Dagblaðið - 30.10.1976, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 30.10.1976, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1976. 7 Slit af nagladekkjum talið kosta 200milljónir á ári Gatnamálastjórinn heitir eyðingu hálku í auknum mæli „Það er staðreynd að kostn- aður Reykvíkinga af notkun nagladekkja allan veturinn er allt að 200 milljónir króna. Okkur reiknast til að hver bíll slíti að meðaltali um 300 kg. af tjöru upp úr götunum sé hann á nagladekkjum allan veturinn. Það þarf eitt tonn af malbiki ofan í göturnar að sumarlagi til þess að bæta það sem hver bill reif upp yfir veturinn. Það þarf því 30 þúsund tonn malbiks í göturnar og það magn kostar 185—200 milljónir króna.“ Þetta sagði Ingi tJ. Magnús- son gatnamálastjóri i viðtali við DB og bætti því við að mæl- ingar á sliti gatna hefðu verið gerðar hér um nokkurt skeið og viðbótarmælingar eða mæl- ingar í auknum mæli upp á síðkastið. Niðurstöður þessara mælinga eru mjög svipaðar niðurstöðum sem fengizt hafa með sams konar mælingum á hinum Norðurlöndunum, sagði gatnamálastjóri. „Nagladekk hafa nú verið bönnuð í Færeyjum frá næstu áramótum. Þau er bönnuð í Þýzkalandi, í Kanada og í mörgum fylkjum Bandaríkj- anna. Ég held líka að al- menningur hér á landi sé farinn að sjá hve slitið af nagla- dekkjunum er geigvænlegt. Menn setja negldu dekkin siðar undir en áður var og margir hafa breytt til og nota nú gróf- mynztruð dekk í stað nagla- dekkja. Ingi Ú. benti á þá staðreynd að margir telja það vera skyldu að aka á nagladekkjum eftir 15. október. „Það er alrangt, gróft mynztur nægir og að hægt sé að bregða undir keðjum þegar viðnám slikra hjólbarða er ekki nægilegt. í auðu færi er hemlunarvegalengd lengri á nöglum og öryggið því minna. Naglabúnaðurinn veitir falska öryggiskennd þannig að margir freistast til að aka hraðar en færið leyfir og eiga því erfitt með að hemla þegar draga þarf úr hraða eða stöðva,“ sagði gatnamálastjóri. Ingi Ú. Magnússon sagði að í vetur yrði i auknum mæli leitazt við að eyða hálku af aðal- umferðargöíum og í erfiðustu brekkum. Af viðtali sem DB átti við framkvæmdastjóra Umferðar- ráðs í gær kemur I ljós að álit þessara tveggja aðila er í höfuð- dráttum mjög svipað. Ýmsir I röðum bifreiðarstjóra eru á öðru máli og við munum víkja að málinu síðar. —ASt. O REGNB0GA- PLAST H/F Kársnesbraut 18 Sími 44190 Framleiöum augiýsingaskilti meö og án Ijósa. Sjáum um viðgeröir og viðhald. önn umst ei nnig nýsmíði og viðhald á ýmiss konar plasthlut- um. Glæsilegir gluggar voru form- lega vígðir á dögunum í Ólafs- víkurkirkju. Biskup Islands, herra Sigurbjörn Einarsson, var viðstaddur athöfnina sem fór fram fyrir fullri kirkju. Glugg- ■<---------------«C Kirkjukórinn i Ólafsvík undir einum hinna litskrúðugu glugga sem Gerður heitin Helgadóttir hannaði. (DB-mynd Ágústa Tómasdóttir). m---------------► Biskupinn í ræðustól í Olafs- víkurkirkju. arnir eru verk Gerðar heitinnar Helgadóttur, en henni auðnaðist þó ekki að fullljúka þeim áður en hún lézt fyrir aldur fram. Að gömlum og góðum sið bauð sóknarpresturinn, séra Árni Bergur Sigurbjörnsson, kirkju- gestum til kaffiveitinga i safnaðarheimilinu að vígslu lok- inni. Séra Arni Bergur Sigurbjörnsson. GLÆSILEGIR KIRKJUGLUGGAR VÍGÐIR OKKAR FRAMTIÐ í REYKJAVÍK HVERFAFUNDIR BORGARSTJÓRA 1976 Birgir Isleifur Gunnarsson borgarstjóri flytur ræðu og svarar fyrirspurnum fundargesta Hlíða- og Holtahverfi, Austurbær og Norðurmýri Sunnudagur 31. október kl. 15.30 DOMUS MEDICA Fundarstjóri Fundarritari: Jónas Eliasson. prófessor Unnur Jónsdóttir, húsfrú. UMHVERFIÐ ÞITT Á fundunum verður: 1. Sýning á líkönum og upp- dráttum af ýmsum borgar- hverfum og nýjum byggða- svæðum. 2. Litskuggamyndir af heiztu framkvæmdum borgarinn- ar nu og að undanförnu. 3. Skoöanakönnun um borg- armálefni á hverjum hverfafundi og verða nið- urstöður birtar borgarbú- um eftir að hverfafundum lýkur. V _________________J Reykvíkingar — tökum þátt í fundum borgarstjóra

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.