Dagblaðið - 25.06.1976, Qupperneq 23
DAGBLAÐIÐ — FÖSTUDAGUR 25. JUNl 1976.
23
Halldór Gestsson
er látinn. Hann fæddist 5. septem-
ber 1925 á ísafirði. Hann kvæntist
eftirlifandi konu sinni, Kristjönu
Halldórsdóttur frá Svarthamri
11. okt. 1946, og bjuggu þau
lengst af á ísafirði. Þau hjónin
eignuðust sjö börn, sem öll eru á
lífi.
Ingibjörg Ólafsdóttir
frá Bólstaðahlíð, Vestmannaeyj-
um, andaðist að heimili sínu
þriðjudaginn 22. júní.
Kristin Erlendsdóttir
frá Sturlu-Reykjum verður jarð-
sungin frá Akraneskirkju laugar-
daginn 26. júní kl. 13.30.
Sigurlína Sch. Hallgrímsdóttir,
Stórhnlti 30, verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju laugardaginn
26. júní kl. 10.30.
Gunnar Hannesson
framkvæmdastjóri lézt á Landa-
kotsspítala miðvikudaginn 24.
júní.
Kirsten Paulsen,
sem lézt á Elli- og hjúkrunarheim-
ilinu Grund 19. júní verður jarð-
sungin laugardaginn 26. júní frá
Dómkirkjunni kl. 10.30.
Siguriinni Pétursson
verður jarðsunginn frá Garða-
kirkju laugardaginn 26. júní kl.
11 f.h.
Daniel Ólafsson
frá Tröllatungu andaðist á Ing-
unparstöðum 23. júní.
Guðný Magdalena Börgesen,
fædd Andrésdóttir, sem lézt 18.
júní 1976, verður jarðsett frá
Bispebjerg Krematorium, Kaup-
mannahöfn, litla sal kl. 16 í dag,
föstudaginn 25. júní.
Margrét Jónsdóttir
frá Hafursstö’ðum andaðist á
hjúkrunarheimilinu Grund 23.
júní.
Sunnudaginn 27. júní.
Grensaskirkja. Messa kl. 11 árdegis. Halldór S.
Gröndal.
„Kerfið"
gabbar
slökkviliðið
Slökkviliðið var á ferðinni í
gærdagog einnig í nótt. I nótt
var það kvatt að Eggjavegi 3 í
Smálöndum, en þar hafði
kviknað í slöngum logsuðu-
tækja. Þeim, er var að vinna
með tækin, 'lókst að slökkva
eldinn við kútana og draga þá
út. Eldur komst hins vegar í
gólf bílskúrsins og réðu
slökkviliðsmenn niðurlögum
hans. Skemmdir urðu óveru-
legar.
1 gærdag fóru öll tiltæk tæki
slökkviliðsins að Tollvöru-
geymslunni vegna útkalls frá
sjálfvirku brunaboðunartæki.
I ljós kom að bilun var í
tækinu og enginn eldur í Toll-
vörugeymslunni. —ASt
Millisvœðamótið:
H0RT Á NÚ
Hort frá Tékkóslóvakíu á nú
rólegri daga en allir aðrir skák-
menn á millisvæðamótinu í
Manila. I 9. umferð sem tefld var í
gær gerði hann jafntefli við
Quinteros frá Argentínu Hort
fékk og tilkynningu um að Tan
hefði gefið biðskák sína við hann
úr 8. umferð. Hort hefur því
forystu með 7 vinninga. Hann fær
nú góða hvíld meðan aðrir helztu
keppinautar hans berjast í ólokn-
un biðskákum eða harma töpuð
stig.
t 9. umferð urðu þessi úrslit
helzt: Tan vann Browne, sem
komst í mikla tímaþröng. Kavalek
vann Ljubojevic en Polugajevsky
Hótel Saga: Súlnasalur. Hljómsveit Ragnars
Bjarnasonar og sönííkonan Þuríður SÍKurðar-
dóttir. Opið til kl. 1. S ími:20221.
Leikhúskjallarinn: Skuggar leika fyrir dansi til
kl. 1. Sími 19636.
Skiphóll: Hljómsveit Birgis C.unnlauKssonar.
Opið í kvöld til kl. 1. Sími 52502.
Sesar: Diskótek. Opið í kvöld frá kl. 7-1. Simi
83722.
Glæsibær: Ásar leika i kvöld til kl. 1. Simi
86200.
Óðal: Diskótek. Opið til kl. 1. Sími 11322.
Hótel Borg: Haukur Morthens og hljómsveit
skemmta til kl. 1. Sími 11440.
Ingólfs-Cafó: C.ömlu dansarnir i kvöld. Opið
til kl. 1. Sími 12826.
Sigtún: Stormar leika. Opið frá kl. 9-1. Sími
86310.
Tónabær: Cabarett. Opið frá 8.30-00.30. Sími
35935.
Röðull: Stuðlatríó skemmtir í kvöld. Opið frá
8- 1. Sími 15327.
Klúbburinn: Sóló og Lena. Opið frá kl. 8-1.
Sími 35275.
Tjamarbúð: Hljómsveitin Eik leikur frá kl.
9- 1. Simi 19000.
Ungó, Keflavík: Galdrakarlar leika ásamt Tríó
Vilhjálms Guðjónssonar. Ado’f og Blue Sky
in the morninjí.
Ferðafélag íslands
Föstudagur 25. juní kl. 20.00.
1. Þórsmerkurferð.
2. Gönguferð á Eiríksjökul. Fararstjóri:Ást-
valdur Guðmundsson. Farmiðar seldir á
skrifstofunni.
Laugardagur 26. júní kl. 13.00
Gönguferð í Seljadal. Auðveld ganga. Farar-
stjóri: Einar. Ólafsson. Verð kr. 700. gr. við
bílinn.
Sunnudagur 27. júní kl. 09.30.
Ferð á sögustaði Njálu. Fararstjóri: Haraldur
Matthíasson menntaskólakennari. Farseðlar
seldir á skrifstofunni. Ferðafélag Islands,
Öldugötu 3. simar 19533 og 11798.
Útivistarferðir
Föstud. 25/6 kl. 20. Tindfjallajökull. fararstj.
Trvggvi Halldórsson. Skálagisting. Farseðlar
á skrifstofunni. Útivist.
Fró Sjálfsbjörg.
Frá Sjálfsbjörg. Farið verður i heimsókn til
Sjálfsbjargar á Akranesi nk. föstudagskvöld
25. júní. Brottför frá Hátúni 12 kl. 18.30.
Upplýsingar i síma 86133.
Kvenfélag Kópavogs
Sumarferðalag telagsins verður farið laugar-
daginn 26. júní kl. 13 frá félagsheimilinu.
Konur vinsamlegast tilkynnið þátttöku í
símum 40689, Helga, 40149 Lóa, og 41853
Guðrún.
Kirkjufélag
Digranesprestakalls
gengst fyrir safnaðarferð um Þorlákshöfn,
Selvog og Suðurnes sunnudaginn 27. júní.
Allt safnaðarfólk velkomið. Þátttaka tilkynn-
ist í síma 40436 fyrir fimmtudagskvöldið 24.
júní.
Kvenfélag Hallgrímskirkju
efnir til skemmtiferðar í Þórsmörk laugar-
daginn 3. júlí. F'arið verður frá kirkjunni kl.
8 árdegis. Upplýsingar I simum 13593 (Una).
21793 (Olga). 16493 (Rósa).
Safnaðarferð Nessóknar
verður farin sunnudaginn 4. júlí nk. Farið
verður að Sigöldu og Þórisvatni. Upplýsingar
i Neskirkju hjá kirkjuverði í síma 16783.
Stofnun Árna Magnússonar
Handritasýning verður opinTsumar á þriðju-
dögum. fimmtudögum og laugardögum kl.
2—4.
og Uhlman sömdu um jafntefli.
Fimm skákir í umferðinni fóru
í bið Torre gegn Czeskovsky,
Mariotti gegn Ribli, Harrandi
gegn Spassky, Panno gegn
Balashov. Allar biðskákir verða
tefldar í dag.
Pachmann og Uhlmann sömdu
um jafntefli í biðskák sinni úr 8.
umf.
Staðan í mótinu er óljós vegna
fjölda ólokinna biðskáka. En að
þeim slepptum er staðan þannig:
Hort 7. Mecking 51/!, Ljubojevic,
Browne, Uhlmann og Polugaj-
evsky 5 vinninga, Czeskovsky og
Spassky 4'/t.
—ASt.
GÓDA DAGA
Prestastef nan 1976 hef st ó þriðjudag:
„Skrrftir hafa allt um of
falEð niður að ófyrirsynju"
— segir Sigurbjörn
Einarsson biskup
Skriftir í samhengi við
fyrirbyggjandi sálgæzlu „er
þáttur sem að ófyrirsynju
hefur allt um of fallið niður og
horfið úr vitund almennings,"
sagði Sigurbjörn Einarsson
biskup í fréttabréfi frá
Drokkingartiytur. ein al myndum Ólafar
Krístjánsdóttur Wheeler.
DB-Mynd Björgvin.
Börnunum á Sólheimum í C.rlmsnesi var
boðið á myndlistarsýningu Ólafar Kristjáns-
dóttur Wheeler 17. júní sl. í Festi I Grinda-
vík. Ólöf saf þeim mvnd sína. Hamraborgir.
sem hún málaði í minninnu ólafs Tryggva-
sonar frá Akurevri.
Næsta sýning Ólafar verður á Akurevri í
ágúst. og mun hún sýna þar vegna fjölda
áskorana.
Ólöf fékk rnjög góða dóma fyrir sýningu
sína í Grindavík.
Biskupsstofu sem út kom í gær.
Segir biskup ennfremur að
skriftir í tengslum við sálgæzlu
muni „áreiðanlega“ koma til
umræðu á prestastefnu 1976,
sem hefst í Reykjavík á
þriðjudaginn. „Ég þykist alveg
viss um það,“ segir biskup.
Sálgæzla verður aðalmál
prestastefnunnar í ár. Fjórir
prestar flytja framsöguerindi
um efnið á fundum prestastefn-
unnar, þeir sr. Sigurður H.
Guðmundsson, sr. Tómas
Sveinssson, sr. Árelíus Níelsson
og sr. Tómas Guðmundsson.
Einnig fjallar Esra Pétursson
læknir um sálgæzlu presta frá
sjónarmiði læknis.
„Sá þáttur í starfi prestsins
sem heitir sálgæzla, er þegar
alls er gætt svo gildur þáttur,
að undir það heyrir allt starf
prestsins, — allt er að
einhverju leyti sálgæzla," segir
Sigurbjörn Einarsson biskup
jafnframt í fréttabréfinu. „A
prestastefnu verður rædd
sálgæzla í þrengri merkingu en
venjulega er átt við, þegar talað
er um sálgæzlu."
Fundir prestastefnunnar í ár
verða haldnir í nýja safnaðar-
4ieimilinu í Bústaðakirkju. Þar
flytur biskup ávarp og yfirlits-
ræðu sína að venju en síðan
hefjast umræður og fundir.
Prestastefnu 1976 lýkur á
fimmtudaginn 1. júl'í en fyrr
þann sama dag verður haldinn
aðalfundur Prestafélags ís-
lands. -ÖV.
- BARNAFATNAÐUR -
RÝMINGARSALA!
20% af slóttur af
öllum vörum
Yerzlunin hœttir 9. júlí nk.
Verzlunin MINNA
Strandgötu 35 — Hafnarfirði
DAGBLAÐIÐ ER SMÁ AUGLÝSINGABLADiÐ
5 manna franskt hústjald
með eldhúskrók til sölu. Einnig er
til sölu á samastaðmiðstöðvarket-
ill með innbyggðum spíral og há-
þrýstibrennara í einangruðum
skáp. Tækifærisverð. Uppl. í sima
53685.
Stór bakpoki
til sölu, sem nýr og vel með
farinn. Á sama stað óskast litill
bakpoki til kaups. Sími 26357.
Stór veltihurð
með litlum göngudyrum ásamt
karmi til sölu og sýnis á Lauga-
vegi 26. Símar 12841 og 13300.
Grænt sófasett,
sófaborð, vagn, burðarrúm, grind,
vagga og þríhjól til sölu. Uppl. i
síma 53531.
Miðstöðvarketill,
4 fermetrar með öllu tilheyrandi
til sölu, einnig eldhúsborð, ein-
staklingsrúm með dýnu, jakkaföt
á 12 til 14 ára, sumarkápa, skíða-
skór, veggljós, loftljós og eldhús-
stólar sein þarfnasl \ iðgerðar.
Uppl. í síma 42685.
Búslóð þar á meðal sófasett,
svampdýna, loftljós, Carmen
rúllur, vöfflujárn, kaffikanna,
eldhúsborð og stólar úr tré til
sölu. Uppl. í síma 84940.
Passap Duomatic prjónavél
með mötor til sölu. Uppl. í síma
92-1958 eftir kl. 17.30.
Túnþökur til sölu.
Upplýsingar í síma 41896.
Verzlun
Nýkomnar denim
barnabuxur í stærðum 1 til 5.
náttföt, frottegallar, bolir með
myndum og fl. Mikið úrval af
portúgölskum barnafatnaði. Vör-
urnar verða seldar með miklum
afslætti vegna þess að verzlunin
hættir. Barnafataverzlunin Rauð-
hetta, Hallveigarstíg 1, Iðnaðar-
mannahúsinu.
Leikfangahúsið, Skólavörðustig
10.
Brúðuvagnar, brúðukerrur,
brúðuhús, sundlaugar, vindsæng-
ur, Sindy-húsgögn, Velti-Pétur,
hjólbörur 5 gerðir, boltar 30 teg-
undir, fótboltar 4 tegundir,
sundhringir, sundermar. Póst-
sendum. Leikfangahúsið, Skóla-
vörðustíg 10, sími 14806.
Konur—útsala.
Konur innanbæjar og utan af
landi. Hannyrðaverzlunin Lilja,
Glæsibæ, býður ykkur velkomnar.
Við erum með útsölu á öllum
vörum verzlunarinnar, svo sem
hannyrðapakkningum, rya
smyrna, krosssaum, gobelin.
naglalistaverkum, barnaút-
'saumsmyndum og ámaluðum
stramma. Heklugarnið okkar er
ódýrasta heklugarn á tslandi. 50
gr af úrvals bómullargarni kr.
180. Sjön er sögu ríkari. Póst-
sendum. Sími 85979. Hannyrða-
verzlunin Lilja, Glæsibæ.
Til iðnaðar og heimilisnota.
Urval af Millers Falls rafmagns-
og handverkfærum, t. d. borvélar,
borbyssur, hjólsagir, fræsarar,
slípirokkar, smergel og m.fl.
VBW handverkfærin t.d. toppa-
sett, boltaklippur, stjörnulyklar,
skrúfjárn, rörtangir og m.fl.
Kaeser loftverkfærin t.d. borbyss
ur, slfpirokkar, múrhamrar og
málningarsprautur. Vönduð
verkfæri, gott verð. Heildsala og
smásala S Sigmannsson og coi
Súðarvogi 4, Iðnvogum. Sím
86470.
Utsölumarkaðurinn
Laugarnesvegi 112: Rýmingarsala
á öllum fatnaði þessa viku. Allir
kjólar og kápur selt á 500 og 1000
kr. stk. Blússur f miklu úrvali á
1000 kr.Enskar rúllukragapeysur
barna á 750 kr. Karlmanna-
skyrtur á 750 kr. Karlmanna-
buxur alls konar 1.500 kr„ og
margt fleira á gjafverði.
Blindraiðn, Ingólfstr. 16.
Brúðuvöggur á hjólagrind,
margar stærðir, hjólhestakörfur
og margar stærðir af bréfa-
körfum, þvottakörfum og hand-
körfum. Þá eru ávalit til oarna-
vöggur með eða án hjólagrinda,
klæddar eða óklæddar. Hjálpið
blindum og kaupið framleiðslu
þeirra. Blindraiðn, Ingólfsstræti
16, sími 12165.
Verksmiðjubútasala.
Barna-, dömu- og herrapeysur.
Anna Þórðardóttir. prjónastofa,
Skeifunni 6. (vesturdyr).
m ..— - >