Dagblaðið - 26.05.1976, Side 15
DAGBLAÐIÐ MIÐVIKUDAC.UR 26. MAÍ 1976.
Barnið
á borð
15
Ekki örvœnta þótt illa gangi í próf inu
þitt getur verið snillingur
við Einstein eða Churchill
Undanfarinn mánuður hefur
verið mikill taugaspennumán-
uður á fjöldamörgum heimilum
þar sem staðið hafa yfir próf í
öllum skólum landsins. Það
hefur ugglaust heyrzt margt
andvarpið bæði frá nemendum
og foreldrum og má kannski
ekki á milli sjá hvorir verða
fegnari þegar prófunum lýkur,
sjálfir próftakarnir eða foreldr-
arnir.
En foreldrunum til huggunar
skal nú greint frá því að engin
ástæða er til þess að örvænta
þótt prófin hafi gengið illa, —
eða afkvæminu jafnvel verið
vísað úr skóla. Það getur vel
verið að það sé merki um að
barnið sé einhvers konar
snillingur.
„Kennarar og foreldrar
verða að sýna ungmennum
meiri þolinmæði. Háar
einkunnir I skóla eru ekki allt-
af undanfari mikillar vel-
gengni.”
Þetta segir dr. Ronald S.
Illingworth, en hann er prófess-
or í barnaheilsufræði við há-
skólann í Sheffield í Englandi.
„Barn, sem álitið er á eftir
skólafélögum sínum í námi í
dag, getur verið snillingur
morgundagsins.
Ef barni gengur illa í skólan-
Edgar Allan Poe.
Albert Einstein
Winston ChurchlII.
um getur orsakanna verið að
leita á einum af eftirfarandi
fjórum stöðum: Hjá kennaran-
um, foreldrum, barninu sjálfu
eða í aðferðinni sem beitt er við
að komast að því hvað barnið
raunverulega kann — þ.e. próf-
unum.
Full' ástæða er til að beina
rannsóknum að þeim sem
staðið hafa sig illa í skólanámi
en hlotið viðurkenningu eftir
að þeir komu út í lífið sjáft ef
það mætti verða til þess að
hjálpa eftirkomendum þeirra.
Hér á eftir skal getið um
nokkra heimsfræga menn sem
sýndu ekki neina sérstaka hæfi-
leika á meðan þeir voru enn I
skóla:
★ Albert Einstein var kallaður
asni og heimskingi af kennur-
um sínum og var rekinn úr
barnaskóla!
Síðar féll hann á inntöku-
prófi í verkfræðiháskólann I
Ziirich í Sviss.
★ Ludvig van Beethoven var
lýst sem alveg vonlausum nem-
anda i sambandi við tónsmíðar
af kennurum sínum.
★ Sir Isaac Newton — sem
uppgötvaði þyngdarlögmálið —
var langneðstur í sínum bekk.
★ Winston Churchill komst
hvorki inn í Oxford eða Cam-
bridge vegna þess hve illa hann
var að sér I heimsbókmenntun-
um.
■k James Whistler, er var einn
af mestu listmálurum Banda-
ríkjanna, var rekinn frá her-
skólanum í West Point vegna
þess að hann var svo lélegur I
efnafræði.
★ Edgar Allan Poe, sem hefur
heillað lesendur um heim allan
I meira en öld með hrollvekjum
slnum, var rekinn úr tveimur
háskólum.
I ævisögu hans segir William
Bittner: „Drykkjuskapur og
spilafíkn Edgar Allans Poe
truflaði mjög námsferil hans
þegar hann var við nám I
háskólanum í Virginia. Arið
1830 innritaðist hann 1 herskól-
ann í West Point. Hann var
mjög skeytingarlaust um námið
og kaus heldur að semja ljóð en
leysa jöfnur.
Hann neitaði harðlega að
sækja skólatíma og guðsþjón-
ustur og varð því að víkja úr
báðum þessum háskólum.”
Prófessor Illingworth segir
ennfremur að vegurinn til
frægðar og velgengni sé alls
ekki sá sami fyrir alla.
„Það er engin algild regla
fyrir því að börn verði
snillingar í lífinu. Það er aðeins
eitt sameiginlegt með öllum
snillingum og það er sköpunar-
gáfa.
Hún hefur svo sannarlega
ekkert að gera með háar ein-
kunnir i skóla.”
Þetta ætti að verða foreidr-
um huggun ef börnum þeirra
hefur ekki gengið alltof vel í
prófunum. Það getur svo sann-
arlega rætzt úr þeim þótt síðar
verði.
— A.Bj.
Af hverju keyptu þeir
bandaríska hveitið?
gSkoðanir
Art Buchwalds
| ó málinu
Það hlýtur að hafa verið
erfitt fyrir sovézk yfirvöld að
útskýra fyrir landsmönnum
hvers vegna þeir neyddust til
þess að kaupa hveiti og aðrar
korntegundir af Bandarikj-
unum. En Rússum hefur trú-
lega tekizt vel upp í því efni.
Bandariski dálkahöfundur-
inn Art Buchwald skrifaði
nýlega grein um þetta mál í
Herald Tribune og við skulum
skyggnast með honum inn i
sovézka skólastofu og hlera
hvað þar fer fram:
„Allt í lagi, félagar. Nú
skulum við tala um fæðuna.
Hver er mesta landbúnaðarþjóð
heimsins?”
Bekkurinn svarar einum
rómi:
„Sovétríkin, félagi kennari.”
„Alveg rétt. Nú skulum við
ræða um Spútnik.”
„Félagi kennari!”
„Hvað var það, félagi Ivan?”
„Ef Sovétríkin eru mesta
landbúnaðarríki heims, hvers
vegna kaupum við þá hveiti og
aðrar korntegundir frá Banda-
ríkjunum?”
„Það var gott að þú skyldir
spyrja þessarar spurningar,
litli borgaralegi, andbyltingar-
sinnaði maóistinn þinn.
Ástæðan fyrir því að viö
kaupum hveiti og aðrar korn-
tegundir frá Bandaríkjunum er
friðar- og hlutleysisstefnan.
Leiðtogi okkar og félagi,
Brésnef, vinnur að varðveizlu
friðarins í heiminum með þvi
að taka við umframframleiðslu
kapítalistanna á fæðu 'sem við
höfum enga þörf fyrir. Friðar-
og hlutleysisstefna þýðir í
rauninni „að kaupa korn”.”
„Félagi kennari, hvers vegna
er umframframleiðsla í Banda-
rikjunum á korni, hveiti og
öðrum korntegundum?"
„Vegna þess, Ivan heimski,
að Bandarík.jamenn hafa enga
fimm ára áætlun og þeir rækta
meira en þeir geta elið sjálfir.
Hér í Sovétríkjunum ra'ktum
v___——
við nákvæmlega það sem við
þurfum á að halda þannig að
ekkert fer til spillis. 1 Banda-
ríkjunum rækta þeir bæði
hveiti og aðrar korntegundir,
hvort sem þeir þurfa á þeim að
halda eða ekki.“
„Af hverju gera þeir það,
félagi kennari?”
„Það er mjög einfalt. Það er
engin áætlunarnefnd starfandi
þar til þess að segja þeim hve
miklu magni þeir skuli sá til
ræktunar. í Sovétríkjunum er
bændunum sagt hve miklu þeir
skuli planta. Bændurnir hér
rækta ekki einni tunnu meir af
korni en áætlunarnefndin segir
þeim til um. Seztu nú niður og
þegiðu, Ivan.”
„En f.éiagi kennari. Ef áætl-
unarnefndin segir bændunum
hér hve.miklu þeir skuli planta
af hveiti til þess að allir fái
nægju sína, hvað eigum við þá
að gi.ra við bandaríska hveit-
ið?”
„Borða það að sjálfsögðu,
Trotskyistinn þinn. Við
borðum bandaríska hveitið og
sýnum þeim að sovézkir komm-
únistar geta orðið feitir á mis-
tökuni auðvaldsins. Cetum við
nú farið aö ræða um Spútnik?"
„Félagi kennari. Væri ekki
heppilegra að neita að kaupa
bandaríska hveitið, þannig að
þeir sætu uppi með það? Þá
kæmi kreppa hjá þeim og þá
gætum við gleypt þá með húð
og hári?”
„Dæmalaust spyrðu bjána-
legra spurninga. Ivan. Ef við
kaupum bandaríska hveitið
stígur verðið á brauði í Banda-
rikjunum og þá verður kreppa
og það mun leiða til uppreisn-
ar.”
„En þú sagðir að það væri
umframframleiðsla á hveiti í
Bandaríkjunum.”
„Það er líka rétt, ef við
keyptum það ekki. Mig langar
ekki til þess að senda þig til
KGB-skrifstofunnar, Ivan.
Viltu ekki gjöra svo vel og
hætta að spyrja svona márgra
andstyggilegra spurninga.”
„Mér þykir þetta leitt, félagi
kennari. Ég var aðeins að
spyrja fyrir hana móður mina.”
„Hvers vegna ertu að spyrja
fyrir hana móður þína?”
„Vegna þess að hún sagðist
ekki geta gefið mér neitt brauð
í hádegismat.”
„Það er vitleysa að móðir þín
geti ^ekki keypt brauð þegar
Sovétríkin hafa fengið aðra
prýðilega hveitiuppskeru. Þeir
sem eiga mæður, sem gátu ekki
keypt brauð í morgun, rétti upp
hendurnar... Látið hendurnar
niður, asnarnir ykkar. Viljið þið
láta taka okkur öll föst?”
„Hvað á ég að segja móður
minni, félagi kennari?”
„Segðu henni það sem eigin-
kona hins mikla leiðtoga okkar,
félaga Lenins, sagði þegar
henni var sagt að fólkið hefði
ekkert brauð."
„Hvað var það, félagi
kennari?"
„Látum það borða kökur í
staöinn.”
Lögtaksúrskurður
Samkvæmt beiðni innheimtumanns ríkissjóðs
úrskurðast hér með að lögtak geti farið fram fyrir
gjaldföllnum en ógreiddum söluskatti/sölugjaldi fyrir
mánuðina janúar, febrúar og marz, nýálögðum
hækkunum söluskatts/sölugjalds vegna fyrri tímabila.
gjaldfallinni en ógreiddri fyrirframgreiðslu þinggjalda
ársins 1976 og nýálögðum hækkunum vegna fyrri ára,
öryggiseftirlitsgjöldum, skoðunargjaldi bifreiða,
þungaskatti af bifreiðum, vátryggingargjaldi ökumanna,
vörugjaldi, framleiðslugjaldi af innlendum toll-
vörutegundum, útflutningsgjöldum, lesta og vita-
gjöldum, tryggingargjöldum skipshafna, skipaskoðunar-
gjöldum og skráningargjöldum allt ásamt dráttarvöxtum
og kostnaði.
Lögtökin geta farið fram að liðnum átta dögum frá
birtingu úrskurðar þessa.
Hafnarfirði 21. mai 1976
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði,
Seltjarnarnesi og Garðakaupstað.
Sýslumaðurinn i Kjósarsýslu.