Dagblaðið - 29.07.1976, Síða 9
I) \t;rn. \t)H> l' lMM'l'l'DAC.UK 29. JÚLÍ 1976.
9
Bráðabirgðaniðurstöður rannsókna:
Gömlu og nýju dragnœturnar eiga nœr
ekkert sameiginlegt nema nafnið
— Kolahlutfallið íþeim nýju 95% á móti 40% íþeim eldri
Bráðabirsðaniðurstööur
rannsókna á veiðivirkni drag-
nota með 120 mm möskva og
hinum ný.ju nótum með 170 mm
möskva leiða í fljótu bragði í
l.jós að nánast ekkert er sameig-
inlegt með þessum veiðarfær-
um nema nafnið eitt. Eins og
blaðið hefur skýrt frá, hefur
mikillar óánægju gætt með
rýmkun dragnótasvæða,
einkutn við Bakkaflóa og í
Höfnunum.
Þórður Ásgeirsson skrif-
stofustjóri sjávarútvegsráðu-
neytisins sagði i viðtali við DB í
gær að þessir staðir nytu sér-
stöðu vegna trilluútgerðar
þaðan og liti ráöuneytið á mál-
efni staðarmanna með skiln-
ingi. Hann ítrekaði jafnframt
að reglugerð urf rýmkun svæð-
anna hefði verið sett skv. til-
lögum Fiskifélagsins, sem aftur
hefði byggt á tillögum fiskveiði-
laganefndar.
Hann sagði að undanfarið
hefði einn til tveir bátar
stundað samanburðarrann-
sóknir á Skjálfanda, hluta
Bakkaflóa og á Vopnafirði á
vegum Hafrannsóknastofnun-
arinnar. Bráðabirgðatölur úr
þeim rannsóknum leiða í ljós að
eldri dragnótin tók um 60% af
öðrum fiski en kola, sem drag-
nótinni er þó einkum ætlað að
veiða, en aðeins um 40% af
kolanum sjálfum. Nýja nótin
með 170 mm möskvunum tók
hinsvegar aðeins 5% af öðrum
fiski og 95% ko'la.
Fyrir utan það hversu lítið
nýja nótin tekur af öðrum fiski
en kola er samsetningin önnur
eins og t.d. í þorskinum þar sem
hún tók 0% af smáþorski á móti
64% af smáþorski sem eidri
gerðin tók. Af milliþorski tók
sú nýja 73% og 26% af stór-
þorski á móti 33% af milli-
þorski og 2% af stórþorski sem
sú eldri tók.
Þórði sýndist því sem menn
væru ef til vill óþarflega
smeykir við rýmkun dragnóta-
veiðisvæðanna og sagði að ráðu-
neytið myndi nú bíða eftir end-
anlegum niðurstöðum þessara
rannsókna áður en hugsaniegar
breytingar yrðu gerðar á ein-
hverjum veiðisvæðanna.
— G.S.
KOMAST EKKI ÚT ÚR VÍTAHRINGNUM
— vilja staðgreiðslukerf i
„V'ið eigum að borga 804 þús,
kr. í skatta fyrir áramót, 600.052
fengum við fyrir þetta ár, hitt eru
eftirstöðvar og dráttarvextir frá
fyrra ári."
Þetta sögðu hjónin Dóra
Asgeirsdóttir og Eggert Guð-
mundsson þegar við heimsóttum
þau í risíbúð við Grettisgötuna.
Hana hafa þau nýlega keypt og
breytt þannig að hún er nú mjög
vistleg.
Þau upplýstu okkur um, að þau
hefðu auðvitað unnið baki brotnu
síðastliðið ár til þess að borga
niður íbúðina. Hann vann
Þau hjónin Dóra Asgeirsdottir og Eggert Guðmundsson keyptu
ihúð og unnu baki brotnu til þess að geta borgað hana. Svo fæddist
erfinginn, Atli, og Eggert fór að læra iðn. Nú á eftir að borga
skattana. DB-m.vnd Bjarnleifur
hjá Rafmagnsveitunni og setti
niður dísilvélar úti á landi, þar
fyrir utan var hann dyravörður á
Hótel Höfn í Hornafirði. Hún
vann í Mjólkursamsölunni og á
Oðali á kvöldin. Tekjurnar urðu
vitanlega háar eða um 2.5
milljónir samanlagt.
Nú er Eggert byrjaður að læra
blikksmíði og hefur fyrir 40
tímana um 64 þús kr. á mánuði
plús tvo tíma með eftirvinnu-
kaupi á dag. Þau eru nýbúin að
eignast erfingja og gefur það
auga leið að ekki vinnur konan
mikið utan heimilisins fyrst um
sinn. „Ætli ég verði samt ekki að
fara að vinna á Öðali á kvöldin,
þegar Eggert kemur heirn" segir
Dóra. Hún ætlar sér líka ákveðið
að verða þroskaþjálfi meðtíðog
tíma.
„Við erum vitanlega ekkert
hress yfir sköttunum," segja þau.
„Eggert ætlar að fara að athuga
með aukavinnu hjá Hampiðjunni,
þar hefur hann unnið áður. Það
er bara þetta að maður kemst
aldrei út úr vítahringnum," segja
hjónin og lizt vel á að komið verði
á staðgreiðslukerfi skatta.
EVI
Blóðgjöf:
SIGÖLDUMENN SEnU MET
„Þetta var algert blóðtökumet.
Eitt hundrað sextiu og sex gáfu
blóð á einum degi“ sagöi starfs-
stúlka í Blóðbankanum.
A þriðjudaginn var haldið í
blóðtökuleiðangur að Sigöldu.
Þar höfðu hangið uppi
auglýsingar til að ýta undir menn
til blóðgjafa og verkstjórar höfðu
haft samband við sina vinnu-
flokka. Alls söfnuðust um 86
lítrar blóðs og mun þetta bjarga
Blóðbankanum í nokkrar vikur.
Aður en unnt er að gefa blóð
verður að mæla blóðþrýsting við-
komandi sem og járninnihald
blóðsins. Fara svipaðar mælingar
fram i Blóðbankanum þegar blóð
ergefiðþar.
Starfsstúlkan sagði að þessar
ferðir út á land stæðu orðið að
mestu leyti undir starfsemi Blóð-
bankans. Lítið hefði verið um
blóðgjafir í Reykjavík og munaði
þar mest um að skólar væru
lokaðir. Ekki er mikið um það að
menn komi sjálfir og óski eftir að
gefa blóð. Mun algengara er að
hringt sé í þá sem áður hafa gefið
blóð.
Fyrra metið áttu íbúar
Keflavíkur þar gáfu 145 aðilar
blóð í einni ferð sem þangað var
farin.
Sigöldumenn höfðu áður staðið
sig vel í þessu sambandi, þar gáfu
144 blóð í fyrra.
Alls eru starfandi við Sigöldu
tæplega 700 manns.
—BA
[ós|* svart