Dagblaðið - 26.05.1976, Blaðsíða 6
6
DAGBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26 MAl. 1976.
Olíuskipið Urquioia mun hafa strandað á neðansjávarskerjum. Um 70 þúsund tonn af olíu hafa lekið
úr skipinu.
Rakst olíuskipið á
ókortlögð sker?
Rannsókn, sem gerð hefur
verið á vegum eigenda olíuskipa á
Spáni, hefur leitt í ljós, að ókort-
lögð sker hafi valdið strandi risa-
olíuskipsins Urquiola. Við það
brotnaði skipið og geysileg spjöll
urðu af völdum olíulekans.
„Samkvæmt rannsóknum
okkar mun skipið hafa rekizt
tvisvar í neðansjávarsker, eða
eitthvað því um líkt, sem hverg'
kemur fram á sjókortum," segir i
skýrslu rannsóknarnefndarinnar.
Þá segir í skýrslunni: „Því
hefur áður verið haldið fram við
hafnaryfirvöld, að innsiglingin
þarna hafi verið of þröng og
hættuleg, og að nauðsynlegt væri
að sprengja burtu kletta sem
skaga upp úr botninum.
Skipið, sem er tæp 60 þúsund
tonn að stærð, strandaði skammt
frá hafnarborginni La Coruna 12.
maí, með meira en 110 þúsund
tonn af olíu innanborðs.
Vinna var hafin á ný við að-
dæla olíu úr skipinu en það verk
hefur legið niðri að undanförnu,
vegna veðurs og ótta við áhrif
bráðeldfimra lofttegunda, sem nú
umlykja skipið.
Björgunarsérfræðingar álíta,
að um 9000 tonn af hráolíu sé enn
í skipinu, en um 6000 tonnum
hefur verið skipað upp.
Strendur umhverfis La Coruna
eru nú allar ataðar oliu og stór-
skemmdar, auk þess, sem auðug
kræklingamið hafa eyðilagzt. Þá
er talið, að olían muni berast allt
að baðströndum Norður-
Portúgals.
Japan:
Miki boðar
til kosninga
— en ekki fyrr en Lockheed-
hneykslið h efur verið upplýst.
Þá hyggst hann segja af sér
Takeo Miki, forsætisráðherra
Japans, sagði í morgun að hann
hefði í hyggju að leysa upp
neðri deild þingsins (Diet) og
efna til nýrra kosninga um leið
og Lockheed-mútuhneykslið
væri endanlega upplýst.
Forsætisráðherrann sagði
þetta á blaðamannafundi, sem
sjónvarpað var beint í morgun.
Stjórnmálalíf í Japan að und-
anförnu hefur mjög mótazt af
þeim upplýsingum, er fram
hafa komið í þessu máli þar að
undanförnu. Meðal annars
hefur orðið uppvíst, að banda-
ríska flugvélafyrirtækið, Lock-
heed Aircraft Corporation
hefur greitt milljónir dollara til
háttsettra embættismanna til
að greiða fyrir sölu á flugvélum
slnum í Japan.
Miki forsætisráðherra ítrek-
aði þá ákvörðun sína að láta
ekki af embætti fyrr en kosn-
ingar væru um garð gengnar og
Lockheed-málið endanlega upp-
lýst. Ýmsir félagar Mikis I
Frjálslynda lýðræðisflokknum
— þeirra á meðal Etsusaburo
Shiina, varaformaður
flokksins — hafa lagt hart að
Miki að segja af sér áður en til
kosninga kemur.
Þær verða að fara fram fyrir
miðjan desember á þessu ári.
Miki, forsætisráðhera Japan
bíður nú uppljóstrunar
Lockheed-hneykslisins og
nýrra kosninga.
Rœndu dóttur belgíska
sendiherrans í Mexíkó
— vilja fá 73 milljónir í lausnargjald
Mannræningjar hafa enn í
haldi 16 ára gamla dóttur
belgíska sendiherrans í Mexico
og heyrzt hefur, að þeir fari
fram á meira en 72 milljón
króna lausnargjald fyrir hana.
Að sögn talsmanns
sendiráðsins var Nadine
Chaval rænt í gær, eftir að
hún hafði lagt af stað I
franskan sérskóla I
höfuðborginni í einkabíl.
Að sögn nokkurra dagblaóa i
borginni eiga ræningjarnir að
hafa skilið eftir skilaboð í
bílnum, þar sem þeir segjast
vera félagar í vinstri sinnuðum
skæruliðasamtökum, og
krefjast meira en 72 milljón
króna lausnargjalds.
Lögreglan og faðir
stúlkunnar hafa staðfastlega
neitað að gefa upplýsingar um
hverjir hafi getað verið hér að
verki eða hvort lausnargjald
hafi verið greitt. Bílstjórinn
mun vera 1 gæziuvarðhaldi til
yfirheyrslu, en að öðru leyti
hafa nánari upplýsingar ekki
fengizt staðfestar.
Að sögn lögreglunnar mun
þó ekki verða tekið til óspilltra
málanna við að leita
ræningjanna, þar sem at-
burðurinn hefur enn ekki verið
kærður til lögreglunnar. Ekki
vildi hún heldur segja hvort
aðgerðum væri frestað að
beiðni foreldra stúlkunnar af
ótta við að stúlkan yrði myrt.
Skæruliðasamtökin eru sögð
vera samtök þau er nefna sig
Kommúnistasamtök 23. septem-
ber, að sögn lögreglunnar sögð
stjórna flestum meiriháttar
skæruliðasamtökum í Mexico
og með 500 vopnaða félaga.
Fyrir skömmu rændi
félagskapurinn de la Torre, for-
seta mexikanska knattspyrnu-
sambandsins, en lét hann
lausan, eftir að 73 milljón
króna lausnargjald hafði verið
greitt.
Flugvöllurinn [Tel Aviv:
SKJÓT VIÐBRÖGÐ
K0MU í VEG
FYRIR BLÓDBAÐ
Skjót viðbrögð ungrar stúlku,
öryggisvarðar á flugvellinum I
Tel Aviv, komu I veg fyrir blóð-
bað þar í gær, þegar sprengja
sprakk í ferðatösku. Stúlkan,
Miriam Ben-Ishai, beið sam-
stundis bana og einnig maðurinn,
sem átti ferðatöskuna.
Miriam var við tollskoðun á
flugvellinum þegar hún tók eftir
ungum, síðhærðum manni, sem
kom út úr farangursklefanum, en
þá var nýlega lent austurrlsk
flugvél frá Vlnarborg. Hún bað
unga manninn að koma með sér
inn I lítið tollskoðunarherbergi og
opna þar rauða ferðatösku, sem
hann hélt á. Um leið og hann
gerði það sprakk taskan og þau
létust bæði samstundis.
Níu manns særðust I sprenging-
unni, þar af einn alvarlega.
Skoðunarklefinn tættist I sundur
og fólk I flugstöðinni átti fótum
fjör að launa undan glerbrotum,
sem þeyttust I allar áttir.
Ástalífshneyksli bandaríska þingmannsins:
Hays staðfestir sögu „einkaritarans"
— en þó ekki alveg
Hinn valdamikli þingmaður
demokrata, Wayne Hays, viður-
kenndi I gær að hafa staðið í
ástarsambandi við 33 ára verð-
andi leikkonu, sem hann hafði
á launaskrá.
„Ég er aðeins mannleg vera,
sem getur syndgað, og það hef
ég gert,” sagði þingmaðurinn í
áhrifamikilli ræðu á þinginu í
gær.
Þingmaðurinn, sem nú er 64
ára, neitaði þvl hins vegar að
hann hefð: raðið E!:sabct Ray
til starfa sem einkaritara gegn
blíðu, en því hélt ungfrúin
fram í viðtali við dagblaðið
Washington Post sl. sunnudag.
Hann sagði ennfremur að
syndir hans væru fyrst og
fremst að hafa neitað að viður-
kenna ástarsambandið. Aðrir
þingmenn fulltrúadeildarinnar
voru kallaðir á sérstakan fund
til þess að hlýða á játningar
þingmannsins.
v.
„Fyrstu viðbrogð mtn voru
auðvitað þau að reyna að
vernda hjónaband mitt og
brúði mína,” sagði hann. „Um
leið og ég reyndi það sé ég
einnig að ég braut verulega af
mér, er ég skýrði ekki rétt frá
öllum staðreyndum málsins
strax.”
Og hann sagði þingmönnun-
um: „En ég held fast við þann
framburð minn, að ég réð stúlk-
una ekki til þess að verða ást-
kona mín."
Hann viðurkenndi einnig að
hafa í langan tíma áður en
hann gekk I hjónaband „verið
með” ungfrú Ray.
„Ég var þá löglega fráskilinn
og einhleypur,” sagði hann.
„Við gerðum það bæði af
frjálsum og fúsum vilja.”
Hays sagði að stúlkan „væri
mjög trufluð ung kona” og væri
hún aðeins á höttunum eftir að
eyðileggja hjónaband hans og
stjórnmálalega framtið, eftir að
henni varð Ijöst að hann ætiaðz
að giftast annarri. Hafi hún
m.a. hótað að fremja sjálfs-
morð.
„Þetta er erfiðasta ræðan
sem ég hef haldið á 28 ára þing-
mennskuferli mínum,” sagði
þingmaðurinn I lok máls síns.