Dagblaðið - 13.08.1976, Síða 13
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 13. ÁGUST 1976.
13
hann hryggnum
I var œgilegt"
i lék hann með Standard Liege á Spáni og meiddist illa í baki ef tir
öðru sœti — tapaði fyrir Feyenoord 1—2 í úrslitum
liði og gerði þá að 1. deildarliði.
Hann kom þvi til okkar og æf-
ingarnar hjá honum eru engu lík-
ar. Hann er ákaflega harður en
snjall. Hann var áður leikmaður
með FC Liege og mér virðist þetta
vera að koma hjá okkur. Ég er
ánægður með spilið hjá okkur á
Spáni.
Nú, en af Charleroi og Guðgeiri
er það að frétta að hann er nýfar-
inn til Casablanca og þar mun
Charleroi leika við landslið
Marokkó.
Royale Union er nú á Spáni og
ég var einmitt að lesa í blöðunum
um leik Union og Strassbourg,
sem Union tapaði 4-0. Þar fengu
þeir Stefán og Marteinn góða
dóma.
Næst hjá Standard er stutt mót
á Tenerife á Spáni og þann 12.
september byrjar deildin á fullu
Annars voru hér tveir hollensk-
ir blaðamenn að tala við mig og
voru að spyrja um íslenzka lands-
liðið. Það er greinilegt að Hol-
lendingum stendur ekki á sama
um ieikinn gegn íslandi. Þeir
sögðu að Johan Cruyff og Johan
Neeskens myndu ekki leika með.
Já, Hollendingum stendur ekki á
sama, enda vinnum við þá í sept-
ember “
Asgeir Sigurvinsson með knöttinn í 1. deildarleik í Belgíu. í vikunni lék Ásgeir með liði sínu Standa'rd á
Spáni.
Enn verður Viren oð
sœtta sig við ósigur
— á minningarleikum um hlauparann mikla, Paavo Nurmi
Lasse Viren, sem á Olympíu-
leikunum í Montreai skipaði sér á
bekk með Paavo Nurmi og Emil
Zatopek, þegar hann sigraði í
10000 og 5000 metra hlaupunum,
en í Miinchen hafði hann leikið
sama leik, hefur átt erfitt
uppdráttar eftir leikana enda
sjálfsagt þreyttur eftir hið feiki-
lega álag.
A minningarleikum um landa
sinn, Paavo Nurmi, hafnaði
Lasse Viren aðeins'í þriðja sæti,
var langt frá sínu bezta í 5000
metra hlaupinu. Virtist Lasse
þreyttur — og hlaut sinn versta
tíma í hlaupinu í ár, 13:39.34.
Óvæntur sigurvegari í hlaupinu
varð Paul Geis frá Banda-
rik.iunum en hann hljóp á
13.35.12. Matti Vainio frá Finn-
landi varð annar en hann hljóp á
13.37.41..
Seppo Hovinen, sem fyrir
Olympíuleikana í Montreal var
álitinn sigurstranglegastur spjót-
kastinu, ivkk svohlla uppreisn
æru þegar hann vann gullhafann
frá Montreal, Ungverjann Miklos
Nemth.
Fvrr á árinu hafði Hovinen
verið ósigrandi í spjótkasti og
ávallt sigraði hann Ungverjann
Nemeth. En þegar á Olympíu-
leikana kom náði Nemeth firna-
góðu kasti — því langlengsta sem
hann hefur náð fyrr og síðar
þegar í fyrstu tilraun. Hann kasti
þá 95.58 .-: metra og setti
heimsmet — ekki nóg með það
heldur setti hann aðra keppendur
út af laginu og voru þeir yfirleitt
langt frá sínu bezta. Þó enginn
eins og Hovinen — hann kastaði
rétt um 84.26 metra.
Já, svona ganga íþróttir fyrir
sig — óútreiknanlegar. En í
Finnlandi fór ekkert á milli mála
hver sigraði. Hovinen kastaði
spjótinu 85.84. Annar varð Miklos
Nemeth 84.78. Gyorgi Erdelyi
Ungverjalandi varð þriðji —
kastaði 81.51 og fjórði varð
Hannu Sittonen, silfurhafinn frá
Montreal, en hann kastaði 81.46.
Kenyabúinn Mike Boit, sem
missti af Olympíuleikunum vegna
ákvörðunar ríkisstjórnar Kenya
að draga keppendur sína út úr
leikunum sigraði örugglega i 1500
metra hlaupinu. Hins vegar var
timi Kenvabúans ekkert sér- j
stakur, 3:38.29 — það er.ekki á
mælikvarða hans.
Sem fyrr á mótum í ár var Mac
Wilkins öruggur sigurvegari í
kringlukastinu. Hann hafði mikla
yfirburði — kastaði rúmum fimm
metrum lengra en næsti maður.
Hins vegar á mælikvarða Wilkins
sjálfs var árangur hans ekkert
sérstakur, 65.84.
A1 Feuerbach, einnig Banda-
ríkjunum, var hinn öruggi sigur-
vegari í kúluvarpinu, þegar hann
varpaði kúlunni 20.35. Annar
varð Reijo Stahlberg frá Svtþjóð,
19,65. Silfurhafinn í stangar-
stökkinu frá Montreal, Antti
Kalliomaeki frá Finnlandi,
sigraði í stangarstökkinu þegar
hann stökk 5.45 eða sömu hæð og í
Montreal. Annar varð Terry
Porter frá Bandaríkjunum en
hann stökk 5.25.
Dan Ripley frá Bandarikjunum
og Raimo Eskola frá Finn|andi
stukku báðir 4.90.
Já, árangur i Finnlandi var
ekkert sérstakur eins og af þessu
má sjá. Stjörnurnar þreyttar eftir
i Olympíuleikana.
Heilt lið heim —
sumir of gamlir
oðrir of slakir!
Danir hafa farið illa út úr atvinnu-
mcnnskunni í knattspyrnu að því
leyti að fjölmargir Danir hafa árlega
yfirgefið heimalandið í von um gull
og græna skóga í atvinnuknattspyrn-
unni. Þróunin hefur verið sú, að fjöl-
margir hafa árlega yfirgefið heima-
landið — og dönsk félög setið heima
með sárt ennið.
En í sumar varð hlutfallið öfugt.
Hvorki fleiri né færri en 11 leikmenn
sneru aftur til Danmerkur, já heilt lið
sneri til Danmerkur eftir atvinnu-
mennsku. Sumir voru orðnir of
gamlir, aðrir voru bara ekki nógu
góðir en dönsk knattspyrna er himin-
lifandi.
Hitt ber svo á að líta að sex leik-
menn hafa í sumar freistað gæf-
unnar. Þeir eru: Jens Kolding til
Roda Rotterdam í Hollandi, Niels
Tune frá Holbæk til Hamborgar,
Carsten Nielsen til Borussia
Mönchengladbach, Svend Andersen
fór til Eintracht Trier í V-Þýzkalandi,
liðs Elmars Geirssonar. Loks fór
Preben Elkjær til Kölnar.
Þeir sem komu heim — voru ann-
aðhvort of gamlir eða ekki nógu
góðir, þó auðvitað áhugamannafélög í
Danmörku taki þeim opnum örmum
— eru: Johnny Hansen sá frægi
kappi er varð Evrópumeistari með
Bayern Munchen nú síðastliðið vor.
Hansen er orðinn of gamall — en fer
til liðs við sína gömlu félaga í Vejle.
Jörgen Kristansen er lék með Feyen-
oord fór til Köge og Heino Hansen er
lék með Hamborg en vildi heldur
heim þar sem konan hafði heimþrá.
Þetta eru frægustu kapparnir sem
sneru heim í sumar.
Þetta er vissulega ánægjuleg þróun
fyrir Dani — þó auðvitað ' betri
menn fari. Skyldi slík þróun koma
upp hér á tslandi. En vonandi miss-
um við tslendingar ekki eins marga
leikmenn í atvinnumennsku og Dan-
ir.
Um heigina verða leiknir þrír
ieikir í 1. deild og fjórir leikir í 2.
deild. Það sem einkum vekur athygli
í sambandi við leiki 1. deiidar er
viðureign botniiðanna við efstu lið
1. deildar.
A sunnudag mætast í Laugardal
Þróttur og Fram. Leikurinn er ákaf-
lega mikilvægur báðum liðum. Vilji
Þróttur komast hjá aukaleik um fallið
við það lið er hafnar i öðru sæti 2.
deildar þá verður hið unga lið Þróttar
að hljóta stig — helzt tvö. En áreiðan-
lega verður Fram ekki á þeim buxun-
um að gefa stig — hvert stig telur nú í
hinni hörðu baráttu um tslands-
meistarabikarinn.
í Hafnarfirði verður viðureign FH
og Vals í sviðsljósinu — bæði lið
munu áreiðanlega ekkert gefa eftir.
Af öðrum leikjum heigarinnar í 1.
deild er það að segja, að Víkingar
fær Hauka í heimsókn, ísfirðingar
ferðast til Akureyrar og leika við KA
og loks leika Selfyssingar við Vest-
manneyinga í Eyjum. Allir leikirnir
hefjast kl. 14 nema leikurinn í Eyj-
um. Hann hefst kl. 17.
Staðan í 1. deild er nú:
Valur 13 8 4 1 37-13 20
Fram 13 8 3 2 20-15 19
Breiðablik 12 6 2 4 16-14 14
Akranes 12 5 4 3 16-16 14
Víkingur 12 6 1 5 16-16 13
KR 13 3 5 5 19-18 11
Keflavík 13 5 1 7 18-20 11
FH 12 1 4 7 8-20 6
Þróttur 12 1 2 9 9-26 4
Baráttan í 2. deild er einnig í al-
gleymingi þó ÍBV standi bezt að vfgi
og Þór sé nokkuð öruggur um annað
sætið.
fara til Keflavíkur á morgun og hefst IBV 11 9 2 0 35-9 20
leikur þeirra kl. 19 við ÍBK, íslands- Þór 12 7 4 1 29-11 18
meistarar Akraness leika á Kópavogs- Ármann 12 6 3 3 22-13 15
velli við Breiðablik — fróðlegt veröur Völsungur 13 5 3 5 20-21 13
að sjá útkomu viðureignar liðanna KA 13 4 4 5 21-25 12
þar sem bæði lið hafa hlotið 14 stig. ísafjörður 11 3 4 4 13-14 10
Fjórir leikir verða í 2. deild — Þór Haukar 12 3 2 7 18-25 8
ferðast suður fyrir heiðar og leikur Selfoss 12 2 3 7 18-32 7
við Ármann á Laugardalsvelli. Reynir Reynir 12 2 1 9 11-37 5
Það er hart barizt í leik Vais og Fram á miðvikudag. Hér hefur Jón
Pétursson betur en Ingi Björn. Dýri Guðmundsson er við öllu búinn ef
Jón skyldi missa knöttinn yfir sig. DB-mynd Bjarnleifur.
Botnfið 1. defldar
gegn efslu fiðunum