Dagblaðið - 04.12.1976, Síða 5
DACBI.AÐIÐ. I.AliCAKDACUK 4. DKSKMBKK 1976.
5
Göppingen af botninum upp í 5. sæti:
ERFIÐLEIKARNIR
YFIRSTIGNIR
Dankerscn 29. nóvember.
Allt útlit cr nú fyrir, að
Cöppinnen, liðió, sern Cunnar
Einarsson leikur með. hafi yfir-
stigið þá erfiðleika, sem háðu
þvi i byrjun leiktímabilsins.
Um helfiina gerði liðið sér lítið
f.vrir og sigraði topplið suður-
deildar, Crossvallstadt, 15-10.
Fyrir nokkrum vikum sat Oöpp-
iitRen á botni deildarinnar, en
er nú komið í fimmta sæti eftir
3 sigra í röð.
Leikur Cöppingen og Gross-
vallstadt var háður í Göppingen
fyrir troðfullu húsi áhorfenda
og stemmning var geysileg.
Samkv. upplýsingum, sem okk-
ur hafa borizt, þótti frammi-
staða markmannsins, Jasche,
frábær. Þá hefur Singer, þjálf-
ara liðsins tekizt að þétta vörn
liðsins svo að um munar. Með
þessum sigri Göppingen ætti að
færast einhver spenna í topp-
inn, en Grossvallstadt hafði
ekki tapað leik i deildinni til
þessa.
í norðurdeild stendur barátt-
an á toppnum milli 4 liða —
Rheinhausen, Dankersen,
Nettelstedt og Gummersbach.
Önnur lið koma varla til greina.
A næstu vikum mætast svo
þessi topplið i innbyrðisleikjum
svo línurnar ættu að skýrast
nokkuð fyrir jól. Gummersbach
varð fyrir miklu áfalli í síðustu
viku, þegar aðalskytta liðsins,
Joachim Deckarm, brákaðist á
hendi. Það gerðist í landsleik
V-Þjóðverja og Rúmena. Deck-
arm verður að hvila frám að
áramótum og þetta gæti kostað
Gummersbach meistaratitilinn,
því liðið á marga erfiða leiki
framundan.
Fræðilega séð ætti
Dankersen að standa bezt að
vígi, því liðið á heimarétt á móti
sterkustu lióunum í síðari um-
ferðinni. Um næstu helgi þarf
liðið þó að heimsækja Nettel-
stedt og það verður víst örugg-
lega erfitt að næla í stig þar.
Áhugi fólks hér í Minden fyrir
þessum ,,derby-leik“ er ótrúleg-
ur. (Nettelstedt er 10 km frá
Minden). Fyrir tveimur mánuð-
um voru allir miðar á leikinn
uppseldir, svo áhangendur
Nettelstedt ætla víst örugglega
að styrkja sína menn vel. Lát-
um þetta rabb nægja og snúum
okkur að leikjum norðurdeild-
ar.
Kiel-Dankersen 12-18.
Frammi fyrir 7000 áhorfend-
um í Kiel tókst Dankersen að
sýna mjög jákvæðan leik. Lið
Kiel, sem er í alvarlegri fall-
hættu, hélt í við Dankersen
fyrstu 15 min., en eftir það var
aldrei vafi á hvort liðið var
betra. Það væri virkitega
hryggilegt ef Kiel félli úr
Bundeslígunni, þvi í Kiel ríkir
mikill handboltaáhugi og þar er
alltaf skemmtilegt að Ieika.
Fyrir Dankersen skoruðu van
Oepen 5, Ölafur 3, Axel 2, Beck-
er 2, Waltke 2 Grund 2, Kramer
2. Krause skoraði mest f.vrir
Kiel eða sex mörk, þar af fimm
úr vítum.
Nettelstedt—Bremen 22-16.
Heimaliðið átti aldrei i vand-
ræðum með frekar slakt Brem-
en-lið. Staða Nettelstedt er
mjög góð í deildinni. Liðið hef-
ur unnið alla heimaleiki til
þessa og er í 3ja sæti. Hefur
sannarlega ekki brugðizt von-
um áhangenda sinna. Leik-
menn eins og Möller, Pickel,
Demirovic og Glaubert eru
hverju liði hættulegir. Liibking
skoraði mest í leiknum, sjö
mörk gegn Nettelstedt og var
enn einu sinni í aðalhlutverki í
sínu liði. Hjá Nettelstedt skor-
uðu Pickel og Möller 4 mörk
hvor.
Gummersbach lék í Essen og
■vann 26-16 án Deckarm.
Schlageck skoraði mest, sjö
mörk. Derschlag vann Welling-
hofen heima 11-10 í baráttuleik
helgarinnar. Stórskyttan Ufer
og Júgóslavinn Lavrnic voru
aðalmenn Derschlag ásamt
markverðinum Hamann, sem
varði stórvel, en Derschlag
tókst ekki að hrista Wellinghof-
en af sér. Til þess var mark-
varzla landsliðsmannsins
Dauer of góð. Efsta liðið Rhein-
hausen sýndi að þessu sinni
slakan leik, en vann Berlín þó
20-16.
Staðan í deildunum er nú
þessi: Norðurdeild
Rheinhausen 8 7 0 1 148:118 14
Dankersen 9 7 0 2 177:143 14
Nettelstodt 9 6 12 179:140 13
Gummersbach 9 6 0 3 187:147 12
Derschlag 9 5 0 4 147:141 10
Wellingh. 9 4 2 3 128:125 10
Grambko 9 3 15 135:157 7
Kiel 8 3 0 5 122:126 6
Rein. Fuchse 9 10 8 127:175 2
Essen 9 0 0 9 135:213 0
Suðurdeild
Grosswallst. 9 6 2 1 118:101 14
Huttenberg 9 6 12 133:119 13
Hofweier 9 5 2 2 139:137 12
Diotzenb. 9 5 13 141:133 11
Göppingen 9 4 14 133:129 9
Milbertsh. 8 3 2 3 92:98 8
Rintheim 9 4 0 5 143:139 8
Wiesbaden 9 13 5 127:142 5
Ossweil 8 12 5 115:126 4
Leutersh. 9 12 6 119:136 4
Kveðja
Axel Axelsson og Ólafur H.
Jónsson.
Ólafur H.
Jónsson
Handboltapunktar
frá V-Þýzkalandi
%
Axo!
Axelsson
Finnsku
þjóðlagasöngvararnir
PIA—GUNN ANCKAR og BÖRJE LANG syngja finnsk
klassísk lög og finnsk þjóðlög, við undirleik Carls Billich,
kl. 16:00 sunnudaginn 5. desember nk. i samkomusal
Norræna hússins.
Aðgöngumiðar við innganginn.
Verið velkomin
NORRÆNA
HÚSIÐ
Auglýsing
Staða framkvæmdastjóra Sölu
varnarlióseigna er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfs-
manna ríkisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf sendist utan-
ríkisráðuneytinu fyrir 30. desember
1976.
Utanríkisráðuneytið,
2. desember 1976.
0RKA
SuðuHandsbraut 12 — Sfmi 84488
Landsins mesta
lampaúrval
Póstsendum um aitt land
HVER MADUR SINN SMEKK
k. EKTA LEÐURSKÓR
Póstsendum