Dagblaðið - 25.09.1976, Page 24
rC Birting nofnonna í ávisanamálinu:
)
#/
Enginn mœlikvarði á
sekt eða sakleysi
•##
segir Hrafn Bragason umboðsdómari
„Það er eðlilegt að allt þetta
mál tengist Klúbbnum, þannig
byrjaði það,“ sagði Hrafn
Bragason umboðsdómari í ávís-
anamálinu á fundi með frétta-
mönnum í Reykjavík i gær.
Á þessum fundi lagði Hrafn
fram lista yfir þá menn sem
hafa átt og/eða notað reikninga
sem skráðir voru á aðra.
Öllum þessum reikningum
hefur nú verið lokað, að sögn
Hrafns, og í fyrradag skrifaði
Seðlabankinn öllum bönkum
landsins og sendi með bréfinu
nöfn yfir þá menn og fyrirtæki
sem tengjast þessu máli.
í skriflegri yfirlýsingu um-
boðsdómarans segir að „allir
þeir reikningshafar, sem seðla-
banki ísl. kærði með bréfi 9.
ágúst sl. hafi verið yfirheyrðir.
Þá hafa verið yfirheyrðir tveir
menn, sem segjast i raun eiga
reikninga, sem aðrir eru
skráðir fyrir. Þar sem þetta
fólk hefur allt komið fyrir dóm,
því hafa verið kynntar sakar-
giftir og hefur fengið að tjá sig
um þær, eru nöfn þess ekkert
leyndarmál rannsóknarinnar
vegna. Hitt skal undirstrikað,
að þótt fjölmiðlar birti þessi
nöfn er það enginn mælikvarði
á hvort fólkið er sekt eða sak-
laust, Rannsóknin, sem ekki
er nálægt því lokið, á einmitt að
skera úr um það.
Hrafn sagði á fundinum að
allir reikningshafarnirhefðu við
yfirheyrslur neitað því að hafa
stundað keðjutékkastarfsemi
en þeir hins vegar viðurkennt
að hafa gefið út innistæðu-
lausar ávísanir — að vísu með
samþykki, ýmist munnlegu eða
skriflegu, bankayfirvalda
og/eða einstakra bankamanna.
„Frá síðasta föstudegi hafa
komið fyrir dóminn sem vitni
ýmsir bankamenn," segir enn
fremur í skriflegri yfirlýsingu
umboðsdómarans. Hann bætti
því við að þessir bankamenn,
bæði bankastjórar, aðalgjald-
kerar og deildarstjórar hlaupa-
reikninga, hefðu „alls ekki í
öllum tilfellum staðfest fram-
burð reikningshafanna.“
I skriflegri yfirlýsingu
Hrafns segir síðan að banka-
mennirnir hafi „staðfest, að
munnlegar yfirdráttarheim-
ildir eru veittar, en telja að það
sé aðeins gert til skamms tíma i
einu. Misjafnlega tryggilega
sýnist gengið frá slíkum yfir-
dráttarheimildum. Þá hafa þeir
tjáð sig um nokkur þeirra
reikningsyfirlita, sem fyrir
liggja í réttinum. Hefur því
verið haldið fram um sum
reikningsyfirlitin að þau veiti
greinilega vísbendingu um
keðjutékkastarfsemi, æn svo er
ekki taiið um önnur.
Það skal að lokum undir-
strikað, að tékki í keðju þarf
ekki að vera bókaður inni-
stæðulaus í reikningsyfirliti og
heldur ekki að falla utan yfir-
dráttarheimildar, því bjarga
mátti innistæðuleysinu með
öðrum tékka áður en fyrri tékk-
inn kom til bókunar,“ segir í
yfirlýsingu Hrafns Bragasonar
umboðsdómara.
— ÓV.
frjálst, nháð dagblað
LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER
Nýr peningur
í umferð
á nœstunni:
Seðla-
bankinn
minnkar
krónuna
Seðlabankinn mun setja
nýjan krónupening í umferð
alveg á næstu dögum, verður
hann úr áli og á stærð við
gamla 25-eyringinn. Að sögn
Stefáns Þórarinssonar
aðalféhirðis Seðlabankans
kostar orðið um þrefalt nafn-
verð að slá hverja krónu en
nýja krónan kostar rétt liðlega
krónu i framleiðslu. Sagði
hann að þegar ntálmvirði pen-
ings væri komið upp fyrir
nafnverð hans væri ekki
lengur grundvöllur fyrir út-
gáfunni.
Danska blaðið Möntsamler-
nyt skýrir nýlega frá því að til
standi að slá íslenzkan 100 kr.
pening og taka 100 kr. seðlana
þá jafnframt úr umferð og
einnig sé prentun 10 þús. kr.
seðils í athugun.
Stefán sagði urn það að
frekarí breytingar á gjaldmiðl-
inum væru í athugun hjá bank-
anum og viðskiptaráðuneytinu
og fengjust frekari upp-
lýsingar um þær væntanlega
áður en langt liði.
Er hann var spurður hvort
einhverjar sérstakar ástæður
lægju fyrir hugleiðingunt um
100 kr. pening sagði hann að
um helmingur alls seðlamagns-
ins væri í 100 kr. seðlum, eða
um 2,6 milljónir seðla. Þar sem
nteðalending þeirra er aðeins
11 til 12 mánuðir væri mikill
prentkostnaður samfara
endurnýjunmni auk þess sem
geysileg vinna væri samfara
greiningu, talningu og pökkun
notaðra seðla sem berast bank-
anum og annaðhvort fara aftur
í umferð eða. eru brenndir.
Öðru ntáli gegndi um mynt
sent entist áratugi og unnt
væri að greina og telja i vélum
þar sem mannshöndin kæmi
vart nærri.
— G.S.
Fiat-biilinn sem ekið var attan á er skakkur og skældur og talinn
ótnýtur. Vafasamt er að hann fari fleiri ökuferðir. Sæti konunn-
ar sem ók brotnaði við höggið og kom höfuðpúðinn að góðu
gagni. Konan hófst upp úr sætinu og hafnaði í brakinu aftur í.
DB-mvnd Sv. Þorm.
r w ••
FIATINN IK0KU
— höfuðpúði bjargaði
Kona er ók litilli bifreið eftir
Miklubraut var flutt í
slysadeild eftir að
sendiferðabíll hafði ekið aftan
á bíl hennar og eyðilagt hann.
Áreksturinn varð-með þeim
hætti að bifreiðunum var ekið á
nyrðri akbraut Miklubrautar til ökumanni litla bílsins til
vesturs. Ökumaður sendi-
ferðabifreiðarinnar lenti aftan
á litla bílnum og inn í hann
miðjan. Hemlaför sendiferða-
bílsins mældust 26 metrar.
Það mun hafa orðið
bjargar að höfuðpúði var í bif-
reiðinni.
Minni ibíllinn er gerónýtur
og eitthvað mun sjá á sendi-
ferðabifreiðinni.
-BÁ
Valdi húsið
fremur
en bilinn
Maður slasaðist á Höfn í
Hornafirði er bifreið hans
lenti á húsvegg þar á
staðnum um kl. 10 í
gærmorgun. Maðurinn, sem
var einn í bifreiðinni, var
fluttur með sjúkraflugvél
til Reykjavíkur. Ekki liggur
alveg ljóst fyrir hve meiðsli
hans voru alvarleg. Tildrög
slyssins voru að líkindum
þau að ökumaðurinn var að
forðast árekstur við annan
bíl og valdi frekar að keyra á
húsið en bílinn.
Bifreiðin er talin
gjörónýt, en tiltölulega litlar
skemmdir urðu á húsinu.
-KL
Tollverðir
finna vodka,
vindlinga og
svínakjöt um
borð í
farskipum
Tveir hásetar og matsveinn á
ms. Dettifossi eru nú uppvísir
að því að hafa reynt að smygla
164 þriggja pela flöskum af
áfengi, aðallega vodka, og 1800
vindlingum, en tollverðir
fundu þennan varning i
skipinu í fyrradag og daginn
þar áður. Var megnið falið í
rennusteinum í lestarbotni. 164
flöskur samsvara 14 kössum og
með vindlingunum má
ætla að söluverðið hefði aldrei
orðið undir hálfri milljón
króna.
Þá fundust 57 þriggja pela
vodkaflöskur, 4000
vindlingar og 88 kg af
niðursoðnu svínakjöti um
borð í ms. Lagarfossi þann
16. þ.m. einkum falið I
frystilúgum á höfuðþilfari í
lest. Bryti, háseti og
viðvaningur reyndust
eigendur þar.
í báðum tilvikunum
fannst varningurinn í
Reykjavíkurhöfn.
-G.S.
Síldin treg í reknetin
— margir bátanna komu
tómir inn í gœrmorgun
Reknetasíldveiðarnar, sem
stundaðar eru frá Höfn í
Hornafirði, hafa gengið illa nú
síðuslu dagana og nú í
gærmorgun kontu t.d. átta
bátar alveg tómir inn eftir
nóttina en fjórir höfðu íengið
afla og a.m.k. einn góðan afla,
eða 140 til 150tunnur.
Þetta kom fram er blaðið
ræddi við Jens Mikaelsson á
Höfn í gær en hann sagði að tiu
heimabátar gerðu nú út á rek-
net og með uðkomubátum
hefðu reknetabátarnir komizt
upp i 17 til 18. Þrátt fyrir afla-
leysið nú er heldur nteira
kornið á land en á sama tíma i
fyrra og búið að salta í 9
þúsund tunnur og frysta lítils-
háttar.
Jens sagði að nægileg síld
virtist \era til, hún gengi bara
ekki nógu oíarlega i sjóinn til
að ná til netanna. Sjómenn rek-
netabátanna kvíða fyrir vertíð
hringnótabátanna, sem mátti
hefjast á miðnætti sl„ en þeim
þ.vkja þær veiðar heldur
groddalegar og eru sme.vkir urn
að þeir taki meira en þeir rnega
og a.m.k. í sumum tilvikum sé
aflanum úr þeim ekið fram hjá
vigtum. Einn stór hringnóta-
bátur er á Höfn, en svo ein-
kennilega vill til, að sögn Jens.
að hann hefur ekki fengið leyfi
til síldveiða og má hann þó
kallast eini heimabáturinn
miðað við veiðisvæðið
Suðausturlandi.
út af
— G.S.
Samkomulag um sildarverðið:
5 krónum meira fyrir kílóið en í fyrra
Samkomulag varð milli áðila
í verðlagsráði i gær um síldar-
verðið og ætti hringnótabátun-
um því ekkert að vera að van-
búnaði að hefja veiðarnar. Var
blaðinu kunnugt unt að bátar
voru farnir að tygja sig af stað
síðla dags í ga-r.
Bátarnir fá nú 63 kr. fyrir
kilóið af síld yfir 33 cm að
lengd, 49 kr. fyrir síld af
stærðinni 30 til 33 cm og 37 kr
fyrir kílóið af smærri síld.
í fyrra var verðið tviskipt,
58 kr. fvrir síld vfir 32 cm að
lengd og 35 f.vrir smærri síld.