Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 29.03.1976, Qupperneq 11

Dagblaðið - 29.03.1976, Qupperneq 11
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 29. MARZ 1976. Pickford og Fairbanks á móti konungum og drottningum hér áður fyrr. En nú viil hún helzt tala við fólk í gegnum síma. Samt féllst hún á kvikmynda- tökuna og að fáeinar ljósmynd- ir yrðu teknar af henni. Þær sýna glöggt aldur hennar en samt er hún ennþá með litla kringlótta andlitið og hrokkna hárið sem gerðu hana að „kærustu Bandaríkjanna" á öðrum tug aldarinnar. í símaviðtali við Reuters- fréttastofuna rifjaði leikkonan það upp að hún og Fairbanks komu Öskarsverðlauna- nefndinni á laggirnar. „Þið vitið að ég stóð fyrir þessu öllu saman,” sagði hún skjálfandi röddu. „Þá var allt minna í sniðum og persónulegra.” Þegar hún var spurð að því hvort henni fyndist hún lifa í einangrun þvertók hún algjör- lega fyrir það og sagðist vilja fara til Evrópu og hitta gamla vini frá hinum „góðu” tímum í Hollywood. „Það er leiðinlegt til þess að vita hversu mörg kunnugleg andlit eru horfin af sjónarsvið- inu,” sagði hún. „Mér þykir svo fyrir þvl að Harold Lloyd er horfinn. Hann var mikill vinur minn, líka konan hans.” Þeir sem heimsótt hafa leik- konuna og mann hennar, Rogers, segja að andrúmsloft innan dyra sé ákaflega undar- legt. „Hann opnaði dyrnar inn til hennar í hálfa gátt og sagði henni að það væru komnir gestir,” segir einn gestanna. „Stuttu síðar kom hann með einhverja klaufalega afsökun.” Þjónar hjónanna segja að þau borði yfirleitt saman í her- berginu hennar og horfi á sjón- varp á meðan. Einn þeirra segir: „Þetta er allt undarlegt. Síðustu fimm árin virðist eins og hún hafi misst allan áhuga á því að fara út úr húsi. Hún er við ágæta heilsu og það er ekkert að henni. Stundum finnst mér eins og hún vilji endilega varðveita þá goðsögn sem myndazt hefur um hana.” fá leyfi íslenzkra stjórnvalda til vísindarannsókna hér á landi? Hverjir rannsaka tækjabúnað þeirra? 4. Hefur starfsemi fjarskipta- stöðva sendiráða verið athuguð hér á landi og hvers konar leyfi hafa verið veitt fyrir notkun þeirra? Hvaða takmörkunum hafa slík leyfi verið háð og hver hefur eftirlit með framkvæmd þess? 5. Hefur íslenzkum sérfræðing- um (ef til eru) verið heimilað eða fyrirskipað að fylgjast með störfum varnarliðsins er lúta að hernaðarlegum samskiptum þess við önnur Natóríki? 6. Hefur íslenzkum sérfræðing- um verið fyrirskipað að kanna vopnabúnað og starfsemi fjar- skiptastöðva varnarliðsins á Is- landi? Vmissa fleiri spurninga gætu greinarhöfundar spurt ráðherra sína og hver veit nema CIA- ófreskjan hjálpi til við svörin. Vonandi svara ráðherrarnir þess- um spurningum fljótt og greið- lega, eins og þeirra er von og vfsa. Það hlýtur því að verða verk- efni fvrrgreindra ráðherra að rannsaka staiiM'nii CIA, ef hún er fyrir hendi hér á landi. Að sjálfsögðu er ég reiðubúinn að veita þeim alla mína aðstoð ef um er beðið og væntanlega verða þeir mér jafnþakklátir fvrir það og uppljóstrun mína varðandi Klúbbmálið og olíumálið á sínum tíma. Kristján Pétursson deildarst jóri Tollgæzlunnar i Keflavík Um popplist — Seinni ISLENSKT POPP Nú er gaman að sjá afsprengi þessarar stefnu á sýningunni I Listasafni tslands og vonandi verður hún til þess að Lista- safnið rétti úr kútnum og taki til meðferðar önnur tímabil og stefnur innan íslenskrar list- sögu, t.d. fyrirstríðsmálverkið eða geómetrlsku afstraksjónina á árunum eftir 1950. En sýn- ingu af þessu tagi fylgir mikil söguleg ábyrgð og yfirgripsmik- il undirbúningsvinna, sem ég er alls ekki viss um að aðstand- endur sýningarinnar hafi gert sér grein fyrir þrátt fyrir góðan vilja. Týnt og gleymt Nú liggur það að vísu ljóst fyrir að mikið af því, sem kalla mætti íslenzka popplist, hefur týnst og eyðilagst vegna áhuga- leysis listasafna og safnara og erfitt er að setja upp sý'ningu í svo takmörkuðu plássi sem and- dyri Listasafnsins er. Samt held ég að ef aðstandendur hefðu gert sér betri grein fyrir forsendum popplistar almennt, þá hefði verið hægt að gefa raunsannari mynd af henni eins og hún sprettur fram á tslandi í því takmarkaða plássi sem til staðar var. Aðstandend- ur segja að vísu í sýningarskrá að „mjög breið skilgreining á popplistarhugtakinu” hafi verið lögð til grundvallar myndavali á sýninguna. I því liggur meinið. Svo breið er skil- greiningin að hún tekur yfir popp, hreint ný-dada og „assemblage”, sem þýðir i raun að grandalaus áhorfandi er litlu nær um popp-hugtakið og freistast svo til þess að kalla öll þessi fyrirbæri „popp” í fram- tíðinni. Ekki er heldur reynt að skilgreina hversu stór eða lítill þáttur popp var í íslenzkri mvndlist og hvernig hinir ýmsu listamenn íslenskir nálgast þetta erlenda fyrirbæri. SÚM & popp Það er nú að koma æ betur í ljós að þeir meginstraumar, er SUMarar bergðu af frá byrjun, voru popplist og ný-dada. Popp- áhrifin komu frá enskum og amerískum listamönnum en ný- dada (og reyndar „assemblage” lika) kynntust þeir í gegnum Diter Rot og félaga hans. Stuttu siðar kom hugmyndafræði (conceptualism) til sögunnar. Sýningin i Listasafninu bendir réttilega á hversu nukinn þátt SUM átti í útbreiðslu popp- hugmynda. Einna hreinastar koma þær fram í verkum Sigur- jóns Jóhannssonar sem var í nánu sambandi við enska popp- list í London á árunum 1963-4. Með úrklippum úr mynda- liliiðum og annarri blándaðri tækni dásamar hann fjölbreyti- leika nútimamenningar, og hjólkoppur hans í miðri tryp- tich-myndinni „Glorius" er ekki háð og spott um dýrkun mannsins á vélinni (eins og fram mundi koma i verkum ný- dadaista) heldur lofsöngur um hreina fegurð þessa geislabaug- laga vélarhlutar og það um- hverfi sem hann fæðist inn I. Þessa túlkun staðfesti Sigurjón óbeint í sjónvarpsviðtali ný- verið. Veggfóður Magnúsar Pálssonar er sömuleiðis púra popp og skemmtilega frumlegt verk. Betrekkið sjálft má hugs- anlega selja í metravís eins og hverja aðra álnavöru og teikn- uð á það eru tilbrigði um ýmiss konar heimilistæki, neysluvöru o.s.frv. Tryggvi og fjölmiðlar Ekki er heldur auðhlaupið að því að skilgreina málverk Tryggva Ólafssonar sem annað en popplist. Fjölbreytileiki fjöl- miðlamenningar, andstæður hennar og þverstæður, ys og þys borgarinnar, — á þessum grunni byggir Tryggvi. I mál- verkunum teflir hann saman myndmáli blaða, sjónvarps, kvikmynda og augiýsinga- spjalda, bæði af hreinni ánægju og pólitískri vandlætingu. Myndmál Guðmundar Erró er einnig ótvírætt af popp- ættinni, myndablöð, hasarblöð, póstkort, fræg listaverk, — allt saman myndfrasar (orðið smíð- aði Tryggvi Ólafsson) sem þegar hafa verið brúkaðir af öðrum. En þar sem Tryggvi popplistamanna og poppvina eins og Allen Jones, Jim Dine og David Hockney, en undir- tónn verka hans er þjóðfélags- rýni og ádeila. Gagnrýni er einnig það bensín sem Róska gengur fyrir og eru til verk með beinni popphrifum eftir hana en sú mynd sem á sýningunni er. Verk þeirra bræðra, Sig- urðar og Kristjáns Guðmunds- sona, taka á yfirborðinu mið af poppleikjum með neysluvöru og skjannaliti, en mér sýnist samt þegar gæta hugmynda- fræði i verkum þeirra, einkum I myndum Sigurðar, þar sem endurtekningar og „illúsjónir” eru viðhafðar. Popp auk snerts af „Funk”list er að finna í véla- og bílaskúlptúr Jóns Gunnars Arnasonar og þar sýn- ast mér poppáhrif þessarar sýn- ingar enda. Ávöntun Hér hefði maður viljað sjá myndir Hauks Dórs Sturlu- sonar frá 1965 sýningunni, ef til vill nokkrar myndir Gylfa Glslasonar auk þess sem mig rámar eitthvað í popp-dada hlut eftir Hildi Hákonardóttur frá þessum árum. En einna furðu- legast finnst mér að myndir Einars Hákonarsonar skuli ekki vera hér til sýnis. Margar Myndlist í[ AÐALSTEINN t| INGÓLFSSON i hefur ávallt áhuga á uppruna myndfrasa sinna, þá er það órökræn samsetning þeirra sem skiptir Erró höfuðmáli, — þannig að úr verður nýr inn- hverfur og súrrealskur mynd- veruleiki. Súrrealismi En þar sem popp og súrreal- ismi togast greinilega á í verk- um Errós, þá er vafasamt hvort Myriam Bat-Yosef á nokkurt er- indi á poppsýningu. List henn- ar hefur ætíð byggst á súrreal- isma, ummyndun (meta- morphosis) hversdagshluta í ævintýralega töfragripi og hvað viðkemur skjannalitum henn- ar, þá má alveg eins finna þá 1 súrrealisma og popplist. Hins- vegar má líta á teikningar Arnar Herbertssonar sem popp með súrreölsku ivafi. Ýmis slagorð auglýsingaiðnaðarins meðhöndlar Árnar af órök- rænni og innhverfri tilfinn- ingu, en vart með neinum glæsibrag. Björg Þorsteins- dóttir á hér greinilega heima innan um popplistamenn, þótt þau verk. sem hér eru til sýnis, vorði ckki til fyrr en 1972. Flöskur hennar eru ógagnrýnar og myndrænar samsetningar sem sýna sérstaklega næma til- finningu fyrir áferð. Jón Reyk- dal notfærir sér ýmsa stilanga mynda hans upp úr 1967 taka formlega mið af ótvíræðum poppmönnum eins og Wessel- man (t.d. „Great American Nudes” hans), auk þess sem þær fjalla um fjölmiðlaþjóðfé- lag (t.d. „Rauði sófinn”) og einnig er popp í notkun Einars á alls kyns plast- og trefjaefn- um í myndum frá þessum tlma. t staðinn eru myndir Braga Ásgeirssonar frá 1972-74 sýndar sem popplist. Á rangri hillu Bragi sjálfur virðist nú til dags ekki alveg klár á eðli popplistar og stöðu sinni innan hennar, en í viðtali árið 1966 segist hann ekki vera popplista- maður. Þar sýnist mér hann fara með rétt mál. Bragi er þegar árið 1964 byrjaður að kompónera með taubúta og önnur efni, en aug- ljóslega undir áhrifum frá nokkrum amerískum og evr- ópskum „assemblage”- listamönnum. Alveg frá byrjun er engar tilvitnanir i „pop” tákn eða myndmál (eins og ég hef skilgreint það i fyrri grein) að finna í verkum hans. — og er ekki enn. Aðskotahlutir Braga eru einstaklega persónu- lega valdir og samsetning þeirra bæði Ijóðræn og Guðmundur Erró „American Interior”. súrreölsk. Bragi Asgeirsson er því einn af frumkvöðlum „assemblage” á íslandi (ef ekki upphafsmaðurinn...) og á alls ekki heima innan um popp. Verk Magnúsar Tómassonar eru hér einnig á röngum for- sendum. „Objects” hans eru að vísu hversdagshlutir: gleraugu, ljósaperur, brjóstahaldari, en með ummyndun þeirra er Magnús ekki að neinu leyti að upphefja fegurð þeirra, heldur er hann á sposkan hátt að kanna viðbrögð áhorfanda, strlða honum eða erta hann. Hlutir Magnúsar mundu þvl hiklaust flokkast undir ný- dada. Rangar myndir A poppsýningunni í Lista- safninu er svo að lokum að finna tvær myndir eftir Hring Jóhannesson, „Tvíflúð” frá 1972 og „Billiardkúla” frá 1973. Hringur vill nú telja sig til ný-realista, en telur réttilega að popplist hafi átt sinn þátt í að beina honum inn á þá braut í kringum 1968-9, í átt til aukinn- ar nákvæmni og skarpari teikn- ingar í túlkun sinni á hlutveru- leikanum. Sterkust eru popp- áhrif I verkum Hrings upp úr 1970, I myndum þar sem um- ferð, umferðarskilti og ökuljós gegna ákveðnu hlutverki og hefði því verið nær lagi að velja einhverja þeirra mynda til sýn- ingar hér. Veiðihjól og billiard- kúla Hrings hér eru nokkuð langt frá því að vera „popular” tákn: hjólið á meira skylt við persónulega náttúruinnlifun og kúlan er allt að þvf afstrakt flötur. Yfirlit Hvað er svo um popp á Is- landi að segja sem heild? Fyrst og fremst kemur það í ljós að sú hreyfing er alls ekki stór þáttur í list þessara ára á landinu. Eftir ca 1967-8 er lítið um það talað í blöðum eða sýningar- skrám og flestir þeir menn, sem fjallað er um hér að ofan, hverfa yfir í eitthvað annað. Einnig er það athyglisvert hversu „ó-íslenskt” popp á Is- landi var. I stað þess að takast á við það myndmái og þau tákn sem ís- lenskt framleiðslu og fjölmiðla- þjóðfélag otaði að almenningi, þ.e. íslensk myndablöð. auglýs- ingaspjöld (t.d Persil-klukkuna góðu...) og skilti, þá eru það popptákn og stilbrigði erlendr- ar nútímamenningar sem is- lenskir popplistamenn nota að mestu. Að vísu hefur áhrifa er- lendrar fjölmiðlamenningar gætt mjög mikið á tslandi. — en hefur þó aldrei verið afger- andi. Kannski er það vegna þessa sem popplist verður aldrei reglulega „popular” á tslandi. E.S. I grein minni síðastliðinn fimmtudag féll niður mynda- texti. Myndirnar voru: ..Itnage Duplicator" eftir Hoy Lichtenstein og „F-.lll"’ eftir Janies Rosenquist.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.