Dagblaðið - 25.09.1976, Side 4
4
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1976.
Söluböri i - Sölubörn
Komið og seljið merlci og blað
Sjúlfsbjargar ú morgun, sunnudag.
Mœtið ú eftirtöldum stöðum kl. 10 fyrir húdegi.
REYKJAVÍK: Austurbœjarskóli Álftamýrarskóli Árbœjarskóli Breiðagerðisskóli Breiðholtsskóli Fellaskóli Fossvogsskóli Hlíðaskóli Hólabrekkuskóli Hvassaleitisskóli Langholtsskóli Laugarnesskóli Melaskóli Skóli ísaks Vesturbœjarskóli Vogaskóli Hótún 12 KÓPAVOGUR: Digranesskóli Kórsnesskóli Kópavogsskóli Snœlandsskóli GARÐABÆR: Barnaskóli Garðabœjar HAFNARFJÖRÐUR: Lœkjarskóli Víðistaðaskóli Öldutúnsskóli SELTJARNARNES: Mýrarhúsaskóli. MOSFELLSSVEIT: Varmórskóli
Sjólfsbjörg félag fatlaðra.
Framboðs
frestur-
Ákveðið hefur verið að viðhafa
allsherjar atkvæðagreiðslu um kjör
fulltrúa Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur á 33. þing Alþýðusam-
bands íslands sem hefst 29. nóvember
nk.
Kjörnir verða 35 fulltrúar og
jafnmargir til vara.
Framboðslistar þurfa að hafa borizt
kjörstjórn á skrifstofu Verzlunar-
mannafélags Reykjavíkur, Hagamel 4
fyrir kl. 12 mánudaginn 27. septem-
ber.
Kjörstjórnin.
Til leigu
verzlunar- og/eða skrifstofuhúsnæði,
140 ferm, að Grensásvegi 12.
Upplýsingar veittar í síma 11930.
Verzlunarstjóri —
Afgreiðslumaður
óskast sem fyrst.
Landvélar h/f Síðumúla 21.
Kcnnslun i hinuni \insa*lu onsku-
nániskeiðum fyrir fullorðna hefsl
fiinniludan 2:!. sepl.
Bvrjendaf.lokkur — Framhaldsf lokkar — Samtalsf lokkar
hjá EnKlendinnum — Ferðalöj; — Smásöfiur — ByKgini;
málsins — Verzlunarenska
SiðdeRÍsl ímar — kvöldtimar.
Símar 10004 og
11109 (kl. 1-7)
Mólaskólinn
MÍMIR
Brautarholti 4.
Villiminkar fó engin grið
í Mosfellshreppi
Brögð að því að dýr sleppi úr minkabúum
Refaskytta Mosfellshrepps,
Tryggvi Einarsson í Miðdal, hefur
í sumar fellt 24 minka, ýmist á’
víðavangi eða heima við bæi.
Meðal þessara minka eru nokkrir
sem sloppið hafa út úr minka-
búum. 1 þeim efnum er ekki
neinn vafi, því skinn dýranna
bera það með sér. Sum dýranna,
sem Tryggvi hefur fellt, eru inn-
flutt dýr með sérstæðum skinna-
litum.
Tryggvi hefur nú verið refa-
skytta í Mosfellshreppi í 44 ár og
hefur fellt hundruð dýra. Lang-
tímum saman hefur hann haldið
hreppnum hreinum af refum og
villiminki hefur verið haldið í al-
gjöru lágmarki svo skaði af varg-
dýrum hefur verið óverulegur
eða enginn.
Tryggvi er mikill kunnáttu-
maður um meðferð loðdýra. Hann
hreinsar sjálfur skinn þeirra dýra
er hann fellir og á þeim er greini-
legt handbragð fagmannsins.
—„Hér í hreppnum hafa verið
felldir fleiri minkar en ég hef lagt
að velli,“ sagði Tryggvi. „Margir
hafa náð yrðlingum villiminka.
Það er tiltölulega auðvelt. En mér
hafa svo verið eftirlátnar læð-
urnar sem erfiðara er að ná til.“
Tryggvi hefur nú brugðið búi
en unir sér vel í Miðdal þar sem
heyjað er fyrir hross. í dag sam-
fagna áreiðanlega margir
Tryggva í Miðdal, því hann er 75
ára, þótt manntal hreppsins segi
að það sé ekki fyrr en 28. septem-
ber. En Tryggva hefur ekki tekizt
að fá leiðréttingu á manntalinu.
— ASt.
it
Tryggvi með þrjú minkaskinna
sinna. Eitt er af finnsku dýri er
hann felldi. Það ásamt svörtu
dýri (lengst til vinstri) er af
dýrum úr minkabúi. Hið þriðja er
af dýri sem er blendingur af
svörtu dýri úr minkabúi og villi-
minki. DB-mynd Sveinn Þorm.
neu&oi
*« "
s'-*j *{‘
Ȓǒ
SPARIÐ ELDSNEYTIÐ
bensín, diesel
gasoliu
Fœst hjú
SHELL og
OLÍS (BP)
bensín-
stöðvum
með notkunarreglum
Danskennsla
Þ.R.
Námskeið i gömlu dönsunum hefjast mánudaginn 4.
október og miðvikudaginn 6. október.
Kennsla í barnaflokkuin félagsins hefst mánudaginn 4.
október fyrir börn 4-12 ára.
Innritun verður laugardaginn 25. september að
Fríkirkjuvegi 11 milli kl. 2 og 6 í síma 1-59-37.
Þjóðdansaféiag Reykjavíkur.
Viðrœðu-
nefnd um
Mjólkursölu-
mólin kosin
Viðræðunefnd í mjólkursölu-
málunum var kosin á fundi heil-
brigðismálanefndar Reykjavíkur
í gær. I nefndinni eru Skúli John-
sen borgarlæknir, Björgvin Guð-
mundsson borgarfulltrúi og Mar-
grét Einarsdóttir varaborgarfull-
trúi.
Björgvin Guðmundsson flutti á
sínum tíma tillögu þess efnis að
kjósa skyldi nefnd til viðræðna
við Mjólkursamsöluna og Kaup-
mannasamtökin í því skyni að
ráða bót á vanda sem kynni að
skapast í þeim hverfum sem
kaupmenn gætu ekki tekið að sér
mjólkursölu.
Borgarstjóri lagði til að heil-
brigðismálanefnd borgarinnar
yrði falið að fara með málið og var
því vísað þangað. Nú hefur verið
kjörin viðræðunefnd sem fyrr
segir. Þegar safnað hefur verið
upplýsingum um ástandið í
mjólkursölumálum í einstökum
hverfum borgarinnar eftir f.vrir-
hugaða breytingu á sölutilhögun
verður óskað viðræðna við þá
aðila sem tillaga Björgvins gerði
ráð fyrir.
BS.
DATSUN
7,5 I pr. 100 km
Bilaleigan Miöborg
Car Rental % 0 A
Sendum l“Y4"