Dagblaðið - 10.06.1976, Síða 15

Dagblaðið - 10.06.1976, Síða 15
DAGBLAÐIÐ — FIMMTUDAGUR 10. JUNl 1976 13 I LANDSLIÐSHOPNUM Dkkar, hafa boðizt til að leika. Nú, en það er ekki bara A- landsliðið, sem er í eldlínunni, einnig unglingarnir. Þann 16. iúní leikur unglingalandsliðið, ;kipað leikmönnum 16-18 ára, við Færeyinga. Það þarf að skipa í það lið — þó auðvitað grindin sé til. Síðan er það unglingalið skipað leikmönnum 1416 ára Eins og kunnugt er, verður Norðurlanda- mótið í þessum flokki hér í Reykjavík. Það verður kallaður saman hópur og úr honum verða valdir leikmenn. Þann 17. júní mun 1 unglingalandslióið skipað 1 leikmönnum 14-16 ára, leika við Bréiðablik. Já, það verður ekki annað sagt, en að nóg sé að gera, sagði Tony Knapp að lokum. h. halls. úel vorði tvívegis víti! - þegar Þór og Haukar gerðu jafntefli 3-3 í 2. deild á Akureyri í gœrkvöld hans stað kom Þrainn Hauksson Á 46. mín. var réttilega dæmd vítaspyrna á Þór þar sem Arnóri Guðmundssyni hafði verið brugðið innan vítateigs. Loftur Eyjólfsson framkvæmdi spyrn- una og skaut laglegu skoti í hornið en Samúel gerði sér lítið fyrir og varði auðveldlega og hélt knettinum meira að segja! Aðeins 3 mín. síðar var aftur dæmd vita- spyrna á Þór‘ Ölafur Jóhannesson átti þá mjög gott skot að marki sem fór upp undir þverslá Þórs- marksins en Aðalsteinn Sigur- geirsson slæmdi höndunum i knöttinn og að sjálfsögðu dæmd vítaspyrna. Nú var það Ólafur Jóhannesson, sem fékk það hlutverk að fram- kvæma spyrnuna. Hann spyrnti föstu skoti, en viti menn, Samúel varði í 2. sinn víti á 3 mín— Staðan í leikhléi var því 2-1 Haukum í vil. Þegar á fyrri hálf- leik er litið var Þór betri aðilinn, sótti meira og var mun meira með boltann. En Haukar áttu af og til mjög fallegar skyndisóknir sem voru vel útfærðar. Strax í s.h. auka Haukar for- skot sitt. Loftur Eyjólfsson lék á 2 varnarmenn Þórs eftir snögga upphafssókn og skaut þrumuskoti í mark Þórs. Á 10. mín tekst Þórs- urum að minnka muninn. Magnús Jónatansson, fyrirliði Þórs, átti fallega sendingu á Jón Lárusson sem skaut hörkuskoti frá víta- teigslínu. 2-3 og spennan í hámarki. 11 mínútum síðar jafna Þórsarar metin við mikinn fögnuð áhorfenda. Magnús Jónatansson skoraði með skalla eftir góða fyrirgjöf inn fyrir vörn Hauka. Næstu 10 mínútur var nánast um einstefnu Þórsliðsins að ræða og komust Haukar þá vart fram yfir miðju. En smám saman fóru Haukar í gang aftur og sóttu mun meira síðustu 15 mínúturnar. Á 40. mín. bjargaði Gunnar Aust- fjörð t.d. mjög vel á línu eftir hörkuskot Ölafs Torfasonar en hann lék áður á fjóra leikmenn Þórs. Svo á 44. min. skaut Ölafur Jó. hárfínu skoti rétt yfir. I heildina: Nokkuð góður og fjörugur leikur þar sem bæði liðin spiluðuágætlegaog áhorfend ur fengu að sjá góð mörk og oft skemmtilegan samleik en þar voru heimamenn betri en liðs- menn Hauka. Einum leikmanni var sýnt gula spjaldið, var það Haukamaðurinn Guðmundur Sig- marsson. Beztu menn Hauka Björn Svavarsson, Ólafur Jóhann- esson ogGuðmundur Sigmarsson. Einnig komust Axel Magnússon markv. og Ulfar Brynjarsson nokkuð vel frá leiknum. Beztu menn Þórs: Samúel Jó., sem var maður leiksins, Gunnar Aust- fjörð, Aðalsteinn Sigurgeirsson og bræðurnir Magnús og Sævar Jónatanssynir. Línuverðir Hreinn Hrafnsson og Siguróli Sigurðsson. Áhorfendur voru 657. St. A. Enski landsliðseinvaldurinn, Don Revie, valdi endanlega lið sitt í gær, sem leikur við Finna á sunnudag í undankeppni heimsmeistarakeppn- innar. Leikurinn verður í Helsinki og eina breytingin frá síðasta enska landsliðinu — því, sem sigraði lið Bandaríkjanna á dögunum — er sú, að Poul Madeley tekur stöðu Brian Greenhoff, Manch.Utd. Enska landsliðið verður þannig skipað. Ray Clemence, Liverpool, Colin Todd, Derby, Poul Madeley, Leeds, Phil Thompson, Liverpool, Mick Mills Ipswich, Gerry Francis QPR, fyrirliði, Trevor Brooking, West Ham, Trevor Cherry, Leeds, Kevin Keegan, Liverpool, Stuart Pearson, Manch.Utd. og Mike Channon, Southampton. Finnska liðið verður hið sama og tapaði fyrir Svium nýlega í Norðurlandakeppn- inni 2—0. Landslið Wales dœmt f ró í Evrópukeppninni Knattspyrnusamband Evrópu setti i gær á fundi sinum í Milano leikbann á landslið Wales í næstu Evrópukeppni landsliða — keppni, sem háð verður 1978—1980. Ástæðan til þessa stranga dóms UEFA er framkoma áhorfenda í Cardiff í síðari leik Wales og Júgó- slavíu í Evrópukeppninni á dögun- um i átta-liða-úrslitum. Júgóslavar höfðu tveggja marka forustu frá leik landanna í Júgóslavíu og i Cardiff júku þeir markatöluna fljótt í 3—0, þegar dómarinn dæmdi vafasama vítaspyrnu á Wales, sem skorað var úr. Ahorfendur undu þeim dómi illa — og síðar í leiknum réðust þeir þrívegis niður á völlinn. Dómarinn hótaði að hætta leiknum, og komst þá á ró á ný. Áhorfendur grýttu ýmsu lauslegu niður á völl- inn — m.a. lenti stórhættuleg kast- píla í öðrum línuverðinum. Þetta er í fyrsta sinn, sem lands- lið er dæmt frá keppni, en algengt hjá félagsliðum og má þar minnast Glasgow Rangers, Leeds og nú nýverið Real Madrid. Bezti heimstíminn Heimsmethafinn í 3000 m hindrunarhlaupi, Svíinn Anders Gærderud, náði í gær bezta heims- timanum í hindrunarhlaupinu á móti í Stokkhólmi. Hljóp vega- lengdina á 8:15.6 mín. RITSTJORN: HALLUR SÍMONARSON Mcðan Bommi hikar slcppur tflæpamað urinn. j — Hann slapp. Snatj. Kannki hcfði hann komið okkm okkur á sporið hvcrt þcir fóru mcð .stúlkuna mcð clularfulla umslagið. V Bommi finnur hrcfsncpil scm árásarmaðurinn skildi cftir. C Hvað cr'þctfa? Símanúmcr! _______: Xs . i v H. / T\ Laugardalsvöllur l.deild í kvöld kl. 20 leika Fram og Þróttur. Allir á völlinn. Fram.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.