Dagblaðið - 09.08.1976, Síða 7
l)A(iHLAt)lt). — MANUDACUH S). AfiUST 1S)7(>
7
Erlendar
fréttir
REUTER
Gríski
herínn
í varð-
stöðu
Ecevit forsætisráðherra Tyrkja:
„Tilhæfuiausar fullyrðingar
Grikkja."
Gríski flotinn og flugherinn
voru við öllu búnir í morgun
þegar spenna í sambúð Grikkja og
Tyrkja fór vaxandi vegna olíuleit-
ar Tyrkja í Eyjahafi.
Gríska stjórnin frestaði í gær
öllum helgarleyfum foringja og
óbreyttra hermanna þegar ljóst
varð, að tyrkneska olíuleitar-
skipið Sismik I. myndi halda til-
raunum sínum áfram. Stjórnin í
Aþenu kvartaði yfir því að skipið
væri í óleyfi í grískri landhelgi,
þar sem það vann við tilraunirnar
skammt frá eynni Lesbos.
Fyrr í gær vísaði tyrkneska
stjórnin mótmælumGrikkja á bug
sem ,,tilhæfulausum“ og sagði að
olíuleitinni yrði haldið áfram.
Gríska stjórnin kom saman til
fundar í gær og sagði í tilkynn-
ingu að honum loknum, að áform
stjórnarinnar yrðu kunngerð í
dag.
Eitríð flutt
frá Seveso
Fjörutíu verkamenn hófu í
morgun að flytja á brott hættu-
leg efni úr verksmiðjunni í
Seveso á ítaliu sem fyrir
fjórum vikum sleppti frá sér
eiturskýi í sprengingu, er varð
i verksmiðjunni. Myndin er frá
Seveso, sem girt hefur verið af
og allir ibúarnir fluttir á brott.
Þeir vita ekki enn hvort þeir
lifa eða deyja.
Er þar allt með felldu?
„Morðingjar"
Castros
hafa báðir
verið myrtir
— annar fannst um helgina í
Dr. Fidel Castro forsætisráðherra Kúbu.
olíutunnu á hafi úti
Lögreglan í Miami á Florida í
Bandaríkjunum staðfesti í
morgun, að lík, sem fannst
hlekkjað í olíutunnu fljótandi
út af strönd Miami, væri af
John Roselli. Hann var undir-
heimamaður, sem i fyrra
sagðist hafa verið ráðinn af
leyniþjónustunni CIA til að
aðstoða við að ráða dr. Fidel
Castro, forsætisráðherra Kúbu,
af dögum.
Læknirinn, sém skoðaði lik
Rosellis, sagði morð hans hafa
verið mjög i stíl við önnur
glæpaflokkamorð, einkum
vegna þess að ítarlegar tilraun-
ir höfðu verið gerðar til að
koma í veg fyrir að líkið fynd-
ist.
Læknirinn sagði að Roselli,
sem var 71 árs, hefði látizt í
kringum 28. júlí, en þá hvarf
hann sporlaust eftir að hafa
farið heiman frá sér til að leika
golf. Bíll hans fannst síðar á
flugvelli í Miami.
Að sögn lögreglunnar voru
það fiskimenn, sem fundu líkið
í tunnunni á laugardaginn.
Tunnan var götug og umvafin
keðjum.
I fyrra kom Roselli fyrir
þingnefnd og skýrði svo frá, að
hann og annar maður, Sam
Giancana, hefðu verið ráðnir af
CIA til að aðstoða við fyrirhug-
að morð á kúbanska forsætis-
ráðherranum.
Giancana var myrtur í fyrra,
en það morð hefur enn ekki
verið upplýst.
Stjórn allra þióðarbrota
komið á í SV-Afríku?
Búizt er við því, að drög að
myndun nýrrar ríkisstjórnar þar
sem sæti eiga fulltrúar allra
kynþátta, verði lögð fram í
dag á þingi, sem haldið er i SV-
Afríku (Namibíu) til þess að
freista þess að ná einhverju sam-
komulagi í deilunni um stjórnina
þar.
í tillögunum er gert ráð fyrir
því að forsætisráðherrann verði
hvítur maður, þjóðarleiðtoginn
blökkumaður og meira en 40 ráð-
herrar eigi að vera fulltrúar
þeirra 11 þjóðarbrota er byggja
landið.
Hugmyndir þessar eru
sprottnar úr jarðvegi dræmra
uudirtekta hvíta minnihlutans
um að semja nýja stjórnarskrá
og vegna hótana Sameinuðu
þjóðanna um að skerast í leikinn,
ef ekki verður sýndur neinn vilji
á að koma betra lagi á stjórnar-
farið fyrir 31. ágúst.
Á þinginu ríkir mikill einhugur
um tillögurnar, en formaður
nefndarinnar. sem fjallar um
málið, Dirik Mudge, er sagður
líklegur til þess að hljóta út-
nefningu sem nýr forsætisráð-
herra.
Þá er John Vorster forsætisráð-
herra S -Afríku sagður hlynntur
þeim hugmyndum, sem þarna
hafa komið fram, þrátt fyrir
óánægjuraddir margra hvítra
ráðamanna, sem halda því fram,
að þær séu of byltingarkenndar.
Líbanon:
EIN TILRAUNIN ENN
Fulltrúi Samtaka Arabaríkja,
Hassan Sabri Al-Koli, mun verða í
forsæti á fundi leiðtoga beggja
deiluaðila i borgarastyrjöldinni í
Líbanon sem hefjast á i dag.
Fundarefnið mun að sjálfsögðu
verða tilraun til þess að ná sam-
komulagi um varanlegt vopnahlé,
en það 54. sem nú er í gildi hefur
verið haldið rétt mátulega.
Al-Kholi sagði fréttamönnum i
gærkvöld að fleiri Arabaþjóðir
hefðu nú boðizt til að senda
friðargæzlusveitir til landsins,
þar á meðal Lýbíumenn, en þaðan
á að koma sérstök hjúkrunar-
deild.
Fyrrum forseti landsins, Sulei-
ntan Franjieh, hefur þegar krafizt
þess að þeir Lýbíumenn, sem
fyrir - eru í friðargæzlusveitum
landsins, hverfi þaðan vegna þess
að þeir hafi barizt með vinstri
mönnum. Al-Kholi hefur staðfast-
lega neitað þessum ásökunum
hægri manna.
Nýr jarð-
skjálfti í
Kína í
gœr-
kvöldi
Kortið sýnir jarðskjálftasvaBÖið í Kína.
Allsnarpur jarðskjálfta-
kippur fannst í norðurhluta
Kína i gærkvöldi. Japanska
veðurstofan mældi kippinn um
kl. 23.45 í gærkvöld og taldi
styrkleika hans hafa verið um
5 á Richter-kvarða.
Upptök skjálftans eru talin
hafa verið í nágrenni
Tangshan, sem jafnaðist við
jörðu í jarðskjálftanum 28.
júlí. Af opinberri hálfu í Kina
hefur ekkert verið sagt um
jarðskjálftann í gærkvöld .
Útlendingar í Peking urðu
varir viö skjálftann en þar olli
hann ekki tjóni. svo vitað sé.