Dagblaðið - 30.10.1976, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 30.10.1976, Blaðsíða 1
dagblað 2. ARG. — LAUGARDAGUR 30. OKTOBER 1976 — 244. TBL. RITSTJORN SIÐUMULA 12. SIMI 83322. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOLTI 2, SÍMI 27022 Litsjónvarpasmyglid: Tíu sagt upp í gær Verkamenn lögðu niður vinnu í mótmæiaskyni Mikil ólga var í gær meðal verkamanna i vörugeymslum Eimskipafélags íslands vegna uppsagnar starfsmanna félags- ins út af litsjónvarpstækjamál- inu. Lögðu vélamenn niður vinnu kl. 5 í gær þótt fyrirhug- að væri að halda þá áfram vinnu við losun á Brúarfossi. Þessi fyrirvaralausa vinnustöðvun tekur aðeins til Sundahafnar, eins og er. Dag- blaðið hefur eftir áreiðanlegum heimildum, að með þessu séu verkamenn alls ekki að tjá afstöðu sína til smygls eða ólöglegs innflutnings. Astæðan mun vera sú að meðal þeirra, sem sagt var upp störfum í gær, bæði sjómönnum og starfs- mönnum í vöruafgreiðslu hafi verið einn hæfasti og vinsælasti verkstjóri félagsins um ára- tugaskeið. Hann hafði enga aðild átt að smygli heldur mun hann hafa keypt eitt þeirra tækja, sem rannsókn leiddi í ljós að smyglað hafði verið. Eimskipafélagið lítur svo á að þeir, sem verða uppvísir að smygli, hafi fyrirgert rétti sínum til starfa hjá félaginu. Án frekari skýringa vilja verkamenn ekki leggja að líku aðild að smygli og hitt að kaupa sjónvarpstæki, þótt það reynist smyglað. Að minnsta kosti tíu mönnum var sagt upp störfum, -BS. 28 aðilar stóðu að sjónvarpa- smyglinu Tuttugu og átta aðilar áttu aðild að litsjónvarpasmyglinu, sem rannsókn er nú um það bil að ljúka á í Sakadómi Reykjavíkur. Að sögn Þóris Oddssonar aðalfulltrúa, sem annazt hefur rannsóknina, var aðdragandi smyglsins sá að fimm eða sex aðilar sammæltust um að kaupa litsjónvarpstæki erlendis og smygla þeim inn í landið. Var síðan leitað til fleiri aðila og þeim boðið að taka þátt í kaupunum. Einn aðili annaðist kaupin er- lendis en allir höfðu greitt sinn hlut fyrirfram. Samkvæmt því sem fram hefur komið við rannsóknina var innkaupsverð tækjanna erlendis um 90.000 krónur, eða 1400 þýzk mörk, en hérlendis hafa samskonar tæki, Nordmende 2202 með 22 tommu skermi, kostað liðlega 252 þúsund krónur. Eins og fram hefur komið hefur lögreglan lagt hönd á öll tækin sem sm.vglað var til landsíns, og má telja víst að þau verði gerð upptæk með dómi á næstunni. Refsing við broti af þessu tagi eru fjársektir eðá allt að tveggja ára fangelsi, að sögn Þóris Oddssonar. -ÓV. Öll tæki voru aðgerðalaus. Mennirnir sem stjórnuðu þeim fóru heim til sín kl. 5 í gær. (DB-m.vndir Sv.Þ.). Verkamennirnir: Þegar verkstjór- ann vantar getum við ekki unnið..... Verkamenn sátu verkefna- lausir í gær og drukku kaffi. Þeir sögðust ekki geta unnið þar sem verkstjórar þeirra höfðu lagl niður vinnu. Hassmálið mikla: Enn einn í gæzluvarðhald Ungur Suournesjabúi var I gærkvöld úrskurðaóur í allt að þrjátíu daga 'gæzluvarðhald vegna aðildar hans að fíkniefnamálinu mikla sem verið er að rannsaka í Reykja- vík. Sitja nú fjórir menn I gæzluvarðhaldi vegna þessa máls en sá sem settur var inn I gær var handtekinn í fyrra- kvöld. „Þetta er svo sem ekkert nýtt í málinu," sagði Guðmundur Gígja, lögreglumaður fíkniefnadeildarinnar, i samtali við DB í gær, „það var einfaldlega kominn tinii til að. laka þátt þessa manns lil athugunar." -ÓV. V / ---------------------------------< Olsarar vakna snemma í dag — sjá útvarp bls. 23 I i Útspilsdobl eru varhugaverð! — bridge á bls. 4 Sálarháski hjá sýslumanni — Krummaber bls. 2 — ( Mibhael Tal. Þafi er af sem áfiur var. Ekki sigur í átta skákum. Petrosjan og Portisch áfram — en Tal sat eftir með sárt ennið — skák á bls. 8-9 Ó, pera í f jórum þáttum — Ijóð á laugardegi - bls. 4 • Á háaloftinu í dag: Faraómaurar og salmonellur — og munur á verði á ferðalögum innanlands og utan — bls. 2 Við erum aldrei nógu varkár — bls. 14-15 um slys í heimahúsum V

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.