Dagblaðið - 30.07.1976, Blaðsíða 11

Dagblaðið - 30.07.1976, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ. — FÖSTUDAGUR 30. JÚLl 1976 U A HÆTTU AÐ VERÐA MYRTIR liöahópur var talinn standa á bak við morðin. Venjulega sleppa fjölskyldur fórnarlamba ofbeldismann- anna við aðgerðirnar. Þó eru undantekningar til. t maí síðastliðnum var dóttur belgíska sendiherrans í Mexíkó rænt. Kommúnistahreyfing, sem kallar sig „23. september,“ krafðist rúmlega 71 milljónar íslenzkra króna i lausnargjald. Kommúnistarnir fengu sitt og dótturinni var sleppt eftir tæp- lega þriggja sólarhringa varð- hald. Sumum er „aðeins“ haldið í gíslingu Þá hefur oft og iðulega komið fyrir að sendiherrum hafi verið haldið í gíslingu og krafizt lausnargjalds fyrir þá. í marz í fyrra var franski sendi- herrann i Sómalíu, Jean Gueury, numinn á brott af skæruliðum sem kröfðust þess að tveimur félögum þeirra, sem voru fangar í Suður-Jemen, yrði sleppt. Til viðbótar vildu þeir fá gullstengur að verðmæti um 15 milljónir íslenzkra króna. Þeir fengu báðar óskir sínar uppfylltar og sendiherr- ann slapp lifandi. Tveir starfsbræður franska sendiherrans sluppu ekki eins vel þegar skæruliðahópar voru á ferli tvisvar sinnum á þrem- Eins og sjá má var bíll brezka sendiherrans á Irlandi illa útleikinn eftir sprengju- tiiræðið. í þessari árás létust tveir. ur dögum i október í fyrra. Fyrst var Danis Turnaligil sendiherra drepinn í tyrkneska 'sendiráðinu í Vín. Þremur dögum síðar skutu skæruliðar tyrkneska sendiherrann í París þá féll einnig bílstjóri hans. Aldrei komst upp um tilræðismennina, en ýmis hryðjuverkasamtök tóku verk- in á sig. Hetndarmorð Nokkrum sinnum hefur það komið fyrir að sendiherrar hafi verið myrtir vegna þess að skæruliðar telja sig eiga eitt- hvað sökótt við þá. Nærtækasta dæmið er þegar Joaquim Zenteno Anaya sendiherra Bólivíu var drepinn i maí síðastliðnum. Hópur sem kallar sig „Herfylki Che Guevara" lýsti morðinu á hendur sér. Astæðan var sögð sú að Anaya var yfirmaður herdeildarinnar sem handtók og myrti kúb- önsku frelsishetjuna Che Gue- vara í skógum Bolivíu árið 1967. Framantalin tilræði og morð á sendiráðsstarfsfólki hafa flest verið framin á síðasta ári. Þetta eru þó ekki einu morðin á mönnum úr þessari stétt. Þau skipta að minnsta kosti tug og ekkert bendir til að þeim fari fækkandi. íslenzkir sendiherrar ekki í hœttu — og þó Yfirleitt eru það sendiherrar landa sem standa framarlega í heimsmálunum eða eiga í erjum við herskáa hagsmuna- hópa sem verða fyrir barðinu á morðingjum. Lönd eins og ísland, Danmörk og fleiri, sem skipta sér lítið af heimsmálum eiga sjaldnast á hættu að missa sendiráðsstarfsmenn sína Holienzki kaupsýslumaðurinn Tiede Herrema sat í gísiingu hjá írska lýðveldishernum í 18 daga áður en honum var slcppt. Hann hafði aldroi skipt sér af skæruliðum, en var tekinn vegna stöðu sinnar til að pöli- tískum föngum yrði sleppt. Aðgerðir IRA mistókust í það skiptið. Tyrkneski sendiherrann í París, Ismaeil Erez, var myrtur í fyrra. Þá lézt bílstjóri hans einnig. á þennan hátt. Þá spilar það einnig inn í, að í þessum lönd- um sitja fangar sjaldnast inni af stjórnmálalegum ástæðum. Þó er alls ekki hægt að úti- loka þann möguleika að sendi- herrar friðsamra ríkja verði skæruliðum að bráð. Til dæmis var hollenzkum kaupsýslu- manni, Tiede Herrema, rænt af írska lýðveldishernum fyrir um einu og hálfu ári. Honum var haldið í gislingu í 18 daga. ÍRA krafðist þess að félagar úr her þeirra yrðu látnir lausir, en þvingunin mistókst. Árið 1971 var svissneska sendiherranum í Argentínu haldið í gíslingu af skæruliðum sem kröfðust þess að félagar þeirra yrðu látnir lausir úr fangelsum. í hvorugu þessu til- felli höfðu þessir sendiráðs- menn nein afskipti haft af skæruliðum og öfgamönnum. Þeir voru aðeins stöðu sinnar vegna flæktir í innanríkismál- efni viðkomandi landa. Því er aldrei hægt að vita hver verður næstur. — Það má því með sanni segja að störf sendiherra séu með hættulegri störfum nú á tímum. / Frjálst og óháð, sjálfstœtt, vandað og hressilegt? að bankavaldið sé ískyggilega mikið, verðbólgið og oft misnotað og spillt, þá er langur vegur frá berum stelpum til bankastjóra. En enn önnur kenning hefur verið fundin upp, og hún kannske sýnu skrýtnust. Allt sem selur blöð skal vera sorp, segja þessir menn gjarnan. Að ætla að búa til slíka formúlu er auðvitað slíkt rugl, slíkt hugarins moð, að með oindæmum er. Fyrir ekki löngu síðan tók veru- lega að örla á þeirri gagnrýni, að það væri óendanlega óheppilegt ástand að stjórnmálaflokkar einir hefðu hönd i bagga með dagblaða- útgáfu, þar sem þeir að auki hafa hönd í bagga með ríkisfjölmiðl- um. Þetta hefði i áranna rás leitt til víðfeðmar samtryggingar og þagnarsamspils. Þessi gagnrýni átti auðvitað fullkominn rétt á sér, og alltaf er að koma betur og betur í ljós, hvað hefur verið að gerast, múrar eru víða að brotna þó hægt gangi. Meðal annars gat nýtt dagblað komið undir sig fót- iinttin vegna þessara nýju við- horfa. og var það vel. Kn engu að síður er ekki þar með sagt að með þvi séu öll heimsins vandamál leyst. Það er lakmark i sjálfu sér að brjóta niðui flokksklafann sem augljós- lega liefur eitrað þetta samfélag verulega á siðustu árunt. En auð- viiað getur, á ekki löngum tíma, revnzt jafn Inetlulegt ef' einasta risa\a\tiir peningamenn hafi hönd í bagga með blaðaútgáfu. Það getur fætt af sér nýtt vanda- mál og ekki minna. Þá getur sam- tryggingin orðið enn ægilegri, blaðveldið enn spilltara, ástandið enn illþolanlegra. Gagnrýnendur flokksklafans mega auðvitað ekki missa sjónar á þessu. í forustugrein Morgunblaðsins á miðvikudag er fjallað um blaða- ástandið i landinu. Eins og oft áður er leiðarinn almennt hjal um ekki neitt. En samt er undarlegt, að þegar Morgunblaðið tíundar vandamál blaðaútgáfu, þá minnast þeir ekki á það, sem ein- hverjum öðrum þykir kannske veigamikið, ef ekki veigamest: Að auðvitað hafa eigendur fjármagns úrslitaþýðingu hvað varðar útgáfu dagblaða. Blað, sem enginn auglýsir í, fær ekki staðizt til lengdar. Morgunblaðið er um margt ágætt blað og virðingar- vert, í öðru tilliti er það blað sem þegir og veitir iðulega ekkert þjóðfélagslegt aðhald. En hitt gera sér auðvitað allir ljóst, að Morgunblaðið er blað sem í gegn um tíðina hefur notið ómældrar velvildar fjármagnseigenda. Samt reyni ég ekki að gera lítið úr þessu vandamáli, það er engin einföld formúla til um það hvern- ig hægt væri sanngjarnlega að jafna aðstiiðu í þessum efnum án þess að skerða útgáfu- eða rit- frolsi. En völd i skjóli fjármagns geta iðulega reynzl vond völd. Ilvað uin það, í grundvelli sínum verður þessi orðræða kannske fljótlega heimspekilegar vangaveltur um þverstæður frelsishugtaksins. Sá sem hefur bolmagn til þess að gefa út blað, einn eða í félagi við aðra, í stjórn- málaflokki eða öðru félagi, er náttúrlega fjármagnseigandi. Og ekki er hægt að banna honum að vera það. Nútímaleg lausn þessa vanda, sem að nokkru á rætur að rekja til umræðu i Bandaríkjum Norður-Ameríku, er á þá leið, að fullkomlega beri að aðskilja rit- stjórnir blaða og fjármálastjórnir þeirra. Það eitt tryggi heilbrigða skoðanamyndun. Og fyrst og síðast þess vegna hefur ameríska stórblaðið Washington Post verið dregið inn í þessa umræðu, en ekki vegna þess að þeir voru upp- hafsmenn Watergate-málsins svo- kallaða. Ritstjórar þess studdu þessa kenningu opinberlega, og lögðu hana til grundvallar nútímalegri blaðamennsku. Hér á landi hefur verulega örlað á þessari þróun, ekki sízt vegna nokkurrar nýskipunar i út- gáfumálum á síðasta ári. Ekki veit ég hvert verður framhald þeirrar þróunar, er stundum bjartsýnn, stundum svartsýnn eins og gengur. En þjóðfélagið er að verulegu le.vti að vakna upp við vondan draunt — verkefni næstu ára virðast ótæmandi. Er skemmst að minnast nýútkominnar skatlskrár og alls þess liiglega og óliiglcga óréttlætis sem á síðum þeirrar bókar má lesa sér til um. Og enn má láta, hugann reika upp og niður eftir samfélagsstiganum. 1 vetur sem leið var almenningi opnuð sýn inn í einn banka í landinu, Alþýðubankann. Það var ljót sjón. En hvað gerist? Ekkert ennþá. Um svipað leyti fjölluðu einhver blöð lauslega um málefni sparisjóðs í Reykjavík. Mér er kunnugt um að þar var um að ræða kerfisbundna og víðfeðma okurstarfsemi. Það mál er ein- hvers staðar i rannsókn, ekkert virðist gerast. Málefni fyrirtækis- ins Ræsis hafa orðið lítils háttar blaðamál. Þar var mjög sennilega um okurlán að ræða. Einhvers staðar eru þau mál, öll viðskipti halda áfram, liklega týnast þau. Að vísu hafa þau mál komið upp á yfirborðið með séríslenzkum hætti, þegar Tíminn hafi í hótun- um við Morgunblaðið að velta sér svolítið upp úr þessu máli, ef Morgunblaðið héldi sér ekki saman. Þetta gerði blaðið vegna þess að forsætisráðherra er einn af meðeigendum fyrirtækisins — séríslenzk hótun. Mál sanddælu- skipsins Grjótjötuns hafa lítillega komið til umræðu. I Sakadómí hafa kaupendui skipsins játað á sig gjaldeyrissvik, og i framhaldi af því er verið að rannsaka kaup á iniklu fleiri skipum. Ennfremur er ljóst að Lands- bankinn hefur að fullkomlega oathuguðu rnáli ábyrgzt lán fyrir þetta tyrirta'ki. sem síðar varð því sem næst gjald- þrota á skömmum tíma. Banka- ráðsmaður á augljóslega hagsmuna að gæta, hvað sem stendur á pappírum þar um. Þessi mál eru hér nefnd vegna þess eins að um þau hefur litillega verið fjallað í blöðum. Þar fyrir utan er ljóst að margháttuð ólög- leg fjármálastarfsemi er og hefur verið í rannsókn, en hefur ekki komizt inn á síður blaðanna. (Það var fyrst á fimmtudag að Morgun- blaðið sá ástæðu til að minnast á Grjótjötun). Og yfir þessum gruggugu vötnum svífa svo skuggar Geirfinns- og skyldra mála. Samfélagið hefur vertð að vakna þótt eðlilega taki nokkurn tíma að nugga stírurnar úr augunum. En á sama tíma rísa nátttröll á afturfæturna og hrópa: Sorp, sorp! Þau gera engan greinarmun a Um- fjöllun um pessi mál. þessi válegu þjóðarmein, annars vegar, og hins vegar for- síðufréttum um nauðganir og ölæðisleiöindi, eða glannalegum frásögnum af hörmulegum at- burðum sent iðulega gerast sam- hengislaust í skuggakimum mannlífsins. En það er vissulega rneiri háttar og afdrifarikur hugtakaruglingur, og til þess eins fallinn að sljóvga enn santfélag, sent þó er að vakna til skárra mannlífs. Vilmundiir Gylfason, nienntaskólakeiinaii.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.