Dagblaðið - 05.08.1976, Blaðsíða 6
IMCBLAÐIÐ. — KÍMMTUDAdUK 5. AdUST 1976.
(iljúfurflóAiA í Colorado á sunnudaginn olli gifurleKu tjóni á mannvirkjum auk þess hörmulega
manntjóns sem \arö. Myndin sýnir hluta af jaróraskinu, þjóðveg sem tættist í sundur. Þrír strandaglópar
sjást handan viðgljúfrið.
Drepsóttin í Pennsylvaníu:
FÆST SVARIÐ í DAG?
Heilbrigóisyfirvöld í
Pennsylvaníu, sem enn reyna
að fá úr þvi skorið hvers kyns
drepsótt er á ferðinni þar,
vonast til þess að niðurstöður
þriggja daga rannsókna á til-
raunastofu, veiti þeim rétta
svarið í dag.
Vísindamenn við heilbrigðis-
eftirlit ríkisins í Atlanta
Georgiu, hafa útilokað þann
möguleika, að um eitrun sé að
ræða í mat, vatni, eða í lofti.
Segja þeir það hald sitt, að
drepsóttin, sem lagt hefur 23
menn að velli og sýkt 120 aðra,
sé að öllum líkindum vegna
einhves konar vírusar, eða
eiturefnis.
,,Það er meira að segja mögu-
leiki á að við komumst aldrei að
hinu rétta í sambandi við drep-
sótt þessa,“ sagði David Seneer,
forstöðumaður heilbrigðiseftir-
litsins við fréttamenn í gær-
kvöld.
Flokksþing repúblikana hefst 16. ágúst:
Reagan gerír úrslitatilraun til
að hljóta útnefninguna
Ronald Reagan, fyrrum fylkis-
stjóri Kaliforníu átti í gær þriggja
og hálfrar klukkustunda langan
fund með repúblikönum í Missis-
sippi, sem enn hafa ekki tekið
afstöðu til þess hvern þeir ætla að
st.vðja í forsetakosningunum í
haust.
Reagan og varaforsetaefni hans,
Richard Schweiker, keppa við
Ford forseta um atkvæði þeirra
30 kjörmanna, sem koma frá
Mississippi til að sitja flokksþing
repúblikana í Kansas City 16.
ágúst. Ford hvatti kjörmennina
til að st.vðja sig, þegar hann hitti
þá að máli í síðustu viku.
íhaldsmaðurinn Reagan sagði á
fundinum í gær, að hann hefði
valið fr.jálslyndan mann á borð
við Schweiker sem varaforetaefni
sitt, svo hann gæti sameinað
Repúblikanafl. og báðir armar
hans ættu fulltrúa sinn í forseta-
kjörinu. Hann bætti því við, að
Schweiker, sem er öldunga-
deildarþingmaður frá Pennsyl-
vaníu, væri sammála sér um stór-
mál eins og landvarnir og detente.
Talið er fremur ólíklegt, að
Mississippi-kjörmennirnir styðji
Reagan þrátt fyrir frjálslyndi
Schweikers.
KVENSKOR
Leðurskor,
skinnfóðraðir og
með leðursólum
Teg. 181 og
teg. 190
Litur: hvítt.
Stœrðir nr. 36—41
Verð kr. 5.575.
Póstsendum
Skóverzlun Þórðar Péturssonar
Kirkjustrœti 8 v/AusturvöllSími 14181
Gljúfurflóðið í Colorado:
75 lík hafa
fundizt
— en aðeins 26 eru þekkjanleg
Leitarmenn með sporhunda
hófu í morgun fjórða erfiða leitar-
daginn að fórnarlömbum flóðsins,
sem um sl. helgi varð að minnsta
kosti 75 manns að bana I
árgljúfri nærri Denver í Colorado
í Bandaríkjunum.
Yfirvöld telja að allt að
hundrað manns hafi farizt í flóð-
inu, sem bar mjög skyndilega að.
Aðeins 75 lík hafa þó fundizt til
þessa og þar af hefur aðeins verið
hægt að þekkja 26.
Leitarflokkarnir hafa nú fengið
sér til aðstoðar sporhunda, sem
hafa verið sérstaklega þjálfaðir
til að leita að fórnarlömbum
skriðufalla. Aðstaða til leitar er
mjög erfið og þarf að fara í gegn-
um mörg tonn af grjóti, timbri og
vagnarústum.
Jóhannesarborg:
Enginn veit
hvað geríst
— nœstu daga íSoweto
Tiltölulega rólegt yfirbragð
var á öllu i útborg Jóhannesar-
borgar, Soweto, þar sem miklar
óeirðir urðu í fyrradag og gær-
morgun. Tókst lögreglunni að
koma í veg fyrir að tuttugu
þúsund blökkumenn færu í
mótmælagöngu inn til mið-
borgarinnar til þess að vekja
athygli á kröfum sínum.
Átján manns særðust i
átökum við lögregluna í gær er
lögreglumennirnir beittu skot-
vopnum.
Seint í gærkvöld héldu tals-
menn lögreglunnar áfram að
neita sögusögnum þess efnis, að
þrir blökkumenn hefðu látið
lífið, en samkvæmt heimildum
blökkumanna, eiga menn að
hafa séð a.m.k. þrjú lík á spít-
ala.
Undirforingi í lögreglunni
hefur þó látið hafa eftir sér, að
einn blökkumaður hefði fund-
izt látinn, hálsbrotinn, eftir
átökin í gærmorgun.
En eins og einn lögreglu-
manna orðaði það í gærkvöld:
„Þetta er eins og skógareldur
— maður veit aldrei hvað gerist
næst.“
Seveso:
Ekki eiga börn, ekki aka
hraðar en 30 km/klst
,-iuiiiiiviusanui etni er sprautað á götur Seveso til að vega á móti
áhrifunum af eiturskýinu, sem hangir yfir bænum og hefur orðið
mörgum að bana.
Um fjögur þúsund manns,
sem líklega hafa orðið fyrir gas-
eitrun í bænum Seveso á
Norður-Ítalíu hafa verið hvattir
til þess að eignast ekki fleiri
börn, aka ekki hraðar en á 30
km hraða og þvo sér eins oft um
hendurnar, sem kostur er.
Þessar varúðarráðstafanir,
sem eiga að koma í veg fyrir að
eiturefnið dioxin nái að smita
fleiri en orðið er, voru kynntar
eftir fund sérstakrar ranri-
sóknarnefndar heilbrigðisyfir-
valda, sem hefur kynnt sér
ástandið.
Meira eh 750 manns hafa
verið flutt á brott frá ibúðar-
hverfum í nágrenni verksmiðj-
unnar, þar sem gassprengingin
varð vegna þess að eiturefnið
hefur þakið þar alla hluti.
Svisslendingar hafa nú
bannað allan innflutning á
grænmeti og öðrum land-
búnaðarvörum frá þessu héraði
og segir eigandi stórrar hús-
gagnaverksmiðju, þar sem
meirihluti fólksins á þessu
svæði hafði atvinnu, að töluvert
sé farið að bera á þvi, að við-
skiptavinir afpanti þær vörur.
sem þeir ætluðu sér að kaupa.
áður en sprengingin varð.