Dagblaðið - 09.08.1976, Side 6
(>
DAtiBI.Atm). — MANl.'DACI.'K 9. ACl.'ST 197H
Soweto:
KnKiini h\ilum miinnum hefur
verirt lcyfl art fara inn í hverfi
hlökkumanna viö Jóhannesar-
bor;;. en þessi mynd er tekin úr
þvrlu er óeirðirnar stóðu sem
hæst.
Lögregla við
öllu búin
— þrátt fyrir rólega helgi
Lögrefjlan í Jóhannesarborg í
S-Afríku var í inorgun við öllu
búin i blökkumannahverfinu
Soweto i útjaðri borgarinnar.
Búi/.t er við að blökkumenn
muni í dafí eða á morgun láta til
skarar skríða á ný gegn
yfirráðum hvitra manna.
Helf>in var tiltölulega róleg
en nú er talið víst, að herskáir
stúdentar muni taka upp
þráðinn þar sem frá var horfið
ofi hvet.ji blakka verkamenn til
að mæta ekki til vinnu.
Til þessa hefur árangur
stúdentanna verið
takmarkaður þrátt fyrir
snarpar árásir þeirra á
umferðaræðar og umferðar-
tæki. Vinnuveitendur í
Jóhannesarborg geta þó ekki
annað en viðurkennt. að
barátta stúdentanna hafí
töluverð áhrif á starfsmenn.
t viðtölum, sem birtust um
helgina, sögðu ráðherrar að
stjórnin væri reiðubúin að
hlýða á iill klögumál biökku-
manna. Þeir itrekuðu. að í
athugun væri að veita blökku-
mönnum meiri hlutdeild í
rekstri eigin borga og borgar-
hverfa. Sem stendur eru
borgarahverfi blakkra rekin af
hvítum mönnum í einu og öllu.
Þáði Ford fé frá
Hughes og CIA ?
Tímaritið Klayboy segir i
dag. að (ierald Ford núverandi
Bandarík.jaforseti. hafi verið
meðal .'il þingmanns, sem árið
1968 voru settir á lista yfir þá.
er áttu að njóta fjárhagslegs
stuðnings le.vniþjónustunnar
CIA. Peningarnir komu frá
stórbilljöneranum Howard
Hughes.
Frá þessu segir i grein, sem
blaðamennirnir Larry Dubois
og Lurence (ionzales rita í
september-hefti Playboy. Þeir
seg.ja að sönnunargögnin um
þennan þingmannasjóð CIA
hafi komið frá John nokkrum
Meier, fyrrum samstarfsmanni
Hughes. Meier býr nú í Kanada
og er eftirlýstur í Banda-
rikjunum fyrir skattsvik, að
sögn Playboy.
Meier útvegaði tímaritinu
l.jósrit al' minnisblaði frá CIA,
dagsettu 2. september 1968 og
stíluðu á Howard Hughes.
Blaðamennirnir hafa eftir
Meier að útsendari CIA hafi
fært honum minnisblaðið og
hann tekið afrit af þvi áður en
hann sendi það áfram til
Hughes.
Þingmennirnir 31 eru úr
öllum landshlutum. Blaða-
mennirnir seg.ja í greininni, að
Tímaritið Playboy staðhæfir, að Ford forseti hafi þegið fé
af leyniþ.jónustunni CIA.
þeir hafi ekki getað sannreynt
hvort þingmennirnir hafi vitað
um hvaðan peningarnir áttu að
koma — né heldur hvort
nokkurn tíma hafi orðið af
þessum peningasendingum.
í Washington s.agði tals-
maður Hvíta hússins í morgun:
,,Við munum útvega okkur
eintak af ritinu, lesa greinina
og síðan hefjumst við handa.
Þetta gæti tekið einhvern tíma,
við erum ekki reiðubúnir til að
gefa út yfirlýsingu um eitthvað,
sem við höfum ekki séð eða
heyrt nefnt áður."
Bella er
á leiðinni
Hvirfilvindurinn Bella, sem
veðurfræðingar segja mjög
hiettulegan. hefur nú eflzt og
berst óðfluga að austurströnd
Bandarík.janna. þar sem
milljónir manna búa.
Allir íbúar austur-
strandarinnar. frá Norður -
Karölínufylki til
Massaehusetts. hafa verið
vataðir við og fengið þær upp-
lýsingar. að flóðbylgjan verði
tveimur og hálfum metra
hærri en ven.julega.
Samkvæmt upplýsingum
gervitungla og veðurflugvéla
flughersins hefur Bella aukið
hraða sinn úr 160 km á klst í
185, og i gærkvöldi var
hvirfiivindurinn sagður í 650
knt fjarlægð frá Flórídaströnd.
Drepsóttin í Pennsylvaníu:
ENN ENGIN
NIÐURSTAÐA
Tveir menn hafa látizt til við-
bótar af völdum hinnar undar-
legu pestar, sem bandarísk-
um læknum hefur enn ekki
tekizt að nafngreina og hafa
heilbrigðisyfirvöld nú útbúið
sérstakan spurningalista, sem
sendur verður öllum þeim er
þátt töku í þingi fyrrum her-
manna í Harrisburg, Pennsyl-
vaníu.
27 manns hafa nú látizt af
völdunt hinnar torkennilegu
veiki og alls hafa tekið hana
152 menn.
Talsmaður heilbrigðisyfir-
valda. Leonard Bachman, sagði
fréttamönnum í gærkvöld að
bréfum og spurningalistum
yrði dreift til allra fulltrúa,
sem sóttu þingið, í tilraun til
þess að fá heildarmynd af þvi
sem gerðist á þinginu.
„Við ætlum að reyna að fá
hugmynd um ástand þeirra,
sem urðu veikir og þeirra, sem
sluppu við sýkingu," sagði
Bachman.
Sagði hann málið vera á þvi
stigi þar sem búast mætti við
langri rannsókn. Hafa vísinda-
menn útilokað þann möguleika,
að um þekktan sýkil sé að ræða
og vinna nú að því að reyna að
gera sér grein fyrir því, hvort
hér sé um áður óþekktan sjúk-
dóm að ræða, eða hreinlega
eiturefni, sem gert sé af manna
höndum.
SKÓVERZLUN S. WAAGE
Domus Medica Egilsgötu 3 - Sími 18519
Kissinger talar
Ali Bhutto til
Utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna. Henry Kissinger mun
eiga fund með forsætisráðherra
Pakistan, Zulfikar Ali Bhutto í
dag til bess að reyna að telja hann
ofan af þvi að kaupa franska
plutöníum verksmiðju, sem gæti
ot'ðið til þess. að Bandarikjamenn
hættu efnahagsaöstoð sinni við
þjóðina.
Að sögn heimildarmanna, er
talið óliklegt. að Bhutto láti segja
sér þannig f.vrir verkum, enda
þótt Pakistanar hafi leynt og ljóst
sótzt eftir hernaðar- og efnahags-
legri aðstoð frá Bandaríkjunum.
Er hald manna. að hann telji of
•angt um liðið, síðan hann samdi
um kaup á verksmiðjunni við
Frakka. en með tilkomu hennar.
eiga Pakistanar að geta framleitt
kjarnorkuvopn.
Sagt er. að Bhutto vil.ji alls ekki
lata verksmiðjuna af hendi. þvi að
Pakistanar lel.ji sig standa heldur
iila að vigi gegn Indverjum. sem
sprengdu sina fyrstu k.iarnorku-
sprengju árið 197-1. Þó hefur
'"V v • .
Ali Bhutto. forsætisráðherra
Pakistan hefur lofað, að pluton-
iumverksmiðjan verði ekki notuð
í hernaðarskyni.
hann opinberlega lofað öllunt við-
komandi. að ekki verði framleidd
kjarnorkuvopn i hinni nýju verk-
smiðju.