Dagblaðið - 30.10.1976, Side 5
DAC.BLAÐIÐ. LAUtíARDAGUK 30. OKTÖBER 1976.
5
s
Minden 25. október 1976.
Handboltapunktar frá V-
Þýzkalandi.
Enn heldur baráttan áfram í
hinni hörðu keppni um efstu
sætin í vestur-þýzka handboit-
anum. Um helgina var sjötta
umferð leikin og úrslit komu
ekki á óvart. Ennþá er ekki
hægt að geta um hvaða lið komi
til með að ná efstu sætunum. Í
neðstu sætin í hvorri deild hafa
Phönix Essen (norðurdeild) og
Göppingen (suðurdeild) skipað
sér. Virðist alveg vera Ijóslaust
i Göppingen þessa dagana.
Nokkrir leikmenn eru meiddir,
þar á meðal Gunnar Einarsson,
en ekki er vitað hve alvarlegt
það er.
Ef þessi lið kveikja ekki á
ljósunum innan skamms þá er
hætt við að önnur deildin blasi
við. Væri mikið áfall ef
Göppingen félli þvi mikill
áhugi er á handbolta þar og
áhorfendur mjög lifandi.
Eina liðið, sem ekki hefur
tapað leik í þ^ssum fyrstu um-
ferðum, er Grosswallstadt
(suðurdeild) — gert tvö jafn-
tefli og er með þriggja stiga
forustu yfir Dietzenbach í
suðurdeild.
1 norðurdeild heldur Rhein-
hausen sínu striki og hefur
tveggja stiga forustu. Fast á
eftir koma Gummersbach og
GWD.
Eitt ber þó að hafa í huga að
Kiel (norðurdeild) hefur
aóeins leikið þrjá leiki þegar
fiestlinnuf lið hafa leikið fimm
til sex leiki. Kiel hefur aðeins
tapað tveimur stigum þannig að
fræðilega séð gæti það náð
Rheinhausen að stigum, en
slíkt er talið harla ólíklegt.
En þá er bezt að snúa sér að
deildunum. Aðeins þrír leikir í
norðurdeild, öðrum var
frestað.
Gummersbach — R. Fúchse 29-21
Dankersen — TV Grambke 20-16
Rheinhausen — TUS Wellinghofen 17-12
Gummersbach — R. Fiichse
Berlin 29-21
Gummersbach tryggði sér
áfram annað sætið í deildinni,
með sigri.
Bezti maður vallarins var
Joachim Deckarm, sem skoraði
11 mörk, auk þess sem hann
opnaði fyrir meðspilara sína,
þannig að þeir skoruðu.
Segja má að Deckarm sé
einna jafnastur leikmanna
Bundesligunnar. Hann er alltaf
hættulegur. Býr yfir mikilli
tækni og er útsjónarsamur og
skotviss. Verður örugglega
hættulegasti maður Gummérs-
bach gegn GWD laugardaginn
30. október.
Þjálfari Gummersbach,
Djordje Vucinic, var ekki
ánægður og gagnrýndi hin
mörgu mörk, sem liðið fékk á
á
Ólafur H.
Jónsson
Handboltapunktar
frá V-Þýzkalandi
Axo!
Axelsson
sig. Hann sagði að slíkt hugar-
far „letilegt hugarfar" væri
ekki hægt að bjóða upp á í
Bundeslígunni.
Eins og fyrr var getið mætast
Gummersbach og GWD í næstu
umferð, sem fram fer 30.
október í Gummersbach. Segja
má að það verði leikur helgar-
innar.
GWD — Grambke.
Um leið og skýrt verður frá
leik GWD og Grambke verður
einnig farið örlítið inn á Is-
landsför Dankersen.
Fyrir hönd félagsins og leik-
manna þökkum við alveg sér-
staklega fyrir þessa viku á Is-
landi. Sérstakar þakkir á hand-
knattleiksdeild Fram skilið
fyrir góðar móttökur og að
þessi heimsókn skyldi vera
möguleg.
Leikmenn GWD voru yfir sig
hrifnir af Islandi, en urðu fyrir
vonbrigðum með áhorfendur.
En það er ekki nema von, þegar
Kallað er „takið helv... nazist-
ana í gegn.“
Slíkt á ekki heima í sam-
skiptum við íþróttahópa eða að
áhorfendur geti leyft sér slíkt.
Við sem íslendingar urðum
fyrir sárum vonbrigðum, þegar
við heyrðum slíkt kallað inn á
völlinn, en það kom þó nokkr-
um sinnum fyrir. Væri óskandi
að við verðum lausir við slíka
áhorfendur, þegar erlend lið
koma í heimsókn til Islands,
hvort sem það eru félagslið eða
landslið, sem sækja okkur
heim.
Vikan á Islandi var mjög
erfið í alla staði. Æfingar tvo
tíma á morgnana og leikir á
kvöldin í eina viku var of
mikið. Slíku erum við ekki
vanir. Okkar æfingar eru
þrisvar í viku. Oft eina og hálfa
til tvær klukkustundir í senn
og leikið um helgar.
Eftir þessa æfingaferð, þar
sem ný varnaraðferð fyrir
GWD var reynd, þ.e. 3-2-1 og
reynt var að samræma sóknar-
leik betur, væntu menn þess að
í næsta leik sem var gegn
Grambke yrði liðið komið í heil-
steyptara form heldur en það
var fyrir Islandsförina.
Annað kom á daginn, þvi
leikurinn var í einu orði sagt
mjög illa spilaður af GWD en
aftur átti Grambke sinn bezta
leik á árinu.
Má segja að GWD hafi verið
heppið að ná báðum stigunum
og ekki komst það á hreint fyrr
en tvær og hálf mín. voru til
leiksloka. Þá stóð 16-16 og á
þessum lokamínútum skoraði
GWD síðustu 4 mörkin.
Leikmenn eru ekki alveg
sammála þjálfara hvað snertir
varnaraðferðina 3-2-1 og telja
að hún passi ekki fyrir liðið og
líka að of mikið sé reynt að
spila kerfi, sem ekki sé svo auð-
velt að útfæra hér i Bundeslig-
unni.
Leikmenn hafa alveg misst
sínar eigin hugmyndir hvað
fléttur snertir og eru rígbundn-
ir og lítt hreyfanlegir í öllum
aðgerðum. Slíkt kann ekki
góðri lukku að stýra. Enn-
fremur vantar meiri gleði og
keppniskraft hjá leikmönnum.
Þetta er eins og annars staðar,
„það eru ekki alltaf jólin“, en
vonandi breytist þetta til batn-
aðar, því eitt er víst að ekki
getur það orðið verra.
Þeir sem skoruðu fyrir GWD
voru Waltke 6, Axel 5/1, von
Oepen 3, Ölafur 1, Buseh 3/2 og ^
Kramer 2. Fyrir Grambke^^
skoruðu: Dierks 4, Rothkopf 5
og Harjes 2.
Rheinhausen—
Wellinghoi'enl7-12.
Rheinhausen heldur enn
fyrsta sætinu eftir öruggan
sigur yfir Wellinghofen. Þó ber
að hafa i huga, að Rheinhausen
hefur aðeins spilað tvo leiki af
sex á útivelli, þannig að þeir
ejgi erfiða leiki, þegar líða fer á
seinni part deildarinnar..
A þessa fjóra leiki hafa þeir
alltaf fengið fullt hús
áhorfenda, 2500 manns, og er
mikil stemmning nú þegar vel
gengur hjá liðinu.
I augnablikinu eru þeir með
jafnasta liðið og hafa sýnt
nokkuð góða leiki. Sigurinn var
aldrei í hættu gegn
Wellinghofen, en leiklega séð
var þetta ekki góður leikur.
Allir leikir í Bundesligunni
einkennast af taugaspennu
leikmanna og óöryggi vegna
hins mikl álags, sem krafizt er.
Stafar þetta af því að fjögur lið
falla niður úr hvorri’deild og
þau lið sem falla eiga ekki
bjarta framtíð fyrir sér í 2.
deildinni og þá aðallega hvað
fjölda áhorfenda snertir.
Fyrir Rheinhausen skoruðu:
Kleibrink 8/2, Schmitz 3 og
Laashe 3.
Suðurdeild. Úrslit
helgarinnar.
Wiosbadon — Huttenberg 17-14
Rintheim — S. Hofweier 17-16
Osswell — Grosswallstadt 13-15
Milbertshofen — Leutershausen 12-10
Dietzenbach — Göppingen 20-17
Staðan í suöurdeild
Grosswallstadt
Dietzenbach
Huttenberg
Hofwier
Milbertshofen
O^sweil
Wiesbaden
Rintheim
Leutershausen
Göppingen
0 79-65 10-2
2 91-85 7-5
2 83-82
2 89-92
2 77-75
2 88-88
1 69-70
4 97-97
3 80-89
4 69-79
7-5
7-5
6-6
6-6
5-5
4-6
4-8
2-8
Grosswallstadt virðist ætla að
halda sínu striki og er á
toppnum með sigri yfir
nýliðunum Ossweil 15-13. Það'
eiga þeir markmanni slnum
mikið að þakka „hetjunni“ frá
Karl Marx-Stadt.“ (Hann varði
víti á síðustu sek. fyrir v-þýzka
landsliðið gegn A-Þjóðverjum 1
undankeppni fyrir Olympíu-
leikana í Montreal og þannig
komust V-Þjóðverjar áfram.
Það sem réð úrslitum I leik
Wiesbaden (nýliðar) og
HUttenberg 17-14 voru mörk
útispilaranna Freisker 5 og
Maul 4. Þetta var mikilvægur
sigur fyrir nýliðana í
baráttunni að falla ekki.
Huttenberg á þó enn
möguleika á efstu tveimur
sætunum.en við slíku búast
menn ekki. Milbertshofen vann
góðan „taugastríðssigur" yfir
Leutershausen, sem nú er i
næstneðsta sæti á undan
Göppingen.
Ein úrslit komu örlítið á
óvart og var það leikur
Rintheim og Hofweier 17-18,
Rintheim hefur alltaf verið
mjög sterkt á heimavelli en nú
virðist liðið ekki hafa náð sér
að strik og er í þriðja neðsta
sæti.
Telja má furðulegt að þrjú
neðstu liðin 1 deildinni eru
gömul og rótgróin lið og eiga
litríka sögu að baki I hand-
knattleik og þá sérstaklega
Göppingen, sem oftast hefur
orðið Þýzkalandsmeistari frá
því að Bundesligan byrjaði.
Eins og áður sagði eru
nokkrir af beztu leikmönnum
Göppingen meiddir og þar á
meðal er Gunnar Einarsson.
Eitt er víst að eitthvað róttækt
verður Göppingen að gera ef
ekki á að vera ljóslaust hjá
þeim í allan vetur og þar með
fall í aðra deild að ári.
Með kveðju.
Ólafur H. Jónsson
Axel Axelsson.
Skrifstofu- heildsölu- iðnaðarhús
Til söiu 4ra hœða hús, ca 430 ferm hver hœð, við Ármúla.
Lyftur verða í búðum endum hússins. Húsið verður selt í einu lagi eða hver
hœð fyrir sig eða í smœrri einingum.
Húsið er að einhverju leyti laust strax.
Opið í dag frú kl. 2—5 e.h.
Fasteignamiðstöðin, Austurstrætí 1
Símar 20424 — 14120, heima 42822 og 30008.
Sölustjóri: Sverrir Kristjónsson. Viðskiptafrœðingur: Kristjún Þorsteinsson.
Góð
matarkaup
ennþá kjötvörur
á gamla verðinu
Heilir lambaskrokkar 1. verðflokkur
kr. 549 kg.
Úrvals nautahakk kr. 670 kg.
Úrvals lambalifur kr. 450 kg.
Ódýru lambasviðin kr. 290 kg.
Nýreykt hangikjötslœri, heil, kr. 889 kg.
Úrbeinað hangikjötslœri kr. 1.480 kg.
Heilir hangikjötsframpartar kr. 657 kg.
Úrbeinaðir hangikjötsframpartar
kr. 1.325 kg.
Úrvals unghœnur kr. 500 kg, 10 stk. í kassa.
Nýr lundi kr. 100 stk.
Úrvals kólfalœri kr. 430 kg.
Kólfahryggir kr. 350 kg.
Kólfakótelettur kr. 430 kg.
✓ V
DScíX®TröMD{S)@Tr®[E>D[jí£l
Luugulœk 2 - Reykjuvík - Sími 3 50 20
SJAIÐ POTTABLOMA URVAUÐ
Blómstrandi jólastjörnur,
alparósir,
begóníur,
Risapálmar
Burknar
Kaktusar og
þykkblöðungar
BREIÐHOLTI Sími 3S22S