Dagblaðið - 29.03.1976, Page 10

Dagblaðið - 29.03.1976, Page 10
10 DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 29. MARZ 1976. MMBIAÐIÐ frfálst, úháð dagblað Utgefandi: Dagblaðið hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Fréttastjöri: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Helgason íþróttir: Hallur Símonarson Hönnun:Jóhannes Reykdal Biaðamenn: Anna Bjarnason, Asgeir Tómasson, Atli Steinarsson, Bolli Iléðinsson, Bragi Sigurðsson, Erna V. Ingólfsdóttir, Gissur Sigurðsson, Ilallur Hallsson, Helgi Pétursson, Katrín Pálsdóttir, Ólafur Jónsson, Ómar Valdimarsson. Ljósmyndir: Bjarnleifur Bjarnieifsson, Björgvin Pálsson, Ragnar Th. Sigurðsson. Gjaldkeri: Þráinn Þorleifsson Dreifingarstjóri: Már E.M. Halldórsson Askriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 40 kr. eintakið. Ritstjórn Síðumúla 12, sími 83322, auglýsingar, áskriftir og afgreiðsla Þverholti 2, sími 27022. Setning og umbrot: Dagblaðið hf. og Steindórsprent hf., Armúla 5. Mynda- og plötugerð: Hilmir hf., Síðumúla 12. Prentun: Árvakur hf., Skeifunni 19. Einokunin brást Fyrir rúmri viku hélt forstjóri Grænmetisverzlunar landbúnaó- arins því fram á prenti, að mikill kartöfluskortur væri í Vestur- Evrópu um þessar mundir. Þegar Dagblaðið lét svo kanna málið, kom í ljós, að nóg var af kartöflum í helztu útflutningshöfnum Hol- lands, Vestur-Þýzkalands og Danmerkur. Fyrir rúmri viku hélt forstjóri Grænmetis- verzlunar landbúnaðarins því fram, að of dýrt væri að kaupa sænskar kartöflur á 250 krónur kílóið um borð í skip, þegar hægt væri að bíða eftir gömlum, pólskum kartöflum á 70 krónur. Þegar Dagblaðið lét svo kanna málið, kom í ljós, að um alla Norðvestur-Evrópu var hægt að fá spánnýja uppskeru á 90—100 krónur kílóið. Fyrir rúmri viku hélt forstjóri Grænmetis- verzlunar landbúnaðarins því fram á prenti, aó ekki væri hægt að kaupa kartöflur í Hollandi, þar sem þar væri búið að setja 50—60 króna útflutningsgjald á hvert kíló. Þegar Dagblaðið lét svo kanna málið, kom í ljós, að hollenzkir útflytjendur könnuðust ekki við neitt slíkt gjald. Fyrir tæpri viku hélt forstjóri Grænmetis- verzlunar landbúnaðarins því fram í viðtali við Dagblaðið, að óráðlegt væri að flytja inn kart- öflur frá Marokkó og Mexíkó vegna hættu af Colorado-bjöllu. Nú hefur svo komið í ljós, að hann hefur einmitt fengió þær mexíkönsku kartöflur, sem voru um miðja síðustu viku á boðstólum í Rotterdam. Greinilega er komið í ljós, að það er Græn- metisverzlun landbúnaðarins, sem hefur sjálf búið til kartöfluskortinn, sem ríkir hér á landi um þessar mundir. Hún reyndi að dylja van- getu sína með því að gefa kolrangar upplýsing- ar um ástandið á kartöflumarkaðinum í ná- grannalöndunum. Þegar Dagblaðið hafði svo fengið staðfest, að nóg væri til af ódýrri og nýrri uppskeru kart- aflna til beinnar útskipunar í íslenzk skip 1 Rotterdam, Hamborg og Kaupmannahöfn, sneri Grænmetisverzlun landbúnaðarins skyndilega við blaðinu og pantaði sjálf þessar nýju kartöflur. Þetta dugir að vísu ekki til að eyða kartöflu- skortinum. Urriðafoss gat aðeins tekið um það bil vikuneyzlu af kartöflum í Rotterdam og Grænmetisverzlun landbúnaðarins gerði ekki frekari ráðstafanir. Það verður því sennilega aftur kartöflulaust hér á landi meðan Græn- metisverzlun landbúnaðarins bíður eftir því, að frostavetri hennar í Póllandi linni. Grænmetisverzlun landbúnaðarins hefur enn einu sinni sannað vangetu sína. Hún hefur ekki reynzt gæta hagsmuna neytenda í magni, gæðum og verði á kartöflum. Hún hefur mis- farið hrapallega með einokun sína á kartöflu- sölu, eins og raunar á grænmeti yfirleitt. Neytendur eiga ekki lengur að sætta sig við, að sölusamtök bænda kúgi þá með sama hætti og danska einokunarverzlunin kúgaði Islend- inga á sínum tíma. — - . . .... Mary Pickford: AÐ VARÐVEITA GOÐSÖGNINA Þegar hinni öldnu kviK- myndastjörnu, Mary Pickford, verða afhent sérstök Öskars- verðlaun í dag er búizt við að hún horfi á afhendinguna í sjónvarpi á heimili sínu þar sem hún hefur dvalizt undan- farin tíu ár í hálfgerðri ein- angrun að eigin ósk. Pickford, sem nú er 82 ára og ein af „stofnendum” Holly- wood, fær verðlaunin sem þakklætisvott fyrir „frábæran þátt hennar í bandarískum kvikmyndaiðnaði”. Vonir standa þó til að leik- konan sjái sig um hönd og mæti til hátíðahaldanna en hún hefur lítið haft sig í frammi, — vill helzt dveljast í húsi því sem hún og maður hennar fyrrver- andi, Douglas Fairbanks jr„ byggðu. En þriðji maður hennar, Buddy Rogers, telur það ólík- legt. „Spenningurinn yrði of mikill fyrir hana,” segir hann. Ef hún kemur ekki hafa menn ráð við því. Búið er að fara heim til leikkonunnar og kvikmynda hana þar sem hún tekur við verðlaununum og sú kvikmynd verður sýnd ef hún kemur ekki. Vinir hennar halda því einnig fram að hún hafi fallizt á verulega breytingu á liferni sínu til þess að taka við Óskars- verðlaununum. Heimili leikkonunnar er löngu frægt orðið. Þar tóku (|J|J||| |fjj|§|!|f V /■ Mary Pickford var um tfma gift leikaranum Douglas Fairbanks jr. og þóttu þau vera eins og kóngafólk Hollywood á þeim tima. Heimili þeirra gekk undir nafninu „Buckingham PaIace”og þar tóku þau á móti þjóðhöfðingjum víða að úr heiminum. TlMINN OG CIA Vegna síendurtekinna skrifa dagblaðsins Tímans á undanförn- um vikum varðandi starfsemi CIA o.fl. hér á landi tel ég rétt að vekja athygli á nokkrum stað- reyndum í þeim efnum. Nokkru eftir að ég kom fram i sjónvarpsþættinum Kastljósi fyrir nokkrum vikum þar sem ég greindi hlutlaust frá ýmsum stað- reyndum varðandi rannsókn á svonefndu Klúbbmáli, svo og í nokkrum blaðagreinum síðar, þar sem fjallað var um samá mál, gerist það skyndilega að í Tíman- um fóru að birtast greinar sem virðast gegna því eina hlutverki að gera mig tortryggilegan í aug- um almennings. Þessar greinar eru að efni svo vfðsfjarri öllum raunveruleika og jafnframt svo heimskulega uppbyggðar að maður gæti þess vegna ætlað að greinarhöfundar væru vanþroska ungmenni. Nú er mér hins vegar tjáð að þessir menn gegni ábyrgðarstöðum í Framsóknar- flokknum og verður því að ætla að ritstjóri blaðsins og fprmaður flokksins séu sáttir við slík blaða- skrif. Hvað hef ég gert á hlut þessara manna eða Framsóknar- flokksins yfirhöfuð? Alls ekkert. Hins vegar hef ég 1 starfi mínu orðið að liafa afskipti af fram- sóknarmönnum sem öðrum borg- urum þessa lands og það virðist ástæðan fyrir þessum barnalegu og hugsjúku skrifum. Ég hef aldrei í sjónvarpsþáttum eða blaðagreinum deilt persónulega á núverandi dómsmálaráðherra, hins vegar hef ég eins og kunnugt er deilt harðlega á ýmsa þætti varðandi meðferð lögreglu- og dómsmála á undanförnum árum. Ég hef ávallt rætt þessi mál í fullu samræmi við staðreyndir og Kjallarinn Kristjón Pétursson hefur staðhæfingum mínum ekki ennþáverið hnekkt. Eg hef velt því fyrir mér hvort umræddir greinarhöfundar í Tím- anum skrifi slíkar greinar vegna einhvers konar hugsjónabaráttu eða geri það af sérstakri dyggð við flokksapparatið. Sé hið síðar- nefnda rétt þá nær hin hundslega tryggð þó ennþá tökum á sumum mönnum. Ef greinarhöfundar hafa ein- hvern áhuga á öryggismálum þjóðarinnar á breiðum grundvelli þá ættu þeir að spyrja dómsmála- ráðherra og utanríkisráðherra ýmissa spurninga um þau mál. Flestum þáttum þeirra mála hefur verið lítill sómi sýndur og ættu því greinarhöfundar með lið- styrk góðra manna að einbeita sér að slíkum verkefnum. Ekki væri óeðlilegt þótt þeir spyrðu þessa sómakæru ráðherra eftirfarandi spurninga: 1. Hvers konar eftirlit er fram- kvæmt varðandi starfsemi sendiráðsstarfsmanna hér á landi og hvernig er háttað vöru- og póstsendingum til þeirra? 2. Geta einstök sendiráð flutt til landsins ótakmarkað magn af vörum og pósti (,í diplóm mail) án þess að gera viðkoniandi ís- lenzkum stjórnvöldum grein fyrir innihaldi þess? 3. Hvaða. skilyrði þurfa erlendir vísindamenn að uppfyila til að

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.