Dagblaðið - 03.07.1976, Page 14
14
DAGBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 3. JULl 1976.
Hin heilaga þrenning
„Hin heilaga þrenning"
ne£nist nýtízkulegt hjúskapar-
form, sem þeir í Bandaríkjun-
um eiga heiðurinn af að hafa
fundið upp. Þar er talið, að í
það minnsta 60 þúsund ein-
staklingar lifi saman á þann
hátt.
Ann Lafollette er einn
þeirra. Hún er 31 árs gömul,
vinnur á bókasafni, býr í út-
hverfi Los Angeles og á 16
mánaða gamlan son. Hún er svo
sem ekkert frábrugðin öðrum
húsmæðrum, ef ekki væri fyrir
þá staðreynd, að Ann á tvo
eiginmenn og sonur hennar tvo
feður.
Hún og eiginmennirnir tveir,
Pat og Joe, sonurinn og þrir
kettir búa saman í hamingju-
samri „heilagri þrenningu."
— Það er frábært að eiga
tvo menn, sérstaklega þegar
þeir eru eins ólikir og Pat og
Joe, sagði Ann nýlega í viðtali
við bandariska blaðakonu, sem
var að kynna sér þetta nýja
sambýlisform.
— Pat er fremur alvarlega
þenkjandi. Þegar hann gerir
sér dagamun, fer hann f úti-
legur eða fjallgöngur eða þá
hann sezt niður og les bækur
um náttúrufræði.
Joe er meira fyrir skemmt-
anir. Hann sækir leikhús og
kvikmyndahús. Ef ég vil fara í
leikhús, fer ég út með honum
en ef ég vil í fjallgöngu fer ég
með Pat. Hvorugur þarf því að
breyta gegn vilja sínum til að
þóknast mér, segir Ann. — Og
enginn er ánægðari en sonur
okkar Bryden’. Það er alltaf
einhver tilbúinn að leika sér
við hann.
Ann og Pat kynntust í
háskóla, þar sem hann var að
stúdera sjávarlíffræði og hún
bókasafnsfræði. Þau bjuggu
saman . tvö ár og giftu sig síðan
1968. Þau fóru ekkert í felur
með hliðarsporin sín og voru
sammála um, að framhjáhöldin
lífguðu upp á andrúmsloftið í
hjónabandinu.,
Svo var það fyrir fjórum
árum, að Ann kynntist Joe.
Hann hrökk illa við einn
daginn, þegar Ann tjáði
honum, að eiginmaður hennar
vissi allt um ástarsamband
þeirra og hlakkaði meira að
segja til að hitta hann.
Fyrir þrem árum flutti svo
Joe, atvinnulaus leikari, sem
vinnur fyrir sér með því að lesa
af rafmagnsmælum, inn til
þeirra Ann og Pat. Þau þrjú
keyptu sér nýtt hús, sofa öll i
sama rúminu, hafa sameigin-
legan bankareikning og komu
sér jafnvel saman um, hver
skyldi feðra fyrsta afkvæmi
„heilögu þrenningarinnar.“
Joe féllst á, að Pat hefði for-
réttindi á að telja sig föður
fyrsta barnsins. Nú er ákveðið
að Joe verði raunverulegur
faðir þess næsta.
Báðir feðurnir fóru vitanlega
á bleiunámskeið fyrir fæðingu
fyrsta barnsins. — Kennarinn
var mjög undrandi í fyrstu en
sagoi síðan: „Jú jæja, ég býst
við að krakkinn þarfnist eins
margra foreldra og hann getur
orðið sér úti um,“ segir Joe.
Boðendur þessa nýstárlega
sambýlisforms halda því fram,
að þrír sé rétti fjöldinn í litlum
hópum, sem fást við erfið
vandamál, eins og hjónabandið
vissulega er.
Bandaríska geimvísinda-
stofnunin er greinilega á sama
máli. I geimíerðum og tungl-
ferðum eru nú ætíð þriggja
manna áhafnir. Þegar
ágreiningsefni koma upp milli
tveggja, er sá þriðji tilbúinn að
sætta.
Blaðakonan, sem kannaði
fjöldann allan af „heilögum
þrenningum,“ segir að jafn
algengt sé að tveir karlmenn
búi með einni konu og að tvær
konur búi með einum karl-
manni. Gagnstætt því sem
ýmsir halda, segir hún að
flestir meðlimir „heilögu
þrenninganna“ taki sambúðina
háalvarlega. Flestar þeirra
endast þó mun skemur en
hefðbundin hjónabönd. Þótt
elzta þrenningin, sem er
fyrirmynd allra hinna, hafi að
vísu enzt í 30 ár.
Þrenningarmeðlimirnir
benda á til skýringar, að þótt
þjóðfélagið mæli með*hefð-
bundnum hjónaböndum, fari
þvl þó fjarri, að þau vari öll til
langframa.
Hjón hafi líka til fjölda sér-
fræðinga að leita með vanda-
mál sín, en þegar „heilögu
þrenningarnar“ leiti hjálpar, sé
eina svarið: — Ja, við hverju
öðru er að búast af jafn fárán-
legu uppátæki.
Atvinnueiginkonur
Ur því við erum byrjuð að
fjalla um sambýlishætti I
Bandaríkjunum er kannski
ekki úr vegi að segja frá fyrir-
bæri sem er jafnvel enn
nýrra af nálinni en „heilaga
þrenningin.*'
Þetta fyrirkomulag kalla þeir
„Rentawife" fyrir vestan, sem
við útleggjum sem „atvinnu-
eiginkona".
Það var Ed Van Deusen,
bisnessmaður á Laguna Beach í
Kaliforníu, sem fann upp þetta
sambýlisform, enda ber það
sterkan keim af viðskiptaviti.
Ed var nýskilinn eftir 26 ára
hjónaband, sem leitt hafði af
sér 5 börn og 3 barnabörn.
Hann ákvað að auglýsa eftir
nýjum félaga og úr miklum
fjolda umsækjanaa valdi hann
Elaine. Hún var aðeins 33 ára
gömul en hafði þó að baki sér
tvö misheppnuð hjónabönd.
Hún vildi halda í frelsi sitt en
engu að síður verða sér úti um
fjárhagslegt öryggi.
Hjúin gerðu því samning.
Hún átti að hugsa um húsið og
íá á móti herbergi, 80 þúsund
krónur á mánuði og fullt fæði.
Hún gat sagt upp hvenær sem
húnvildien Kd varð að hafa
fjögurra vikna fyrirvara á.
Hún átti frí alla daga frá
9—5 og eina nótt í viku, en
hinar næturnar átti hún að
\>eita Ed af hlýju sinni.
Samningurinn skýrði greini-
lega frá hver væri stjórnandinn
á heimilinu og um jafnrétti
kynjanna var ekki að ræða.
Ed var svo ánægður með
þessa atvinnueiginkonu sína,
að fyrir stuttu bætti hann
annari við, Tínu, sem er 23
ára. Og hún ekki síður en
-Elaine er ákaflega ánægð með
fyrirkomulagið.
— Mér fannst ég of ung til að
gifta mig og ég hafði áhuga á að
nema hjúkrun. En ég hafði
bara hvorki tíma né peninga,
þar til núna. Þetta er það lang
bezta sem ég hef gert hingað til,
sagði Tina um sambýlisformið í
nýlegu viðtali.
Og Elaine hafði þetta að
segja: — Auðvitað ríkir ekki
jafnrétti í okkar sambúð. Ég fæ
það þó bætt upp með borgun
og það er meira en aðrar eigin-
konur, sem mæta jafnmiklu
misrétti kynjanna, geta sagt. Eg
hef átt samskipti við hitt kynið
í gegnum allar hugsanlegar
gerðir af sambúð. Eg var alltaf
ástfangin upp fyrir haus, en
hamingjusöm? nei það var ég
ekki, segir Elaine.
— Sambúð okkar núna
byggist ekki á ást, en fyrst nú
hef ég fengið tækifæri til að
lifa mínu eigin lífi inn á milli
og ég er hamingjusamari en
nokkru sinni áður, segir Elaine
um „atvinnueiginkonu"
samninginn.
Samningar af þessu tagi hafa
breiðzt út að undanförnu og
þeir sem rætt hafa við hlutað-
eigendur segja, að engin kvenn-
anna kvarti undan hlutskipti
sínu. Þvert á móti kunni þær
því vel, að loks séu störf þeirra
ekki talin sjálfsögó fórn heldur
launa virði.
Vitanlega eru þeir ófáir, sem
ráðast á Ed Van Deusen og aðra
I hans sporum og ásaka þá um
að vera gamla afturhaldssama
karlseggi, sem misnoti sér hitt
kynið.
— Því fer fjarri, segir Ed. —
Ég er sjálfur að hugsa um að
bjóða mig fram sem atvinnu-
eiginmann. Ég vildi gjarnan
hafa meiri tíma til að sinna
áhugamáli mínu, höggmynda-
listinni, án þess að þurfa
stöðugt að hafa áhyggjur af
peningum.
Og „atvinnueiginkonan"
hans, Elaine, pr jafnákveðin 1
að halda þessi’m sambýlisformi
áfram.
— En næst ætla ég að vera sá
aðilinn, sem t rgar, segir hún.
Konungur slúðurdálkanna
Þegar talið berst að slúður-
dálkum, hvort heldur er í góðu
eða illu, er ótrúlegt annað en
Nigel Dempster heyrist
nefndur á nafn.
Nigel skrifar daglegan dálk I
brezka blaðið Daily Mail um
hjónabönd, hjónaskilnaði,
framhjáhöld og aðra tilhurði
hinna frægu og er fyrirmynd
allra þeirra sem fást við skrif af
svipuðu tagi, hvort heldur er
austanhafs eðavestan.
Hér er sígiit dæmi úr dálki
Nigel Dempsters: ,,tlin lævisa
Caroline Cushing, 34 ára, hefur
nú tekið fyrsta skrefið á braut,
sem gæti gert hana að frú
David Frost fyrir lok ársins
1976. Allir vinir hennur fagna
þessari nýju frétt.
Carolme er i New York lil a>>
ræða um lögskilnað frá eigin-
manni sinum, Koward Cushing,
sem hún hefur ekki buiö með
síðan í októberl974 er húnstakk
af iTit’ð David Frost til Zaire til
að fylgjast með Ali-P’oreman
hncfaleikunum.
Ilún kom til New York í síð-
ustu viku ásamt David Frost.
Sama kvöld og Frost hélt flug-
leiðis áfram til Kaliforníu sást
Caroline á Doubles, dýrum
klúbb á Manhattan, ásamt
manni sinum og lögfræðingi
þeirra hjóna. Fór vel á með
þeim.
Skilnaður þeirra hjóna yrði
ekki f.vrsti skilnaður Caroline.
Ilún var áður gift þýzka banka-
manninum Veriand Windisch-
Graetz prins og eignaöisl með
honum Ivo syni. Caroline segir
að skilnaður aftur núna muni
„hreinsa andrúmsloftið".
Á sama tíma er Karen Craham
stúlkan sem Frost var síðast
trúlofaður, einnig að þreifa
fyrir sér um skilnað frá sínum
manni. Fastir lesendur dálksins
muna vel eftir, að hún var að
því komin að giftast Frost I
marz 1974, er hún hljópst á
brott með fyrri ástmanni
sínum, Del Coleman
margmilljónara.
Coleman, 51 árs hóteleigandi
i Las Vegas hafði þekkt Karen
26 ára. er hefur 33 milljónir. á
ári sem módel hjá Este Lauder,
i þrjú ár er David komst inn í
líf hennar. Coleman tókst aö
vinna hjarta hennar á ný með
því að drcil'a yfir hana skart-
giipum. sem sagðir eru hafa
kostað á annað hundrað
milljónir króna.
Karen sem býr nú hjá for-
eldrum sínum í Mississippi,
reyndi fyrir stuttu síðan að
bræða hjarta David Frost á ný,
en hann stóðst ásóknina,
Carolínu sinni í vil.“
Það ætti að vera ljóst hvers
vegna Nigel Dempster er
gjarnan nefndur „konungur
slúðurdálkanna".
Þótt skrif hans komi vafa-
laust illa við kaunin á sumum,
verður að segja honum til
nokkurra málsbóta. að i skrif-
um um sitt einkalíf er hann
engu vægari en þegar hann
skrifar um einkalíf annarra.
Eftirfarandi klausa var til
dæmis á síðunni hans um
daginn: — Þær sögur hafa
borizt mér til e.vrna, að fyrr-
verandi unnusta min, fyrir-
sætan Erica Creer, sé nú i slag-
togi með leikaranum Albert
Finney. Eg gleðst mjög fyrir
hennar hönd.
Ungfrú Creer, 29 ára, og é~
slitum sambandi okkar I Lyi.
leikhúsinu í desember síðast-
liðnum yfir flösku af kampa-
víni í leikhléi leikritsins
„Mávurinn" eftir Chekhov. Ég
kom inn i líf Ericu á eftir laga-
höfundinum John Barry sem
hún sleit samvistum við í april
á síðasta ári.
Af eldri ástmönnum hennar
má nefna ljósmyndarann John
Cowan og hinn ágæta vin minn
Sir William Pigott-Brown.
Ég minnist þess ekki, að
Erica hafi nokkurn tíma farið
nema fögrum orðum um Albert
Finne.v. Henni sárnaði það
mjög er ég skýrði henni og
lesendum frá því fyrir ári
síðan, að eiginkona mín hefði
sagt skilið við hann eftir fimm
ára sambúð og flutzt til Rvan
O'Neal í Kaliforníu.
Eg meina það sko. . Skyldu
þau hafa verki með þessu?