Dagblaðið - 09.08.1976, Qupperneq 17
DAGBLAÐH). — MANUDACUR 9. AGUST 1976
17
Algeng sjón á Skaganum á laugardag — Valsmenn verjast það gerðu þelr líka vel — DýriGuðmundsson skallar knöttinn frá en taíið frá vÍnstri eru: Átli Eðvaldsson. Jón Alfreðs-
son, Jón Gunnlaugsson.Grimiir Sæmundssen, Dýri, Pétur Pétursson, Vilhjálmur Kjariansson, Magnús Bergs, Arni Sveinsson, Albert Guðmundsson og Teitur Þórðarson
_ DB mynd Bjarnleifur.
Valsmenn sonnuou oð vissu-
lega getc þeir höggvið enn!
V'alur yfirsteig þýðingarmik-
inn þröskuid á leið sinni að ís-
landsmeistaratitlinum er liðið
ferðaðist upp á Skipaskaga og
sigraði íslandsmeistara ÍA, 3-1.
Um leið og sigur Vals glæðir
vonir um meistaratitil þá að sama
skapi gerði ósigur ÍA vonir þeirra
um að halda meistaratitlinum að
engu. Möguleikar ÍSlandsmeistar-
anna eru að vísu enn fræðilegir
en óraunhæfir.
En snúum okkur að leiknum á
Skipaskaga — Valsmenn byrjuðu
leikinn af miklum krafti í von um
skjótfengið mark. Hins vegar var
völlurinn slæmur, forareðja fyrir
framan mörkin og suðaustan
kaldi. Aðstæðurnar settu að
vonum mark sitt á leikinn —
hann varð allur þyngri fyrir
bragðið. Hermann Gunnarsson
átti fyrsta hættulega skotið að
marki þegar hann skaut góðu
skoti af 20 metra færi — en
Hörður Helgason náði að koma
við knöttinn og í stöng fór hann.
Hins vegar náðu íslandsmeist-
ararnir betri tökum á leiknum
þegar á leið og sókn þeirra varð
sífellt þyngri. Þannig gaf Pétur
Pétursson góða sendingu fyrir
mark Vals á 20. mínútu, en Árni
Sveinsson hitti ekki knöttinn á
markteig — þar fór sannarlega
gott marktækifæri forgörðum.
Aðeins fimm mínútum síðar
komst Pétur ir.n fyrir vörn Vals
— skaut en Sigurður Dagsson
varði vel, knötturinn féll fyrir
fætur Péturs, sem skaut aftur og
virtist þá fyrsta mark ÍA í upp-
siglingu — en aldeilis ekki, Vil-
hjálmur Kjartansson náði að
bjarga mjög vel á línu.
Valsmenn náðu einnig sínum
sóknarlotum. sem gátu gefið
mark. Þannig fékk Guðmund-
ur Þorbjörnsson knöttinn á mark-
teig en náði ekki að hemja hann
og tækifærið t'ór forgörðum. Þá
átti Ingi Björn Albertsson gott
tækifæri er hann skallaði að
marki ÍA en framhjá.
Þrátt fyrir ágæt tækifæri á
báða bóga var staðan eftir fyrri
hálfleik 0-0.
Aðeins v.oru liðnar fimm
mínútur af síðari hálfleik þegar
Valur skoraði og þá úr sinu fyrsta
upphlaupi. Kristinn Björnsson
lék laglega upp vinstri kantinn,
framhjá Þresti Stefánssyni, gaf-
síðan góða sendingu inn í vítateig.
Knötturinn datt dauður i drull-
unni fyrir fætur Inga Björns sem
hirti hann upp úr drullunni og
sendi síðan knöttinn í autt netið
— þár var vörn ÍA illa fjarri góðu
gamni. Þarna var vel unnið að
marki — sérstaklega þáttur
Kristins Björnssonar.
Sókn ÍA þyngdist stöðugt en
þrátt fyrir það skoruðu Valsmenn
sitt annað mark — þá markakóng-
urinn Hermann Gunnarsson. Atli
Eðvaldsson tók stutt innkast frá
vinstri, sendi til Inga Björns, er
lék upp að endamörkum í vítateig
ÍA og gaf síðan góða sendingu
fyrir markið — þar kom Hermann
á fullu og sendi knöttinn rétta
boðleið í markið — 0-2 og aðeins
14 mínútur af síðari hálfleik.
Skagamenn höfðu ekki sagt sitt
síðasta orð — hinn skeinuhætti
Pétur Pétursson skaut góðu skoti
i vítateig Vals en Sigurður Dags-
son varði meistaralega — en
knötturinn féll fyrir fætur Karls
bórðarsonar, sem skoraði 1-2, þá
aðeins þrjár mínútur liðnar frá
marki Vals.
Þrátt fyrir að sókn ÍA þyngdist
stöðugt, áttu Valsmenn af og til
hættuleg tækifæri. Til að mynda
átti Atli gott skot i þverslá — en
ieikurinn var Skagamanna. Lát-
laus sókn — og síðan, já, síðan á
32. mínútu gerðu Valsmenn út um
leikinn. Hermann Gunnarsson
komst einn inn fyrir vörn ÍA —
Hörður Helgason kom vel út á
móti Hermanni og varði skot hans
— en knötturinn. féll fyri fætur
Inga Björns og þar sem hann stóð
á vítapunkti átti hann ekki í erfið-
leikum með að senda knöttinn
rétta boðleið í markið — 1-3 og
vonir ÍA um stig að enguórðnar.
Valur hélt því með tvö stig
Skipaskaga — tvö dýrmæt
stig. Valsmenn sönnuðu ótvi-
rætt að þeir eru ekki á þeim bux-
unum að gefa titilinn' upp á bát-
inn þrátt fyrir tap í Keflavík i
sínum síðasta leik. Allir leikmenn
liðsins börðust vel, þó verð ég
sérstaklega að geta Hermanns.
Hann sýndi mikla baráttu og
góðan leik, sivinnandi. Vörnin var
örugg með Sigurð Dagsson að
baki sér. Ingi Björn er hættulegur
leikmaður en hverfur þess á milli.
Já, Valur stefnir nú að titlinum
— aðeins þrír leikir eftir.
Með ósigri sínum hafa íslands-
meistarar ÍA endanlega gefið
vonina um að halda titlinum upp
á bátinn. En Skagamenn voru
nokkuð óheppnir að tapa leikn-
um, pressuðu lengst af og Pétur
Pétursson, sá ungi og efnilegi
leikmaður, var ákaflega óheppinn
að skora ekki — gott efni þar.
Eins kom Karl Þórðarson vel frá
leiknum en vörnin var óörugg og
þrátt fyrir að endurkoma Jóns
Alfreðssonar hafi styrkt liðið þá
er hann enn ekki kominn í þá
æfingu sem til þarf.
Leikinn dæmdi Eysteinn Guð-
mundsson og fórst honum það
ágætlega úr hendi. Ahorfendur á
laugardag 1 suðvestan kaldanum
voru 1150 — eða fleiri en nokkru
sinni fyrr á Skipaskaga í sumar.
h halls.
Fram fylgir Val
eins og skugginn
Fram fylgir Vai eins og
skugginn í 1. deiid íslandsmóts-
ins í knattspyrnu. A iaugardag
lék Fram við FH i Kaplakrika og
fór þaðan með tvö dýrmæt stig —
sigraði 2-1 en ekki var mikill
glans yfir sigri Fram. Þess þarf ef
til vill ekki þegar FH á í hlut —
lið Ilafnfirðinga er ákafiega siakt
og hættan á falli í 2. deild eykst'
sífelit. Að minnsta kosti á meðan
FH fær ekki stig — en Þróttur
krafsar af og til í stig.
Já, leikur Fram og FH var
slakur í suðvestan kaldanum og
áhorfendur fáir. Litla skemmtan
veittu liðin áhorfendum, lítið sem
ekkert sást til skemmtilegra til-
þrifa en þá jielzt hjá Fram.
Fram fékk sannkallaða óska-
byrjun. Strax í byrjun leiks, á
þriðju mínútu, skoráði Pétur
Ormslev með góðu skoti frá víta-
teig eftir að vörn FH hafði gert sig
seka um slæm mistök. Bjuggust
því flestir við að eftirleikurinn
yrði Frani auðveldur — en sann-
leikurinn er sá, að vörn Fram var
óörugg. Kom á óvart hversu Jón
Pétursson var ólíkur sjálfum sér
en þetta var fyrsti leikur Fram án
hins sterka miðvarðar síns,
Marteins Geirssonar.
En leikurinn jafnaðist þó ekki
færi á milli mála hvor aðilinn
væri sterkari — Fram. Þannig
slapp mark Hafnfirðinga vel
þegar Rúnar Gíslason átti skot í
stöng og eins átti Kristinn
Jörundsson góðan skalla að marki
FH — en Ómar Karlsson varði
vel.
Framlína FH var máttvana en
þrátt fyrir það skoruðu leikmenn
FH á 40. mínútu. Ólafur Danivals-
son tók hornspyrnu — gaf stutta
sendingu á Viðar Halldórsson, er
sendi knöttinn vel fyrir mark
Fram og þar kom Gunnar Bjarna-
son á fullri ferð og skallaði knött-
inn í netið, 1-1. Þarna var vörn
Fram illa á verói.
Staðan eftir fyrri hálfleik var
því 1-1 og lengi framan af síðari
hálfleik virtist-sem bæði lið sættu
sig við jafntefli — síðari hálf-
ieikur var nánast ótrúlega slakur.
En hið ótrúlega gerðist — Fram
skoraði. Eins og svo oft áður í
leikjum liðsins í sumar varð and-
stæðingum á slæm mistök — það
kunna leikmenn Fram vel að
nýta. Engin hætta virtist á
ferðum þegar löng sending var
gefin fram — landsliðsbakvörður-
inn, Viðar Halldórsson, hugðist
heldur en ekki spyrna frá — en
nústókst hrapallega og hitti ekki
knöttinn. Pétur Ormslev komst
upp vinstra megin fyrir vikið og
gaf góða sendingu á Kristin
Jörundsson, frá honum fór knött-
urinn í sveig yfir Ómar Karlsson
og innfyrir — reyndar bætti
Gunnar Guðmundsson um betur,
en þá hafði knötturinn farið yfir
iínu, svo markið skrifast á reikn-
ing Kristins, mark sitt skoraði
Fram á 31. mínútu og það sem
eftir var leiks biðu leikmenn
beggja liða þess að dómarinn
flautaði — leikurinn væri búinn
— Löngu áður en Valur Bene-
diktsson flautaði, þá voru áhorf-
endur farnir að streyma burtu —
ef til vill ekki nema von. Bæði var
leikurinn slakur og eins var suð-
austan kaldi og rigningin barði
andlit áhorfenda.
Já, leikurinn í Krikanum var
slakur, sérstaklega af hálfu
heimaliðsins. Vart sást heil brú i
leik FH — eini spilandi leik-
maður liðsins, Olafur Danivals-
son, má sín lítils einn.
Fram heldur áfram að taka inn
stig og nú, þegar aðeins þrír leikir
eru eftir i deildinni, er Fram
aðeins stigi á eftir forystuliðinu,
Val.
Valur Benediktsson dæmdi
leikinn. h halls.