Dagblaðið - 29.03.1976, Síða 8
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 29. MARZ Í976.
^""""
8
f
V
FÍB
og
bilbeltin
ERU Á MÓTISKYLDU-
NOTKUN Á BELTUNUM
Félag íslenzkra bifreiöaeig-
enda hefur sent frá sér greinar-
gerð þar sem þeir gagnrýna
framkomiö frumvarp á Alþingi
sem kveöur m.a. á um aö lögfest
veröi notkun bílbelta. Alls-
herjarnefnd neðri deildar
hefur ekki óskaö álits FÍB um
máliö og hafa þeir samt sem
áður ákveðið að koma skoðun-
um sínum á máli þessu á fram-
færi. Landsþing FÍB hefur
samþykkt á fundi sinum að bíl-
belti sé mikilvægt öryggistæki
og efla beri notkun með auk-
inni fræðslu og kynningu, en-
þing FÍB telur varhugavert að
sett ’verði lög nema þá og því
aðeins þeim verði framfylgt.
Segir FlB notkun bílbelta
mun meiri og almennari heldur
en flutningsmenn lagafrum-
varpsins gera ráð fyrir og notk-
un þeirra fari stöðugt vaxandi.
Þess beri þó að gæta þegar
frumvarp af þessu tagi er borið
fram hversu mikill munur er á
umferðaraðstæðum hér á landi
og annars staðar.Erlendis þykir
e.t.v. eðlilegra að notkun bíl-
belta sé lögbundin enda um-
ferðaraðstæður allt aðrar.
Minnir FlB m.a. á umferðar-
slysið er varð í Mánárskriðum
við Siglufjörð ekki alls fyrir
löngu og bendir á hve fljótt
farþegarnir þar komust út úr
bifreiðinni og hvernig það
hefði verið ef þau hafi öll verið
reyrð í bílbelti.
Bendir FlB á að ef frum-
varpið nær fram að ga'nga verði
dómsmálaráðherra þar veitt
heimild til þess að veita undan-
þágur frá skyldunni um notkun
bílbelta. Að öllum líkindum
verða lögreglu- og slökkviliðs-
menn undanþegnir notkun
beltanna svo og atvinnubíl-
stjórar, eru þá ekki eftir nema
einkabílstjórar sem verið er að
hafa vit fyrir. Umferðarráð
vonast til að ef lög um bílbelti
nái fram að ganga geti þeir í
ríkara mæli beitt sér fyrir
bættri umferðarmenningu á
öðrum sviðum þar eð notkun
bílbeltanna verði þá orðin
skylda. En FlB bendir þá á hve
mikil vinna flyzt yfir á
lögregluna í landinu sem verði
þá önnum kafin að fylgjast með
því að bifreiðarstjórar sitji
bundnir niður í sæti bíla sinna.
Ellefu misstu
ökuskírteinin
Þessa helgina misstu ellefu
bifreiðastjórar í Reykjavík
ökuleyfið sitt, teknir vegna
meintrar ölvunar við akstur.
Aðfaranótt sunnudagsins bar
það til tíðinda að fanga-
geymslur lögreglunnar voru
ekki fullar og má það
vafalaust rekja til tveggja
ástæðna. I fyrsta lagi þeirrar
hækkunár á áfengi, sem varð
fyrir viku síðan, einnig er það
að síðari og síðustu helgarnar í
mánuðinum er alltaf mun
rólegra að gera hjá lögregl-
unni, en tekur alltaf viðbragð
fyrstu helgina að afloknum
mánaðamótum. Sigtún var
lokað sl. laugardagskvöld en
þau 1200 manns sem þar hefðu
getað verið inni dreifðu sér
afar pent á aðra skemmtistaði
borgarinnar, mest í Klúbbinn
þar sem nokkur þvaga
myndaðist fyrir utan eftir að
fullt var orðið. —BH
Sjórekið lik
í Sandgerði
Lík fannst rekið í sjávarmál-
inu við Sandgerði um miðjan
dag á laugardag. Reyndist þar
um að ræða sextíu og tveggja
ára vörubílstjóra, Linnet Gísla-
son til heimilis að Norðurgötu
21 í Sandgerði. Linnet var
ókvæntur og dánarorsök hans
er enn ekki kunn. Síðast var
vitað um ferðir hans aðfara-
nótt föstudagsins. —BH
Innbrot á
Karde-
mommusvœði
Brotizt var inn í geymslu-
húsnæði, gamlan bragga á
„Kardemommusvæðinu” svo-
nefnda á laugardag. Stendur
braggi þessi við Elliðaárnar og
erú í honum geymdar alls kyns
vélar og varahlutir í þær. Ekki
hafði tekizt að góma þjófana
og ekkWar enn ljóst hve miklu
hafði verið stolið, en eigendur
vélanna unnu við að kanna
hvað hefði horfið. —BH
Minkar á
ferð við
Elliðaárnar
Minks verður vart af og til
við Elliöaárnar og sl.
föstudagskvöld var lög-
reglunni tilkynnt um að sézt
hefði til minks þar. Hélt hún á
staðinn og fann slóðir el'tif
fleiri en einn mink við báðar
árnar. Heldur minkurinn sig
þá aðallega við ósa ánna og
tekst þai að voiöa sér
eftirlegulaxa til matar. Ekki
héfur enn teki/t að finna greni
minkanna. -BII.
IH
GÓ, - GÓ!
Það er kominn nokkuð
alþjóðlegur næturklúbbsandi yfir
veitingastaðinn Sesar með
tilkomu dansmeyja, sem dansa
eftir hljómfallinu frá diskóteki
staðarins, Iéttklæddar og
eggjandi. Stúlkurnar, sem ráðizt
hafa til starfsins eru íslenzkar, og
hafa þótt standa sig vel í þessu
erfiða starfi, því augljóst má
vera að það getur tekið á að dansa
látlaust í langan tlma eftir kröfu-
hörðum takti (DB-mynd R. Th.
Sig.).
„BÖRNIN í BREIÐHOLTI EKKI
VERRI EN ÖNNUR í REYKJAVÍK"
í fjölmennum hópum magnast þau til skemmdarverka. Löggœzla þar efra langt undir lágmarki
„Sérstök nefnd hefur verið
stofnuð í Breiðholti til þess að
fjalla um og gera tillögur til
úrbóta varðandi vandamál
unglinga í þessu stærsta hverfi
Reykjavíkur,” sagði Sigurður
Bjarnason í stuttu viðtali viðDag-
blaðið fyrir helgina. Sigurður er
formaður Framfarafélags Breið-
holts og það félag hefur haft
áhyggjur af þróun mála unglinga
varðandi í hverfinu. „Þetta er
meira og stærra vandamál hjá
okkur en íbúum annarra hverfa”,
sagði Sigurður, „vegna fjölda
barna og unglinga í hverfinu,
fremur en að börn, sem búa í
Breiðholti séu öðru vísi eða verri
en önnur börn í Reykjavík.
Sérstök samstarfsnefnd hefur
verið stofnuð til að fjalla um
málið. Var til þess ráðs gripið
eftir fund Framfarafélagsins.
Nefndin er skipuð þrem mönnum,
einum frá Æskulýðsráði, skóla-
sálfræðingi og forstöðumanni
Fellahellis. Reyna á að fá þá sem
helzt geta talizt forsprakkar
unglingahópanna til að starfa
innan veggja Fellahellis.
— Við búum ekki yfir neinum
patentlausnum í sambandi við
vandamál unglinga. Á hitt er að
benda, að löggæzla er langt fyrir
neðan það sem lágmark getur
kallazt. i Kópavogi munu íbúar
vera um 12000. Þar starfa 20
lögreglumenn. í Breiðholti eru
íbúar 20 þúsund. Þar er engin
lögreglustöð en 2-3 menn sitja í
lögreglubíl og eru til taks þegar
kallað er. En svæðið, Breiðholt 1,
2 og 3 er mjög stórt og mikinn
tima tekur að fara eftirlitsferðir
um það hverju sinni, hvað þá að
halda uppi viðunandi eftirliti í
hverfunum þremur. Þarna
skortir mjög fjölgun lögregluliðs,
eins og lögreglustjóri hefur marg-
bent á”, sagði Sigurður Bjarna-
son.
i síðustu viku keyrði um þver-
bak varðandi skemmdarverk
unglinga, er hópur skólabarna
réðist að snyrtivöruverzlun að
Völvuvelli 15. Verzlanir í því
verzlunarhúsi hafa orðið fyrir
ítrekuðum árásum, ránum og
skemmdarverkum. Hafa tugir
rúða verið brotnar og aðrar
skemmdir unnar og nemur tjónið
umtalsverðum upphæðum. Meg-
intilgangur barnanna og ungling-
anna virðist vera að skemma.
Aðförin að snyrtivörubúðinni
keyrði um þverbak. Abyrgir
menn hefðu fyrirfram ekki trúað
að slíkt gæti skeð í frímínútum
barna um hábjartan dag.
Breiðholt og íbúar þessa mikla borgarhverfis eiga við vanda að stríða. Nú er bara að kryfja þann vanda til mergjar og berjast gegn
honum. (DB-mvnd).