Dagblaðið - 13.08.1976, Page 3
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 13. ÁGUST 1976.
3
\
Er óhœtt að f lytja 400
DB sneri sér til Páls Ragnars-
sonar hjá Siglingamálastofnun
ríkisins og haföi hann eftir-
farandi um máliö að segja:
Feröalangur skrifar:
Nýlega birtist í
Þjóðviljanum frétt þar sem
skýrt var frá því að þegar einn
af starfsmönnum blaðsins kom
frá Vestmannaeyjum með nýju
ferjunni, Herjólfi, hafi hvorki
meira né minna en 400 manns
verið farþegar með skipinu og
„staðið eins þétt og í
strætisvagni."
í þessu sambandi langar mig
að koma með fyrirspurn um
hvort engar öryggisreglur gildi
um hámarkstölu farþega á
þessu skipi. Geta má nærri að
um borð muni ekki fyrirfinnast
björgunarbátar sem geta tekið
svo mikinn fjölda farþega sem
þetta. Fróðlegt væri því að vita
hvort engar öryggisreglur gildi
um svona flutninga.
miðað við að allir farþegar hafi þessa farþega er til staðar, bæði fylgt reglum og lögum Siglinga-
sæti. Öryggisbúnaður fyrir bátar og belti. Er þar í öllu málastofnunarinnar.
Herjólfi er settur hámarks-
farþegafj.öldi, eins og öðrum
flutningatækjum, og er hann
mismunandi eftir árstímum. Að
sumarlagi, þ.e. frá aprílbyrjun
til októberloka, er leyfilegur
fjöldi 360 farþegar en yfir há-
veturinn er hámarkið 200
farþegar. Er í síðara tilfellinu
Þessi mynd var tekin þegar Herjólfur lagði að í Vestmannaeyjum í fyrsta skipti.
farþega með Herjólfi?
Fíknilyfin: dreifing, sala og smygl
HVER BER ÁBYRGDINA?
Hver ber ábyrgðina
hér er á boðstólum?
á því gifurlega magni fíknilyfja «em
Helgi skrifar:
Mikið hefur verið rætt og
ritað um fíknilyf undanfarið,
bæði í fjölmiðlum og á öðrum
vettvangi. Hefur þar komið
fram að fíknilyfjasalar og
smyglarar hafa með höndum
umfangsmikla starfsemi, sér-
staklega meðal unglinga okkar.
Flest munu lyfin upprunnin frá
Evrópu og Afríku en varnar-
liðsmenn af Keflavíkurflug-
velli hafa einnig verið iðnir við
sölu og dreifingu þeirra meðal
íslendinga.
Það sem einkennir fíknilyfja-
mál okkar tslendinga er hik og
þekkingarleysi þeirra sem
skulu uppræta sölu og
dreifingu til að koma í veg fyrir
notkun. íslenzkir skatt-
greiðendur borga stórfé fyrir
löggæzlu vegna þessara mála.
En hvað er gert? Þegar fíkni-
lyfjasalinn kemur fyrir dóm-
stólana er tæplega meira gert
en að klappa á koll hans og
segja honum að þetta sé ljótt að
gera (dómssættir eru jafnvel
tíðkaðar í þessum alvarlegu
málum). Síðan fer saka-
maðurinn aftur út í þjóðfélagið
og heldur iðju sinni áfram,
sömu mennirnir eru teknir
trekk í trekk og sömu yfirvöld
gera aftur og aftur lítið úr
þessum hræðilega glæpi þeirra
og eru þeirri því samsekir.
Að selja, smygla eða dreifa
fíkniefnum á meðal borgara
þjóðfélagsins er undan-
tekningarlaust einn ógeðlegasi
og lágkúrulegasti glæpur sem
hægt er að fremja. I þeim
löndum þar sem dauðarefsing
er tíðkuð er henni stundum
beitt vegna slíkra mála en
henni er ekki til að dreifa hér.
Samkvæmt okkar dómskerfi
eigum við aðeins þann kostinn
að dæma án undantekninga þá
sem selja, smygla eða dreifa
fíknilyfjum í lífstíðarfangelsi
og ævilangt æruleysi. Þá sem
staðnir eru að notkun þessara
lyfja á að dæma skilyrðislaust í
endurhæfingu og lækningu.
Þetta fólk á að skrá í opin-
berum gögnum sem fíknilyfja-
sjúklinga og meðhöndla það
samkvæmt því.
Þar sem varnarliðið hefur átt
verulegan, ef ekki mestan.þátt
í dreifingu fíknilyfja meðal
íslendinga, og þá sérstaklega
meðal unglinga, og hefur
óbeint gert hluta þeirra að
fiknilyfjasjúklingum, verður
nú þegaraðeinangraherstöðina
algjörlega frá isienzku þjóð-
félagi. Nauðsynlegt er að
stjórnvöld okkar fari fram á
skaðabætur við bandarísku
ríkisstjórnina, því hún hlýtur
að bera ábyrgð á gerðum
manna sinna hér.
ÞOKK FYRIR
SKATTASKRIF
Raddir
lesenda
Breiðbakur skrifar:
Hafið þökk fyrir skrif ykkar
uin skattamálin, Dagblaðs-
menn. Þetta eru mjög
nauðsynleg skrif fyrir þjóð-
félagsþegnana. Það er
ánægjulegt fyrir okkur, sem
ekki kunnum að svíkja undan
skatti , að sjá svart á hvítu
hverjir það eru sem raun-
verulega halda þjóðfélaginu
uppi, láglaunafólkið eða „yfir-
stéttin". Meira af slíku því
aldrei er góð vísa of oft kveðin.
Þetta eru mál sem alla tíð eru í
brennidepli.
Raddir
lesenda
Hríngið ísíma
83322
milli kl.
13 og 15
✓
Eiga karlmenn að safna
skeggi?
Sigríður Kristjánsdóttir nemi:
Nei, það finnst mér alls ekki.
Annars finnst mér skárra að sjá
þá með yfirskegg, ef þeir eru að
hafa þetta á annað borð.
V
Guðrún Sigurðardóttir nemi: Ja,
ég veit nú ekki, það fer alveg eftir
manninum. Það er mjög misjafnt
hvernig þeim fer að hafa skegg.
Gréta Haraldsdóttir húsmóðinJá,
það getur vel komið til greina, ef
mönnum fer vel að hafa skegg, þá
er það allt í lagi.
Iris Ægisdóttir húsmóðir.Mér
finnst nú aðalatriðið að það fari
viðkomandi vel, annars ætti hann
ekki að safna.
Ragnheiður Ragnarsdóttir
afgreiðslustúlka: Mér finnst
karlmenn ættu að hugsa sig
tvisvar um áður en þeir fara að
safna alskeggi. Það er allt í lagi að
safna yfirskeggi, annars verður
þetta að fara viðkomandi vel,
annars ætti hann að sleppa því
alveg.
Valdís Kristinsdóttir húsmóðir:
Það er alveg undir því komið
hvernig þetta fer manninum. Ef
hann er myndarlegri með skeggið
á hann að hafa það, annars rakar
hann sig auðvitað.