Dagblaðið - 25.09.1976, Page 3
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1976.
3
Óánœgja á Suðurnesjum
með framlengingarleyfi
Fiskiðjunnar i Keflavik
Magnús í Keflavík hringdi:
Ég sá í miðvikudagsblaðinu
að Fiskiðjunni í Keflavík hafði
verið veittur enn einn frestur-
inn til að gera ráðstafanir gegn
mengun og óþef frá verksmiðj-
unni. Það er megn óánægja
með þetta hér suður frá og
svnist okkur mörgum að það
hafi ekki verið ástæða til að
veita þennan frest enda hafa
forráðamenn verksmiðjunnar
aldrei tekið mark á viðvörunum
og enginn veit hvort þeir gera
það nú.
Mér er kunnugt um að vegna
þessa óþefs og óþverra frá Fisk-
iðjunni hefur orðið tjón á hús-
gögnum og húsbúnaði í ná-
grenninu því fnykurinn sezt í
gardínur og annað og fer ekki
úr þrátt fyrir þvott og hreinsan-
ir.
Verst er þetta náttúrlega
þegar verið er að bræða hráefni
sem verksmiðjan hefur þurft
að liggja með um einhvern tíma
og er orðið úldið. Það er sök sér
þegar hráefnið er nýtt. En aðal-
atriðið er það að óánægjan hér
er megn og maður á í erfiðleik-
um með að skilja hvers vegna
ekki var farið að tillögum heil-
brigðisnefndanna hér sem
lögðust eindregið gegn því að
þessi ársfrestur yrði veittur.
DOMURINN IALÞINGISRITARAMÁLINU
— Opið bréf til Más Péturssonar dómara
Þormóður Guðiaugsson, Bauga-
nesi 21, skrifar:
Már Pétursson dómari.
Ég hélt nú að hægt væri að
treysta ættgöfgi þinni og hún-
vetnskum eiginleikum. Þú ert
kominn út af hinum fræga
Birni Eysteinssyni sem þótti
mikill málafylgjumaður og lét
hlut sinn ekki fyrir óréttlætinu
en þú virðist guggna fyrir mafí-
unni og tekur fullt mark á
kauða þeim er í réttinum
mætti.
Hvaða hvatir eru það sem
stjórna gerðum þínum? Þegar
þú varst ungur framsóknar-
maður bar ég sem öldungur
mikla virðingu fyrir frjórri og
ferskri hugsun þinni er
streymdi fram af húnvetnskri
réttlætiskennd, en nú virðist þú
vera sokkinn niður í lastafen
B'ramsóknarflokksins þar sem
þú trúir betur einum ættar-
mafíukauða en tíu réttlátum
svörnum " vitnum. Getur það
staðizt að maður sé skipaður
leynilegur yfirmaður og að það
komi hvergi fram nema í réttar-
höldum og á launaseðli? Hvaða
yfirklór er það að láta máls-
réttur? E>- það ef til vill gert til
að róa hinn saklausa sem
málinu tapaði?
Hvert eru farnir þínir hún-
vetnsku eiginleikar, Már
Pétursson?
*£0S"nA‘fí"‘l‘tyrlrh
Sas &rgs:
ssa£
gg&W.
At/jyj,
j*fnlaun,
'r*m i <j(
ekki f*r
Ha*nhud.
r«nad,r«i
'e,*Ks Alþ
,**'“*•*;
<ur" um 1 **<■ t.r.i. r ?wnKi,
->«< KrrUd u'1*r*<i ,.i ,. * """ur (,
■SLí*'"* vZr' “»' •»» '*u"»n„l
>*■*'
Maó — in memoriam
Einar Mýr skrifar:
Þá er hinn blessaði Maó
formaður í Kína látinn. í minn-
ingu hins mikla foringja og
þjóðartákns Kínverja skrifa ég
því þessar línur.
Ég minnist með þakklæti
hins góða anda þessa manns og
vil senda með vinsemd inni-
legar samúðarkveðjur til
hinnar kínversku þjóðar. I
líkum anda vil ég rita þessa
grein.
Rangindi, spilling og rangt
hugarfar er orðið svo mikið hér
að‘ sannarlega þarf hér menn-
ingarbyltingu ef ísland á að
geta orðið áfram ríki velferðar,
laga og réttar cins og það hefur
verið lengst af. Hér þarf byit-
ingu hugarfarsins og nýja
réttarvitund þjóðarinnar,
kristið hugarfar í staðinn fyrir
og til útrýmingar taumdrægni
heimskommúnisma sem er til
kúgunar, ófrelsis andans, tak-
mörkunar mannréttinda og
fleira sem kommúnismi, ein-
ræði og alræði leiða af sér.
Því miður sofum við hinar
vestrænu þjóðir á verðinum.
Það er full ástæða til að taka
mark á aðvörunum Kínverja,
svo og vísindamanna Sovétríkj-
anna. Hafa má í huga ummæli
Sakharovs: ,,Hin sovézka valda-
klíka fer ávallt á bak við oss“.
Glögg dæmi um það eru hinar
svonefndu Saltviðræður þar
sem takmark hinna vesturænu
þjóða um takmörkun víg-
búnaðar er sniðgengið að fullu
af Sovétmönnum. Það er aug-
ljóst að viðræður um afvopnun
eru aðeins fyrirsláttur af hálfu
Rússa.
Það er aftur á móti ljóst síðan
■<----------------m.
Mikil þjóðarsorg ríkti í Kína
þegar Maó var allur og virðist
treginn hafa breiðzt út víðar.
Þessi m.vnd er af Maó á líkbör-
unum.
Kína varð opið land og Kín-
verjar gengu í Sameinuðu þjóð-
irnar að þeir eru friðarsinnaðir
í reynd og að hin gula hætta,
sem margir óttuðust, er í raun-
inni ekki til. Kínverjar hafa á
vettvangi SÞ sýnt velvilja til
vestrænna þjóða ásamt hrein-
skilni. Ber okkur því að þakka
þeim og launa ef við getum.
Svo: Blessuð sé minning
Maós og lengi lifi andi hans og
góð samskipti okkar við Kína
en burt með áhrif sovézkrar
valdaklíku og þeirra manna
sem ástunda fólskulegt
Moskvuhugarfar í landinu.
Raddir
lesenda
Hvaða óbyrgðarstöðu vild-
irðu helzt gegna?
Hans Eyjólfsson, vinnur í
Stjórnarráðinu: Bankastjóri. Þá
hefði maður alltaf peninga undir
höndum og væri aldrei blankur.
Það getur meira en verið að ég
sæki um stöðu.
Jónas Ketilsson lögregluþjónn:
Þetta er nú flókin spurning.
Maður þarf að hugsa sig vel um.
Jú, einhverri stöðu í banka. Já,
bankastjóri.
Hallbera Jóhannsdóttir í
Kennaraháskólanum: Þessu er
ægilega vont að svara. Ég held að
ég myndi bara leggja það fyrir
mig sem ég er að læra.
Pétur Guðmundsson, dyravörður
i Sesari: Ég veit nú ekki. Jú,
kannski hótelstjóri eða jafnvel
enn'frekarað vera eigandi Sesars.
Kristín Konráðsdóttir skrif-
stofustúlka: Eg held húsmóðir.
Ég á barn og það að ala upp börn
krefst afar mikils. Eg myndi vilja
vera heima hjá barninu mínu að
minnsta kosti fyrstu tvö árin.
Allt í lagi með annan Eið en
Oli Kristinn Trvggvason, Vest-
mannac-.vjuui, hringdi:
„Mig langar til þes.s að koma
eftirfarandi á framfæri í sam-
bandi við svar Baltasars við
spurningu dagsins um hvort
hann vildi fá aðra útvarpsstöð
hér á landi. Svar Baltasars var
á þá leið að hann vildi gjarnan
fá „annan Eið og annan lón
M'.ii;i“
V
Það er kannski allt i lagi að fá
annan Eið Guðnason en það er
rui þi'g..i (‘toiiiii Jóni Múla of
mikið. Það er alveg niðurdrep-
andi þetta uml hjá honum og
svo óhljóðin á milli (tónlistin).
Þetta ætlar að drepa niður alla
vinnugleði hjá ntönnum sem
hlusta á útvarp við vinnu sína.
Þetta svæfir þá aftur sem ekki
voru komnir út úr rúminu.
Ef maður nær að halda sér
vakandi fram að morgunbæn-
inni er hað stór upplyfting að
hlusta á hana miðað við Jón
Múla. Eg hélt að það væri skil-
yroi a<) menn gætu talað t sömu
tónhæð og nokkuð skýrt alla
setninguna út til þess að fá
þularstarf hjá ríkisútvarpinu.
Það er e.t.v. nóg og kannski
nauðsyn að vera kommúnisti til
að fá starf hjá þessari stofnun.
•
Ef önnur útvarpsstöð verður
starfrækt hér i framtíðinni
vona ég að þar verði útvarpað
einhverju öðru en háfleygu og
hálfbrengluðu menntamanna-
hjali og kommúnistaáróðri eins
og tíðkast hjá ríkisútvarpinu,
t.d. 1. des.“
Sigurður Sigurðsson nemi: Eg get
varla svarað þessu í einni setn-
ingu. Það . er svo margt. Jú.
ábyrgur þjóðfélagsþegn.