Dagblaðið - 26.05.1976, Blaðsíða 14

Dagblaðið - 26.05.1976, Blaðsíða 14
14 DAGBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MAl 1976. DB-myndir: Björgvin Pálsson Pétur Hjaltested syngur sífellt fleiri iög með hljómsveitinni, einkum þau sem hárrar raddar er þörf í. Það þarf sterkbyggðan mann til að knýja svona risastóran bassa. Gunnar Hermannsson stendur vel undir hljóðfærinu. t starfsiiði Paradísar eru 11 manns, þó að hljóðfæraleikararnir séu ekki nema sex. Þeirra á meðai eru hljóðstjórinn Gústi og ljósa- meistarinn Jói. Sprengjan sem herlögreglan gerði óvirka með Paradís á Keflavíkurflugvelli A þessu á þó að ráða bót um leið og hljómsveitin kemur heim frá plötuupptöku í Bretlandi. Þá verða ný lög æfð upp af nýjum krafti og með nýjum píanó- leikara. Þórður rótari og vélhjólakappi átti sér fáar hvíidarstundir uppi á Velii. Hér fær hann þó tækifæri til að hvíla lúin bein örskamma stund. „Við skulum lofa ykkur því að annað eins stuð hafið þið ekki séð á íslandi," sögðu meðlimir Para- dísar í flutningabíl þeirra á leiðinni út á Keflavíkurflugvöll fyrir nokkru. Erindið var að sjá hljómsveitina trylla Kanana í þeim velþekkta og margumtalaða klúbbi Midnight Sun. Fullir tilhlökkunar fylgdust Dagblaðsmenn með Paradis kynda undir fínustu taugum Bandaríkjamannanna unz klukkan varð orðin eitt um nóttina. Þá átti sprengjan að falla með kröftugri Bítlasyrpu, sem lætur jafnvel ekki hinn fúlasta antipoppista ósnortinn. En ekkert skeði. Og þó — herlögreglan ruddist I salinn á mínútunni eitt og skipaði hljómsveitinni að hætta. Nú átti ekki að koma fyrir atvikið sem hafði hent áður þegar Paradís Iék á sömu slóðum. Þá hafði fólkið tryllzt svo hressilega, að lögrglan réð ekki við neitt. Þ6 var þessi vallarferð með Paradís ekki til einskis farin. Aheyrendur urðu þess aðnjótandi að heyra Paradís leika af fingrum fram í um 20 mínútur af þvi öryggi sem hún hefur sjaldan sýnt áður. Þá var öll framkoma hljómsveitarinnar sérlega fag- mannsleg. Slík framkoma, sem félagarnir sýndu þarna, er þeim sjaídan möguleg. Ástæðan fyrir þvf er sú að sviðið í Midnight Sun er um þrisvar sinnum stærra en á íslenzkum skemmtistöðum, svo að strákarnir höfðu gott svigrúm til að láta eins og þá lysti. Fyrir þá, sem oft skemmta sér með Paradís, er lagavalið orðið nokkuð útjaskað. Hljómsveitin hefur boðið upp á sama gamla prógrammið i allt of langan tíma. Þetta var f næstsíðasta skiptið sem fólki gafst færi á að sjá Pétur kaptein með sinni gömlu hljómsveit. Nú er nýr maður kominn í sæti hans — Nikki Róberts. Lœrum að meta það fítla sem gert er... Svala Ólafsdóttir sendi poppsíð- unni eftirfarandi bréf: „Kæru poppþáttarstjórn- endur. ' Hvað er að gerast í popp- heimi okkar? Það er kvartað yfir öllu en ekkert er gert til að Íífga upp á tónlistarlifið. Mig skal ekki undra þó að þeir fáu, sem eitthvað hafa reynt til þess, gefist einfaldlega upp. Það er sama hvað gert er, annaðhvort er allt svo lélegt eða fólk hreinlega leggur ekki eyrun við neinu nema um þekkt nöfn í bransanum sé að ræða. Sem dæmi má nefna það framlag veitingastaðarins íjesars að halda svokölluð djammkvöld — það er vel. Fólk hefur mætt nokkuð vel á þau. ef vel hefur þá verið tilkynnt hverjir djammi í það og það skiptið. Ætla ■' mætti að sumt fólk kæmi ekki til annars en að sjá framan í stór nöfn, svo sem Magga Kjartans eða Kobba Magg. En einhvern tíma var kjörorðið: Gefið ungum upp- rennandi tónlistarmönnum tækifæri til að koma fram með músík sína, styðjið við bak þeirra og hvetjið. — Allir vita að það getur ekki verið gaman að koma fram í fyrsta skipti fyrir tómu húsi, vitandi að þær fáu hræður, sem innan dyra eru, hafa ekki minnsta áhuga á öðru en barnum. Fyrir skömmu auglýsti veitingahúsið Sesar þjóðlaga- kvöld í einu dagblaðanna. Ekki var tekið fram hvaða listamenn kæmu þar fram með músík sína en við skruppum þarna nokkur saman og hugsuðum nú gott til glóðarinnar að geta eytt kvöld- inu í rólegheitum við þjóðlaga- tónlist. I Sesari var næstum tómt hús og ég er viss um að fæstir höfðu hugmynd um hvað væri að gerast þarna. Að vísu hafði undirbúningur kvöldsins farið eitthvað úrskeiðis og fram kom aðeins eitt tríó. Við þrjú held ég að það hafi heitið. Því miður heyrðist litið sem ekkert í þvi. Grúppa af krökkum þurfti að nota þarna tækifærið til að koma boðskap sínum á fram- færi og söng herstöðvaand- stæðingasönginn allt kvöldið, hinuni til mikils ama, enda Keflavíkurgöngunni löngu lokið. Þau hafa líklega misst af henni, þessi grey, enda ekki útlit fyrir að þar væru miklir göngugarpar á ferð. Þarna var komið gott tæki- færi til að lífga upp á tónlistar- lífið en hvar voru nú eyrun fyrir ofan munnana sem alltaf standa opnir til að kvarta yfir tillitsleysinu við tónlistarunn- endur? Varla er hægt að opna blað þessa dagana án þsss að rekast á kvörtun frá hinum og þessum um brezku hljómsveitina Red Sky at Night. Sjálf hef ég hlustað á hana og ætla svo sannarlega ekki að gefa henni hrós fyrir frammistöðuna. Valið hefði mátt vera betra hjá Tommunum tveim, en þar sem mér gafst tækifæri til að fylgjast með þeim í ieit sinni að réttri grúppu veit ég að þeir reyndu að gera sitt bezta. Munu bæði reynsluleysi og tímatak- markanir hafa ráðið því hvernig fór. En það má alltaf reyna aftur. Ég vona að Tommi í Festi láti ekki hugfallast þótt móti blási. Víst er um það að við höfum næga íslenzka tón- listarmenn til að hlusta á en það er alltaf bæði gaman og áhugavert að fylgjast með öðrum þjóðum líka. Vandinn er bara sá að hlusta og læra að meta þó það litla.sem gert er, í stað þess að gefa sér ekki tíma til annars en að kvarta yfir öllu sent á borð er lagt. Það er slæmur ósiður.“

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.