Dagblaðið - 15.07.1976, Side 24
Önnur stóra lyfton í Bló-
f jöllum kom stórskemmd
H O W Röng staðsetning
undan vetrarsnjonum sss
Önnur tveggja skíðalyfta
Reykjavíkurborgar í Bláfjöll-
um er nú stórlega skemmd eftir
fannkyngi vetrarins. Eitt ^af
möstrum hennar er fallið af
steinsteypustöpli sínum og
liggur neðan hans í hliðinni.
Strengir það að vonum víra
l.vftunnar og liggja þeir á jörðu
niðri á kafla. Má ætla að þarna
sé nokkur slysahætta, ef vírinn
slitnaði. Alltaf mun einhver
umferð fólks, bæði unglinga og
fullorðinna þarna, jafnvel yfir
sumartimann, enda gott til að-
keyrslu. Sá sem benti okkur á
ásigkomulag lyftunnar, hugðist
tilkynna Öryggiseftirliti ríkis-
ins um hættuna, sem af þessu
stafaði.
L.vfta sú. sem nú er skemmd
er innst i gilinu. og fjær
Ármannsskálanum en hin lyfta
ReyRjavíkurborgar. Lyftur
þessar myndu í dag kosta 8—10
milljónir króna. Er ljóst að
rnikið mun kosta að bæta
tjónið, því þó aðeins eitt mastr-
anna sé fallið er hugsanlegt að
önnur séu eitthvað löskuð eða
bogin og boltar í'þeim kunna að
vera stórskemmdir.
Það sem veldur þessu tjóni á
lyftunni er fyrst og fremst röng
staðsetning hennar. Lyftan var
i vetur lengst af á kafi í snjó en
fyrir kom að grafið var í kring-
um hana svo nota mætti
lyftuna, Slíkt mun vægast sagt
ðhollt fvrir endingu samanbolt-
aðra mastra. Boltar úr fallna
mastrinu liggja uinliverfis'það,
sundurslitnir og bognir og ryðg-
aðir í sárið.
Það mun ekki langur tími
liðinn frá því fyrst var tekið
eftir því að mastrið var fallið. í
vetur var þetta mastur á kafi í
6—8 metra skafli. Verk-
fræðingur hefur reiknað út að
þegar slíkur skafl blotnar og
bráðnar og skríður fram þá
liggi að minnsta kosti 30 tonna
þungi á mastrinu. Kambstálið,
sem notað er til að festa mastrið
á steinstöplana mun þola 30
tonn í beinu togi. Þessar fest-
ingar eru nú kubbaðar sundur.
Festingar annarra mastra
kunna einnig að hafa látið á sjá,
þó ekki verði það fullyrt hér.
Kunnugir fullyrða að snarvit-
laus staðsetning lyftunnar sé
orsök þess, hvernig komið sé.
Það er dýrt spaug að staðsetja
margra milljóna króna skíða-
lyftu á slíkum stað, geta ekki
notað hana þegar nægur er
snjórinn vegna þess að hún fer
í kaf og horfa svo á hana fallna,
þá er snjóa leysir. —ASt.
Mastrið fallið af stöplinum. Sjá
má hvernig fremri kambstái-
festingarnar hafa kubbast
sundur. Slitnir og snúnir stál-
boltar mastursins liggja i
kring.
DB-mynd Arni Páll Jóhannsson.
Svona aumkunaiieg er skíðalyfta ad sumarlagi. Fallna mastrið liggur í snjóskaflinum í miðri
hlíðinni. Hin kunna að hafa bognað og skemmzt.
Útilega upp ó krít
HEIL FJÖL-
SKYLDA í
ÁVÍSANA
MISFERLI
Maður nokkur hefur verið
handtekinn á Egilsstöðum,
eftir að í ljós kom, að 200 þús-
und króna ávísun, sem hann
hafði verzlað fyrir í kaupfélag-
inu þar, reyndist vera fölsuð.
Maðurinn, sem er úr Reykja-
vík, var á ferðalagi um Austur-
land ásamt eiginkonu sinni og
börnum. Komu þau á Egils-
staði um helgina og á þriðju-
dag hugðist maðurinn verzla í
Kaupfélaginu.
Kom hann þar inn og keypti
m.a. tjald og annan viðlegu-
útbúnað, ásamt einhverju af
matvælum. Fyrir þennan varn-
ing, sem kostaði nálægt 50 þús-
undum, greiddi hann með ávís-
un upp á 200 þúsund krónur og
fékk afganginn tii baka.
Síðan hélt hann með fjöl-
skylduna út fyrir 'kaupstaðinn
og tjaldaði.
Er innleysa átti ávísunina
kom í Ijós, að hún var fiilsuð.
Var liigreglan látin vita og
fór hún að svipast um eltir
manninum. Fannst fjiilskyldan
og yar maðurinn handtekinn.
V yfirhe.vrslur kom i Ijós,
að (nitlir hans, 14 ára, hal'ði
lalsað ávisunina.
Málið er i rannsókn.
— OV — IIP.
SUMARLEYFIÐ
HÓFST MEÐ SLYSI
Hjón lentu í umferðarslysi í
gærdag er þau óku um Kjósina.
Slasaðist konan nokkuð og hlaut
meóai annars handleggsbrot,
maðurinn meiddist hins vegar
ekki neitt að ráði.
Áreksturinn varð með þeim
hætti að fólksbílnum var ekið inn
undir vörubílspall. Vörubíllinn
var að beygja inn á afleggjara er
fólksbílinn bar að.
Sumarleyfi hjónanna er úr sög-
unni. en þau voru á leið norður i
land til að evða fríinu þar. Bíllinn
er gerónýtur og hafði kaskótrygg-
ingu verið sagt upp fyrir stuttu.
—B.\
frfálst, óháð dagblað
FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 1976.
Götusala
ó seðlum
fró 1928
í gærmorgun var ungur
maður handtekinn á Lækjar-
torgi. Hafði lögreglan fengið af
því spurnir, að hann byði
mönnum til kaups íslenzka
peningaseðla frá árinu 1928.
Við yfirheyrslur í gær sagði
ungi maðurinn, sem var undir
áhrifum víns, að hann hafi
nýlega verið staddur í tjaldi
við Húnaver. Þar hafi einn
tjaldbúa gefið slíka seðla á
báðar hendur.
Sagan þykir heldur ótrúleg,
því þó Húnvetningar séu gest-
risnir er talið heldur ólíklegt
að þeir strái seðlum frá 1928 i
kringum sig. Slíkir seðlar eru
nú í margföldu verði. Málió
verður því rannsakað betur.
—ASt.
Fjórum löxum
stolið úr
Elliðaónum
— mennirnir staðnir
að verki
Þeir voru fljótir að taka til
fótanna veiðiþjófarnir, sem
lögreglumenn á eftirliti í
Breiðholti komu að við Elliða-
árnar í gærkvöldi um kl. 10.
Veiðiþjófarnir, ungir menn,
voru við Skáfoss neðan við
félagsheimili Rafveitunnar.
Lögreglumennirnir komu að
ánni hinum megin og var
eyjan og árnar á milli þeirra og
veiðiþjófanna. Þess vegna
komust þjófarnir undan, en
slíku felmtri voru þeir slegnir,
að veiðina skildu þeir eftir.
Það voru fjórir ágætir laxar.
sem þeir höfðu náð meðsting.
Nokkuð ef um það að börn
og unglingar reyni veiði-
þjófnað í Elliðaánum. en nú
hefur eftirlit með ánum verið
stóraukið.
—ASt.
SKIPA-
RÆNINGJAR
HANDTEKNIR
Ætluðu líka að steki
brfreið undir þýfið
Mikið vill oft meira. segir
gamalt orðtak. Það sannaðist i
nótt er lögreglan handtók tvo
menn i nánd við Landakots-
spítala. Hafði hún fengið
ábendingu um. að þeir virtust
vera að reyna að stela bifreið.
í ljós kom að þarna voru
skiparamingjar á ferð. í fórum
þeirra fannst ótrúl.ega f.jöl-
breyttur varningur. m.a. hagla-
skot. skipaskrár og lyf úr lyfja-
kössum skipa. voru þeír að
konta úr ránsferð frá höfninni.
Menii þessir. sem eru 23 ára
og 43 ára. gistu fangageymslur
það sem eftir var n;etur. 1
morgun átti að taka mál þeirra
íyrir hjá rannsóknarlögregl-
unni.
—ASt.
DB-niynil: Sxeimi Þorinóðssoii.