Dagblaðið - 10.09.1976, Qupperneq 17
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1976.
17
Norðaustan 2—3 vindstig,
skýjað. Hiti 6—8 stig í dag en
næturfrost.
Kristín Helgadóttir lézt 24. ágúst
1976. Hún fæddist að Hóli í
Hörðudal 21. apríl 1888, dóttir
hjónanna Helga Guðmundssonar,
hreppstjóra og Asu Kristjáns-
dóttur. Kristín stundaði nám í
Kvennaskólanum i þrjú ár og út-
skrifaðist 1914. Asamt eftirlif-
andi manni sínum, Hirti Ög-
mundssyni, bjó hún lengst af að
Alfgtröðum i Hörðudal og var
Hjörtur hreppstjóri sveitarinnar
en Kristín formaður kvenfélags-
ins. Dætur þeirra hjóna eru þrjár,
Ragnheiður, Ása og Erla. Síðustu
sex æviárin bjuggu Kristín og
Hjörtur í Reykjavik.
Magnús Bergmann Sigurðsson
lézt 3.sept. 1976. Hann fæddist að
Geitagili í Örlygshöfn þ. 12. júlí
1912, sonur hjónanna Sigríður
Guðmundsdóttur og Sigurðar
Jónssonar. Hann ólst upp hjá for-
eldrum sínum og gekk að algeng-
um störfum til sjós og lands. 1954
gekk hann að eiga eftirlifandi
konu sína Nönnu dóttur Svein-
bjargar Sigfúsdóttur og Péturs
Hoffmanns Salómonssonar og
settust þau að á Patreksfirði.
Þeim varð fimm barna auðið, 3ja
sona og 2ja dætra. Einnig ólu þau.
upp dóttur Nönnu. Öllum
drengjunum urðu þau að sjá á
bak, en dæturnar lifa.
Kristín Guðmundsdóttir
Skólabrú 2, andaðist 8. sept. í
Landakotsspítala.
Útivistarferðir
Laugard. 11.9. kl. 10. Selvogsheiði berjaferð
og hellaskoðun (Bjarghellir, Gapi, Strandar-
héllir o. fl.) (Hafið ljós með). Fararstj. GIsli
Sigurðsson og Jón I. Bjarnason. Verð 1000 kr.
Sunnud. 12.9. kl. 10. Brennisteinsfjöll,
fararstj. Einar Þ. Guðjohnsen. Verð 1200 kr.
Kl. 13 Krísuvíkurherg. fararstj. Gisli Sigurðs-
son. Verð 1000 kr. fritt f. börn m. fullorðnum.
Brottför frá BSl vestanverðu.
Færeyjaferð 16.-19. sept.. fararstj.
Haraldur Jóhannsson. örfá sæti laus.
Snæfellsnes 17.—19. sept. Gist á Lýsuhóli.
Útivist.
Ferðafélag íslands
Föstudagur 10. sept. kl. 20. 1. Landmanna-
laugar — Eldgjá. 2. Hvanngil — Markar-
fljótsgljúfur — Hattfell. Þetta er það land-
svæði, sem árbók Fl 1976 fjallar um.
Laugardagur 11. sept. kl. 08. Þórsmörk. Far-
miðasala og nánari upplýsingar á skrifstof-
unni.
Ferðafélag lslands.
Tiikynningar
Suðurnesjabúar.
1 vörzlum lögreglunnar í umdæminu er fjöldi
reiðhjóla í óskilum, svo og aðrir hlutir eins og
úr, gleraugu o.s.frv. Eru eigendur munanna
beðnir að vitja þeirra á lögreglustöðina
Hafnargötu 17. Keflavík fyrir 20. þ.m. Upp-
boð á óskilamunum verður haldið strax eftir
20. sept. samkvæmt nánari auglýsingu síðar.
Fjölbrautaskólinn
Breiðhoiti
byrjar starfsemi sina mánudaginn 13. sept.
Allir nemendur skólans mæti kl. 8.30 þann
dag.
Orgeltónleikar
Her í» landi er staddur austurrískur orgel-
leikari, Martin Haselböck. Mun hann halda
tvenna tónleika, hér. hina fyrri í Akureyrar-
kirkju, sunnudaginn 12/9, og hina síðari
mánudaginn 13/9 i Fíladelfiu i Reykjavík.
Martin Haselböck er fæddur í Vínarborg
1954, og hefur hann numið tónlist frá blautu
barnsbeini, enda af frægi tónlistarfjölskyldu
kominn. Hann hefur lokið námi I kirkju-
tónlist og siðastliðið vor lauk hann einleiks-
prófi á orgel. Hefur hann haldið tónleika víða
um Evrópu við mjög góðar viðtökur, og er nú
að leggja í tónleikaferð vestur um haf.
A efnisskrá tónleikanna hér verða m.a.
verk eftir Bach, Mozart. Mendelssohn og
Messiaen.
Tónleikarnir hefjast klukkan 21 báða
dagana.
Frá Stofnun
Árna Magnússonar
Handritasýning hefur að venju verið opin í
Árnagarði í sumar. Hefur aðsókn verið góð
en fer nú dvínandi með haustinu. Ætlunin er
að hafa sýninguna opna almenningi í síðasta
sinn næstkomandi laugardag, 11. september,
á venjulegum tíma, kl. 2-4 siðdegis.
Undanfarin ár hafa margir kennarar
komið með nemendahópa til að sýna þeim
handritin. Ámastofnun vill örva þessa
kynningarstarfsemi. og verður sýningin höfð
opin í þessu skyni eftir samkomulagi enn um
skeið.
Ök i blindni út ó aðalbraut
Seint í gærkveldi varð um-
ferðaróhapp á Rauðarárstíg
við Hverfisgötu Bifreið var á
leið norður Rauðarárstíg og.
ætlaði áfram yfir aðalbraut-
ina. I sömu mund bar að bíl
sem var á leið vestur
Hverfisgötu. Skipti það eng-
um togum að bíllinn af
Rauðarárstígnum kastaðist
til og lenti á umferðaskilti
sem er á eyju við Hverfisgöt-
una.
Gamall maður sem ók
bílnum var fluttur f slysa-
deild. Meiðsli hans munu
ekki vera talin alvarleg.
Malibu 1973 til sðlu
Ekinn 78 þús. km. Blár. Beinskiptur, 6
cyl. Útvarp og kassettutæki. Verð
aðeins kr. 1250.000.
MARKAÐSTORGIÐ,
Einholti 8, sími 28590.
Bílosendlar
óskast strax
Uppl. í síma 27022
BIABIB
1
DAGBLAÐIÐ ER SMÁ AUGLÝSINGABLAÐIÐ
SIMI27022
ÞVERHOLTI 2
ATH.
Til sölu stór og fullkominn tester
(mótorstillingatæki) með afgas-
mæli. Uppl. í síma 51588 eftir kl.
8 á kvöldin.
Til sölu Husqvarnaeldavél
með fjórum hraðsuðuhellum,
verð 30.000, Rafha eldavél með
tveimur hraðsuðuhellum á kr.
12.000 og barnakerra á kr. 5000.
Uppl. í síma 11797.
Notuð eldhúsinnrétting
ásamt stálvaski til sölu og einnig
Baby strauvél. Uppl. í síma 32145
eftir kl. 18.
Hjólhýsi.
Sprite 400 árg. '71 til sýnis og sölu
að Nýbvlavegi 54 Kópavogi. Verð
kr. 375.000. Uppl. í síma 41766.
Til sölu vegna flutnings
hjónarúm án dýnu, tveir fata-
skápar og hillur, allt sérsmiðað.
Ársamalt. Einnig er til sölu sjón-
varp, HMW 24" á standfæti, 2!4
árs. Uppl. í síma 53102.
Til sölu barnarimlarúm
með færanlegum botni, annað
stærra barnarúm og 4 negld snjó-
dekk, 590x13 Uppl. í síma 43074
eftirkl. 18.
Fullkominn froskbúningur
með 2 kútum og öllu tilheyrandi
til sölu. Uppl. í síma 81469.
Ný harmoníkuhurð
úr eik, ntunstruð, ekki slétt, og
rafmótor, 1 eða 1‘4 ha, til sölu,
einnig litið notaður pels. Uppl. í
síma 82170.
Philco Bendix þvottavél
til sölu, sjálfvirk, einnig eldri
gerð með rafmagnsvindu, svefn-
bekkur með lausu baki og
áföstum rúmfatakassa, kápa, lítið
númer, og síður kvöldkjóll. Uppl.
í síma 31173.
Passap Duomatik prjónavél
ásamt nýju drifi til sölu. Uppl. í
síma 25179.
Túnþökur til sölu.
Upplýsingar í síma 41896.
1
Óskast keypt
D
Óska eftir að kaupa
talstöð í sendibíl. Upplýsingar í
síma 71044.
Öska eftir notuðu
en vel með förnu ensku Wilton
eða Axminster gólfteppi, stærð
ca 4x4 m. Uppl. í síma 15653 eða
13417.
Rafmagnsofnar.
Góðir notaðir þilofnar
Uppl. í síma 42243.
óskast.
1
Verzlun
i
Frá Hofi Þingholtsstræti 1:
Hugsir þú þér húfu að prjóna,
hanzka, peysu, leppa í skóna,
af öllu þessu öðlast lof,
enda skiptir þú. við Hof.
Brúðuvöggur á hjólagrind,
margar stærðir, hjólhestakörfur
og margar stærðir af bréfa-
körfum, þvottakörfum og hand-
körfum. Þá eru ávallt til barna-
vöggur með eða án hjólagrinda,
klæddar eða óklæddar. BÍindra-
iðn, Ingólfsstr. 16, sími 12165.
Rýmingarsala.
Enskar vasabrotsbækur selj-
ast nú með 33% afslætti frá
gamla lága verðinu. Gerið
ótrúlega góð kaup og komið í
Safnarabúðina Laufásvegi 1.
Hjartagarn.
Eigum enn marga liti af ódýra
Hjartagarninu. Verzlunin Hof
Þingholtsstræti 1.
Kópavogsbúar:
röndóttir hnésokkar, ódýrir
istrigaskór. baðhandklæði, kringl-
lóttir borðdúkar, stærð 1,60,
'gjafavörur, snyrtivörur, leikföng.
Hraunbúð, Hrauntungu 34.
Þríþættur plötulopi
í öllum sauðalitunum selst á vgrk-
smiðjuverði, auk þess gefum við
magnafslátt. Verzlunin er opin
frá kl. 1.30—6. Teppi hf. Súðar-
vogi 4, sími 36630 og 30581.
Þumalína, Domus Medica.
Vinsamlegast lítið inn og skoðið
Relax-slökunartækin og
Novafóninn, svissneska undra-
tækið. 1 Þumalinu er einnig að
finna Weleda jurtasnyrti-
vörurnar fyrir pabba, mömmu og
barnið og landsins ódýrustu
bleiu. Nýjar vörur nær daglega
Sendum í póstkröfu. Þumalina,
búðin þín. Domus Medica, sími
12136.
Leikfangahúsið Skólavörðustíg
10.
Indiánatjöld, bílabrautir, margar
gerðir, fótboltar, bobbborð,
biljardborð 1-2-2-4 fet. tennisborð,
master mind, kínaspil, Yatzy,
rúllettuspil, veltipétur, brúðuhús,
hestar á hjMum, rugguhestar,
hjólbörur, bensínstöðvar D.V.P.
dönsku dúkkurnar, nýir lego’
kúbbar, smíðatól, módelbílar.
Póstsendum. Leikfangahúsið,
Skólavörðustíg 10, sími 14806.
Tvíbreiður svefnsófi
til sölu, mjög vel með farinn.
Verð 30 þús. Uppl. í síma 27135
eftir kl. 7.
Kojur til sölu.
Uppl. í síma 35806 milli kl. 7 og 10
á kvöldin.
Sófasett til sölu,
sófi og tveir stólar og sófaborð.
Uppl. i síma 74715 eftir kl. 17.
Búslóð til sölu.
Þar á meðal antik svefnherbergis-
húsgögn, hjónarúm, fataskápur,
snyrtiborð með spegli og náttborð
með marmaraplötum, mjög vel
með farið, einnig gömul Pfaff
saumavél i borði o.fl. Uppl. i síma
18164 eða að Ingólfsstræti 10, 2.
hæð.
Hjónarúm til sölu,
verð kr. 15.000. Uppl. í síma
38716.
Sófasett til sölu,
tvíbreióur svefnsófi, 2 stólar
borð. Uppl. í sima 74455.
og
Hvítt járnrúm
til sölu. Uppl. í sima 35833 milli
kl. 15 og 20.
Sófasett og sófaborð
til sölu. Einnig er bílstóll til sölu á
sama stað, selst ódýrt. Uppl. í
síma 33962.
Borðstofusett,
antikskápur, hjónarúm og svefn-
bekkir til sölu. Uppl. í síma 23441.
Gott söfasett,
4ra sæta sófi og 2 stólar, til sölu.
Uppl. i síma 82387.
Sjónvarp
verð kr. 50 þús., tvíbreiður svefn-
sófi með 2 stólum, verð 50 þús.,
tölva HP 25, verð 60 þús. til sölu.
Sími 44109.
Hvíldarstólar:
Til sölu fallegirþægilegirhvíldar-
stólar með skemli, tilvalin tæki-
færisgjöf. Lftið í gluggann. Tök-
um einnig að okkur klæðningar á
bólstruðum húsgögnum.
Bólstrunin Laugarnesvegi 52,
sími 32023.
Antik.
Mjög fallegt borðstofusett
(afsýrt) til sölu af sérstökum
ástæðum. Vel með farið. Uppl. í
síma 43851 eftir kl. 7.
Furuhúsgögn.
Til sýnis og sölu sófasett, sófa-
borð, vegghúsgögn, hornskápar,
borðstofusett o.fl. Húsgagna-
vinnustofa Braga Eggertssonar
Smiðshöfða 13, Stórhöfðamegin,
simi 85180.
Svefnhúsgögn.
Ódýr nett hjónarúm, svefnbekkir,
tvíbreiðir svefnsófar, opið kl. 1 til
7 mánudag til föstudags. Sendum
í póstkröfu um land allt. Hús-
gagnaverksmiðja Húsgagnaþjón-
ustunnar, Langholtsvegi 126, simi
34848.
I
Fatnaður
D
Lítið notaður minkapels
til sölu, einnig brúðarkjóll,
ljósblár, (tækifæris-) með slóða,
stærð 38—40. Uppl. í síma 66229.