Dagblaðið - 15.07.1976, Síða 4
4
DACBLAÐIÐ — KIMMTUDACUR 15. JULÍ 1976.
'Yfirvinnubannið:1
Sparar útvarpinu tœpar 2
milljónir króna ó mónuði
Nú hefur yfirvinnubannið
hjá Starfsmannafélagi ríkisút-
varpsins staðið í rúmlega fimm
vikur en það hófst 4. júní.
Hlustendur eru orðnir dauð-
leiðir á setningunni „vegna
yfirvinnubanns Starfsmanna-
félagsins". Til þess að komast
að hve mikið fé yfirvinnu-
bannið hefði sparað útvarpinu
ræddi DB við Gunnar Vagns-
son fjármálastjóra Ríkisút-
varpsins.
„Við lítum ekki á þetta yfir-
vinnubann þeim augum. Það
sem okkur er efst í huga er að
við veitum hlustendum ekki þá
þjónustu sem við töldum okkur
gera áður,“ sagði Gunnar.
„Það er eitt og annað sem við
höfum ekki getað sinnt, t.d.
efni sem fellur til utan dag-
vinnutíma. Þegar maður hittir
fólk á götu segist það vera
býsna ánægt með þetta fyrir-
komulag. Það er bara ekkert að
marka hvað fólk segir. Það
meinar þetta ekki nema rétt í
augnablikinu. Þegar frá líður
fer fólk að sakna þessara þátta
sem fallið hafa niður.
Annars eru stórir hópar
Sól t Engi
VI-— 5
innan stofnunarinnar sem
aldrei hafa neina yfirvinnu og
aðrir með sáralitla eða óveru-
lega. Svo eru euinig vissir
starfshópar innan stofnunar-
innar sem lýstu því yfir að
þetta yfirvinriubann næði ekki
til þeirra, eins og þulir og vissir
dagskrárgerðarmenn."
— Hvað hefur þetta sparað i
beinum útgjöldum?
„A árinu 1975 voru greiðslur
fyrir hreina yfirvinnu rúmlega
1,7 milljónir á mánuði og þetta
er líklega svipuð tala núna eftir
rúmlega mánaðar yfirvinnu-
bann. Þótt kaupið hafi hækkað
síðan 1975, þá eru þarna
meðtaldar hækkanir sem
komnar voru í árslok 1975,“
sagði Gunnar Vagnsson.
Því næst gaf hann okkur
tölur yfir kaupgreiðslur bæði
hjá sjónvarpi og útvarpi og
hver hundraðshluti yfirvinnu
var árið 1975.
Hjá sjónvarpinu voru greidd-
ar kr. 108.5 millj. fyrir dag-
vinnu kr. 7,9 millj. fyrir álags-
vinnu þ.e. dagvinna utan ve.nju-
legs vinnutíma og kr. 32,1 millj.
fyrir yfirvinnu. Ef dagvinna og
álagsvinna eru lagðar saman og
hundraðshluti yfirvinnunnar
reiknaður út frá því verður hún
27,6% hjá sjónvarpinu árið
1975.
Hjá hljóðvarpinu voru
greiddar í dagvinnukaup 103,3
millj. kr„ álagsvinnu (dagvinna
unnin utan venjulegs vinnu-
tíma) 3,1 millj. og 21,7 millj. í
yfirvinnu. Hundraðshluti yfir-
vinnunnar verður þá (reikn-
aður út á sama hátt og hjá
sjónv.) 20,4%, eða ívið minni
en hjá sjónvarpinu. Yfirvinna
útvarpsins dreifist nokkuð
jafnt á alla mánuði ársins en
getur verið mjög mismunandi
hjá sjónvarpinu.
Á fyrstu 5 mánuðum ársins
1976 hafa verið greiddar fyrir
dagvinnu hjá sjónvarpinu kr.
55,2 millj., álagsvinnu kr. 3,1
millj. og yfirvinnu er 11,5 millj.
— Þar er yfirvinnuhundraðs-
hlutinn 19,7%. Hefur yfir-
vinnutalan lækkað og taldi
Gunnar Vagnsson að starfs-
menn sjónvarpsins hlytu að
hafa skipulagt vinnu sína betur
en áður.
Hjá hljóðvarpinu hafa verið
greiddar 48,5 millj. fyrir dag-
vinnu, fyrir álagsvinnu hafa
verið greiddar 1,2 millj. og yfir-
vinnu 9,3 millj. Þá verður
hundraðshluti yfirvinnunnar
18,7%, — minnkar mun minna
en hjá sjónvarpinu.
—A.Bj.
Svæðiö opnað kl. 14.00
Kl. 16.00:
III. deild Grindavíkurvöllur
UMFG — Hveragerði.
Kl. 20.00—02.00:
Galdrakarlar og Khasmír
Sunnudagur:
Kl. 15.00
Skemmtiatriði:
Baldur og Gísli.
Khasmír
„Grímur Grínisti1'
„Fats og félagar"
Kl. 20.00:
Galdrakarlar og Khasmír
Hljómplöturnar hata Komio i gooar partir i eftirvinnubanninu. Hér setur Ævar Kjartansson
útvarpsþulur eina slika á eftir að hafa farið með hina klassísku „þulu" um að enginn verði
fréttaaukinn að þessu sinni.
HER KEMUR SKJ0L
GEGN NÆÐINGNUM
A þessu svæði sem sést á
myndinni, nánar tiltekið milli
Gleraugnaverzlunarinnar
Optik og biðskýlisins, hefur
verið ákveðið að reisa skýli til
varnar næðingnum sem vill
leita inn á Lækjartorg. Skýlið
mun samanstanda af trévegg
með skyggni yfir og verða
bekkir báðum megin við hann.
Ætti þetta að tryggja mönnum
skjól hvort sem er í norðan- eða
suðaustanátt, en veggurinn
mun loka sundinu að mestu. Að
sögn Hafiiða Jónssonar, garð-
yrkjustjóra borgarinnar, mun
ekki ráðgert að gróðursetja
neitt þarna i kringum, þar sem
reynslan sýni að slíkt fái ekki
að standa í friði. Framkvæmdir
munu hefjast fljótlega og er
vonazt til að skýlið verði komið
upp fyrir veturinn.
DB-mynd Árni Páll/JB
Öll meóferð áfengis bönnuð.
Sætajærðir frá Keflavík og BSI
U.M.F.B. -