Dagblaðið - 13.08.1976, Síða 4

Dagblaðið - 13.08.1976, Síða 4
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 1976. Blaðastyrkirnir: „Hin" dagblöðin fó 13,5 milljónir. Sljórn- mókrf lokkamir fó 11 „Tillaga fulltrúa stjórnmála- flokkanna var samþykkt óbreytt og þessum blaða- styrkjum skipt í samræmi við það,“ sagði Höskuldur Jónsson ráðuneytisstjóri í fjármálaráðu- neytinu, í viðtali við Dagblaðið, um ríkisstyrki þá er renna árlega til dag- og landsmála- blaða. „Þessu er skipt í þrjá staði, í fyrsta lagi erukeypt 200 eintök af pólitísku dag- blöðunum 5 og Nýjum þjóð- málum, og dreift á sjúkrahús. Síðan rennur ákveðin upphæð til stjórnmálaflokkanna í sam- ræmi við fjölda þingmanna bvers flokks um sig og enn er greidd ein ákveðin upphæð til þingflokkanna sem þeir hafa til ráðstöfunar." Sem kunnugt er hafnaði Dagblaðið þessum ríkisstyrk. Samkvæmt tillögu fulltrúa stjórnmálaflokkanna skyldi upphæðinni, sem í ár er 27 milljónir og 550 þúsund, varið þannig: 13.500 milljónir skulu fara til kaups á áskriftum, 2,6 milljónir til greiðslu á leigu til NTB-fréttastofunnar en til seinni liðanna tveggja fara samtals 11.450 milljónir. „Því fé er yfirleitt varið til styrktar landsmálablöðum flokkanna," sagði Höskuldur. „Við fylgjumst annars ekkert með því, samkvæmt reglugerð eigum við aðeins að greiða þetta fé þeim sem taka eiga við því.“ Þá sagði Höskuldur að nú væri í athugun hjá Lands- símanum hversu mörg blöð not- færðu sér NTB fréttastofuna. Eins minnti Höskuldur á, að ríkisfyrirtækin og ráðuneytin auglýstu mikið í öllum dagblöð- um „eiginlega meira en við höfum þörf fyrir.“ „Við vildum kaupa öll blöðin til þess að geta dreift þeim á sjúkrahúsin," sagði Höskuldur. „Bréfið, sem við sendum Dagblaðinu, var hins vegar eitthvað ógætilega orðað svo að þeir töldu þetta styrk og vildu ekki þiggja boðið.“ —HP DRUKKIN KONA BRYTUR RUÐUR Brotnar voru fimm rúður í gluggum afgreiðslusalar bæjar- skrifsíofunnar á Seltjarnarnesi á laugardagsmorguninn. Lög- reglan á Nesinu var kölluð til og þegar Ingimundur Helgason varðstjóri kom á staðinn var ung kona komin inn í af- greiðslusalinn. Konan, sem er 32ja ára gömul, gat engar skýringar gefið á ferðum sínum. Hún viðurkenndi að hafa brotið rúðurnar. Þetta var um kl. 7 um morguninn og konan áberandi ölvuð. —A.Bj. Hringbraut 121 Sími 28601 Skotið xið bakdyriiar að Skola\örðus(ig 1A. Þarna \ar kominn mikill eldur og allt orðið svart. Járnið á hurðinni er talið hafa bjargað luisinu. .lárnkhedda hurðiii sést til hægri. DB-mvnd Arni Páll. Reynt að kveikja í Skólavörðustíg 1A Eldglaður maður ó f erð í borginni „Það er greinilegt af verksum-, merkjum að þarna hefur verið kveikt í. Líta má málið mjög al- varlegum augum þvi telja má nokkuð víst að eldurinn hefði verið kominn inn í húsið ef bak- hurðin hefði ekki verið járni klædd." Þetta mælti Gísli Guðmundsson rannsóknarlögreglumaður í sam- tali við DB, en hann rannsakaði málið af lögreglunnar hálfu. Slökkviliðið var kvatt að baklóð hússins Skólavörðustigs 1A rétt um klukkan sjö í gærmorgun. Eldur var þar í kassadrasli. Slökkviliðinu gekk greiðlega að ráða niðurlögum eldsins. Gunnar Sigurðsson vara- slökkviliðsstjóri sagði í viðtali við DB að slökkviliðið hefði marg- sinnis varað verzlunareigendur og aðra, sem hefðu miklar umbúðir undir höndum, við að skilja þær eftir við hús sín. Það væri of mikil freisting fyrir ó- prúttna brennuvarga að kveikja í draslinu. Fyrir nokkrum dögum varð eldur laus í einhverju drasli að húsabaki við Verzlunarbankann. Þar lék grunur á um íkveikju, sem víst þykir að verið hafi á Skólavörðustígnum. Ekki liggur ljóst fyrir hvort íkveikjur þessar eru í beinu sambandi hvor við aðra. En væri svo ættu þeir, sem orð vara- slökkviliðsstjórans hér að ofan eiga við, að gæta að sér. Vera kann að einhver eldglaður náungi gangi nú um götur og húsasund þegar almenn umferð er lítil orðin eða ekki byrjuð. Athæfi hans gæti orðið afdrifaríkt ef ekki sést til i tíma. -ASt. Bátur á reki við Nesið Þegar fólk kom á fætur á Seltjarnarnesi í gærmorgun mátti sjá smábát með utanborðsmótor á reki skammt undan landi sunnan megin við nesið. Lögreglan gerði þegar ráðstafanir til þess að draga bátinn á land. Á meðan á björgunaraðgerðinni stóð kom þar að maður sem reyndist vera bátseigandinn. Bátinn hafði slitið upp á Álftanesi og rekið yfir að Sel- tjarnarnesi og hafði eigandinn verið að leita hans. -A.Bj. Félögin greiða sjálf Jón Fannberg kaupmaður, sem einnig á í Hátúni 6 sf„ greiðir ekki sjálfur skatt af þeirri byggingu heldur er það sérstakt félag. Það greiðir 699.851 krónu í tekjuskatt og 1.078.966 krónur í eignarskatt. Þá greiðir það 24.300 í aðstöðugjald. Þá er einnig á vegum Jóns Garðastræti 2 sf. en það greiðir 494.403 krónur í tekjuskatt og 530.292 í eignar- skatt. Aðstöðugjald þess er 41.000 krónur. Það gerist alltaf eitthvað í þessari Viku: Með þúsundkall á borðstofuborðinu. Viðtal við Öglu Mörtu um innanhússkreytingar um lífshamingjuna — Svipmyndir af Ueo Laine — Smásaga eftir Christiar — Yes í poppþœtti — Enzo Ferrari • bílaþœtti —

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.