Dagblaðið - 30.10.1976, Blaðsíða 15
DACHLAÐIÐ. LAUCARDACUK 30. OKTOBEH 1976.
Gætið þess að láta skaftið á pottunum ekki snúa fram. Þið getið
kannski ímyndað ykkur hvað gerist ef sú litla nær taki á pottinum
fullum af sjóðheitum mat og hellir yfir sig:
Hvers vegna ekki að hafa
snúrurnar við rafmagnstækin
styttri fyrir nú utan að kippa
þeim alltaf úr sambandi þegar
búið er að nota þær.
DB-myndir
Sveinn Þormóðsson.
T
BYRGJUM BRUNNINN
Eg sá pabba kveikja á svona og það koin fallegt Ijós.
15
Þar sem bolti er veltandi eru börn á ferð. ökumaður skyldi þvi s*na ýtrustu varúð. Börn að leik á
ógirtum lóðum geta líka hlaupið fyrirvaralaust út á götuna.
Enginn okkar vill verða fyrir þvi að keyra á eða vaida slysi. Sýnið
sérstaka varúð þar sem gangbrautir eru í nágrenni skóla. Sá hópur
sem verður fyrir tiltölulega flestum umferðarslysum eru börn
undir skóiaskyldualdri.
ast er að verði fyrir umferðar-
slysum eru börn undir skóla-
skyldualdri. Það er að segja 6
ára og yngri. Af þeim 123 börn-
um sem slösuðust voru 45 6 ára
og yngri. Þessir aldursflokkar
hafa algjöra sérstöðu vegna
þroska- og reynsluleysis.
Vís hætta fylgir þvi aíltaf ef
barn sér móður sína eða föður
bíða, til dæmis, í bil hinum
megin götunnar. Þá er hætt við
að barnið hlaupi umsvifalaust
yfir götuna án þess að líta í
kringum sig. Foreldrar sem
stöðva bílinn þeim megin göt-
unnar sem barnið er ekki ættu
alltaf að sækja það og fylgja því
yfir götuna. Varizt að kalla til
barnsins þvert yfir götuna, þá
hleypur það án nokkurs tillits
til umferðarinnar.
Hættulegustu timabii dags-
ins fyrir börnin í umferðinni
eru eftirfarandi: Kl. 7-9 að
morgni. Á þeim tíma eru flest
börn á leið I skólann og margir
ökumenn á leið til vinnu. Kl.
11-13. Á þessum tíma er venju-
lega matarhlé og börnin hlaupa
heim á leið svöng og hreyf-
ingarþurfi eftir langa kyrrsetu.
Kl. 16-18. Á þessum tíma er
yfirleitt mikil bílaumferð, farið
að skyggja og ökumenn
þreyttir eftir önn dagsins. Þetta’
er mjög hættulegur tími fyrir
börn sem eru í skóla eftir há-
degi, þar sem skóla lýkur yfir-
leitt á þessu timabili.
Að vera viðbúinn hverju sem
er, hversu fjarstætt eða fárán-
legt sem það gæti virzt, er
stærsta krafa sem gera verður
til alira þeirra sem aka bíl.
EVI
(ef engin uppköst verða innan
20 mínútna má endurtaka
skammtinn einu sinni).
Ef stutt er til næsta læknis
eða slysadeildar þá skulið þið
ekki eyða tíma til að framkalla
uppköst sjálf — leggið alla
áherzlu á að koma barninu
undir læknishendur sem fyrst.
Ef langt er til næsta læknis
eða slysadeildar skal koma af
stað uppköstum með ipecacsaft.
Hún er fáanleg hjá lyfsölum og
ætti að vera til á heimilum sem
eru þannig í sveit sett að langt
er í læknishjálp. Hægt er að
kaupa lítinn skammt án lyfseð-
ils.
Ert þú góður
bílstjóri?
Því hefur verið haldið fram af
sálfræðingum að fullorðnir geti
alls ekki sett sig í spor barna og
geri sér oftast seint grein fyrir
hættunni á slysum á börnum,
bæði í umferðinni jafnt sem
annars staðar.
Árið 1975 slösuðust 123 börn
á aldrinum 0-14 ára í um-
ferðinni. Meiðslin urðu mismik-
il. en af þessum börnum létust
4. Sá hópur barna sem algeng-
Þeir eru sumir ekki háir í lottinu þótt þeir séu farnir að hjóla. Börn
á reiðhjóli gefa sjaldnast merki áður en þau beygja og þekkja ekki
umferðarreglurnar nógu vel. Því miður fer hjólferðin stundum svo
að slys hlýzt af.