Dagblaðið - 09.08.1976, Page 4

Dagblaðið - 09.08.1976, Page 4
DAGBLAÐIÐ. — MANUDAGUK 9. ÁGUST 1976 PRINSINN SKEMMTISER KONUNGLEGA Á ÍSLANDI — f ór heim í gœr að lokinni vikudvöl við veiðar Þá er dvöl Karls Bretaprins á Islandi lokið, en eins og kunnugt er hefur hann dvalið við veiðar í Hofsá í Vopnafirði síðastliðna viku. Prinsinn var afskaplega ánægður með dvölina hér á landi og þá ró og næði sem hann fékk til veiða og skemmta sér. En eins og allir vita eiga slikar persónur oft erfitt með að fara sinna ferða án þess að múgur og margmenni elti þær á röndum. Alls dvaldi Karl Breta- prins hér í 7 daga og veiddi á þeim tima yfir 40 laxa. Var hann að vonum ánægður með það þvi hann er mikill Veiðimaður. Ætti nóg af íslenzkum laxi að verða á borðum í Buckinghamhöll næslu dagana. Flugvél úr þeirri deild brezka flughersins, sem sér um flutninga á ríkisstjórninni og konungsfjölskyldunni, sótti prinsinn í gærdag og yfirgaf hann landið laust eftir kl. 3. Áður hafði prinsinn og föru- neyti hans. sem samanstóð af lífverði og nokkrum aðals- mönnum, þegið boð forsetans að Bessastöðum og neytt hádegisverðar hjá brezka sendiherranum. Að sögn talsmanns Karls prins þá bað hann fyrir beztu kveðjur til allra þeirra sem höfðu gert honum dvölina hér eftirminnilega og þakkaði for- ráðamönnum Flugfélagsins Vængja sérstaklega fyrir mjög góða þjónustu. Og hver veit nema að prinsinn birtist hér aftur einn góðan veðurdag til að renna fyrir lax, ef marka má ánægju hans yfir þeim tveimur skiptum sem hann hefur dvalið á íslandi við veiðar. JB Þegarhún langa- langamma gekk upp að altarínu — nýstárleg sýning í Þjóðminjasafni, Brúðkaup og brúðarskart Brúðkaup og brdðarskart heitir sýningin, sem sett hefur verið upp 1 Þjóðminjasafninu Er sýningin að stofni til deild íslands á sýningu sem haldin var á vegum Evrópuráðsins í Amsterdam. Ytra hét sýningin Ast og hjónaband, en ein- hverra hluta vegna hefur sýningin hlotið annað nafn á íslandi. Á sýningunni rná sjá ýnisa skemmtilega hluti varðandi brúðkaup, flestir eru þeir fengnir að láni úr Þjóðminja- safninu. Sýningin er opin íram í september á sýningartimum safnsins, þ.e. frá kl. 1.30 til 4 alla daga vikunnar. Myndin sýnir brúðarskart frá liðinni öld (DB-mynd Árni Páll). Sýning á einkasafni Gunnars heitins Sigurðssonar — myndir f rá byrjunarárum margra þekktra listamanna Sýning á málverkasafni Gunnars heitins Sigurðssonar, sem margir þekktu undir nafninu Gunnar í Geysi, var opnuð á laugardag að Kjarvalsstöðum. Er hér um að ræða einkasafn hans og er það fyrir tilstilli ekkju hans, Guðrúnar Lilju Þorkels- dóttur, sem unnt er að koma þessum myndum fyrir al- menningssjónir. Safnið er um margt sérstætt. Þar er að finna myndir eftir marga þekkta íslcnzka listamenn, sem voru Gunnari persónulega kunnugir og gáfu honum verk eftir sig af margvlslegu tilefni. Meðal þeirra sem eiga þarna verk eru Þorvald- ur Kristjánsson, Nína Tryggva- dóttir, Valtýr Pétursson, Jóhannes Jóhannesson, Snorri Arinbjarnar og Kristján Daviðs- son, sem meðal annars málaði mynd af Gunnari sjálfum. Myndirnar eru margvíslegar. allt frá tússlitamyndum og upp í stór olíumálverk. Sumt er auðsjáanlega einfalt riss. sem Gunnar hefur komizt yfir og óneitanlega er gaman að sjá þetta eftir suma helztu listamenn okkar haldið upp á.sér til gamans en nú, því þarna er um að ræða vcrk i dag. -JB. Kjarvalsstaða við nokkur verkanna úr einkasafni Gunnars Alfreð Guðmundsson forstöðu maður í Gevsi (DB-myndBB). Blaðað í skattskrá Haf narf jarðar og Kópavogs Nafn Óttar Yngvason tckjuskattur málflutningsm. Ingþór Haraldsson 333.835 framkvæmdastj. Þorvarður Árnason 125.815 framkvæmdastj. Einar Sigurðsson 364.983 fastcignasali Ragnar Arinbjarnar 570.983 læknir 1.064.550 Eyjólfur K. Sigurjónsson cndurskoóandi Þorvarður Eiríksson 795.809 forstjóri Skúli Guðnason 25.462 endurskoðandi Kristján Albertsson 729.856 skipstjóri Kristján Flygering 217.927 verkfræöingur Arni Grétar Finnsson 1.295.234 málflutningsmaður Jón Finnsson 1.052.793 mólflutningsmaður Matthias Á.Mathicscn 578.497 fjármálaráóhcrra Axel Kristjánsson 781.871 framkvæmdastjóri 599.101 cignask. útsvar barnab. samtals 76.729 266.500 206.250 470.814 8.332 170.400 150.000 151.547 80.416 289.100 37.500 696.999 20.068 283.300 874.351 14.392 452.800 150.000 1.494.242 249.762 353.500 37.500 1.361.571 6.872 117.500 93.750 56.084 4.290 322.400 1.056.540 239.600 93.750 359.777 29.007 457.200 37.500 1.743.941 85.839 402.900 93.750 1.447.782 6.859 257.600 37.500 805.450 25.330 405.700 93.750 1.115.151 152.368 351.800 37.500 1.065.765 •• Margir menn í hærri stöðuin í Búnaðarbanka íslands hafa sótt um starf aðstoðarbankastjóra þar, en umsóknarfrestur er nú úl- runninn. „Auglýsing um s’töðu uðstoðar- bankastjóra var orðuð þannig, að hún væri laus til uinsóknar ..eins og liigin heimila" sagði Stefán Valgeirsson, formaður bankaráðs Búnaðarbánkans í viðtali við Dagblaðið. ..Ákveðið var að ráða einn aðstoðarbanka- stjóra, en ekki hefur verið tekin ákvörðun um. hvort þeir verða tveir,“ sagði Stefán Valgeirsson. „Eg held, að allir offiserar bankans hafi sótt um starfið," sagði maður kunnugur málum við, fréttamann DB. Líklegt er talið, að Svavar Markússon deildarstjóri víxla- deildar, komi til greina, sem og Hannes Pálsson útibússtjóri Búnaðarbankans. Þá er og engan veginn útilokað að báðir verði ráðnir. -BS.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.