nœstum því valdið dauða manns um haustið 1973 „Það bjargaði lífi mínu að þeir hentu í mig klóssettkassa, sem þeir fundu þarna nálægt, um leið og þeir fóru. Vatn úr kassanum vakti mig til meðvitundar,” sagði ungur maður sem haustið 1973 fannst nær dauða en lífi eftir misþyrmingar tveggja manna á auðri lóð við Rauðarárstíg. Annar þeirra manna, Kristján Viðarsson, situr nú í gæzluvarðhaldi og hefur játað aðild að morðinu á Guðmundi Einarssyni fyrir tveim árum. Komið hefur í ljós að maðurinn á sér langa afbrotasögu, þar sem sumir glæpirnir hafa verið það alvarlegir, að ætla mætti, að hann hefði ekki átt að geta gengið um laus. Nánari málsatvik varðandi atburð- inn við Hlemm haustið 1973 voru þau, að Kristján og félagi hans töldu að ungi maðurinn, sem hér segir sögu sína, hefði komið upp um stuld þeirra á gítar úr Hljóðfærahúsinu þá um haustið. Sátu þeir fyrir honum við Tóna- bæ og neyddu einhvern, sem ungi maðurinn gat ekki nafngreint, til þess að aka sér um bæinn. Tvisvar sinnum þjörmuðu þeir að honum á leiðinni, en er niður að Hlemmi var komið var hann hrakinn út úr bíln- um. Sögðu þeir honum að nú ætluðu þeir að drepa hann. Kristján og félagi hans börðu nú unga manninn og spörkuðu í hann þar til hann missti meðvitund. „Ég man ekki hvað gerðist eftir það, en þeir héldu áfram að sparka,” segir hann. „Það eina sem ég veit er að ég vaknaði allur blautur og kaldur og mér tókst einhvern veginn að komast út á Hlemm, þar sem einhver fann mig. Uppi á slysavarðstofu kom í ljós, að ég var aílur mjög brotinn í andliti, brákað nef og kinn- bein brotin. Allar tennur voru laus- ar, en verst hefur mér gengið að ná mér að fullu í bakinu. Eymslin .þar taka sig alltaf upp aftur, þrátt fyrir sprautur og nudd.” Kristján og félagi hans fengu skil- orðbundinn fangelsisdóm fyrir þetta athæfi og lét Kristján sér það greini- lega ekki að kenningu verða. Ungi maðurinn sagði í viðtalinu, að hann hefði alltaf farið á dansleiki eða önn- ur mannamót í fylgd vina og það hefði einu sinni komið fyrir, Sð þeir hefðu hitzt síðan atburður þessi gerð- ist. Var það í Þórscafé, en þá gátu vinir hans komið í veg fyrir árás Kristjáns. Þá hefur hann verið dæmdur fyrir árás á eldri konu hér í bæ og vitað er um mörg önnur afbrot, sem maðurinn er aðili að. „Þetta er allt dómskerfinu að kenna,” sagði ungi maðurinn. „Þeir. vita það að þeir fá bara skilorðsbund- inn dóm og geta því gengið um frjálsir ferða sinna eftir sem áður.” — HP. ÚTSALAN heldur áfram Mikil verðlækkun Skósel, Laugavegi 60, símí 21270 DIPREIOA CIGCnDUR! VI6 frtsmkvasrfium véla- hjóla- og Ijósastillingu Eftirfarandi atrlöi eru innifalin f vélastillingu: 1. Skipt um kerti og platinur. 2. Mæld þjappa. 3. Athuguö og stillt viftureim. 4. Athuguð, eöa skipt um loftsiu. 5. Stilltur biöndungur og kveikja. 6. Mældur startari, hiebsla og geymir. 7. Mæld nýtni á bensfni. 8. Mældir kertaþræöir. 9. Stilitir ventlar. 10. Hreinsuö geymasambönd. 11. Hreinsaöur öndunarventill. 12. Hreinsuö, eöa skipt um Verö með söluskatti án varahluta: An ventlastillingar: 4 cyl. kr. 4.200,- 6 cyl. kr. 4.750,- 8 cvl. kr. 5.450,- Meö ventlastHlingu: 4 cyl. kr. 5.400,- 6 cyl. kr. 6.050,- 8 cyl. kr. 7.250,- Vélastilling sf. Aður O. Engilbertsson h.f. Stilli- og vélaverkstæði Auðbrekku 51 K. sími 43140

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.