Dagblaðið - 21.02.1976, Side 24
Einhver mesta bótakrafa hérlendis:
150 milljónir fyrir
skemmdir ósúróli?
Vcgna skcmmds súráls er fram
komin cinhver mcsta bótakrafa hér á
landi. Skemmdirnar kunna að ncma
allt að 150 milljónum króna en eru
þó sennilega eitthvað minni, að sögn
Valgarðs Briem hæstarcttarlög-
manns.
Skipið Althca fckk að fara úr höfn
hér í fyrradag eftir að trygging hafði
verið lögð fram. Sjóprófi, sem fram
fór í Hafnarfirði lauk á miðvikudag.
Sennilega fer málið fyrir gerðardóm i
London.
íslenzka álfélagið flutti súrálið inn
með skipinu Althea. Sjór komst um
lúguhíera niður í súrálið og hljóp það
í kckki. Ekki liggur ljóst fyrir hve
mikið skemmdist, en verði melið að
tvö þúsund tonn hafi skemmzt eru
skemmdirnar upp á 150 milljónir
króna.
Mörgum aðilum, sem hugsanlega
þurfa að greiða fvrir skemmdirnar,
var boðið að vera viðstaddir sjó-
prófið. Þeir eru Brunabótafélagið og
erlent vátr\ggingafélag, sem það
endurtryggir 'hjá, eigendur skipsins
og ábyrgðartryggjendur þeirra og
tímaleigutaki og ábyrgðartryggjandi
hans. Gerðardómurinn mun senni-
lega úrskurða hverjum ber að borga
brúsann. —HH
frýálst, úháð dagbl&ð
Laugardagur 21 .febrúar 1976.
■■■""■*■■■■■■■■•■■mm—mammmmm-
SVR Á ÖLLUM
LEIÐUM Á 30
MÍN. FRESTI
„Við munum aka eins og við
treystum okkur til og aðstæður leyfa,”
sagði Haraldur Þórðarson hjá SVR. í
dag munu vagnarnir aka á öllum
leiðum samkvæmt kvöldtöflu eða á 30
mínútna fresti. Ekið verður til kl. 24. Á
morgun, sunnudag, hefjast ferðir kl. 13
og eru þær á 30 mínútna fresti á öllum
leiðum til kl. 24.
Haraldur sagði að nú ynnu 7 menn
við viðhald vaghanna, 3 bifvélavirkjar,
1 járniðnaðarmaður og 3 bifreiðasmiðir.
„Þetta er viðkvæmt mál og við
treystum okkur ekki til að segja til um
aksturinn næstu viku, en það verður
tilkynnt í útvarpinu á sunnudagskvöld
og fólk beðið að taka eftir því þar.”
.KP.
VERKFALLSVERÐIR STJAKA HLUTHÖFUNUM BURT
Verkfallsverðir Verzlunarmanna-
félags Reykjavíkur hafa vísað á bug
þeim hluthöfum í fyrirtækjum sem hafa
ætlað að vinna í verkfallinu í krafti
eignarréttar síns. Að sögn Barða
Friðrikssonar hjá Vinnuveitendasam-
bandinu hefur mestur ágreiningur risið
í þeim tilvikum þegar þessir hlúthafar
hafa einnig verið félagar í Verzlunar-
mannafélaginu.
Barði var sammála VR-mönnum um
að hluthafar, sem jafnframt væru í
félagi er væri í verkfalli, mættu ekki
vinna. Hins vegar sagði Barði að hlut-
hafar, sem ekki væru í stéttarfélagi í
verkfalli, ættu að mega vinna í fyrirtæki
sínu, þótt þeir ynnu þar ekki að
staðaldri.
Grétar Hannesson hjá Verzlunar-
mannafélagi Reykjavíkur sagði hins
vegar að hluthöfum væri vísað á bug
nema þeir gætu sannað óyggjandi að
þeir ynnu við fyrirtæki sín. Ekki hafði í
gær komið til alvarlegra átaka út af
þessum ágreiningi.
Grétar sagði að verkfallsverðir VR
tækju yfirleitt vægt á því þótt
eiginkonur eigenda kæmu nú til vinnu
við fyrirtæki þar sem þær ynnu ekki að
staðaldri. Fengju þær að halda áfram
vinnu. Börn eigenda innan 16 ára mega
vinná en unglingar 16 ára og eldri
mættu það ekki og væri það hindrað,
sagði Grétar. Hann sagði að verk-
fallsvarzlan gengi vel. Við hana ynnu
60-80 manns hjá félaginu. Sem dæmi
um verkfallsvörzlu nefndi hann að tveir
verkfallsverðir kjötiðnaðarmanna hefðu
staðið yfir kjótkaupmanni við Laugaveg
heila nótt meðan hann hefði unnið
margra manna verk við að úrbeina
kjöt. Þetta hefði hann mátt meðan
hann orkaði. Þannig hafa eigendur víða
tekið að sér verk margra manna í
verkfallinu. -HH.
Dómsmólaróðherra setur ófengisbann:
„Siðlaust að hœgt sé að fó nóg af víni
meðan ekki er hœgt að fá mjóík
í hádegisútvarpi í gær kom til-
kynning frá dómsmálaráðuncytinu
sem hleypti illu blóði í marga og
aðrir fögnuðu. Dómsmálaráðherra
tilkynnti þar þá ákvörðun sína að frá
og með klukkan tólf á hádegi í gær
myndu allar áfengisútsölur á landinu
verða lokaðar og áfengisveitingar í
veitingahúsum og í vínstúkum ekki
vcrða leyfðar. Skal bann þetta gilda
þar til annað verður ákveðið.
í þeim einkasamkvæmum á
veitingahúsum, sem fengið hefur
verið leyfi fyrir, má veita áfengi.
„Mér finnst það siðlaust að vín-
búðir skuli vera opnar þegar ekki er
hægt að fá mjólk,” sagði Ólafur
Jóhannesson dómsmálaráðherra í
viðtali við Dagblaðið. ,,Ég tók þessa
ákvörðun einn og ekki fyrir tilmæli
neins og tel ráðstöfunina fyrirbyggj-
andi. Við eigum í erfiðleikum, hér
ríkir mikil vinnudeila, sérstakt
ástand, sem skapað getur erfitt
andrúmsloft. Fyrir lokun sem þessari
eru staðbundin fordæmi og það að
tilkynna þetta í útvarpi, öllum að
óvörum, gerði ég til þess að menn
færu ekki að birgja sig upp. Þá hefði
lítið orðið úr þessari ráðstöfun,”
sagði ráðherra ennfremur.
Veitingamenn
ævareiðir
Dagblaðið sneri sér til nokkurra
veitingamanna og spurði þá álits á
þessari ráðstöfun, en sem kunnugt er
hafa veitingahús ekki lokað vegna
verkfalla.
„Þetta er aldeilis furðulegt,” sagði
Jón Hjaltason veitingamaður óðali.
„Ég veit ekki til þess að blærinn yfir
veitingahúsum hafi versnað neitt
síðan verkfall skall á og skil þetta því
ekki. Hér verður alla vega opið, en
vínveitingar engar.”
„Við vorum með opinn bar, eins
og venjulega, þegar við heyrðum til-
kynninguna í útvarpinu,” sagði
Erling Aspelund hótelstjóri á Loft-
leiðum. „Við lokuðum náttúrlega
strax, enda þótt okkur hefði ekki
borizt tilkynning um þetta frá ráðu-
neytinu. Hér eru árshátíðir yfir alla
helgina svo það kemur kannski ekki
að sök, en tveir útlendingar, sem
staddir voru á barnum er bannið
gekk í gildi, eru ennþá að reyna að fá
botn í það hvar þeir eiginlega séu.”
„Ég skil ekki þessa ákvörðun,”
sagði Konráð Guðmundsson hótel-
stjóri á Sögu. „Ef efnahagur allra er
svo bágborinn að menn verða að vera
n
í verkföllum þá skil ég ekki hver
hefur efni á því að kaupa áfengi svo-
nokkru nemi. Þetta kemur hart niður
á okkur, við vorum hér með mörg
minni starfsmannafélög, sem höfðu
pantað sér borð en voru ekki með
einkasamkvæmi. Ef hins vegar fólkið
er í einhverju félagsheimili þá er
ekkert úr vegi að fólk hafi áfengis-
veitingar. Svona hluti skilur maður
ekki.”
í gær virtist sem flestir dansstaðir
ætluðu að hafa opið þrátt fyrir
áfengisbannið, en að sjálfsögðu verða
þar engar slíkar veitingar á boðstól-
um. —HP.
Þeir fó
hina
dýrmœtu
dropa
Einstaka mcnn og starfshópar
njóta þess að hafa þá aðstciðu að fá
hina dýrmætu bcnsíndropa. Bíla-
stcxivarnar cru vel birgar og hafa
flestar sín.a eigin gcyma. Hér sjáum
við bílstjórana á Hrevfli safnast sam-
an við BP-stöðina við Fellsmúla, en
þar fá þeir eldsneyti afhent. Litli
Fíatinn læðist fram hjá bílarciðinni á
þessari ágætu Ijósmynd, eflaust á
sínutn síðustu dropum. (DB-mynd
Ragnar 'Fh. Sigurðsson)
V