Dagblaðið - 25.09.1976, Blaðsíða 22
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1976.
C Bíóauglýsingqr eru á bls. 20 ) (|
Útvarp
Sjónvarp
D
Sjónvarp kl. 21.50: Eins konar ást
Aldrei of varlega farið í rúminu
I kvöld sýnir sjónvarpið
brezka bíómynd frá árinu 1962.
Nefnist hún Eins konar ást (A
Kind of Loving). Leikstjóri
myndarinnar er John Schles-
inger sem er nú orðinn mjög
frægur á sínu sviði. Hann leik-
stýrði m.a. myndinni Midnight
Cowboy með Dustin Hoffman
og John Voight. Eins konar ást
var fyrsta mynd Schlesingers
og var hún ein af nokkrum
brezkum kvikmyndum sem
veittu nýja innsýn i líf hinna
vinnandi stétta i Englandi.
Þessar myndir virtust lýsa á
hreinskilnari hátt þjóðfélags-
legum og kynferðislegum
vandamálum en mögulegt var
að gera í myndum sem fram-
leiddar voru í Hollywood.
Myndin fjallar um' þessi
sífelldu vandamál sem koma
upp þegar óvarlega er að farið í
rúminu og barn verður úr.
Hinir tilvonandi foreldrar eru
ekki alltaf tilbúnir að takást þá
ábyrgð á hendur sem slíku fylg-
ir.
Kvikmyndahandbókin gefur
þessari mynd þrjár stjörnur og
hrósar leik Alan Bates og June
Ritchie sem fara með aðalhlut-
verkin í myndinni.
Alan Bates er að mörgu góðu
kunnur bæði vegna frammi-
stöðu sinnar á leiksviði og fyrir
leik sinn í kvikmyndum. Hann
hefur leikið á leiksviði í mörg-
um kunnum verkum, svo sem
Look Back in Anger (1956).
Hann vekur fyrst athygli fyrir
leik sinn í þessari mynd. Fyrir
leik sinn í kvikmyndinni The
Fixer fékk hann útnefningu til
Öskarsverðlauna. Af seinni
myndum sem hann hefur leikið
í er Women in Love.
—KL
m—-->
Alan Bates og June Ritchic í hlutverkum sinum i myndinni í kvöld.
Útvarp i dag kl. 13.30: Út og suður:
Farið í réttir og rœtt við
kindur og menn
Klukkan 13.30 í dag hefst
næstsíðasti þátturinn „Ut og
suður“ sem Ásta Jóhannes-
dóttir og Hjalti Jón Sveinsson
hafa séð um í sumar.
Asta sagði að þau ætluðu að
ræða við kindur og fólk í Land-
rétt. Réttað var þar í gær og
voru þau mætt á staðinn með
tæknimenn með sér.
Söngkonan unga, Rut
Reginalds, kemur í heimsókn,
en hún hefur m.a. sungið lagið
Simmsalabimm. Annar söngv-
ari kemur í heimsókn, en það er
Hallbjörn. Hjartarson frá
Skagaströnd.
Hann hefur m.a. unnið sér
það til frægðar að hann söng
inn á plötu sem gefin var út af
SG hljómplötum í vetur. Hall-
björn bæði söng og samdi lögin
á plötunni en mágur hans og
bróðir sömdu textana.
Einar Örn Stefánsson les
smellna sögu og slðan verða
auðvitað skemmtilegar plötur á
fóninum. Ásta sagðist ekki
vera búin að ákveða hvaða lög
hún léki þegar við ræddum við
hana, en kannski yrðu nýjar
plötur á dagskránni hjá henni.
— Heldurðu ekki að þú
saknir þáttarins þegar þið
hættið?
„Alveg örugglega, þetta er
svo lifandi starf,“ sagði Ásta,
en hún kennir núna við Fisk-
vinnsluskólann í Hafnarfirði.
— A.Bj.
»
Asta Jóhannesdóttir og Hjalti
Jón Sveinsson tóku það nýlega
fram í Vikunni að þau væru
alls ekki hjón, en það væru
margir sem héldu það. Ljósm.
Jim.
Útvarpið í kvöld kl. 20.45:
í kjölfar stríðsins
Nútímaskáldska
„Þetta er almennt rabb um
nútímaskáldskap og áhrif
þeirra skálda sem komu fram á
fyrsta áratugnum eftir stríð,“
sagði Kristján Arnason
menntaskólakennari, en hann
hefur tekið saman þátt er hann
nefnir ,,í kjölfar stríðsins".
Kona hans, Kristín Anna Þórar-
insdóttir, les Ijóð eftir þá Sigfús
Daðason og Stefán Hörð Grims-
son.
Kristján sagði að þessir tveir
höfundar væru kannski full-
trúar fyrir þennan tíma, þótt
vissulega væri um mörg önnur
góð nútímaskáld að ræða. Krist-
ján mun fylgja ljóðunum úr
hlaði með nokkrum orðum.
Sum af ljóðum Sigfúsar sem við
fáum að heyra hafa ekki birzt á
prenti.
Kristján kennir bókmenntir
við Menntaskólann að Laugar-
vatni og Háskólann. Hann
hefur aðallega kynnt sér forn-
bókmenntir þótt áhugi hans
beinist einnig að nútímabók-
menntum. Hann hefur áður
verið með þætti í útvarpinu
bæði varðandi bókmenntir og
Kristín Anna Þórarinsdóttir
leikkona mun lesa upp nútíma-
ljóð í kvöld. Þessa mynd tók
Bjarnleifur er hún lék í leikriti
Þjóðleikhússins „Fimm
konur“.
Sjónvarp kl. 21.00:
Skemmtiþáttur Paul Simons
Skemmtílegur
söngvari
Skemmtiþáttur með banda-
ríska söngvaranum og
lagasmiðnum Paul Simon
verður sýndur í sjónvarpinu í
kvöld kl. 21.00. Þar mun Paul
Simon syngja mörg
vinsælustu lög sín, bæði gömui
og ný.
Vinsælustu lög hans eru án
c-fa „The Sound of Silence" og
„Bridge Over Troubled Water".
Paul Simon fæddist árið 1941
I Newark í New Jersey.
Foreldrar hans voru af
Gyðinga/ungverskum ættum.
Hann ólst upp við miðstéttarlíf
í New York.
Lög Paul Simons eru mjög
ljóðræn og hugljúf og hann
notaði oft einstaklinginn I þjóð-
félaginu sem uppistöðu I lögum
sínum. En oft reikuðu til-
finningar hans og lögin urðu
of væmin og smeðjuleg.
Næstum öllum sínum
tónlistarferli hingað til hefur
hann eytt með Art Garfunkel,
en þgir ólust upp saman. Þeir
náðu miklum vinsældum saman
á árunum frá 1960-70, en slitu
samstarfi fyrir nokkrum árum
og fóru að reyna fyrir sér hvor I
sínu lagi.
-KL
Paul Slmon, söngvarinn og
lagasmiðurinn vinssli,
skemmtir sjónvarpsáhorfend-
um í kvöld kl. 21.