Dagblaðið - 03.02.1976, Blaðsíða 2
2
r
Dagblaðið. Þriðjudagur. 3. febrúar 1976.
■S'í HANN EIRÍKUR
HEFUR EKKIGERT
FYLLILEGA HREINT
FYRIR SÍNUM DYRUM
STRÆTISVAGNAFARÞEGI skrif-
ar:
„Eiríkur Ásgeirsson forstjóri
Strætisvagna Reykjavíkur er vörpu-
legur maður og tekur sig vel út á
mynd. Það mátti glöggt sjá á dögun-
um, þegar myndir af honum birtust í
flestum, ef ekki öllum, blöðunum.
Tilefnið var varnarræða mikil, er
hann reit fyrir strætóana sína, sem
ýmsum finnst ekki þjóna notendum
sínum sem skyldi. Ég er Eiríki reynd-
ar sammála um það, að strætisvagn-
ar eigi að hafa forgang í umferðinni
vegna þeirrar tímapressu, sem á
þeim er, og vegna væntanlegra far-
þega, sem verða að híma úti, meðan
þeir bíða þeirra. Hins vegar eru
strætisvagnabílstjórar misjafnir eins
og aðrir, og stundum finnst manni
þeir mættu fara ögn varlegar.
En einu gleymdi Eiríkur í varnar-
ræðu sinni. Hann hefði gjarna mátt
svara þeirri gagnrýni á miðasölukerfi
SVRsem oft hefur birzt opinberlega.
Til að gera langa sögu stutta ætla ég
að spyrja beint:
1. Hvers vegnaerufullorðnum seld
300 kr. kort í strætisvögnunum en
ekki börnum?
2. Hvers vegna geta fullorðnir að-
eins keypt 300 kr. kort í vögnunum,
en ekki 100 kr. kort?
3. Hvers vegna eru útsölustaðir
korta aðeins á Hlemmi og Lækjar-
torgi?
4. Hvers vegna er ekki hægt að
selja kort í vögnunum sjálfum gegn
því skilyrði að menn komi með réttu
upphæðina?”
HVER VAR ÁSTÆÐAN..?
LESANDI SPYR:
,,Ekki alls fyrir löngu var skipt um
uppþvottákerfi í eldhúsi Landspítal-
ans, sem í sjálfu sér er ekki í frásögur
færandi. í eldhúsinu var þriggja ára
gömul vél — sem hafði reynzt að
einhverju leyti gölluð — það eryfæri-
bandakerfi hennar var gallað. Undir
venjulegum kringumstæðum eiga
slíkar vélar að endast í 10—15 ár.
Mér er kunnugt um að.seljendur
vélarinnar, sem var áður tekin úr
eldhúsinu, höfðu boðið fram nýjar
vélar og að taka þær gömlu að.ein-
hverju leyti uppl sem nokkurs konar
skaðabætur fyrir galla eldri vélanna.
Því kom mér svolítið kyndugt fyrir
sjónir þegar aðrar vélar voru keyptar
— og kostuðu þær um 6 milljónir
króna.
Því spyr ég: Hver er ástæðan fyrir
því að skipt var um uppþvottavélar í
eldhúsi Landspítalans, eftir aðeins
þriggja ára notkun, og nýjar vélar
keyptar í staðinn?”
Dagblaðið hafði samband við
Davíð Gunnarsson, forstjóra skrif-
stofu ríkisspítalanna, og einnig
Ásgeir Jóhannsson, forstjóra Inn-
kaupastofnunar ríkisins. Þar kom
fram að þær vélar sem áður voru í
eldhúsi Landspítalans, höfðu alls
ekki reynzt fullnægjandi, sífellt hefði
færibandakerfi vélarinnar verið að
bila og valdið öryggisleysi í rekstri.
Eitt meginskilyrði í eLdhúsi sem
Landspítalans sé rekstraröryggi, þar
sem eldhúsið annast matseld fyrir
600 manns á hverjum degi. Það hafl
verið alveg rétt, seljendur þeirra véla
sem áður höfðu verið í eldhúsinu,
höfðu boðizt til að selja nýjar vélar
og taka þær gömlu upp í að ein-
hverju leyti. Þegar dæmið hins vegar
var gert upp kom í ljós að hagkvæm-
ara reyndist að kaupa nýjar vélar og
þannig tryggja rekstraröryggi.
.
ÓSKILJANLEGUR ÓLESTUR
í SAMGÖNGUMÁLUM
auðveldara viðfangs. Einnig kemur
þeim sem ekki hafa kynnzt þessu
réttlæti áður nokkuð spánskt fyrir
sjónir, að töluvert dýrara er að fara
með almenningsvagni frá Lækjargöt-
unni til Hafnarfjarðar en í Breið-
holtið frá sama stað, þó um sama
kílómetrafjölda sé að ræða. Það sama
gildir að sjálfsögðu um leigubíla.
Mikið vítamínleysi virðist þjá
þingmenn þegar þessi mál eru
annars vegar og tæki bréfritari glaður
þátt í kostnaði við læknishjálp þeim
til handa, ef orðið gæti þeim líkam-
leg og andleg uppörvun.
Vonandi hefur það engin áhrif á
afstöðu þeirra þegar á hólminn er
komið, að mikill meirihluti þing-
manna hefur aðsetur í Reykjavík yfir
þingtímann og það sama gildir um
þá sem að okkar dæmalausu sam-
göngumálum standa. Bréfritari krefst
þess að þessum þyrnirósarsvefni ljúki
hið snarasta.”
með óbreyttri röggsemi þeirra sem
vegamálum stjórna fer þetta að verða
óhjákvæmilegt.
Hefur aldrei verið gerð könnun á
því, hvað það kostar íslenzku þjóð-
ina að hafa þarna aðeins eina akrein
í hvora átt? Að ekki sé minnst á
nákvæmlega. enga fyrirhyggju sem
viðhöfð er, taki snjókornin upp á
þeim ósóma að falla á Ar/narnes-
hæðina. Trúlega myndi mörgum
bregða í brún við að líta augum
niðurstöður þeirrar rannsóknar. Er
ekki tilvalið að skipa nefnd í málið?
Nefndir hafa víst örugglega verið
skipaðar af minna tilefni hér á landi.
Og fyrst samgöngumál þessa
byggðarlags eru nefnd væri ekki úr
vegi að minnast á strætisvagnakerfið.
Til þess að geta notfært sér þá þjón-
ustu sem þar er á „boðstólum” verða
menn að vera nokkuð kunnugir. Eng-
ar merkingar eru á viðkomustöðum
vagnanna — og virðist álíka erfitt að
öðlast vitneskju um það og um ríkis-
leyndármál væri að ræða. Og hefur
jafnvel það síðarnefnda virzt sýnu
Það er löngu vitað að Hafnarfjarðarvegur annar alls ekki þeim mikla umferðarþunga, sem daglega fer þar um. Er að
vonum að Hafnfirðingar og aðrir sem um veginn fara séu orðnir langþreyttir á samgöngumálunurru
REIÐUR HAFNFIRÐINGUR
skrifar:
„Hvenær skyldu stjórnvöld láta sér
hugkvæmast að þeir sem búa í
Hafnarfirði en vinna í Reykjavík
stunda vinnu sér til lífsviðurværis en
ekki skemmtunar?
Ástand í samgöngumálum þar er í
óskiljanlegum ólestri. Reyndar
þannig að ótrúlegt virðist að nokkur
ráðamanna þjóðarinnar telji
umbætur þar á nokkurn hátt í sínum
verkahring.
Sennilega væri gáfulegast fyrir
íbúa á þessu svæði að leggja bílum
sínum yfir vetrartímann og kaupa sér
góðan hest. í mestu snjókomunni
gætu snjóþrúgur verið haldbezta
lausnin.
Þar myndi mörgum þykja stigið
skref aftur til nítjándu aldarinnar, en
Raddir
lesenda
STÓRKOSTLEGT LEIKRIT Á DAGSKRÁ ÚTVARPSINS
„Mig langar til þess að þakka
leiklistardeild ríkisútvarpsins fyrir
frábært leikrit s í. fimmtudag. Var
þetta sýning Leikfélags Reykjavíkur
á Dauðadansinum eftir Strindberg.
■ Eg hef oft áður heyrt góðan leik
hjá okkar frábæru leikurum í út-
varpinu en sjaldan eins og -núna.
Helga Bachmann er nú líka alveg
einstök í þessum persónúm Strind-
bergs og Ibsens, nær þeim alveg
frábærlega vel. Svo ekki sé minnzt á
Gísla Halldórsson. Mér finnst það
ætti að sæma hann verðlaunum fyrir
frábæra frammistöðu. Þorsteinn
Gunnarsson var líka alveg prýðileg-
ur, hann hefur sérlega skemmtilega
rödd og er einstaklega skemmtilegur
leikari.
Mér finnst kvöldstund við út-
varpið, þegar gott leikrit er á dag-
skrá, alveg einstaklega vel varið og
vil segja kærar þakkir.”
Anægður útvarpshlustandi.