Dagblaðið - 26.05.1976, Qupperneq 7
7
DAGBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MAl 1976.
Grikkland:
BLÓÐUGAR ÓtlRÐIR í KJÖLFAR VtRKFAUA
Miðborg Aþenu leit út eins
og vígvöllur, þakin gler-
brotum og brunaleifum
götuvígja, eftir að til mikilla
átaka kom milli lögreglu og
verkamanna sem eru í verkfalli
til þess að mótmæla nýjum til-
lögum ríkisstjórnarinnar
varðandi vinnulöggjöfina. Ein
kona lét lífið og meira en 100
manns særðust alvarlega.
Konan Iét lífið er hún varð
fyrir lögreglubifreið sem var að
elta nokkra verkfallsmenn. Þá
særðust 60 lögreglumenn og 39
úr mótmælahópnum.
í morgun var kyrrt með
köflum í borginni.
1 óeirðunum í gær skutu
kröfugerðarmenn að lög-
reglunni en lögreglumenn
höfðu skotið hundruðum tára-
gassprengja og gert margar
árásir á hópa göngumanna til
að reyna að dreifa mann-
fjöldanum. Menn köstuðu
grjóti, gerðu sér götuvígi, veltu
bifreiðum og kveiktu elda á
götum úti.
Upphaf óeirðanna var ganga
4000 verkamanna, sem
mótmæla vildu nýjum tillögum
ríkisstjórnarinnar, þar sem
segir að verkamenn, sem ekki
eru í viðurkenndum verka-
mannasamtökum, megi ekki
fara í verkfall af stjórnmála-
legum ástæðum.
Miklar umræður hafa að
undanförnu átt sér stað um
lagafrumvarp þetta í griska
þinginu.
Bandarísku forkosningarnar í gœr:
Óhugnanleg
morð í
New York
—áeftirát
morðinginn úr
ísskápum
fórnarlambanna
Naumur sigur Fords
forseta f Oregon
Calvin Jackson drap níu full-
orðnar konur á sautján mánaða
tímabili. öll morðin framdi hann
á sóðalegu hóteli í New York,
þaðan sem hann fór yfirleitt
aldrei, og á eftir tæmdi hann
ísskápa fórnarlamba sinna og át
úr þeim allt sem ætilegt var.
í gær fann kviðdómur Jackson
sekan um morðin í Park Plaza
hótelinu á Manhattan, eftir
réttarhöld sem stóðu í sex vikur.
Kviðdómurinn hafnaði þeirri full-
yrðingu verjendanna, að Jackson
væri brjálaður.
Mörgum kvennanna nauðgaði
Jackson áður en hann myrti þær.
A meðan hann snæddi mat þeirra
eftir morðin sagðist hann hafa
horft á líkin og „verið hamingju-
samur“.
Átta af þessum níu konum
kæfði Jackson í herbergjum
þeirra — og i framburði hans kom
fram, að hann teldi sig heyra
raddir, er hvettu hann til að
myrða gamalt fólk.
Calvin Jackson á nú yfir höfði
sér lífstíðar fangelsi fyrir hvert
og eitt þessara morða.
Ford forseti virðist enn halda
í við Ronald Reagan, mótfram-
bjóðanda sinn í for-
kosningunum í Oregon, sem
mikið hafa verið ræddar að
undanförnu. Þó hafa aðeins um
10% atkvæða verið talin enn
sem komið er, og getur brugðið
til beggja vona. Hins vegar
vann forsetinn óvæntan sigur
yfir Reagan í Kentucky þar sem
hann hlaut 51% atkvæða. Og í
Tennessee hafði hann hlotið
nauman meirihluta, er rúmlega
þriðjungur atkvæða hafði verið
talinn. í Arkansas hafði aðeins
lítill hluti atkvæða verið talinn
og þar hafði Reagan betur.
Reagan hefur einnig hlotið
meirihluta atkvæða í Idaho og
Nevada, þar sem forkosningar
voru §innig haldnar í gær.
Ljóst er, að Jimmy Carter
mun tapa fyrir Frank Church
þingmanni frá Idaho. CBS
fréttastofan Kafði spáð þing-
manninum sigri, en hann hefur
mikið verið í sviðsljósinu, sem
formaður nefndar þeirrar er
rannsakað hefur starfsemi CIA.
Edmund Brown virðist verða
þriðji í röðinni en hann vann
óvæntan sigur á Jimmy Carter í
Maryland nú fyrir skömmu.
Hefur ósigur Carters þar, fyrir
nánast óþekktum manni, er tók
seint þátt i kosningabaráttunni,
haft sitt að segja fyrir baráttu
hans og átt sinn þátt í að herða
baráttuna í herbúðum
demókrata.
Brown vann einnig sigur yfir
Carter í kosningunum í Nevada
með 51% gegn 25 og eins og
búizt var við, vann Frank
Church, sem er frá Idaho
yfirburðasigur í heimafylki
sínu.
Samt sem áður tryggði Carter
sér flesta kjörmenn í suður-
ríkjunum Kentucky, Arkansas
og Tennessee. Hefur hann nú
tryggt sér 808 kjörmenn, en sá
er næstur honum er demókrata
er Morris Udall, með 273
kjörmenn.
— Carter tapaði íbrem
vesturríkjum
Ford Bandarikjaforsetl hefur ekki oft haft tilefni til að vera
kátur i kosningabaráttunni og allt útlit var fyrir að hann tapaði
í Oregon er talningu var haidið áfram i morgun.
Erlendar
fréttir
REUTER
Literaturnaya Gazeta:
ÞRÍR VESTRÆNIR FRÉTTAMENN
íM0SKVU ÚTSENDARAR CIA
Tímarit sovézku rithöfunda-
samtakanna, Literaturnaya
Gazeta, hefur sakað þrjá banda-
riska fréttamenn í Moskvu um að
vera starfsmenn bandarísku
leyniþjónustunnar CIA. Að því er
blaðið segir eru þremenningarnir
George Krimsky, fréttamaður
APU-fréttastofunnar, Christop-
her Wren, fréttamaður New York
Times og Newsweekblaðamaður-
inn Alfred Friendley.
I grein í blaðinu um starfsemi
CIA, þar sem meðal annars er
vikið að því að leyniþjón-
ustan hafi oft haft blaðamenn—
bæði bandaríska og af öðru
þjóðerni — í þjónustu sinni, segir
að þremenningarnir hafi tekið
þátt í starfsemi, sem væri fjand-
samleg Sovétríkjunum og að
raunverulegur húsbóndi blaða-
mannanna væri CIA.
Krimsky hefur ekkert viljað
segja um þessar ásakanir,
Friendley er ekki í Moskvu sem
stendur en Wren segir um grein
blaðsins, að hún sé tóm vitleysa
og bætti við: „Ég er enginn
njósnari."
Það mun ekki hafa gerzt
áður,að sovézkir fjölmiðlar hafi
sagt blaðamenn, sem enn eru í
Moskvu, útsendara CIA, en
nýlega sagði vikuritið Nedelya að
Michel Tatu, sem var fréttamaður
franska blaðsins Le Monde á
síðasta áratug, hefði verið starfs-
maður bandarisku leyni-
þjónustunnar.
STOÐVA D0MST0LAR
SÖLU KJARNAKLJÚFA
TIL SUÐUR-AFRÍKU?
Formaður bandarískrar þing-
nefndar, Charles Diggs, sagði í
gærkvöld, að ef til vill reyndist
nauðsynlegt að leita til dómstóla
til að koma i veg fyrir að banda-
ríska fyrirtækið General Electric
seldi tvo kjarnakljúfa til Suður-
Afríku.
Diggs sagðist telja liklegt, að
.stjórn Fords forseta myndi sam-
þykkja söluna innan skamms, og
þvi gæti verið nauðsynlegt að fá
hana stöðvaða með dómsúrskurði.
Samþykki sölunnar, sagði Diggs,
myndi vera í engu samræmi við
nýlega yfirlýsingar Ford-
stjórnarinnar um stuðning
hennar við meirihlutastjórn
blökkumanna i Afríku sunnan-
verðri.
General Electric hefur farið
þess á leit við viðkomandi yfir-
völdað fá leyfi til að flytja kjarna-
kljúfana úr landi til S-Afríku, og
jafnframt 636 tonn af fullunnu
úraníum til að keyra ofnana.
Danmörk:
NAT0 bkmdast í deilur
um fé til varnarmála
Stjórnmálaflokkar í Dan-
mörku hafa ekki getað komið
sér saman um langtíma fjár-
hagsáætlun vegna varnarmála.
Eftir viðræður milli sex
flokka undanfarna daga, sagði
Orla Möller í gær, að niður-
stöður viðræðnanna fram til
þessa yrðu lagðar fram í
höfuðstöðvum NATO, áður en
flokkarnir koma saman til
viðræðna á ný í næsta rnánuði.
Flokkarnir hafa undanfarið
reynt að komast að langtíma
samkomulagi um framlög til
varnarmála, svo að þau verði
óháð stjórnarskiptum.
Hefur aðallega skorizt í odda
milli stjórnarflokksins
sósíaldemókrata undir stjórn
Anker Jörgensen og flokks
frjálslyndra.
Og í gær sagði Möller: „Það
er orðið nauðsynlegt að láta
aðalstöðvar bandalagsins vita
um þróun mála. Skoðun ríkis-
stjórnarinnar er sú, að sam-
komulagið um fjárframlög til
varnarmála þurfi að njóta
mikils stuðnings, bæði frá
NATO og meirihluta flokka á
Þjóðþinginu."