Dagblaðið - 08.02.1977, Síða 1

Dagblaðið - 08.02.1977, Síða 1
frjálst, oháð dagblað RÍTSTJÖRN SÍÐUMÚLA 12, SÍMI 83322. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOLTI 2, SÍMI 27022. Niðurstaða úttektar iðnaðarráðuneytisins: GRÆNT UÓS A KRÖFLU Grænt ljós hefur verið gefió á áframhaldandi framkvæmdir viö Kröflu meó þeim fram- kvæmdahraða sem veriö hefur. Þetta varð niðurstaða úttektar iðnaðarráðuneytisins. Páll Flygering, ráðuneytisstjóri iðnaðarráðuneytisins. sagði í morgun, að skilja mætti niður- stöðurnar þannig, að gefið væri grænt ljós. í skýrslunni eru ekki gerðar neinar tillögur um breytingar, að sögn Páls Flygering. Þannig er frantkvæmdahraði ekki gagnrýndur. Páll sagði að skýrslan fjallaði um hvernig verkið stendur. Þar kæmi ekk- ert fram sem kæmi mönnum á óvart. Skýrslan mun væntan- lega lögð fyrir ríkisstjórnina í dag. Að sögn Guðmundar Pálma- Sonar jarðeðlisfræðings í Orku- stofnun í morgun er skýrslan á ábyrgð iðnaðarráðuneytisins, þótt samstarf hafi verið haft við Orkustofnun og aðra sem að þessu standa. -HH --------- ^ 3. ARG. — ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRUAR 1977. — 32. TBL. LÆKJARTORGI Mannlifinu á l.ækjartorgi fer ekki hnignandi þrátt fyrir að torgið se ekki lengur sá miðpunktur í borginni sem það eitt sinn var. í góðvtðrinu gefst gott ráðrúm til að hreinsa glugga, húsmóðirin vinstra megin á myndinni gefur sér tíma til að skoða listaverk í Klausturhólum, ungur maður skoðar útsölugóssið i Bonaparte, rukkarinn lengst til hægri heldur sinu striki og mótor- hjólakappinn tekur sér smá hvíld. G.S./DBm.vnd: Bjarnleifur. MANNLÍFIÐ Á Sigurður RE slær nýtt íslandsmet „Siðasta soiarnring komu 37 skip með 13000 tonn en frá miðnætti hafa 5 skip tilkynnt sig til viðbótar með 2150 t," sagði Andrés Finnbogason í samtali við DB. Sigurður RE var á leið til Vestmannaeyja með 1300 tonn, en það er stærsti farmur sem loðnuskip hefur komið með til lands. Fyrra metið átti Sigurður einnig en það var 1100 tonn. Veiðiveður hefur verið gott á miðunum sl. sólarhring og eru því nær öil skipin á leið til lands eða bíða eftir löndun. Nú er landað allt frá Siglufirði, á Austfjarðarhöfnum og til Vest- mannaeyja. Aflahæstu skipin eru þessi: Sigurður RE 7200 tonn, Gtrðmundur RE 7045, Börkur frá Neskaupsstað 6640 tonn, Gísli Arni 6450 tonn og Grind- víkingur með 6450 tonn. -KP. Skömmu eftir áramótin kom Sigurður RE með 1100 tonn til Eyja, sem var metfarmur þá, og tók Ragnar Sigurðsson þá þessa mynd. Skipstjórinn sagði í viðtali við DB að skipið bæri a.m.k. 200 tonn í viðbót, sem nú er komið á daginn. Hlaupið í Skaftá fer enn vaxandi Hlaupið í Skaftá fór vaxandi í nótt og virtist enn vera að aukast í morgun, að sögn Böðvars Kristjánssonar í Skaftárdal á Síðu en hann er gæziumaður vatnamælinga þar eystra. „Mælirinn er orðinn óvirkur. stíflaðist af leðju og drullu þegar vatnið fór upp fyrir þrjá metra,“ sagði Böðvar í samtali við DB i morgun. „Vatnið hefur hækkað um það bil um metra hér við brúna og á meðan erum við alveg lokuð inni hér í Skaftár- dal.“ Böðvar sagðist ekki geta gert sér grein fyrir því hvort hlaupið hefði náð hámarki eða myndi gera það í dag. „Vatnið hefur oft verið meira í hlaupum," sagði Böðvar, ,,en það virðist óneitanlega vera mikið núna, enda var vatn í ánni með alminnsta móti áður en hlaupið hófst.“ Skaftá var að mestu undir þykkum ís þegar hlaupið hófst í fyrrakvöld og stíflast hún nú af jakahröngli og sprengir af sér með töluverðum gauragangi á víxl. -OV. Nikkan virðist sí- fellt vinsæl — sjábls.4 Enn göngum við fyrir erlenda bankastjóra: 18 þúsund krónur á mannsbarn — bls. 5 Norrænt sjónvarp — beint inn á íslenzkheimili bls.9 Skattafrum- varpið ekki lög- festáþessu þingi — Jdn Skaftason, alþingismaður-- - bls. 8 Beittu Bretar pynting- um? — sjá erl.fréttir bls.6-7

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.