Dagblaðið - 13.08.1976, Side 2

Dagblaðið - 13.08.1976, Side 2
2- DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 1976. / " ' 1 Um 6000 manns sótti Rauðhettuhátíðina að Úlfljótsvatni þegar mest var og má geta nærri að þar var misjafn sauður í mörgu fél. * W W RAUÐHETTUHATIÐINI HUN BLETTUR A SKATAHREYFINGUNNI? Lögreglan átti að sjá um vínleit og alla löggœzlu Móðir hringdi: Mig langar til að koma á framfæri megnri óánæeiu minni með framkvæmd áfengisieitar og eftirlits á Rauðhettuhátíðinni sem haldin var að Ulfljótsvatni um verzlunarmannahelgina. Ég var ein þeirra sem sendi unglinga á hátíðina í trausti þess að allt mundinú fara vel fram og ekki yrði haft vín um hönd, þar sem þetta var jú í umsjón skátahreyfingarinnar. Þegar hátíðin var auglýst var tekið fram að nákvæm áfengis- leit mundi fara fram og ekki yrði leyfð meðferð víns á móts- svæðinu. Ég fór sjálf austur, bæði á laugardags- og sunnu- dagskvöld, og get borið vitni um að þarna var um talsverða ölvun að ræða. Og mörg dæmi voru þess að unglingarnir færu niður á Selfoss og víðar á sunnudeginum til að afla vínfanga og komust þau óhindruð með það inn á svæðið aftur. Þetta finnst mér ljótur blettur á skátahreyfingunni. Að hún skuli gerast sek um áróður og auglýsingastarfsemi, einungis í því skyni að afla fjár- magns, mun seint gleymast. Ef hátíðin verður endurtekin næsta ár munu eflaust margir unglingar áfjáðir í að sækja hana vegna þess frjálsræðis, en á sama tíma stjórnleysis, sem þarna kom fram. En það er óskandi að skátarn- ir reyni að endurheimta heiður sinn áður en út í slíka vitleysu er farið á ný.Annað eins og þetta getur aldrei valdið neinu nema vanheiðri á nafni skáta- hreyfingarinnar sem fram til þessa hefur verið álitin ein heilbrigðasta félagsstarfsemi sem finnst meðal unglinga. Viggó Oddsson skrifar frá, Jóhannesarborg: Landslag og brennivínr landkynning í S-Afriku. S.-Afríka er nýbúinn að fá litsjónvarp og talið vera mjög fullkomið, efnið er á ensku og búamáli. Fyrir stuttu síðan var mér sagt að þar hefði verið fræðslumynd um ísland sem hefði verið mjög „skemmtileg," alltaf sólskin, iitir og svo engar járnbrautir. Hreint og klárt hneyksli íslendingar, sem sáu myndina, sögðu mér að hún hefði verið hreint og klárt hneyksli, ekkert nema landslag og brennivín. Þá var atriði frá svokölluðum hestaveðreiðum Fáks. Þar sást hvar brennivíns- flaskan var látin ganga frá manni til manns, nokkrir óhrjálegir hestar að hlaupa um í moldárflagi. S.-Afríka hefur DB aflaði sér upplýsinga hjá Jóni I. Guðmundssyni yfirlög- regluþjóni á Selfossi, en það var einmitt Árnessýslulög- reglan sem sjá átti um löggæzlu á svæðinu. Að sögn Jóns er það venjan undir slíkum kringumstæðum að leggja ekki leit á hvern einasta einstakling sem staðinn sækir heldur aðeins þá sem ástæða þykir til og þá vegna ölvunar og óspekta. í þessu tilfelli var haft eftirlit með þeim sam báru merki ölvunar, beir ýmist fjarlægðir eða allt vín tekið úr tjöldum þeirra og fjölda af glæsilegum íþrótta- völlum og skeiðvöllum, svo þessi landkynning hefur þótt hin „skemmtilegasta“ hér syðra. Þjóðhátíðin í Vestmanna- eyjum Þá mátti sjá þaó sem kallað er „þjóðhátíð í Vestmanna- eyjum.“ „Ekkert nema fólk að staupa sig — allir að drekka,“ það var nú meiri þorstinn. Einnig kom grein í stærsta blaði landsins, á áberandi stað, þar sem blaðamaðurinn lýsti áganginum sem útlendingar verða fyrir á hótelum í Reykja- vík, þegar kvenfólkið reynir að ná sér í rekkjunaut, ókeypis áfengi eða hvort tveggja. Bjór- bannið er erlendum blaða- mönnum mikið undrunarefni og óvíða í 'heiminum svo áber- andi fjöldi fólks sem hefur mis- notað áfengi. Svona fræðslu- myndir frá Islandi eru því bæði óvenjulegar og ,,skemmtilegar.“ farangri. Hefur þessi aðferð reynzt bezt undanfarin ár því það vekur megna óánægju meðal þeirra, sem ekki hafa vín um hönd, þegar farangri þeirra er umsnúið í leit að áfengi, auk þess sem slíkt tekur glfurlegan tíma. Aðspurður kvað Jón skátana sjálfa ekki hafa haft heimild til leitar, svo að hún, ásamt löggæzlu hefði verið. algjörlega i höndum lög- reglunnar. Taldi hann að mótið hefði farið mjög vel fram og væri með því bezta sem menn myndu eftir, þrátt fyrir þá staðreynd að ölvun var til staðar. Teikni- myndin Hungur var góð hug- vekja Ein allt of þung skritar: Ofát í vorum heimi, vannærðir þjást. En átvaglið deyr af matarást. Þessi mynd var þörf athuga- semd og hugvitssamlega fram- reidd. Hún ætti að vera hentug sem uppfyllingarefni hjá sjón- varpinu og gæti ég ímyndað mér að hún yrði stór sparnaðar- liður og gott búsílag um borð i okkar illa stöddu þjóðarskútu. CELAND . * ’ ■■.:■„.'................................................................í ,.■ L .: - ■■•-■■■. - Landkynningin var moldarflag og brennivín V.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.