Dagblaðið - 25.06.1976, Síða 6

Dagblaðið - 25.06.1976, Síða 6
*\ /* 6 DAGBLAÐIÐ — FÖSTUDAGUR 25. JÚNl 1976. ""........ Fyrrum f orstöðumaður Áhaldahússins: Krefst 8 milljóno í skaðabœtur vegna uppsagnarinnar 8 milljóna króna skaðabótakrafa er gerð í máli sem Reynir Þórðarson, fyrrver- andi forstöðumaður Áhalda- húss Reykjavíkur, hefur höfðað gegn borgarstjóranum í Reykjavik, Birgi tsleifi Gunnarssyni. Mál þetta var þingfest í bæjarþingi Reykja- víkur í gær og er þess m.a. getið í stefnu að ofangreind skaðabótakrafa sé reist á því að uppsögn stefnanda úr starfi hafi verið heimildarlaus og ó- réttmæt. Þess er og getið í stefnu að bóta þessara sé nú krafizt með málshöfðun vegna tilefnislausra og allt of víðtækra rannsóknaraðgerða starfsmanna borgarsjóðs Reykjavíkur á meintu misferli stefnanda í störfum, vegna rangra og mjög meiðandi upp- lýsinga starfsmanna Reykja- víkurborgar til fjölmiðla um meint misferli og alvarlegt brot hans í starfi. Auk íramangreindrar bóta- kröfu er áskilinn réttur til að gera síðar kröfu fyrir dómi vegna stórlega skertra lífeyrisréttinda. Stefnandi hóf störf hjá Áhaldahúsinu 1959 en árið 1964 varð hann yfirverkstjóri þess og tók nokkru síðar við störfum forstöðumanns Áhaldahússins. Því starfi gegndi hann svo án þess að sæta áminningum yfirmanna eða aðfinnslum viðskiptaaðila fram á árið 1974. 1 byrjun ársins 1974 hófst umfangsmikil rannsókna að til- hlutan endurskoðunardeildar Reykjavkurborgar á meintu misferli stefnanda í störfum. Var honum tilkynnt í maímánuði það ár að niðurstöður rannsóknarinnar yrðu sendar borgarráði. Var honum gefinn kostur á því að tjá sig um kæruatriði. Segir í stefnunni að Reyni hafi ekki tekizt að afsanna getsakir og ýmsar fullyrðingar, sem fram voru bornar, meðal annars vegna þess að gögn skorti til þess, enda ekki til. Segir svo í stefnu: ,,Það kom því í hlut stefnanda að afsanna óljósar sögusagnir um meintar gamlar ávirðingar og réttlæta vinnubrögð og meðferð verðmæta borgarsjóðs, sem telja verður aðfinnsluverð í mörgum greinum, en á þvi telur stefnandi að hann hafi ekki átt sök og ekki borið neina ábyrgð á.“ Síðan er rakin meðferð borgarráðs á þessu máli sem lauk með því að óskað var rannsóknar fyrir Sakadómi Reykjavíkur. Þar voru yfir þrjátíu aðilar kvaddir til skýrslugjafar. Eftir ítarlega rannsókn Sakadóms var málið sent ríkissaksóknaranum til athugunar og aðgerða. Tilkynnti ríkissaksóknari með bréfi, dags. 13. jan. 1975, að af hálfu ákæruvaldsins þætti í gær var næstsíðasti bæjarþingsdagur í Borgardómi Reykja- víkur fyrir réttarhlé. í dómarasæti situr Kristjana Jónsdóttir fulltrúi borgardómara, en við hlið hennar Ólina Agústsdóttir réttarritari. Fyrir framan dómarann stendur Bergur Bjarnason hæstaréttarlögmaður. ekki vera tilefni til að krefjast frekari aðgerða vegna ætlaðs refsiverðs atferlis stefnanda. Þrátt fyrir þessa niðurstöðu hinnar opinberu rannsóknar og saksóknara varð niðurstaða borgaryfirvalda engu að síður sú að víkja stefnanda úr starfi þegar í stað með uppsagnar- bréfi borgarstjórans. Málið kom þó ti! frekari umfjöllunar í borgarstjórn með þeim hætti sem stefnandi telur aðfinnsluverða og um sumt löglausa. Með tilvísun til ákvæða sveitarstjórnarlaga telur stefnandi raunar að enn liggi ekki fyrir formleg afgreiðsla borgarstjórnar Reykjavíkur á málinu, sem þó sé skýrt kveðið á um í lögum. Bótakrafan er einkum reist á vinnulaunatapi, margvíslegum óþægindum, röskun á stöðu og högum stefnanda, sem og órétt- mætra rannsóknar- og uppsagnaraðgerða stefnda, borgarstjórans í Reykjavik fyrir hönd borgarsjóðs. Lögmaður stefnanda er Tómas Gunnarsson hdl. en við birtingu stefnunnar tók borgarlögmaður Páll Líndal. í málinu var tekinn frestur til greinargerðar og er því ekki að vænta frekari meðferðar fyrir borgardómi fyrr en að loknu réttarhléi sem hefst í næstu viku. -BS.. SKEMMTILEGRA AÐ RÓTA í MOLD EN GANGA UM GÖTURNAR — segir kona sem hef ur „grœna f ingur" og svarta túlipana í garðinum sínum „Þrestirnir eru svo spakir að ég get klappað þeim á bring- una þegar þeir koma til þess að baða sig. En ef einhver annar kemur í garðinn eru þeir óðara flognir á braut, svo ég held helzt að þeir þekki mig,“ sagði Lilja Árnadóttir er Dagblaðs- menn heimsóttu hana til þess að fá að sjá garðinn hennar, sem er einstaklega fallegur og snyrtilegur. „Þetta hefur svona smá- þróazt hjá mér. Eg hef alltaf haft mikið dálæti á grjóti og jurtum,“ sagði Lilja. Svo fórum við út i garðinn, sem er í góðu skjóli á bak við húsið að Skarp- héðinsgötu 14. Blaðamaður Dagblaðsins átti erindi í hús við Karlagötu í fyrradag og komst ekki hjá að sjá túlípanana hennar Lilju gægjast upp fyrir steinvegginn og knúði því dyra hjá henni. „Það er'bara verst hve sólar- leysið háir gróðrinum I þessum garði. En ég hef jafnan reynt að velja í hann plöntur sem geta þrifizt í skugga.“ I garðinum éru há reynitré sem skyggja á sölina þegar henni þóknast að skina. í garðinum getur að líta fjöl- margar tegundir steinbrjðta, marglita túlípana, bæði fjöl- blóma og ofkrýnda. Einnig var þarna ein tegund sem ekki var enn sprungin út, en virtist vera eins og „tennt." „I rokinu um daginn fauk heilmikið af túlipönum og allar páskaliljurnar, auk nokkurra annarra tegunda. Þetta tekur við hvað af öðru hérna hjá mér og má raunar segja að það sé alltaf eitthvað sem stendur í fullum skrúða." Við rákum augun í svarta túlípana sem þarna trönuðu hjá íslenzkum burkna. — Hvar hefurðu fengið svarta túlípana? Við héldum að þeir væru bara til í sjónvarps- kvikmyndum? Lilja hló. ,,Eg fékk þessa í haust hjá Garðyrkjufélaginu og raunar alla hina túlípanana líka. Þeir eru ekki fjölærir þessir en mér þykja þeir bæði fallegir og einnig sérkenni- legir. Mér þykir einnig ákaflega gaman að íslenzkum jurtum og hef lagt mig fram um að reyna að ná i sem flestar tegundir af steinbrjót." Lilja gekk með okkur um, garðinn og sýndi okkur hinar ýmsu tegundir. Þarna var bæði ísl. burkni og fífa. Við rákum augun í eina sérlega grósku- mikla jurt sem virtist þó ekki vera almennilega útsprungin. „Þetta heitir fagursmæra, laukjurt sem ég fékk fyrir Þrútt fyrir rýrnandi kaupmútt: Enn söluaukning hjá Áfengisverzluninni llvað setn líður kaupmætti launa og hækkunum á áfengi virðisl hvorugt draga úr álengis- sölunni og hefur söluaukningin sí/.i orðið tninni undanfarið en gcngur og gérist. Skv upplýsingum Jóns Kjartanssonar, forstjóra Áfengis- og tóbaksverzlunarinnar, var selt áfengi i Kcykjavík fyrir tæpar 170 milljónir króna fyrstu 15 daga júnímánaðar i fyrra og fyrir röskar 247 tnilljónir á sama tima nú. Er það uin 501ÍG aukning i krónutölu en á timabilinu hafa orðið 45% verðhækkanir. þannig að neyzlan f.vrstu 15 dagana í júni nú er meiri en á stima tima i lyrra. mörgum árum. Hún ber falleg, Ijósblá blóm, en ekki nema þegar sólin skín." Ofan á steinveggnum, sem skilur lóð Lilju og næstu lóð, hefur hún komið fyrir hraun- grjóti og mörgum tegundum af steinbrjót. Þar á meðal er mjög falleg jurt sem heitir vestfirzk klettafrú og stendur hún með blómum langt fram á vetur. Á miðri lóðinni var lítið blómabeð, sem í voru begóníur, sem að sjálfsögðu voru ekki sprungnar út. Lilja sagði að þær væru margra ára gamlar. hún tekur þær inn á haustin og geymir þær yfir veturinn á þurrum stað. Þær fara svo í pott snemma á vorin og út í beðið þegar nægilega vel viðrar til þess. Við tókum eftir að ekki var einn einasti fífill í grasflötinni , Sleinbeðið er alveg sérstaklega smekklega útbúið hjá Lilju og þarna sést aðeins i fuglabaðið. Þarna sjáið þið hvernig er hægt að nota gamia og „ónýta" hluti. Þetta er gamli skorsteinninn af húsinu. Lilja útbjó hann sem blómaker með burkna og stein- brjót. Ljósm.DB-Björgvin. og spurðum hvernig hún færi að því að halda blettinum fifla- lausum. „Það er afar einfalt mál," sagöi Lilja. „Um leið og ég sé að eitthvað slíkt er að myndast rif ég illgresið upp með rótum." — Er garðræktin hugsjón hjá þér? „Nei. það held ég ekki. Mér finnst bara miklu meira gaman að róta i moldinni en að ganga unt göturnar." sagði Lilja Árna- dóttir. —A.Bj. — G.S.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.